Helgarpósturinn - 17.01.1985, Blaðsíða 22
HELGARDAGSKRAIN
Föstudagur
18. janúar
19.15 Á döfinni.
19.25 Krakkarnir í hverfinu. 5. Forsíðu-
fróttin.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og voöur.
20.40 Kastljós. Umsjónarmaður Sigrún
fStefánsdóttir.
j Skonrokk. Umsjónarmenn: Haraldur
Þorsteinsson og Tómas Bjarnason.
j Hláturinn lengir lífiö. Tíundi þáttur.
|Í0 Niagara. Bandarísk bíómynd frá
1952. Leikstjóri Henry Hattaway. Aðal-
hlutverk: Joseph Cotten, Jean Peters,
Marilyn Monroe og Don Wilson.
Myndin gerist við Niagarafossa. Fög-
ur en viðsjál kona situr á svikráðum
við eiginmann sinn. Ung hjón á ferð
við fossana dragast inn í erjur þeirra
^sem eiga eftir að kosta mannslíf. Þýð-
andi Jón O. Edwald.
%$.35 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
19. janúar
14.45 Enska knattspyrnan. Fyrsta deild:
Chelsea — Arsenal. Bein útsending
frá Lundúnum 14.55 til 16.45.
17.15 íþróttir.
19.25 Kærastan kemur í höfn. Lokaþáttur.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20*^Fróttir og veður.
K Viö feðginin. Fyrsti þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í þrettán þátt-
um, framhald fyrri þátta um ekkju-
mann og einkadóttur hans á unglings-
aldri. Með hlutverk þeirra feðgina fara
jrRichard O. Sullivan og Joanne Ridley.
j Ivar hlújárn. Bresk sjónvarpsmynd
frá 1982, gerð eftir sígildri riddara-
sögu eftir Walter Scott. Leikstjóri
Douglas Camfield. Aðalhlutverk: An-
thony Andrews, James Mason, Olivia
Hussey, Lysette Anthony, Michael
Horden og Sam Neill. Myndin gerist á
Englandi í lok tólftu aldar. Söguhetjan
er ungur riddari sem verður að yfir-
stíga ýmsar þrautir áður en hann nær
sáttum við föður sinn og fær hönd
sinnar útvöldu. Ýmsar aðrar eftir-
minnilegar persónur koma við sögu,
svo sem ísak gyðingur og Rebekka,
dóttir hans, Ríkarður Ijónshjarta Eng-
landskonungur, Hrói Höttur og kappar
hans. Þýðandi Óskar Ingimarsson.
23.15 Gyllti dansskórinn. Þýskur sjón-
varpsþáttur. Nokkur fremstu danspör
í Evrópu úr hópi atvinnu- og áhuga-
manna sýna samkvæmisdansa og
suður-ameríska dansa. Þátttakendur
eiga það sameiginlegt að hafa unnið
til verðlauna sem nefnast „gyllti dans-
skórinn" árið 1984. (Evróvision —
Jjf Þýska sjónvarpið)
00,20 Dagskrárlok.
Æ*
2 V.OT h
Sunnudagur
20. janúar
16.00 Sunnudagshugvekja.
16.10 Húsiö á slóttunni. 10. Nýr heimur.
— Fyrri hluti.
17.00 Listrænt auga og höndin hög. 7.
Garöayndi. í þessum lokaþætti
kanadíska myndaflokksins er fjalláð
um skipulag og ræktun skrúðgarða.
Þýðandi Eiríkur Haraldsson. Þulur Ingi
Karl Jóhannesson.
) Stundin okkar.
) Fróttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.31$ Sjónvarp næstu viku.
j Stiklur. 18. Byggðin á barmi gljúf-
ursins. Sjónvarpsmenn stikluðu um
á Norðurlandi síðastliðið sumar. Þeir
tylltu sér fyrst niður í Austurdal í
Skagafirði en síðan lá leiðin til Eyja-
fjarðar og útnesja nyrðra. í þessum
þætti er að mestu dvalist í Austurdal
þar sem bærinn Gilsbakki stendur á
bröttum bakka hrikalegs gljúfurs
Austari-Jökulsár. Farið er með Hjör-
leifi Kristinssyni niður í gljúfrið í svo-
nefndan Dauðageira. Umsjónarmað-
ur Ómar Ragnarsson.
21.20 Dýrasta djásniö. Tíundi þáttur.
22.15 Netanela — síöari hluti. Frátónleik-
um í Norræna húsinu 12. júní á Lista-
hátið í Reykjavík 1984. Sænska vísna-
söngkonan Netanela syngur og leikur
á gítar enskar ballöður, blökkumanna-
^gjlálma og blúslög.
5!:3*áO Dagskrárlok.
©
Föstudagur
18. janúar
7.00 Fréttir.
8.00 Fréttir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Tvíbur-
arnir í skóginum".
9.20 Leikfimi.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 ,,Þaö er svo margt að minnast á".
11.15 Morguntónleikar.
12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir.
14.00 „Þættir af kristniboðum um víða
veröld" eftir Clarence Hall. „Vinur
kínversku flóttamannanna". Starf Gus
Borgeest í Hong Kong.
14.30 Á lóttu nótunum.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar.
17.10 Síödegisútvarp.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.50 Daglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Hljómbotn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 ,,óður Ameríku". Stiklað á stóru í
sögu bandarískrar þjóðlagatónlistar.
23.15 Á sveitalínunni. (RÚVAK.)
24.00 Fréttir.
Laugardagur
19. janúar
7.00 Fréttir.
8.00 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) 8.55. Daglegt
^ mál: Endurt. þáttur frá kvöldinu áður.
9>0Ö Fréttir.
'íapO Óskalög sjúklinga.
11T20 Eitthvað fyrir alla.
12.jp Fróttir. 12.45 Veðurfregnir.
T§^0 J þ rótta þáttu r.
1,4.00 Hór og nú.
lS|Í5 Úr blöndukútnum. (RÚVAK.)
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál.
16.30 Bókaþáttur.
17.10 Á óperusviðinu.
18.10 Tónleikar.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Úr vöndu aö ráöa. Hlustendur leita
til útvarpsins með vandamál.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
,,Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson.
20.20 Harmonikuþáttur.
20.50 Sögustaðir á Norðurlandi —
21.30 Kvöldtónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Uglan hennar Mínervu.
23.15 Hljómskálamúsík.
24.00 Miönæturtónleikar.
00.50 Fréttir.
Sunnudagur
20. janúar
8.00 Morgunandakt.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.)
8.35 Lótt morgunlög. Hljómsveit Hans
Carste leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
*
Val Arnar Arnasonar, leikara
,,Það er aðeins eitt sem ég fylgist nær undantekningalaust með í sjón-
varpinu. Það er upplestur Páls Magnússonar á fréttum í dagskrárlok.
Vegna atvinnu minnar missi ég af kvöldfréttunum bæði í útvarpi og sjón-
varpi og ég verð því að láta mér nægja þennan fréttaútdrátt," segir Orn
Arnason leikari. „Annars keypti ég mér vídeó um daginn og komst fljótt
að því hvað það tæki er mikil búbót á heimili leikara. Nú læt ég taka upp
alia þá þætti sem ég hefði annars misst af og horfi á þá eftir að Páll hefur
boðið góða nótt á skerminum. Þetta eru aðallega bíómyndirnar sem ég
læt taka upp fyrir mig, Skonrokk, hin ómissandi Nýjasta tækni og vís-
indi, svo og einstaka fræðsluþættir að undanskildum væmnustu dýralífs-
myndunum. Á rás 1 hlusta ég afskaplega lítið, nánast ekki neitt, nema
leikrit og ýmsa áhugaverða upplestra. Rás 2 er hinsvegar í nokkru uppá-
haldi hjá mér, svo sem vinsældalistarnir og næturútvarpið. Ég er ansi
mikill nátthrafn nefniiega."
D Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
5 Stefnumót viö Sturlunga.
) Messa í Dómkirkjunni.
D Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
D Leikrit: ,,Krabbinn og sporðdrek-
Jnn" eftir Odd Björnsson.
í Miödegistónleikar.
I Með bros á vör.
) Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.2(LUm vísindi og fræði.
17JP Síðdegistónleikar:
^pO Á tvist og bast.
18^0 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn.
20.00 Um okkur. Jón Gústafsson stjórnar
blönduðum þætti fyrir unglinga.
2Q|IÖ Hljómplöturabb
2||30 Útvarpssagan: „Morgunverður
meistaranna" eftir Kurt Vonne-
gut.
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Galdrar og galdramenn. Umsjón:
Haraldur I. Haraldsson. (RÚVAK)
23.05 Djasssaga: — Jón Múli Árnason.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
£
Fimmtudagur
17. janúar
20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda rás-
ar 2.
21.00-22.00 Nú má ég! Gestir ístúdíói velja
lögin. Stjórnandi: Ragnheiður Davíðs-
dóttir.
22.00-23.00 Rökkurtónar. Stjórnandi:
Svavar Gests.
24.00 Söngleikir. Rocky Horror
Picture Show/Grease.
Föstudagur
18. janúar
10.QIM2.00 Morgunþáttur.
1«)-16.00 Pósthólfið.
16Tk&17.00 Listapopp.
VMIp-18.00 Lóttir sprettir.
Hl' ~
03.00 Næturvaktin. Stjórnendur:
Vífhir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson.
Laugardagur
19. janúar
14.00-16.00 Léttur laugardagur. Stjórn-
andi: Ásgeir Tómasson.
16.00-18.00 Milli mála. Stjórnandi: Helgi
Már Barðason.
Hl#
MD0-03.00 Næturvaktin. Stjórnandi:
Knstín Björg Þorsteinsdóttir.
Sunnudagur
20. janúar
10-15.00 Krydd í tilveruna.
lÖTO^p.OO Tónlistarkrossgátan.
16iQÍP)8.00 Vinsældalisti hlustenda rás-
arW
SJONVARP
Geld umrœða
Síðastliðið þriðjudagskvöld var okkur
sjónvarpsáhorfendum boðið upp á einn
umræðuþáttinn enn í beinni útsendingu.
Að þessu sinni var umsjónarmaðurinn
ingvi Hrafn Jónsson á ferðinni með þátt
sem hét hvorki meira né minna en „Boða
ný útvarpslög dögun fjölmiðlabyltingar á
íslandi?" Til liðs við sig hafði hann fengið
Ragnhildi Helgadóttur menntamálaráð-
herra og pólítíkusana Sigríði Dúnu Krist-
mundsdóttur, Vilborgu Harðardóttur og
Eið Guðnason. Frá Danmörku heyrðum
við rödd Boga Ágústssonar fréttamanns,
sem sagði frá reynslu Dana af tveimur
nýjum sjónvarpsrásum.
Hafi ég efast fyrr um vanhæfni stjórn-
málamanna að fjalla um fjölmiðlamál eru
þær efasemdir endanlega foknar út í veð-
eftir Ingólf Margeirsson
Ingvi Hrafn: Meira með eigin skoðanir en ó-
hlutdrægar spurningar.
ur og vind. Hugmyndir ofangreindra full-
trúa flokkanna um leiðir og framtíðar-
lausnir í ijósi hins nýja útvarpslagafrum-
varps voru annaðhvort njörvaðar í lág-
kúru fiokksstefnu eða héngu gjörsam-
iega í lausu lofti, fjarri öllum veruleik.
Sigríður Dúna þvældi sér og öðrum
fram og aftur í pappírum frá Alþingi á
milli þess sem hún drap á óraunsætt
frumvarp Kvennaiistans um ný útvarps-
lög sem m.a. felur í sér þriðju útvarpsrás-
ina ætlaða félagasamtökum, og neyt-
endaráð (eins konar útvarpsráð) með
jafnri kynjaskiptingu. Eiður Guðnason
hefur nýverið breytt um stefnu og talar
nú um að framkvæma allar breytingar
með varúð. Minna fór hins vegar fyrir
varkárninni þegar Eiður hampaði krata-
pólítíkinni í fjölmiðlamálum (öll fjöl-
miðlaumræða flokkanna snýst auðvitað
um valdapólítík) og þess vegna fyndið
þegar Bogi Ágústsson talaði um flokks-
bræður Eiðs á danska þinginu. Ragnhild-
ur Helgadóttir menntamálaráðherra var
gjörsamlega á skjön við alla umræðuna
og ekki gat ég stillt mig um að skella upp
úr þegar hún fór að tala um listrænar
auglýsingar. Hins vegar var Vilborg
Harðardóttir ekki jafnfyndin þegar hún
bögglaðist við að gera grein fyrir því
hvernig fjármagna ætti stöðvar án aug-
lýsinga. Þá átti hún bágt.
Þessum sirkus var stjórnað af hávaða-
seggi beinna útsendinga, Ingva Hrafni
Jónssyni sem gjammaði og reif kjaft á
báða bóga. Á stundum hélt ég að hann
mundi setjast í kjöltu Ragnhildar á móti
hinum. Svona vinnubrögð eru náttúru-
lega fyrir neðan allar hellur. Stjórnandi á
að spyrja óhlutdrægra spurninga og leiða
umræðuna en ekki básúna sínar eigin
skoðanir yfir hausamótum gestanna eða
grípa fram í fyrir þeim þegar þeir loksins
fá orðið.
ÚTVARP
eftir Hallgrím Thorsteinsson
Rúvak fœr sjálfsvitund
Mikið var að einhver kom auga á einu
réttlætinguna sem til var fyrir því að út-
varpsrekstur var hafinn á Ákureyri á sín-
um tíma. Það var ekki liðinn hálfur mán-
uður frá því að Markús Örn Antonsson
settist í stól útvarpsstjóra, að tilkynnt var
að staðarútvarp skyldi hefjast eins fljótt
og auðið væri á vegum Rúvak. Gott hjá
Markúsi, en það er jafn óskiljanlegt eftir
sem áður hvers vegna staðarútvarp er
ekki löngu hafið þarna nyrðra.
Upphaflega, þegar ákvörðun var tekin
um að stofna sérstaka deild Ríkisútvarps-
ins á Akureyri, hélt ég, eins og margir
aðrir, að nú ættu Akureyringar að fá sitt
eigið útvarp. Ásakanir, að sumu leyti
réttmætar, höfðu lengi verið uppi um að
„Útvarp Reykjavík" frá Skúlagötu væri
aðeins það sem kallmerki stöðvarinnar
sagði til um: Útvarp fyrir Reykvíkinga.
En þegar Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra Framsóknarflokksins, hafði til-
Jónas Jónasson. Mannvinur.
kynnt hátíðlega að deildin hefði verið
stofnuð og að deildarstjóri hefði verið
ráðinn, húsnæðið ákveðið og seremón-
ían haldin, þá litu menn bara hver á ann-
an og sögðu: Ókei, hvað svo? Ráðherrann
hefur reist þennan minnisvarða sinn í
kjördæmi sinu, en hvar er stefnan? Hver
er meiningin með þessu?
Þar sem hvorki menntamálaráðherra
né Ríkisútvarpið höfðu hugsað málið
lengra en að seremóníunni, kom það í
hlut Jónasar Jónassonar að finna fyrir-
bærinu farveg. Það hefur Jónasi tekist á
snyrtilegan hátt undanfarin ár, en einn og
einn Rúvak-þáttur í dagskrá rásar 1 gat
aldrei talist réttlæting á milljónafjárfest-
ingu RÚV á Akureyri. Á sínum tíma var
talað um að rás 2 yrði útvarpað frá Akur-
eyri, en sem betur fer varð aldrei af því.
Þetta var önnur framsóknarhugmynd og
norskættuð í þokkabót.
í tvö ár hef ég verið að hugsa um hver
meiningin hafi verið með Rúvak. Jónas
Jónasson hefur að líkindum verið jafn
frústreraður og ég og spurt sjálfan sig
hvað hann væri eiginlega að gera þarna.
Hann hefur nú fengið svar við þeirri
spurningu og var að vonum glaður í við-
tali í kvöldfréttum í vikunni. Hugmyndir
Jónasar um hlutverk staðarútvarps á
Akureyri lýstu glöggum og heilsteyptum
skilningi á verkefninu og þær lofa góðu.
Hann vill miða Rúvak við þarfir Akureyr-
inga. Það á að miðla upplýsingum um
veður, færð, bæjarstjórnarpólitík og við-
skipti á Akureyri og nágrenni fyrir Akur-
eyringa og nágranna, upplýsingum sem
öðrum landsmönnum koma sáralítið við.
Tilraunin er stórmerkileg: Fyrsta raun-
verulega staðarútvarpið á Islandi í meira
en hálfrar aldar sögu útvarps í landinu.
Jónas er mannvinur og hefur blessunar-
lega skilning á því að útvarp á að vera
það líka — vinur fólksins.
22 HELGARPÓSTURINN