Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 22
SAUTJÁN TONN AF PAPPÍR MEÐ PÓSTINUM - Stendur þú fyrir því, Einar Þor- steinsson, að fylia alla p>óstkassa iandsins af pappír þessa dagana? irIú, það mun rétt vera. Ég er búinn að senda frá mér ferðablað- ið LAND, eitthvað um 70 þúsund blöð, 17 tonn af pappír, sem póst- urinn hefur dreift inn á hvert heimili í landinu, hvem einasta póstkassa og bréfarifu, sem þetta ágæta kerfi hefur vitneskju um.“ - Þú ert þá væntanlega maður loðinn um lófann á eftir? ,3etra að satt væri. En málið er það að ég er núna að flytja heim til Islands, hef verið búsettur í Sví- þjóð um 8 ára skeið, stcirfaði þar m.a. að útgáfu ferðamannabækl- inga og korta. Fyrstu verkefnin hér gera ekki meira en að borga mér lítil laun, hvað sem verður í fram- tíðinni." - Hver eru hin verkefnin á þessu sviði? ,3g gaf út landakort af íslandi snemma á þessu ári, 200 þúsund eintök, sem ferðamenn fá afhent ókeypis víða um landið. Þetta var mín frumraun. Þá kom ferðablaðið LAND, 64 síður í 80 þúsund eintök- um, sem öll eru komin í dreifingu fyrirnokkru. Núna vinn ég að gerð Útgáfa á bæklingum og upplýsingum hverskonar til ferðamanna virðist mjög öflug um þessar mundir. Einn þeirra manna sem haslað hafa sér völl á þessi sviði á þessu ári er Einar Þorsteinsson og fyrirtæki hans E. Thorsteinsson h.f. gatnakorts af Reykjavík og ná- grannabæjunum. Mér sýnist að þessi kort hafi ekki verið til og því mikil þörf fyrir þau.. - Einhvers staðar kom á prenti að þú hefðir látið brenna 9 þúsund Fjölskyldufólk kemst nú í ódýrt og þægilegt ferðalag innanlands Nú þarf forsvarsmaður að greiða fullt fargjald, en maki og börn á aldrinum 12—20 ára að greiða 50% af fargjaldi fuilorðinna og 2—11 ára börn aðeins 25%. Þetta gildir að sjálfsögðu líka þegar annað foreldrið ferðast með eitt barn sitt eða fleiri. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi NJÓTIÐ GÓÐfifi VélTINGfi OG MfifiGS KONfifi ÞJÓNUSTU R staðnum er. svGÍnpokopláss sundlaug gufuboð félQgshcimili póst- og símstöð og fleira. VQrið vQlkomin. Opiðfrákl. 8.00-23.30. Hótel Vormohlíð Skogofirði. Símar: 95-6170 og 6130. landakort á öskuhaugunum. Ertu haidinn skemmdarfýsn? ,NJei, nei, nei, því fer fjéirri. Málið var það að prentsmiðjan afgreiddi 209 þúsund kort hingað, en samn- ingurinn við Landmælingar ís- lands og samgönguráðuneytið hljóðaði upp á 200 þúsund. Ég taldi mig ekki geta hlunnfarið þessa ágætu samstarfsaðila og því fór sem fór. Það var auðvitað sár- grætilegt að skemma þessi góðu kort, sem hefðu getað orðið til mikillar landkynningar erlendis og kannski aflað okkur nokkurra ferðamanna þaðéui." - Þú hefur greinilega trú á ís- lenskum ferðamálamarkaði? ,Já, ég hef það, og þess vegna vil ég hasla mér völl á þessu sviði. Ég tel að því meira sem gefið er út af góðum upplýsingum, þeim mun meiri verði ferðamannastraumur- inn, bæði af erlendum og ekki síst innlendum ferðamönnum, og síð- arnefndi hópurinn er að sjálfsögðu stór markaður, sem ferðamála- menn hafa e.t.v. ekki sinnt nægi- lega til þessa.“ Ný ferðaskrifstofa MIÐNÆTURSÓL: MEIRA GENGIÐ MINNA EKIÐ „Ég álít að þeir sem selja ferðir hingað til lands séu um of að berj- ast um sama fólkið á erlendri grund. Við höfum frammi fyrir okk- ur markað upp á tugi og hundruð milljóna fólks, þannig að þessi bar- átta og undirboð ættu að vera óþörf. Eg tel að það eigi að vera dýrt að fá að skoða ísland fyrir út- lendinga, nokkurs koncir status- merki. Landið þolir hvort eð er ekki nema takmarkaðan átroðning, þ.e.a.s. hádendið", segir Steinþór Ólafsson sem stofnað hefur Ferða- skrifstofuna MIÐNÆTURSÓL að Laugavegi 66 í Reykjavík. Steinþór segir að hið háa verð muni ekki aftra útlendingum að sækja hingað, kannski þvert á móti. „Þetta er álíka og með ódýru bómullcirbolina í Hagkaup, - fólk virðist ekkert síður kaupa þá í mið- bænum þar sem þeir eru e.t.v. helmingi dýrari, og er ánægt með þau innkaup." Miðnætursól ætlar að fcira ró- lega af stað. Aðeins ein ferð verður farin í sumar, en dálítið öðru vísi en hjá öðrum skrifstofum. Lögð verður áhersla á meiri göngu en sáralitlar bílferðir. Segist Steinþór hafa orðið þess áskynja sem leið- sögumaður að fólk vildi yfirleitt hreyfa sig meira sjálft, en aka minna í bfl. Hafi hann rætt þetta mál við þá stóru í ferðamannahóp- um hér, en ekki fengið neinar und- irtektir. Gönguferð Miðnætursólar, sem hefst 20. júlí nJc.,verður því mest á 40 - 50 km hringferli, frá Heklu og austur í Eldgjá á Fjallabaksleið, norður í Veiðivötn og suður í Þórs- mörk. Fyrsta daginn er ekið um Þing- velli, komið að Geysi og Gullfossi, ekið um Þjórsárdal og að Stöng. Við Heklurætur er tjöldum slegið upp. Á öðrum degi er gengið á Heklu og hvílst á sama stað. Næst er Landmannahellir heim- sóttur, þaðan liggur leiðin daginn eftir í hinar vinsælu Landmanna- laugar og þaðan er margt skoðað með gönguferðum næstu dciga, m.a. Eldgjá og Ófærufoss. Þá er haldið í Hvanngil og Emstrur, það- an í Þórsmörk og loks að Skógum. Tólf dagar fara í ferðina, og göngu- túrarnir ekki meiri en svo að hraust fólk á auðvelt með að fylgj- ast með. Torfærubifreið fylgir hópnum og flytur mat og tjaldbúnað ferða- langanna, þannig að þeir verða léttir á göngunni, halda bara á nestispakkanum sínum. 22 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.