Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 15
If I Landmannalaugar: BAÐAÐí HEITA LÆKNUM - sem er öllu þrifalegri en sá í Nauthólsvíkinni Um Landmannalaugar liggur Fjallabaksleið nyrðri, mjög falleg leið með skemmtilegu sjónarspili eins og Eldgjá og Ofærufossum, sem enginn ætti að láta undir höf- uð leggjast að skoða vel. Af hringvegi er ekið upp landið við Kúðafljót og liggur 84 km végur (jeppavegur) að Sigöldu. Eldgjáin er um 40 km löng sprunga, norðurhlutinn þykir einna stórbrotnastur, víða 600 metra víð og 200 metra djúp. Á Ófærufossi er steinbrú ein mikil frá náttúrunnar hendi. Því miður hef- ur ferðamennskan sett leiðan svip á þennan steinboga. Á þessari leið er Herðubreið hin syðri, talin í hópi friðustu fjalla okkar, mjög gott til útsýnis. Og þá er e.t.v. komið að perlunni á þessari leið, Landmannalaugum. Orð fá vart lýst þessum sérkenni- lega stað. Þama eiga menn góða daga og nætur. Ferðafélag íslands á þíima skála, en menn tjalda í nánd lækjarins sem kyndist af heit- um og köldum uppsprettum sem spretta fram undan hrauninu. i læknum baða menn sig í ró og friði, fara í gönguferðir um nágrennið. Virkilega huggulegt, enda lækur- inn og umhverfi hans öllu þrifa- legra en heiti iækurinn, sem frægur er í Nauthólsvík í Reykjavík. FERÐIST ÓDÝRT FERÐIST MEÐ ÁÆTLUNARBÍLUM Hringmiði er einn allra ódýrasti ferðamáti til ferðalaga hér innanlands sem völ er á. Hægt er að ferðast hringveginn um ísland á eins löngum tíma og með eins mörgum viðkomustöðum og hugurinn girnist. Tímamiði er annar möguleiki til ódýrra ferðalaga hér innanlands. Hægt er að ferðast ótakmarkað með öllum áætlunarbílum á íslandi innan þeirra tímatakmarka, sem valið er (1,2, 3 eða 4 vikur). Miðar þessir gefa einnig verulegan afslátt í ýmsar skoðunarferðir sérleyfishafa um land allt, svefnpokagistingu á Eddu hótelum, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum svo og fargjöldum með ferjum. ALLAR UPPLÝSINGAR VEITIR: FERÐASKRIFSTOFA BSÍ UMFERÐAMIÐSTÖÐINNI v/HRINGBRAUT -REYKJAVIK-SÍMI91-22300 f------------------------s Áfangi í þjóöbraut Við höfum opnað Þjónustustöð á Egilsstöðum Skeljungur h.f. Einkaumboð fyrir SHELL vorurá Islandi lJ HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.