Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 19.07.1984, Blaðsíða 24
A L Xhugi ýmissa byggðarlaga og heilu landsfjórðunganna á ferða- máJum og aukinni þjónustu við ferðamenn er ótvíræður. Aldrei fyrr hefur annað eins verið skrifað um innlend ferðamál og nú, - og aldrei hefur annað eins af litskrúð- ugum bæklingum verið á markaði og nú. Við höfum þó fregnað að útgefendurnir standi sumir hverjir með himinháa reikninga fyrir bæklingagerðina, allt að 600 þús- und fyrir smá pésa! Það eru ljós- myndarar, hönnuðir og prentarar, sem búa til þessa reikninga, sem litla lukku vekja... n vjlæsilegasti bæklingur sum- arsins, sem HP hefur litið augum, er sá sem Suðurland gefur út. Hann er bæði greinargóður og prýddur litmyndum og góðu korti. Kópavogs-bæklingurinn er líka vel heppnaður, svo og bæklingur Reykjavíkurborgar, en í honum eru fallegar myndir... Þá eru dagsferð til Gullfoss og Geysis, um Skeið, Hreppa og Tung- ur fimmtudaginn 26. júlí og kostar sú ferð 320 krónur. Þann 31. júlí er svo skoðunarferð um Reykjavík sem kostar 150 krónur. Þetta gildir semsé fyrir þá sem eru 67 ára og eldri.... i síðasta ferðablaði var Norð- lendingum gefin einkunn, þ.e. 18. aldarmönnum þess fjórðungs. Það voru þeir landkönnuðir Eggert og Bjcuni, sem skrifuðu einhverjar skemmtilegustu og fróðlegustu ferðabækur sem til eru um landiðj sem þetta gerðu. En hvað segja þeir félagcir um Austfirðinga? ,4 hinum landsfjórðungunum telja menn Austfirðinga og einkum þó Skaftfellinga vera sérkennilega. Þeir eru menn kyrrlátir og áburð- arlitlir og tala fátt.... I stuttu máli sagt hefur mál þeirra og framburð- ur, dagfar og kurteisisvenjur, klæðaburður þeirra að sumu ieyti, ásamt ferðavenjum o.fl. valdið því, að þeir koma öðrum landsmönn- um svo undarlega fyrir sjónir....“ Er sagt að Austanmenn hafi orðið fyr- ir aðkasti á Eyrarbakka og Stokks- eyri og taldir hálfgerð flón þar um slóðir, en almennt tcdað fá aust- firskir bændur þetta í ferðabók- inni: „Yfirieitt góðir bændur, hreinlátir og forsjálir...“ E 1 Jn Sunnlendingar, sem fóru svo illa með Austfirðinga sem komu í kaupstað.fá þetta: „Álftnes- ingar, eða þeir, sem búa í kringum Bessastaði, þykja ógerðarfólk. Þó eru þeir það ekki allir. Bændumir í kringum Skálholt eru taldir og meðcil hinna alira lökustu. Þó eru þeir ekki eins spilltir og þeir eru vesælir ög ósiðaðir. Annars er það algengt sunnanlands að þeir sem næstir búa kaupstöðum, þcir sem erlend skip koma, eru taldir mest úrkynjaðir og dugminnstir, og or- sökin er sú að þeir læra fleira illt en gott af verslunarmönnum... " ....Hringvegaraksturinn kostar bíl- eigandann um 3000 krónur miðað við meðalbíl, þ.e. bensínið eitt. Þá eru ýmis útgjöld í kringum bifreið- ina ótalin. Það er ekki að undra þótt rikinu sé umhugað um að menn ferðist innanlcinds, - af þess- um þrjúþúsundkalli tekur ríkið í sinn hiut 2000 krónur. Arabinn, sem upphaflega selur eldsneytið, fær sáraJítið í sinn hlut... Dýrin kunna ekki umferðarreglur. Þess vegna þarf að sýnaaðgæslu í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar- reglur og ríða hægra megin og sýna bílstjórum sams konar viömót og þei, ætlast til a. þeitn. mÉUMFERÐAR Uráð ríkisins stendur sig með sóma, enda þótt talað sé um mikla óáran í peningamálum. Bundið slitlag eykst á hverju sumri, og þetta sumar verður eng- in undantekning. Á Suðurlandi er verið að auka við bundið siitlag upp fyrir Sog, á Skeiðavegi er líka unnið, - og nú er hægt að aka á bundnu siitlagi frá Reykjavík að Skógum, mínus kaflinn frá Land- eyjum að Seljalandi, þar á að gera nýjan veg. Austan Sóiheimasands er búið að gera átak að ánni Klif- anda. Það fer að styttast í almenni- legan veg allt að Vík í Mýrdal. Við Hornafjörð hefur líka verið gert mikið í sumcir, - einir 20 km í átt til vesturs... Meira ctf þessu, Vega- gerð!!! D M-Jælt umgengni við landið er eitt af meginverkefnum í sérstöku átaki Ferðamálaráðs. Árni Gunn- arsson, fyrrum þingmaður, stýrir þessu verkefni. Rætt hefur verið við sveitcirfélög um iand allt og þau beðin að taka þátt í þessu átaki. Vonandi hefur verið talað við Reykjavíkurborg, - borgin er því miður einhver sóðalegasti blettur þessa lands. Hvers vegna er starfs- krafturinn, sem nú gengur laus og ónýttur, ekki fenginn til að taka til hendinni í höfuðborginni sjálfri? F m Jldri borgarar Reykjavíkur eiga kost á skemmtilegum ferða- lögum hjá Félagsstarfi aldraðra að Tjamargötu 11. Þegar hafa nokkrar ferðir verið farnar, en núna er framundan dagsferð til Þingvalla og Laugcirvatns þann 24. júií og kostar sú ferð aðeins 220 lú-ónur. ÞU SEM EFTIRVAGINJ Með hjólhýsi tjaldvagn eða kerru í eftirdragi þurfa ökumenn að sýna sérstaka aðgát og prúömennsku. Hugs- andi menn tengja aft- urljósabúnað bílsins í vagninn, hafa góða spegla á báðum hlið- um, og glitmerki áeftir- vagninum. UMFERÐAR RÁÐ EINANGRANDI ÚT1KLÆDNING Útiklæðningin frá Manville er einstaklega veðurþolin klæðn- ing úr náttúruefnum, sem upp- litast ekki. Klæðningin er unnin úr trefjaplötum og er yfirborð þeirra hjúpað asfaltlagi, sem í er valsað steinsalla. Hér er um að ræða einangrandi útiklæðn- ingu, sem dregur úr hitakostn- aði, er hljóðeinangrandi og al- gjörlega viðhaldslaus. Manville útiklæðningin á að baki ára- tuga reynslu víða um heim og hérlendis klæðir hún og prýðir fjölda húsa eins og sjá má á þessum Ijósmyndum. Helmingur hússins hér að ofan er klæddur. Ljósmyndun með hitamyndavél sýnir útgeisl- un og hitatap. Einangrunargildið leynir sér ekki. Stærð plötu er 110x35 sm og þykkt 14 mm. Samsetning skarast. Ásetning er einföld og fljótleg. Allar frekari upplýsingar veita sölumenn okkar fúslega. KcÉnar Skeifan 8 Reykjavík Sími 82011 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.