Helgarpósturinn - 02.08.1984, Blaðsíða 20
Þorðarhellir
í Reykjaneshyrnu á Ströndum:
ÞÓRÐUR
SAKAMAÐUR
OG
BÓNDADÓTTIRIN
í LITLU-ÁVÍK
Eggert Ólafsson segir í ferðabók
sinni, sem við höfnm oft vitnað í,
að Strandamenn séu gjamir á að
taka að sér ails kyns óþjóðalýð af
misskilinni miskunnsemi, og verði
síðan að þola af illmennum þess-
um margar skapraunir. Útilegu-
menn og sakamenn áttu því at-
hvarf lengi vel á Ströndum enda
byggðin afskekkt og langt á milli
bæja. Hinn langi armur réttvísinn-
ar átti því ekki hægt með að seilast
eftir mönnum þessum. Þá áttu
Strandamenn það til að makka við
erlenda kaupmenn á laun, og þá
sáu sakamenn sér leik á borði að
„komast í þjóðir" sem kallað var;
sleppa til útlanda með farskipum
þessum.
En víkjum að Þórðarhelli
skcunmt frá Litlu-Ávík, í Reykjanes-
hyrnu svonefndri. Þar er að finna
helli þennan og hefur Símon Jóh.
Ágústsson prófessor ritað um
þetta gamla útilegumannabæli,
sem á sér merka sögu.
Hellirinn er á háu hamrabeiti og
þaðan er grjótskriða ein brött 20 -
30 metra niður að sjó. Þama er allt
fullt cif skerjum og boðum og ekki
lendandi á báti og á landi er aðeins
ein fær leið, þ.e. undir Hyrnunni,
og er þó ógreiðfær. Þama er því
hentugur felustaður, en reki nógur
til eldiviðar, vatn seytlar undcin
berginu rétt við hellinn og ágæt
fiskimið skammt undem landi.
Símon Jóhannes telur að heilir-
inn hafi fengið nafn af Þórði nokkr-
um sakamanni, eldri sagnir sögðu
hann nefndan eftir galdramanni
með sama nafni, sem brenndur var
1654 í Trékyllisvík.
Þarna í hellinum hafðist Þórður
sakamaður við án þes að margir
vissu. Bóndadóttir frá Minni-Ávík
komst þó í náin kynni við Þórð.
Hitti hún hann þegar hún var við
smalamennsku og tókust með
þeim ástir. Kom svo högum bónda-
dóttur að hún varð þunguð af völd-
um Þórðar. Hvarf hún nú að heim-
an, sumir segja að Þórður hafi
numið hana brott, og settist að í
helli Þórðar. Átti hún þar dóttur,
segir sagan.
Hvarf bóndadóttur þótti undar-
legt í meira lagi, en ekki vissi fólkið
á bænum um hellinn eða tilvist
sakamannsins þar. Ekki fyrr en
maður einn frá Reykjanesi gaf í
skyn að bóndadóttur gæti verið að
finna í hellinum. Fór bóndi ásamt
nokkrum mönnum til hellisins. Var
Þórður þá að koma af sjó og gerði
að fiski í fjörunni. Varð þama bar-
dagi allsnarpur. Komst Þórður upp
á klettasyllu í Hyrnunni og varðist
meðgrjótkasti.Segirsagan aðþrír
menn hafi slasast og einn látið lífið.
Bóndadóttur og barnið fengu
mennirnir með sér heim að Litlu-
Ávík, - en um afdrif Þórðar er ekki
vitað, né heldur hvaðan hann kom
til Stranda. Þó segja munnmæli að
hann hafi verið austfirskur og hafi
hlotið dóm fyrir að eiga bam með
systur sinni.
Saga þessi mun hafa átt sér stað
um aldamótin 1600 til 1700.
ÓDÝRT
AÐ GISTA HJÁ
FARFUGLUNUM
Ef þú hefur í huga að ferðast á
sem ódýrastan hátt um landið, er
tilvalið að nota þjónustu farfugla-
heimilanna.
Heimilin em fjórtán, víðsvegar
um land. Ef ferðalagið hefur verið
skipulagt með fyrirvara er ágætt að
panta gistingu en oftast er hægt að
komast að fyrirvaralaust. Á flestum
farfuglaheimilum em herbergi sjö
til tíu manna og eru sér kvenna og
karla herbergi. Á öllum heimilum
eru eldhús sem ferðamennirnir
geta notfært sér. Gisting eina nótt
kostar kr. 160.
Farfuglarnir gera fleira en að
reka gistihús. Ferðaþjónusta Far-
fugla hefur starfað í fjóra áratugi.
Hún skipuleggur bæði helgarferðir
og lengri ferðir.