Alþýðublaðið - 06.04.1927, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 06.04.1927, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ j Nýkomlð 1 nærfaíMður kvenna og baraa mikið úrvai IGolííreylur með háum _ kraga sérlega fallegar | Ilattbildur Bjðrnsdóttir, s Laugavegi 23. Ágústsclóttir syngur, og fleira verður þar til skemtunar. Félags- konur mega taka með sér gesti. Þenna dag árið 1909 komst Ameríkumað- urinn Robert Peary á norðurheim- skautið. „í|iökuu~fundur verður í kvöld. Bak við Reykvíkinga reynir „Mgbl.“ að skjóta sér með gasprið í landhelgisgæzlu- málinu, en af reynslu um hollustu „Mgbl.“ við þorra Reykvíkinga, álþýðuna í kaupdeilum o. fl„ vita Reykvíkingar, að blaðinu er að eins ant um, að ekkert komist upp um íhaldið; það veit, að veikt er fyrir. Tiðarfar á Eyrarbakka. Sérstök ótíð hefir verið hér til sjávarins, en gnægð, fiskjar er, ef til hans næst. T. d. fengust 800—900 í einni trossu nýlega, en vegna gæftaieysis hefir lítið afi- ast. (FB-skeyti frá Eyrarbakka í dag.) Togaramir. „Baldur" kom af veiðum í gær með 85 tunnur lifrar, „Karisefni" í gærkveldi með 46 tunnur og „Draupnir" í morgun með 57 tn. „Maí“ kom í gærkveldi með mennina, sem slösuðust. Einnig kom enskur togari, eitthvað bil- aður. Skipafréttir. „Fylla“ kom hingað i gær og liggur á ytri höfninni. Fisktöku- skip kom að norðan í gærkveldi og í morgun kom saltskip tii Bernharöar Petersens. Margar færeyskar skútur liggja hér nú. Nýja Bíó sýnir eina ágætismyndina enn. Er það þjóðsagan af galdramann- inum Jóhanni Faust, sem líka er kunn úr okkar þjóðsögum. Er myndleikurinn bæði fallegur, fróö- legur og skinandi vel leikinn. Heilsufarsfréttir. (Símtal í morgun við landhekn- inn.) S. I. viku veiktust um 200 manns af , kikhósta" hár i Reykja- vík, og 4 sjúklingar dóu. Hér er mikið um kvef og yfirlsitt krank- felt, þó ekki aðrar farsóttir. Ann- ars staðar um Suðurland breiðist . „kikhóstinn" út, en er alls stað- ar vægari enn þá, heldur en hann er nú hér í borginni. Hann er og kominn i tvö héruö á Vestur- landi, IsafjöTð og Patreksfjörð, en er vægur. Að öðru leyti er. gott heilsufar á Suðurlandi, utan Reykjavíkux, og á Vesturlandi. Á Norðurlandi breiddist „kíkhóstinn“ ekki út frekar s. 1. viku, nema á Akureyri. Þar hafa og tveir menn fengið taugaveiki, en læknir þar telur mjög ólíklegt, að nokkur slíkur faraldur sé í aðsigi. Ófrétt af Austurlandi. Fyrirlestur heldur Helgi Hallgrímsson í kvöld ki. 71/2 í Nýja Bíó að til- hlutun verzlunarmannafélagsins „Merkúrs". Föstuguðsþjönustur í kvöld: í dómkirkjunni kl. 6 Sigurbjörn Á Gíslason guðfræð- ingur. 1 fríkirkjunni kl. 8 séra Árni Sigurðsson. Hróarstungulæknishérað hefir verið veitt Ara Jónssyni lækni. Veðrið. Hiti mestur 5 stig, minstur 1 stigs frost. Austlæg átt. Rok í Vestmannaeyjum, hvassviðri hér og alíhvast sums staðar víðar. Víðast þurt veður. Djúp loftvæg- islægð við Suðurland. Útlitið svip- að. Mun þó hægja veðrið að nokkru hér á Suðvesturlandi í nótt. Jafnaðarmannafélagið (gamla). Fundur þess er í kvöld kl. 81 j í Kaupþingssalnum. Hjúskapur. i fyrra dag voru gefin saman í hjónaband af séra Friðrik Hall- grímssyni ungfrú Sigríður Jóns- dóttir frá Stykkishólmi og Bald- vin Helgason, Sellandsstíg 30. Qengi erlendra mynta í dag: Sterlingspund........kr. 22,15 100 kr. danskar .... — 121 70 100 kr. sænskar .... — 122,25 100 kr. norskar .... — 118,72 Doliar .......— 4,56- 4 100 frankar franskir. . . — 18,07 100 gyllini hollenzk . . — 182,86 100 gullmörk þýzk... — 108,19 Blaðið var þvi miður hokkuð síðbúið í gær. Það olli, að fréttin af Hnífsclals-hneykslinu konr rétt áð- ur en þrentun. skyldi hefja, en ekki þótti rétt að láta þá regin- frétt bíða dagsins í dag. Fæðið á Kleppi. Dagfæðið á Kleppi er í fjár- lögum þessa árs ákveðið kr. 1,45, en nú hefir verið samþykt 5‘ aura lækkun að ári. Þórarinn hefir vís- að á stjórnina. Hennar sé fimtn- ‘aura-lækkunin, í frv. hafi að eins iáðst að breyta tölunni, kalfað prentvitla. Með þessum rökstuðn- ingi er henni svo breytt í kr. 1,40. í stað klafanna í bréfi Jónasar SSrJiici&gr er „MjalIar4‘"dropmn. . UÉSípeiðið AlþýðuMaðsð! Verzlid víö Vikcir! Þad oerdur notadrýgst. Hallgrímssonar, sem voru asna- kjálkar, notaði Þórarinn að þessu sinni aíglöp stjórnarinnar sinnar sér til afsökunar á dómsdegi. Af- sökunin er þó lítils virði, því að sjálfsögðu á fjárveitinganefndin að hafa vit fyrir sér, en á ekki að gerast afglapaskrína stjórnarinn- ar, þp að hún fái tilmæli um það. »Dýraverndarmn« hefir stækkað i broti, og er 2. biað hans nýkomið út. Flytur það m. a. mynd af dýravininum og skáldinu Jóhanni Magnúsi Bjarna- syni, höfundi „Eiríks Hanssonar“, „Brazilíufaranna“ 0. fl. Verkhi sýna merkin. 1 gær tókst Birni Halidórssyni leynivínra'a að laumast inn í neðri deild alþingis, á meðan á þing- fundi stc)ð. Vildi hann fá orðið hjá forseta og hóf upp eitthvert ölvimurugl, en Jögreglan kom bráðlega og leiridi hann burtu. Áður hafði honum þó unnist timi ti.1 að sýna þingmönnum lifandi mynd af því, hvernig alþingi hef- ir gengið frá bannlögunuin. Hitt er á þeirra færi að bæta um þau, ef viljinn er til þess. Uerziiinarfloti Norðiirianda. Norski verzlúnarfJotinn vex', en danski og sænski flotinn nrinkar. Norski flotinn var um áramót 2 769 000 smálestir (,,brúttó“) og hefir aukist á árinu um 86 þús. smáiestir, en tala skipa er óbreytt. Olíuvélaskipaflotinn hefir aukist um 135 þús. smál., en gufuskipa- flotinn minkaö nm 40 þús. smál. Seglskipaflotinn heíir minkað um 9 þús. smál. Það er auðséð, að ol- ían er að útrýma kolabrensluskip- ununi. Sænski verzlunarflotinn hefir minkað á árinu 1926 um 20 fíírs. smál. og var 1. jan. 1927 1 347 000 smálestir. Dariski \erziunarflotinn hefir rninkað um 5 þús. smálestir og var 1. jan. 1927 1 077 000 smál. Hjarta-ás smjerlikið er bezt. Ásgarður. Regnfakkar og Regnhlífar MýkoiMlH 1 Verzl. Alfa. wr Ný bók Vigslimeitun biskupsius eSíiir Lúðvíg @nðmundsson studí. theol. — Fæst £ foóka* búðum. Þessar bækur fást í afgreiðslu Alþýðublaðsins: Rök jafnaðarstefnunnar, bezta bók ársins 1926. Bylting og íhald, úr „Bréfi til Láru“. „Deilt um jafnaðarstefnuna“ eft- ir Upton Sinclair og kunnan í- haldsmann. Byltingin í Rússlandi, fróðleg og skemtileg frásögn. Kómmúnista-ávarpið eftir Marx og Engels. „Höfuðóvinurinn“ eftir Dan Grif- fiths. , Húsið við Norðurá, spennandi leynilögreglusaga, íslenzk. Mjólk fæst ailan daginn í Al- þýðubrauðgerðinni. Sokkar — Sokkar — Sokkar frá prjónastofunni Malin eru ís- lenzkir, endingarbeztir, hlýjastir. Veggmyndir, fallegar og ódýr- ar, Freyjugötu 11. Innrömmun á sama stað. Sykur. og fleiri matvörar með gjaíverði í Vöggur, sími 1403. "Jafna'ðarmannafélagsfundurinn er kl. 8',4'í kýöld í Kaupþings- salnum. Harðfiskur, riklingur, smjör, tólg, ostúr, saltkjöt; alt bezt og ódýrast í Kaupfélaginu. Rttstjórl og ábyrgðar»aður HslIbjðrB Halldórssoa. Aiþýöuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.