Helgarpósturinn - 17.01.1985, Side 5
og upprunaleg hugmynd Isfilm mun
hafa verið sú, að setja þar upp kapal-
sjónvarpsstöð á rústum Videósón.
Ljóst er að milljónir króna kostar að
innrétta húsnæðið fyrir sjónvarps-
rekstur, en ísfilm ætti ekki að verða
skotaskuld úr því, þegar þess er
gætt að fyrirtækið munar ekki um
að punga út rúmri hálfri milljón
króna á síðasta ári fyrir húsnæði sem
það notar ekki. . .
E
i
lins og fram hefur komið í
fréttum hafa svokallaðir vinstri
menn miklar áhyggjur af „óróanum
á vinstri vængnum", sem HP hefur
gert góð skil. Umræður hafa verið í
gangi, en nú hafa allaballar tekið
ákveðið frumkvæði í málinu. Þessa
dagana eru þeir að senda út bréf til
„systurflokka" sinna, samtaka og
hagstæðra aðila innan verkalýðs-
hreyfingarinnar, þar sem hvatt er til
þess að þessir hópar hittist og ræði'
möguleika á því að snúa bökum
saman gegn hægri öflunum í land-
inu, það er sjálfstæðismönnum og
framsóknarmönnum. Þeir sem
meðal annars fá þetta bréf eru Al-
þýðuflokkurinn, Bandalag jafnaðar-
manna, Samtök um kvennalista,
Kvennaframboðin tvö, þ.e. í Reykja-
vík og á Akureyri, o.fl. Hugmynd
allaballa er sú að mynda nýtt „land-
stjórnarafl", eins og þeir komast að
orði og hugsa þeir þá fyrst og fremst
um samstarf en ekki sameiningu
þessara flokka og samtaka. . .
L
litla hryllingsbúðin virðist
ætla að verða algjört kassastykki.
Miðarnir á frumsýninguna seldust
upp á þremur tímum og strax á
mánudag eftir frumsýningu seldust
upp allir miðar í þessari viku en þá
verða tvær sýningar haldnar. f
næstu viku verður Litla hryllings-
búðin hins vegar sýnd fimm sinnum
og er þegar nær uppselt á allar þær
sýningar. Hryllingurinn heillar. . .
IFI011
I jölmiðlarisinn Isfilm reis upp
við dogg um áramótin og keypti sér
sjónvarpsgræjur af myndbandafyrir-
tækinu Isfilm, myndbandalager
þess og innréttingar á Laugavegi 26.
Kaupverðið er talið hafa verið á bil-
inu 18—20 milljónir króna. Með
tækjum ísmyndar gæti ísfilm þess
vegna farið að sjónvarpa á morgun,
en fyrirtækið bíður þó líklega eins og
aðrir eftir nýju útvarpslögunum, og
þrýstir á um að koma þeim í gegn
um þingið hið fyrsta. . .
Islendingar eru ekki kunnir fyrir
það að vera sérlega fyrirhyggjusam-
ir, eins og til dæmis Þjóðverjar eða
Englendingar, sem skipuleggja sum-
arfríið sitt með margra mánaða eða
árs fyrirvara. Þó virðist einhver
breyting að verða á þessu, því HP
hefur frétt, að eftir að Samvinnu-
ferðir auglýstu ferðir í sumarhúsin í
Hollandi næsta sumar hafi selst upp
í sumar ferðanna á tveimur dög-
um. . .
I
Isfilm virðist ekki vera í neinni
fjárþröng. Fyrirtækið hefur haft
690m2 húsnæði á leigu í Kópavogi
síðan í vor, og borgað 90.000 krónur
fyrir á mánuði. Það hefur hins vegar
lítið verið notað, utan þess sem inni-
senur í mynd Ágústs Gudmunds-
sonar, Gullsandi, voru teknar þar í
ágúst. Húsnæðið í Kópavogi liggur
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
Bílbeltin
hafa bjargað
Uf
lUMFERÐAR
HP I ASKRIFT TIL NAMSMANNA ERLENDIS
Kynningarverð: í dönskum krónum 104,- utan Evrópu í US$ 10,-
3ja mán. áskrift burðargjald 40,- burðargjald 6,-
Samtals 144,- Samtals 16,-
ASKRIFTARGJALD GREIÐIST í BYRJUN ÁSKRIFTARTÍMABILS
EINNIG ER HÆGT AÐ FÁ 6 og 12 MÁNAÐA ÁSKRIFT
UPPL. í SÍMA 81511
HELGARPOSIURINN
NYTT AISLANDI
VISA ISLAND
kynnir nýjung í miðasölu
/
Visa Island gefur þér kost á
að kaupa aðgöngumiða á
Litlu hryllingsbúðina,
gamansöngleik með hrollvekjuívafi
með einu símtali.
3. sýning 17. janúar-kl. 21:00
4. sýning 21. janúar-kl. 21:00
5.sýning 22. janúar-kl. 21:00
Þú hringir í síma 11475, gefur upp nafn, nafnnúmer og Visakortnúmerið þitt
og aðgöngumiðarnir eru þínir. Þú færð miðana afhenta um leið og þú kemur
á sýninguna. Miðasalan er opin kl. 14-19.
H/TT Lr ikhúsið
HELGARPÓSTURINN 5