Helgarpósturinn - 17.01.1985, Blaðsíða 12
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Jóhanna
Sveinsdóttir, Ómar Friðriks-
son ■ Sigmundur Ernir
Rúnarsson og
Halldór Halídórsson
Útlit: Elín Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steen Johansson
Markaðsmál:
Sigþór Hákonarson
Innheimta:
Garðar Jensson.
Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Fyrirgreiðsla
flokka og blöðin
I Helgarpóstinum í dag er
fjallað um þann flokkspólitíska
bakhjarl sem sum dagblað-
anna njóta. Þar er sjónum beint
að hinu ólýðræðislega úthlut-
unarkerfi til málgagna gömlu
flokkanna ásamt því sem upp-
lýst er all-sérstæð lánafyrir-
greiðsla sem málgögn þeirra
hafa notið úr ríkisbönkum fyrir
tilverknað forystumanna
þriggja flokka, Framsóknar-
flokksins, Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðubandalagsins. Þvert
ofan í viðteknar venjur um
bankastarfsemi munu þessir
forystumenn hafa tryggt mál-
gögnum sínum lán úr Lands-
bankanum sem fengið var með
því að Landsbankinn endur-
seldi það Seðlabankanum. Fyr-
ir þessu hefur Helgarpósturinn
áreiðanlegar heimildir.
Nú er það svo að útgáfufyrir-
tæki allra blaða hafa orðið fyrir
þungum skakkaföllum á síðustu
mánuðum og þau geta ekki,
líkt og fyrirtæki í iðnaði, land-
búnaði eða sjávarútvegi, geng-
ið að ákveðnum stofnlánasjóð-
um sem vísum. „Blaðaútgáfa
telst ekki til iðngreinar þó hún
ætti að gera það," segir einn
viðmælandi Helgarpóstsins í
grein blaðsins. Til að tryggja
rekstur blaða hefur því margoft
þurft að beita pólitískum áhrif-
um og angi þess kerfis hefur
fest í styrkjaúthlutunum ríkis-
ins.
Hvort markaðskerfið á alfarið
að ráða um blaðaútgáfu hér á
landi eða hvort hið opinbera
eigi að styrkja hana sem mikil-
væga þjónustugrein líkt og aðr-
ar atvinnugreinar verður deilu-
atriði í framtíðinni en þó er ólík-
legt að markaðskerfið tryggi
frjálsa og um leið jafna mögu-
leika til eðlilegrar skoðana-
myndunar í landinu. Ríkisstyrk-
ir gera það ekki heldur á meðan
það viðgengst að flokkspólitísk
samtrygging veiti sumum blöð-
um slíka fyrirgreiðslu umfram
önnur, og styrki þarmeð póli-
tíska áróðursstöðu sína með
greiðvikni af þvítagi sem fjallað
er um í Helgarpóstinum í dag,
meðan önnur mega berjast við
bankavaldið árangurslítilli bar-
áttu þegar illa árar, aðeins
vegna þess að þau eiga ekki
„fulltrúa á þingi". Og ekki eiga
þau að pólitíska forsjármenn
sem geta kippt í rétta spotta í
embættiskerfinu.
BREF TIL RITSTJORNAR
Bragabaunir og
samvinnustarfshættir
Út af Bragabaunahvellinum lang-
ar mig að leggja orð í belg. Ekki um
það, hvaða lög hafi verið brotin eða
ekki brotin, því að okkur, óbreyttu
kaupfélagsfólki, er á þessu stigi
ómögulegt að leggja dóm á það.
Heldur um efnishliðina, ráðstöfun
Sambandsins á margumræddum
kaffiafslætti. Þar hefur þess gætt að
blaðamenn geri úr því einhvern
neytendamálstað að „halda með“
Kaffibrennslu Akureyrar á móti
Sambandinu. En setji málið hins
vegar ekki í samhengi við uppbygg-
ingu samvinnusamtakanna sem
neytendahreyfingar.
Gamla verðlagshugsjónin var sú,
að samvinnufélögin selji vörur á
hóflegu gangverdi, heldur neðan en
ofan við það verðlag sem aðrir
mynda. Það er nú kannski í nútím-
anum fremur undantekningin að
þetta dugi sem leiðarljós, en kaffi-
verslunin undanfarin ár virðist vera
með betri dæmunum um að gamla
reglan eigi við og henni sé beitt með
árangri.
Svo vonuðu þeir alltaf, hugsjóna-
mennirnir gömlu, að gangverðið
skilaði afgangi, og ætti þá að skipta
honum milli uppbyggingar í sam-
vinnustarfinu og endurgreiðslu til
neytenda, en vel að merkja aðeins
félagsbundinna neytenda í kaupfé-
lögunum. Sambandið átti þá að
skila sínum afgangi til kaupfélag-
anna eða til neytenda í gegnum þau.
Nú var það svo í nokkur ár, að
kaffiverslunin skilaði heilmiklum af-
gangi vegna endurgreiðslna af hrá-
efnisverði. Þá var það kannski sann-
girnismál gagnvart Kaupfélagi Ey-
firðinga, sem hefur í félagi við
Sambandið staðið að uppbyggingu
kaffiiðnaðarins, að Kaffibrennsla
Akureyrar fengi tækifæri til að efl-
ast að eigin fé. En það var ekkert
sjálfsagt hvernig þeim reikningsskil-
um yrði hagað í smáatriðum. Sú
venja hefur nefnilega þótt vel gef-
ast, þegar Sambandið flytur inn sem
umboðsaðiii fyrir kaupfélög eða
samvinnufyrirtæki, að það taki sína
þóknun fremur af hinum erlenda
seljanda en kaupandanum inn-
lenda. Sambandið á þá sjálft nokkuð
á hættu um þóknun sína og verður
líka að geta notið þess þegar hún
verður meiri eitt árið en annað eða
meiri af þessari vörunni en hinni.
A endanum eiga neytendur að
njóta þess sem vel tekst í neyslu-
vöruverslun samvinnuhreyfingar-
innar, og virðast sumir blaðamenn
taka sem gefið að það gerist í þessu
dæmi best með fjárgreiðslum til
Kaffibrennsiu Akureyrar. Væntan-
lega í trausti þess að hún noti svo féð
í gjöreyðingarstríði gegn innlendum
keppinautum sínum, og verði kaffi í
landinu ódýrt rétt á meðan.
í venjulegum samvinnuhugsunar-
hætti er litið á útkomu neysluvöru-
verslunar í heild fremur en ein-
stakra vörutegunda. Frá því sjónar-
miði væri ekkert athugavert við að
baunabæturnar hefðu að meira eða
minna leyti komið fram í auknum
tekjuafgangsgreiðslum frá Sam-
bandinu til kaupfélaganna; og hjá
kaupfélögunum til að auka endur-
greiðslu, afslátt eða aðra hyglun til
félagsmanna þar sem um slíkt er að
ræða. Jafnvel til þeirra sem full-
komnir bindindismenn eru á Braga-
kaffi. Þaðan af síður athugavert þótt
eitthvert fé hefði orðið eftir í al-
mennri uppbyggingu verslunar-
þjónustu, annað hvort hjá Sam-
bandinu eða kaupfélögunum, og
þannig orðið til að skerpa verslunar-
samkeppni, neytendum vonandi til
hagsbóta, jafnvel þótt sóknin hefði
orðið á lengri víglínu en þeirri sem
aumingja Kaaber á að verja.
Hins vegar eru þess dæmi að
Sambandið eða samstarfsfyrirtæki
þess greiði tekjuafgang af einstök-
um vöruflokkum. Kannski voru
Bragabaunabæturnar svo sérstakur
tekjuauki þessi ákveðnu ár, að þær
hefðu átt að renna norður og Kaffi-
brennsla Akureyrar síðan að hygla
kaupfélögunum sérstaklega í hlut-
falli við það sem þau hefðu hvert og
eitt selt af því ilmríka dufti. Það skal
ég ekki leggja dóm á, enda bréfið
skrifað til að benda á þær margvís-
legu leiðir sem samvinnumönnum
standa opnar í þessum efnum, frem-
ur en að ég viti hver ein þeirra var
allra best í þessu eina tilviki.
Hitt þykist ég vita, að blöðin
myndu veita samvinnuhreyfingunni
enn virkara og hollara aðhald en nú
gera þau, ef þau temdu sér meir að
skrifa um málefni hennar sem eigin-
leg samvinnumál.
Helgi Skúli Kjartansson,
félagsmadur í KRON.
Flugleiöir og
stjórnarformaöur
Hafskips
Hr. ritstjóri.
í blaði yðar birtist vikulega nokk-
ur fjöldi af smáklausum undir teikn-
ingu af eyra sem ber með sér að þar
sé um að ræða sögur sem starfs-
menn blaðsins hafa heyrt á förnum
vegi.
Kennir þar margra grasa sem von-
legt er og margt græskulaust gam-
an.
Fréttir þessar af skotspónum virð-
ast mismunandi trúverðugar og
sjálfsagt í einhverjum tilvikum bein-
línis rangar eins og gerist og gengur.
Trúlegt er að margir kippi sér ekki
upp við slíkt og finnist lítið til koma,
nema ef vera skyldi þeir sem fyrir
verða.
I blaðinu þann 10. janúar sl. og
reyndar einnig í grein á síðasta ári
er sagt frá tilraunum til að gera und-
irritaðan ýmist að forstjóra, aðstoð-
arforstjóra eða stjórnarformanni í
Flugleiðum hf.
Nú er það vissulega svo að engum
er skömm að því að vera bendlaður
við það ágæta félag sem Flugleiðir
hf. er.
Helgarpósturinn verður hins veg-
ar að virða athugasemd mína og
undrun vegna endurtekinna skrifa
um framangreint, þar sem nákvœm-
lega enginn hefur til mín leitað um
nefnd störf, ámálgað slíkt, né hefi ég
eftir þeim sóst.
Hér er því bersýnilega gengið á
næfurþunnum ís.
Með þökk fyrir birtinguna,
Ragnar Kjartansson.
Athugasemd ritstj.
/ umræddri fréttaklausu HP er
fjallað um þrýsting Alberts Guð-
mundssonar á Kára Einarsson
verkfrœðing og annan stjórnar-
mann ríkisstjórnarinnar um að
veita Sigurgeiri Jónssyni atkvæði
sitt í atkvœðagreiðslunni um arf-
taka Sigurðar Helgasonar í for-
stjórastarfi Flugleiða. Er leitað
skýringa á þrýstingi fjármálaráð-
herra og segir orðrétt t klausunni:
,,Þangað (í forstjórastól Flugleiða)
vill Albert setja vin sinn Ragnar
Kjartansson sem nú er stjórnarfor-
maður Hafskips en Albert hefur
setið í stjórn Hafskips. Albert
barðist mjög hart fyrir því á aðal-
fundi Flugleiða í mars í fyrra að
Ragnar Kjartansson yrði gerður að
aðstoðarforstjóra Flugleiða en því
var með öllu synjað." Helgarpóst-
urinn hefur mjög áreiðanlegar
heimildir fyrir þessum ummœlum
og stendur fast á þeim. Hins vegar
er hvergi minnst á það í klausunni
að leitað hafi verið til Ragnars um
nefnd störf, slíkt ámálgaö við
hann, né að téður Ragnar hafi eft-
ir þeim sóst. Þess vegna getur HP
fallist á ummœli Ragnars Kjart-
anssonar í bréfi hans hér að fram-
an í einu og öllu. Isinn sem gengið
er á er því engan veginn næfur-
þunnur, heldur botnfrosinn.
Ritstj.
skip hf. ákveðið að bjóða út hlutafé
að andvirði 80 milljónir króna en
hlutafé var fyrir um 15 milljónir. Bú-
ist er við að margir hluthafanna'
muni nota sér forkaupsréttinn og að
nýir hluthafar sem við bætist verði
væntanlega ur hópi innflytjenda
sem vilja styrkja skipafélagið, halda
Iífi í samkeppninni við risana Eim-
skip og skipadeild SÍS og þar með
hafa hemil á farmgjöldum. ..
M
■ V Hiegn óánægja nkir hja Ut-
varpi og Sjónvarpi vegna máls-
meðferðar ríkissaksóknara á
kærum vegna ólöglegra útvarps-
stöðva og þá enn frekar kærunnar á
hendur stjórnum starfsmannafélaga
beggja stofnana fyrir að ganga út
nokkrum dögum fyrir verkfallið í
haust. Útvarps- og sjónvarpsmenn
vilja alls ekki una því að kærur þess-
ar séu spyrtar saman, eins og sak-
sóknarinn gerði í fréttatilkynningu,
og telja að með því sé hann að gang-
ast inn á það herbragð, sem þeir telja
að kæran á starfsmannafélögin hafi
verið á sínum tíma; ætlunin með
henni hafi verið að hvítþvo útvarps-
lagabrotin. Kæra ríkissaksóknara
var gefin út á 10 stjórnarmenn
starfsmannafélaganna, en nú hafa
fjölmargir starfsmenn ríkisfjölmiðl-
anna kært sig inn á kæruna. Aðferð-
in er hliðstæð þeirri sem Mývetn-
ingar notuðu í Laxárstíflumálinu á
sínum tíma, og ætlunin er að sýna
fram á, að ákvörðunin um að ganga
út hafi verið tekin af starfsmannafé-
lögunum í heild, en ekki aðeins
stjórnum þeirra. Ríkissaksóknari
þarf því að fara að huga að fleiri
kærum og eins mætti kannski fara
að huga að húsnæði til tugthúsa þá
tugi ríkisfjölmiðlamanna sem
standa frammi fyrir nokkurra ára
fangelsi, verði þeir sekir fundnir. ..
u
'SQUr rgur er í sumum starfsmönn-
um Útvarps vegna þessara mála, og
þess sem þeir telja harða vinstripóli-
tíska framgöngu formanna starfs-
mannafélaganna í hverju málinu á
fætur öðru, þejrra Ævars Kjart-
anssonar og Ögmundar Jónas-
sonar. Óánægju gætir ekki síst
meðal fréttamanna. Þeir hafa misst
ÖII áhrif í starfsmannafélögunum;
eru þar aðeins aukafélagar eftir að
þeir stofnuðu Félag fréttamanna, án
kjörgengis og atkvæðisréttar...
ir
■ T^.vikmyndagerðarmenn eru
farnir að hugsa sér til hreifings á
nýja árinu. Egill Eðvarðsson mun
ætla að framleiða kvikmynd sem
nefnist „Kuml“ en hann hlaut styrk
úr Kvikmyndasjóði í fyrra til gerðar
hennar. Þá munu Þráinn Bertels-
son og aðrir kappar í Nýju lífi fara af
stað með enn eina myndina um þá
félaga. Heitir þriðja myndin „Sálar-
líf“ í handriti, hvert sem endanlegt
nafn verður...
i,
starfsliði blaðsins vegna fjárhags-
örðugleika. Nú mun sá tími liðinn,
meðal annars vegna vænnar lán-
veitingar, sem blaðið fékk frá Lands-
bankanum. Liður í breytingum á
blaðinu var m.a. fólginn í því, að
tveir menn, þeir Sverrir Alberts-
son og Guðmundur Sverrisson,
yrðu gerðir að fréttastjórum. Þessi
skipan mála hefur verið höfð nú um
hríð á NT og aðeins tímaspursmál
hvenær blaðamennirnir verða
gerðir formlega að fréttastjórum
blaðsins. ..
Leidrétting
í síðasta blaði var ranghermt að
Magnús Bjarnfreðsson fréttaþulur
Sjónvarps hefði lesið inn á auglýs-
ingamyndir sem sýndar voru í búð-
um í verkfallinu. Hið rétta er að
Magnús las fréttirnar inn á milli aug-
lýsinganna, sem þótti umdeilt á
sama tíma og Sjónvarpið var í verk-
falli.
Þá skoluðust líka til nöfn í klausu
í sama blaði um umsækjendur um
framkvæmdastjórastöðu Útvarps.
Sagt var að fjármálastjóri Útvarps,
Hörður Vilhjálmsson, hefði sótt um
stöðuna. Það gerði hann reyndar
ekki, en starfsmannastjóri stofnun-
arinnar, Guðbjörg Jónsdóttir, sótti
um og hennar nafn vantaði. Beðist
er velvirðingar á þessum missögn-
um.
LAUSN Á SKÁKÞRAUT
A. Andrade
Hér dugar hvorki e8D+ né
e8H+, vegna þess að það peðið
sem eftir situr verður leppur,
peðin eru hálfleppuð í upphafi.
Lausnin er 1. Dh7!
og nú koma fram sjö mísmunandi
mát, eftir því þverju svartur
svarar.
/
/
12 HELGARPÓSTURINN