Helgarpósturinn - 25.10.1984, Page 7

Helgarpósturinn - 25.10.1984, Page 7
METORÐASTIGAR ST JÓRNMÁLA FLOKKANNA HVERNIG VERDA MENN ALITLEGIR I ÍSLENSKRI PÓLITÍK? MED HVAÐA HÆTTI KOMAST MENN TIL ÁHRIFA í FLOKKUNUM? HVAR LIGGUR LEIÐIN Á TOPPINN? OG HVERNIG ER HÚN AD BREYTAST? eftir Hallgrím Thorsteinsson og Sigmund Erni Rúnarsson mynd Jim Smart Fyrir ári sagði Ellert B. Schram ritstjóri DV og þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Yfirheyrslu við Helgarpóstinn: „Mér sýnist því miður, að það sé vænlegast til árangurs í flokknum að vera þægur og vera í náðinni." Þetta sagði Ellert þegar hann hafði fengið sig fullsaddan á flokksmaskínu Sjálfstæðisflokksins í fyrrahaust. Honum fannst hann hafa verið settur hjá í metorðastiga flokksins, ekki hlotið þá umbun sem honum fannst hann eiga skilið. Klifur hans hafði ekki skilað honum áfram upp þennan stiga. Hvaða stigi er þetta? Og í hverju felst þessi þægð sem Ellert talaði um? Jú, svo virðist að innan hins hefðbundna íslenska flokkskerfis þurfi leið stjórnmálamanna til metorða að fylgja ákveðnum formúlum sem eru nánast eins og óskrifuð lög innan hvers flokks. íslensku stjórnmálaflokkarnir hafa grafið sér ákveðna farvegi í þjóðlífið og það er eftir þessum farvegum sern flokkarnir gera liðsmönnum sínum að renna sitt pólitíska skeið til áhrifa. bessi flokkshollusta felst meðal annars í því að gera sig gildandi á sem flestum af þeim fjölmörgu valdareitum sem hver flokkur hefur markað sér í þjóðfélaginu. Og refskák íslenskrar pólitíkur er ekki aðeins tefld milli flokkanna, menn skáka ekki síður hver öðrum innan hvérs flokks. Það er sýnt að ekki þýðir fyrir stjórnmálamann á framabraut að láta sem þessir farvegir séu ekki til, vilji hann ná árangri, að vanvirða þessar reglur er vísasta leiðin út í kuldann. bannig hefur þetta verið til skamms tíma, a.m.k. En þetta hefur verið að breytast í íslenskri pólitík hin síðari ár eins og svo margt annað. Færa má rök fyrir því að opnári fjölmiðlun, og þá ekki síður tilkoma prófkjaranna á síðustu 10 árum eða svo, hafi skapað nýjar leiðir til áhrifa fyrir upprennandi stjórnmálamenn, leiðir sem þeir sjálfir hafa getað markað sér fyrir tilstilli fjölmiðla og prófkjara, og leiðir sem flokksforystan hefur ekki haft tök á að stjórna. Segja má að tök flokksforystunnar á því hvaða flokksmenn blanda sér í baráttuna fyrir áhrifum hafi farið dvínandi og eins vald hennar til að ráða þeim viðmiðunum, sem ráðið hafa í vali á forystumönnum. bessi þróun hefur verið sérstaklega áberandi í Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum. Báðir þessir flokkar hafa nú á að skipa mönnum, sem ekki hafa gengið upp hinn eina og sanna flokksstiga, heldur lent á toppnum með því að stökkva þangað af öðrum vettvangi, t.d. beint úr fjölmiðlastarfi eða jafnvel úr Háskólanum. Nýleg dæmi um síðarnefndu leiðina eru þeir Gunnar G. Schram, Sjálfstæðisflokki og Haraldur Ólafsson, Framsóknarflokki. Fylgifiskur þessarar þróunar hefur m.a. verið sá, að einstakir flokksmenn, sérstaklega í Sjálfstæðisflokki, hafa skapað sína eigin valdareiti sem þeir geta skákað frá óháð flokksforystunni. Þessir reitir hafa bæst við hina hefðbundnu valdareiti stjórnmálaflokkanna, sem eru hinar margvíslegu stjórnir, nefndir, ráð og stofnanir. í grófum dráttum má segja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi þannig eignað sér ýmsar valdastofnanir viðskipta og VerslUnar, auk ítaka í verkalýðshreyfingunni, Franisóknarflokkurinn slegið eign sinni á landbúnaðarkerfið og Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn eiga víghreiður sín að miklu leyti innan verkalýðshreyfingarinnar. Nýju þingflokkarnir, Bandalag jafnaðarmanna og Samtök um kvennalista virðast hafa tekið þá stefnu að safna engum föstum valdareitum, hvað sem síðar verður. Framhald á næstu síðu.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.