Helgarpósturinn - 21.02.1985, Side 3
» Löggulík!
I ★ Nokkrar vangaveltur hafa
l staðið yfir um það síðustu daga
I hvaða nafngift hæfi þeim
hraðahindrunum sem yfirvöld
| hafa komið fyrir á götuköflum
* víðs vegar um borgina og þá
| einkum í grennd við barna- og
unglingaskóla. í síðasta Helgar-
| pósti var þess meðal annars
* getið að orðanefnd verkfræð-
| inga hefði gert tillögu um orðið
' þúst eða götuþúst, en fleiri
hugmyndir hafa einnig verið
uppi að undanförnu hvað þetta
varðar, svo sem orðin alda og
þúfa og einn spaugari kom
með orðið blindhæð um dag-
inn og annar tilnefndi brjóst.
En hvað sem þessar hraða-
hindranir eiga eftir að heita í
framtíðinni, þá er víst að þær
eru ekki íslensk uppfinning.
Þær hafa lengi hægt á ferðum
bílstjóra í stórborgum erlendis,
I
meðal annars í London. Þar
gengur þetta þarfa fyrirbrigði '
undir nafninu „a dead police-
man" hjá gárungunum og lát-
um við lesendum eftir að .
ímynda sér hver ástæðan sé
fyrir þeirri nafngift, en bendum
á íslenska þýðingu á heitinu:
Löggulík! '
Já, fleiri en Islendingar eru |
meinfyndnir.. .☆ I
Sálrænar flensur
★ „Hörmung er að sjá ykkur",
varð Huldu Hákonardóttur
sjúkraþjálfa á Landspftalanum
að orði þegar hún barði augum
ritstjórn HP á síðasta MAS-
fundi (Mutual Admiration
Society). Orð að sönnu, því rit-
stjórn blaðsins hefur ekki farið
varhluta af flensu, kvefi og
almennu útmánaðasleni því
sem hrjáir þessa vinnusömu
þjóð.
„t>að er eitthvað búið að vera
að grasséra í mér lengi," stundi
Halígrímur Thorsteinsson ná-
fölur. „Ég bara þori ekki að fara
í rannsókn, hræddur um að
verða leiguþý læknanna. En
þetta er orðið þannig að þegar
ég fer út í sjoppu á þriðju-
dögum og miðvikudögum,
þegar vinnsla blaðsins er í
uppsveiflu, hrekkur fólk í kút
við að sjá mig."
Hulda hélt stuttan fyrirlestur
fyrir ritstjórn um streitu og
flensur eða „samspil líkamlegs
og andlegs varnarkerfis". „Fólk
hlustar því miður sjaldnast á
líkamann þegar hann gefur
okkur viðvörunarmerki um að
nú höfum við ofgert okkur,
varnirnar séu að bresta," sagði
hún. „Það stafar ma af því að í
svona litlu þjóðfélagi eins og
okkar er dyggð að vinna. Ætli
þjóðfélagið myndi ekki fara allt
úr skorðum ef fólk tæki veru-
legt tillit til heilsu sjálfs sín?
Mér sýnist a.m.k. að Helgar-
pósturinn myndi hætta að
koma út."
„Maður má ekki láta eftir sér
að verða hysterískur" greip Ing-
ólfur Margeirsson inn í. „Ef
maður er eitthvað slappur og
aumur á maður að gera vel við
sig, t.d. fá sér sundsprett og
fara út að borða."
„Já, oft eru orsakir líkam-
legra kvilla eins og flensu fyrst
og fremst sálrænar" sagði
Hulda og batt trefilinn fastar að
hálsi Hallgríms og strauk
honum um ennið. „Fólki finnst
oft að aðrir sýni því ekki nóga
samúð og skilning, það vill fá
meiri athygli. Þess vegna er
það oft þrautalendingin að
leggjast (rúmið til að öðlast
slíkt í ríkara mæli.
Vertu bara veikur, vinur," sagði
hún og klappaði honum undur-
blítt á kinnina.
„Ja, fussum svei," rumdi í rit-
stjóranum. „Nú er ég farinn í
sund."^
Reiknivélar
Fyrsta flokks vélar
á skrifstofuna
á góðu verði
Teg. 1015
Teg. 1030
Teg. 1230
Teg. 2000
NON HF.
Hverfisgötu 105 S. 26235
kr.: 3.560
kr.: 4.680
kr.: 5.280
kr.: 7.950
Eru allir fullir á
þessum uppboðum
þínum?
Úlfar Þormóðsson
„Nei, nei, nei, nei."
— En DV sagði í fjórdálka frétt á baksíðu á
þriðjudaginn var, að maður vel við skál hafi hækkað
prísana á málverkauppboði Gallerf Borgar, og myndir
farið á uppsprengdu verði?
„Eins og ég sagði við blaðakonu DV, þá vissi ég ekki til þess
að umræddur maður hefði verið við skál. Áhrifin af manninum
og síboðum hans urðu reyndar þau, aðfólkhættiviðaðbjóða
í myndir því hann yfirbauð ávallt ef hann bauð í mynd á annað
borð. Þegar allt kemur til alls hefur maðurinn því lækkað
prísana en ekki hækkað þá."
— Runnu ekki á þig tvær grímur þegar leið á
uppboðið?
„Jú, sérstaklega þegar ég sá að maðurinn yfirbauð lögmann
sinn og síðan sjálfan sig. En fulltrúi uppboðshaldara og ég
urðum sammála um að við gætum ekkert gert í málinu."
— Þær sögur ganga um bæinn að þarna hafi verið
útsendari samkeppnisaðila ykkar á ferðinni?
„Ég tel það af og frá."
— Hvaða maður var þetta eiginlega?
„Ein af skyldum málverkasala og uppboðshaldara er að
nefna ekki nöfn viðskiptavina sinna."
— En DV stendur við það að rétt hafi veriö eftir þér
haft, að maðurinn hafi hækkað prfsana. Þú hafir sagt
við blaðið að þú getir ekki neitaö þeirri staðreynd?
„Ég sagði þessi orð en í allt öðru samhengi. Það var verið að
spyrja um allt annað."
— Um hvað?
„Blaðakonan stóð í einhverju málaþófi við mig fram og til
baka, og spurði loks hvort það væri rétt að einhver maður hafi
boðið í margar myndir. Því svaraði ég: Þetta er rétt. Ég get ekki
neitað þessu."
— Er maðurinn búinn að greiða myndirnar?
„Maðurinn hefur haft samband við mig innan tímamarka
sem uppboðsskilmálar setja. En hann hefur enn ekki sótt
myndir sínar."
— Hvenær á hann að vera búinn að ná í þær?
„Hann hefði átt að vera búinn að því nú."
— Hefur þú trú á að hann nái í myndirnar og borgi
fyrir þær?
„Nei."
— Og hvað ætlarðu að gera þá?
„Ég þarf að gera söluskattsyfirvöldum grein fyrir málinu og
tek ákvarðanir út frá því."
— DV segir ennfremur að greiði maðurinn ekki fyrir
málverkin, muni þeir með næsthæstu tilboðin fá að
ganga inn f samninginn. Gerist þetta?
„Blaðakona DV segir þessi orð. Þetta hef ég aldrei sagt, enda
óframkvæmanlegt að láta þá með næsthæstu boðin ganga í
samning á þennan hátt. Það vita allir sem þekkja til uppboða."
— i athugasemd þinni í DV f gær kallarðu
blaðamanninn „ódrukknu blaðakonuna". Fréttin er
merkt KÞ, og mun blaðamaðurinn Kristfn Þorsteins-
dóttir hafa skrifað þessa umræddu frétt. Hefurðu ein-
hverja ástæðu til að ætla aö blaðamaðurinn hafi ekki
veriö ódrukkinn?
„Nei, nei, en þessi forliður er byggður á hinni ærumeiðandi
fyrirsögn DV sem ýjar að drykkjuskap á uppboðinu."
— Voru ekki vínveitingar þarna?
„Við höfðum fengið vínveitingaleyfi frá lögreglustjóraemb-
ættinu í Reykjavík. Þeir sem óskuðu eftir að kaupa áfengi fengu
það, enda Hótel Borg vínveitingastaður."
— Verða uppboösgestir Gallerfs Borgar látnir blása f
blöðrur f framtíðinni?
„Nei. Hins vegar mun galleríið þrátt fyrir þennan atburð
treysta sínum viðskiptavinum sem hingað til. Enda eiga þeir
það skilið."
— Allir nema einn?
„Rétt".
Úlfar Þormóðsson er stjórnarformaður Gallerís Borgar. Sl. sunnudag,
17. feb., var haldið málverkauppboð á vegum gallerísins á Hótel Borg.
DV greindi frá því eftir helgi að drukkinn maður hafi boðið f mörg
málverk og sprengt upp verð myndanna.
HELGARPÓSTURINN 3