Helgarpósturinn - 02.08.1984, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 02.08.1984, Blaðsíða 7
m mi * fi- Reykjavtk — Hvar eru götusópararnir? BRAUD KÖKUR MJÓLK KJÖTVÓRUR BRAUDGERDIN FLATEYRI Reykjavík MÆTTI FJÖLGA í STÉTT GÖTUSÓPARANNA — en borgin er mikill ferðamannastaður og tilboðin eru ótalmörg Það verður ekki cif höfuðborg- inni skafið, — hún er mesti ferða- mannastaður landsins. Hitt er svo annað mál hvort hún á það skilið að fá svo marga ferðalanga í heim- sókn. Borgin er, eins og margir aðrir staðir á landinu, að vakna til meðvitundar um hvað þarf að gera fyrir ferðamenn. Útlendir ferðamenn láta oft þá skoðun í ljós að Reykjavík hafi valdið þeim vonbrigðum, en margt af því sem þeir sáu utan borgarinn- ar hafi hrifið þá þeim mun meira. Það sem margir finna borginni til foráttu er sú dæmafáa um- gengni sem borgararnir virðast sumir hverjir hcifa tamið sér. Svar við sóðaskapnum virðist ekki liggja á lausu cif hendi borgaryfir- valda, enda stétt götusópara greinilega alltof fámenn, hverju sem það veldur. Víða má sjá jurtimar rumex domesticus og stellaria skjóta upp kollinum á gangstéttum. Þetta eru jurtir sem í daglegu máli kallast njóli og arfi en eiga þessi fallegu latnesku nöfn. Sums staðar má sjá þess merki að ekki hefur verið sóp- að úr rennusteinum ámm saman. Ber þetta hreinsunardeildinni lítið fagurt vitni. En hættum að nöldra. Reykjavík hefur vissulega upp á margt að bjóða, enda er hún eina stórborg landsins, og þar býr meira en helmingur þjóðarinnar, í borginni eða aðliggjandi kaupstöðum. Og margt er vissulega vel gert, enda þótt segja megi að oft vanti punkt- inn yfir i-ið. íbúcimir sjálfir hafa gert mikið til að fegra í kringum sig og víst er borginni ekki alls vamað, því tals- verðu fé er veitt til umhverfisfegr- unar. Söfnin í Reykjavík em líka mörg og sum þeirra em vel þess virði að skoða. Fremst í floldd er Þjóð- minjasafnið. Listasafn íslands er til húsa á sama stað og ætti að skoð- ast. Þá er Ásgrímssafn skemmti- legt, Listasafn Einars Jónssonar og hinn nýopnaði almenningsgarður sömuleiðis. Þá er gcuncm að skoða Asmundarsafn, en þar er bókstaf- lega allt handverk þessa nýlátna og stórbrotna listamanns, bæði lista- verk og mannvirki. Annað sem gott er um Reykjavík að segja em hinir fjölbreytilegu og ótalmörgu matsölustaðir, sem opnað hafa núna allra síðustu árin. Á þessu sviði er úr miklu að moða. Almennt talað em þetta góðir mat- sölustaðir, en því miður er verðlag á matvælum á íslandi úr öllu scun- hengi. Þá er næturlífið í Reykjavík með allra fjömgasta móti eins og kunnugt er og státar borgin af stærsta og mesta samkomusal norðan Alpafjalla þar sem Broad- way er. Vissulega munu margir ferðamenn vilja skoða þann stað og skemmta sér þar á sína vísu. Þá er margt fleira að gerast í Reykjavík. Okkur dettur í hug Laugardalurinn í því efni. Þar fara fram stærstu íþróttamótin, leuids- leikir og 1. deildarleikir. Á næstu grösum er svo Laugardalslaugin, einst£ikt mannvirki að allri gerð, og raunar fær borgin stóran plús fyrir það sem gert hefur verið í upp- byggingu sundstaða. Þá er Laugar- dalshöllin með miklar aksjónir í sumar. ÞcU fer fram sýningin Heim- ilið ’84 frá 24. ágúst til 9. september og undir lok september opnar al- þjóðleg sjávarútvegssýning þar. Gistiaðstaða í Reykjavík er ágæt. Hótelin em mörg og góð. Nýjustu hótelin opnuðu núna í sumar, bæði lítil en góð, Hótel Staður í Skipholti (rétt fyrir neðan Sjó- mannaskólann) og Hótel Óðinsvé fyrir ofan Brauðbæ við Óðinstorg. Nokkuð skortir á svefnpokapláss í Reykjavík, það fæst þó hjá Farfugl- um á Laufásvegi 41. Tjaldstæði er við sundlaugina í Laugardalnum og nýta sumir islendingar það, en aðallega em þar útlendingar á ferð. Almenningsgarðar em nokkrir í Reykjavík, blómlegir mjög núna í sumar, enda tíð með afbrigðum góð samkvæmt suðvesturs-staðl- inum. Helgarboo Hótels Stykkishólms íjúlíogágúst GISTING í 2 NÆTUR M/MORGUNMAT OG SIGLING UM BREIÐAFJARÐAREYJAR FYRIR AÐEINS 1995 KRÓNUR Á MANN. Ef dvalið er lengur kostar hver nótt til viðbótar aðeins 780 krónur (morgunmatur innifalinn). Athugið öll herbergi meö sturtubaði og frjáls aðgangur að saunabaði. 6—10 manna hópar geta fengiö sinn sérstaka bát til eyjaferðarinnar undir stjórn kunnugs skipstjóra. Heimilislegt hótel — kjörið til hvíldar og hressingar. Héðan er stutt til margra skemmtilegra og fallegra staða á Snæfellsnesi. Hótel Stykkishdmur Sími: 93 8330 HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.