Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 3

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 3
HEFUR KARL BRETAPRINS SNÚIÐ BAKIVIÐ LAXINUM? - Vopnfirðingar sakna kóngafólksins Egilsstaðir: ÞJÓNUSTA VIÐ FERÐAFÓLK Vopnafjörður og sveitimar þcir í kring er einkar áhugaverður ferðamannastaður. Þó verður að segjast eins og er að staðurinn er talsvert úr alfaraleið ef svo má segja. Frá þjóðvegi númer eitt er langur spölur niður til Vopnafjarð- ar, þó halda margir þangað. Einnig eru tcdsvert margir sem skoða sig um á Melrakkasléttu og á Langa- nesi og aka síðan Stindvíku'heiði til Vopnafjarðar og skoða sig um þar. Frá Vopnafirði er hægt að aka yfir Hellisheiði hina eystri, talsvert mikinn og erfiðan rall-veg, en und- urfagra leið. Þessi leið er ekki alltaf opin, helst í júlí og ágúst og betra að afla sér upplýsinga áður en lagt er á heiðina. Komið er niður í Jök- Þegar haldið er yfir Möðrudals- öræfin stefna víst flestir á Hérað sem áfangastað, - og þá helst af öllu Hallormsstaðaskóg, nánar til tekið Atlavík, sem margir telja öðru fremur paradís á landi hér og þurfa menn þá sannarlega ekki að vera Austfirðingar til að hafa þá skoðun. En lítum aðeins á akveginn frá ulsárhlíð og ekið sem leið liggur inn dalinn til Egiisstaða og Héraðs. Leið sem óhætt er að mæla með, svo fremi að hún sé opin. Á Vopnafirði er lítið en huggu- legt hótel, sem þau Bjarni Magnús- son og kona hans Svava Víglunds- dóttir reka, Hótel Tangi. Furðu margt hefur verið gert til að laða að ferðafólkið og tekist betur en þeir bjartsýnustu þorðu að vona. Þama er í nágrenninu hin konunglega laxveiðiá, Hofsá, auk þess sem blankir menn geta stundað sjó- stangaveiði. Hægt er að leigja sér hesta og fara um skemmtilegar slóðir ríðandi, - eða þá á postul- unum tveimur, ef vill. Að okkar mati er Vopnafjörður einkcir viðfelldinn staður og góður heim að sækja. Mývatni til austurs. Þegar komið er á Biskupsháls em menn komnir í Austfirðingafjórðung. Aksturinn til Egilsstaða tekur nálægt þrem tím- um, - hálftími í viðbót og fólk er komið í skóginn góða. Á Möðrudalsöræfum og á Jökul- dcdsheiði mun vera möguleiki á veiði í vötnum. Rétt að spyrjast fyrir um þetta hjá bændum. Það em ekki margir staðir á landinu þar sem þjónusta við ferðafólk er stærsti einstaki liður- inn í atvinnulífinu. Þannig háttar þó til á Egilsstöðum, nær 1300 manna kauptúni, þar sem ferða- maðurinn finnur sig sérlega velkom- inn. Þar er nánast allt sem ferða- fólkið þarfnast. Hótel er í Valaskjálf, - og Ásdís Sveinsdóttir rekur alltaf eitthvert sérstæðasta og skemmtilegasta hótel landsins á Egilsstaðabúinu. Valaskjálf fékk reyndar á baukinn á dögunum, þegar verðlagsstjóri gerði könnun á verði veitinga vítt og breitt um landið, en þar er þó hægt að fá ágæta þjónustu í mat og drykk, og gistiaðstaðan splunkuný. Valaskjálf hýsir einnig fólk í húsi Menntaskólans á staðnum. Matsölustaðir eru víðar, t.d. við Lagarfljótsbrú hjá Sigurði Grétcu-s- syni, og einhvem bita er hægt að fá á flugvallarkaffinu hans Þráins Jónssonar, og gott kcdfi. Þá er kaupfélagið með matsölu og Skelj- ungur er að byggja nýjan matsölu- stað. Bílaleigur starfa á Egilsstöðum af miklum þrótti og flugvöllurinn er oft eins og einhver vasaútgáfa af alþjóðaflugvelli, því þar er einatt mikið um að vera, flogið til og frá Reykjavík 17 sinnum í viku í það minnsta, auk þess sem Flugfélag Austurlands er stöðugt á ferðinni milli fjcirða. Eins og áliugasamir menn um veðurfréttir þekkja, þá er hitastig að sumri oft og einatt hátt á Ey- vindará, en það er veðurathugun- arstaðurinn fyrir Héraðið. Þcuna er sumablíða með eindæmum mikil. Stmnkallað ferðamannakauptún státar að sjálfsögðu af aivöru ferðciskrifstofu, Ferðamiðstöð Austurlands. Þar geta ferðamenn fengið allar upplýsingar, auk þess sem hægt er að kaupa spennandi hestaferðir í eyðibyggðir í fjórð- ungnum. Fararstjóri í ferðunum er Anton Antonsson, forstöðumaður Ferðamiðstöðvarinncir, franskur maður að uppruna, en íslenskari en cdlt það sem íslenskt getur tal- ist. Þessar ferðir eru reyndar aðeins fyrir þá sem ekki kalla allt ömmu sína í ferðamennskunni. Meðcd viðkomustaða í hesta- ferðunum er Loðmundarfjörður, fallegur dalur, sem nú er í eyði, en var blómleg byggð til skamms tíma. Frá Egilsstöðum ferðcist menn gjaman um nágrennið, t.d. inn að Eiðum, en þar er Edda með hótel á sumrum, að maður tali ekki um Hallormsstað og Atlavik, en þar er fegurð og friður í ómælanlegu magni. FRÁ MÝVATNI YFIR (ATLAVÍK - og stönginni dýft í vatn á Möðrudalsöræfum eða Jökuldalsheiði ÞJÓÐBRAUT HELGARPÓSTURINN 3

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.