Helgarpósturinn - 21.02.1985, Síða 16
Behind every great man there’s a woman.
But in this case it’s ridiculous.
STEVE MARTIN LILYTOMLIN
The comedy that proves that one's a crowd.
Frumsýnir:
Sprenghlægileg ný bandarísk gamanmynd. Hvernig væri aö fá inn I líkama þinn sál konu sem
stjórnar svo helmingnum af skrokknum? Þar aö auki konu sem þú þolir ekki. Þetta veröur
Robert Cobb aö hafa og Ifkar illa... Mest sótta myndin f Bandaríkjunum í haust. Steve Martin
(kosinn besti leikari ársins 1984 af samtökum gagnrýnenda í New York), Lily Tomlin, Victoria
Tennant. Leikstjóri: Carl Reiner. Hækkaö verö. íslenskur texti. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Uppgjörið
Frábær sakamálamynd f algjörum sérflokki.
Spennandi og vel gerö, „Leikur Terence
Stamp og John Hurt er frábær". Mynd sem
enginn má missa af. John Hurt, Terence
Stamp, Laura Del Sol. Leikstjóri: Stephen
Frears. islenskur texti. Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15.
TIIEIIIT
Nágrannakonan
Leikstjóri: Francois Truffaut. íslenskur texti.
Sýnd kl. 7.15. Síöustu sýningar.
Sýnd kl. 5.30. Bönnuð börnum innan 10 ára.
Hækkaö verö.
Harry og sonur Tortímið hraðlestinni
"P
RCW
ttf'JSC>N
Þeir eru feðgar, en eiga ekkert sameiginlegt.
Úrvalsmynd framleidd og leikstýrö af Raul
Newman. Aöalhlutverk: Paul Newman og
Joanne Woodward. Sýnd kl. 3.10, 9 og 11.10.
Allt er gert til aö stoppa njósnarann. Æsi-
spennandi mynd eftir sögu Colin Forbes, meö
Robert Shaw (síöasta myndin sem hann lók 0,
Lee Marvin, Linda Evans (úr Dynasty). Leik-
stjóri: Mark Robson (hans síöasta mynd). Is-
lenskur texti. Bönnuð innan 12 ára. Endursýnd
kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Whcn rích.eccentric
Edwma Cutwaterdied.
acrazygurutried
to ti ansport hcr soul
intothe l>ody of
a beautifui
young woman
But the guru goofed
And Edwina s soul
hasaccidentally
takenover the
entire right side
of her lawyer,
Roger Cobb.
Now Edwina and
Roger are Irving
together in the
same body
fnNNONBHLL
Nú veröa allir aö spenna beltin því að
CANNONBALL gengiö er mætt aftur í fullu
fjöri. Skemmtilegir skúrkar og skvfsur, brand-
arar og brjálaöur bílaakstur meö Burt Reyn-
olds, Shirley MacLaine, Dom De Luise, Dean
Martin, Sammy Davis jr. og fl. Leikstjóri: Hal
Needham. íslenskur texti. Sýnd kl. 3.05, 5.05,
7.05, 9.05 og 11.05. Hækkaö verö.
SÝNINGAR
Árbæjarsafn
er opið skv. samkomulagi líkt og undanfarna
vetur. Upplýsingar í síma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í Ásgrímssafni er að finna sýningu á mynd-
um Asgríms Jónssonar sem eru í eigu safns-
ins og lýsa Iffi og starfi til sveita. Sýningin er
hugsuö sem skólasýning fyrir grunnskóla-
nemendur og mun safnkennarar annast
fræðsluna í safninu. Upplýsingar eru gefnar
f síma 621550. Safntímar eru á mánud. kl.
13:30—16 og fimmtud. kl. 9—12. Safnið er
opiö fyrir almenning á þriöjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13:30—16. Sýningin stendur til
aprílloka.
Bogasalur
Þjóðminjasafninu
Á laugardaginn kemur verður opnuö í Boga-
sal sýning á Ijósmyndum Péturs Brynjólfs-
sonar sem eru frá því í byrjun aldarinnar.
Sýningin verður opin skv. opnunartíma
Þjóðminjasafnsins, á þriðjudögum, fimmtu-
dögum, laugardögum og sunnudögum kl.
13:30-16.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
í dag, fimmtudag, 21. febrúar, opnar Ásdís
Sigurþórsdóttir myndlistakona sýningu í
Gallerí Borg á olíumálverkum. Ásdís stund-
aði nám í Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands á árunum 1974—1980. Hún hefur
fengist við sáldþrykk og er félagi í íslenskri
grafík. Þetta er 2. einkasýning Ásdísar. Sjá
nánar um sýninguna f Listapósti.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Um sl. helgi var opnuö sýning í Gallerfi Lang-
brók á skartgripum eftir myndlistarmennina
Grím Marínó Steindórsson og Rúrí. Megin-
hluti gripanna á sýriingunni er gerður úr áli
og stáli og eru þeir módelsmíð. Sýningin er
opin virka daga kl. 12—18 og um helgar kl.
14—18. Henni lýkur sunnudaginn 3. mars.
Höggmyndasafn
Ásmundar Sveinssonar
viö Sigtún
„Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar" er yf-
irskrift sýningar sem stendur yfir f safninu. Á
henni er sýnd hin tæknilega hlið högg-
myndalistarinnar, s.s. tæki, efni og aðferðir,
og einnig höggmyndir þar sem myndefnið
er „vinnan". Safnið er opið daglega frá kl.
10-17.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Um helgina færist heldur betur líf í tuskurnar
á Kjarvalsstöðum en þá veröa eftirtaldar sýn-
ingar opnaðar:
Á morgun, föstudag, kl. 18 opnar Ijós-
myndasýning frá Bandaríkjunum á vegum
Menningarstofnunar Bandaríkjanna, ís-
lenska Ijósmyndasafnsins og Kjarvalsstaða.
Myndirnar eru eftir bandarfska Ijósmyndar-
ann Margaret Bourke-White (f. 1904, d. 1971),
sem er vel kunn í hejmalandi sínu og víðar.
Á sýningunni eru samtals 109 Ijósmyndir
sem eru teknar á árunum 1930—1954, m.a.
á kreppuárunum og í tíð frelsisbaráttu Ind-
verja. Sýningin er hingað komin frá Sovét-
ríkjunum og á eftir að fara víðar. Sem sagt,
hin athyglisveröasta sýning. Tvær sýningar
fara af stað f vestursalnum á laugardaginn,
en þá opna þær Kristjana Samper og Rut
Rebekka Sigurjónsdóttir sýningar sínar.
Kristjana sýnir skúlptúr en Rut Rebekka
grafík og málverk, unnin meö blandaðri
tækni (akrýl, olfa).
Páll Guömundsson frá Húsafelli í Borgarfirði
opnar á laugardaginn sýningu sína á högg-
myndum sem hann hefur unnið úr íslensku
grjóti. Sýningin er í austurgangi.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá 14—22
en sýningarnar munu allar standa til 16.
mars.
Listasafn isiands
við Suöurgötu
í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á
vatnslitamyndum GunnlaugsScheving sem
er hluti af dánargjöf hans til safnsins. Einnig
eru til sýnis glermyndir eftir Leif Breiðfjörð
og ýmis önnur verk í eigu safnsins. Safnið er
opið fjórum sinnum í viku; á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um kl. 13:30-16.
Listmunahúsið
Lækjargötu 2
Sýning Helga Gíslasonar myndhöggvara f
Listmunahúsinu á 26 myndverkum, unnum
í brons og kopar, stendur fram á sunnudags-
kvöld. Sýningin er opin um helgina frá
14-18.
Norræna húsið
Sýning Guðmundar Björgvinssonar á vax-
listateikningum f kjallara Norræna hússins
stendur til 24. febrúar nk. Sýningarsalir
hússins eru opnir daglega frá kl. 14—22.
Mokka
Skólavöröustíg 3b
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Lofts Atla
á Mokkakaffi við Skólavöröustíg. Þetta er
3ja einkasýning hans en auk þess hefur
hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á
sýningunni eru hvoru tveggja svart/hvítar
myndir og litmyndir. Sýningin er opin til 25.
febr.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning er opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14—16.
Sýningarsalurinn fslensk list
Vesturgötu 17
Valtýr Pótursson sýnir olíu- og vatnslita-
myndir í sýningarsalnum Vesturgötu 17, en
sýningu sfna nefnir hann „Frá liönum árum".
Gallerfið er opiö virka daga frá 9—17 og um
helgar frá 14—18. Sýningin stendur til 3.
mars nk.
BÍÓIN
★ ★ ★
★ ★ ★
★ ★
★
O
framúrskarandi
ágæt
góð
þolanleg
Íéleg
Austurbæjarbíó
Tarsan
★ ★★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Hugh
Hudson (Chariots of Fire). Aðalhlutverk:
Christopher Lambert, Sir Richardson, lan
Holm. Byggð á fyrstu skáldsögunni um
Tarsan, eftir Edgar Rice Burroughs. Sýnd í
sal 1, kl. 5,7:30 og 10. í þessari sögu segir frá
því þegar enski lávarðurinn fer til síns heima
úr frumskóginum en ákveður að nokkrum
tíma liönum að snúa aftur til siðmenningar-
innar í Afríku.
Gullsandur
★★
Sýndísal 2, kl. 5, 7, 9 og 11.
Purple Rain
★★
Bandarísk. Árg. 1984. Tónlist: Prince. Leik-
stjórn: Albert Magnoli. Aðalhlutverk: Prince,
Apollonia Kotero, o.fl.
Sýnd f sal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhöllin
(sræningjarnir
(The lce Pirates)
Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðandi: John
Forenmean. Leikstjóri: Stewart Raffill. Aðal-
hlutverk: Robert Urich, Mary Crosby,
Michael D. Roberts, Hobb Carradine. Þessi
er um hunda sem ræna ísmolum til að setja
í kogarann.
Sýnd ísal 1, kl. 5, 7, 9 og 11.
Þú lifir aðeins tvisvar
(You Only Live Twice)
Bandarísk. Árg. 1970. Leikstjóri: Lewis Gil-
bert. Aðalhlutverk: Sean Connery, Akiko
Wakabayashi, Donald Pleasence, Tetsuro
Tamba. Framleiðendur: Albert R. Broccoli,
Harry Saltzman. Byggð á sögu eftir lan
Flemming. Það er sem sé enginn annar en
hinn eini sanni James Bond, Sean Connery,
sem steytir hnefann aö bófunum. Njótið
þess að hvíla ykkur á Símoni Templar um
sinn.
Sýnd í sal 2, kl. 5,7:05, 9:10 og 11:15.
Nikkel fjalliö
(Nickel Mountain)
★★★
Sjá umsögn í Listapósti. Sýnd í sal 3, kl. 9 og
11.
Sagan endalausa
(The Never Ending Story)
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Wolfgang
Petersen. Handrit: Herman Weigel, eftir bók
Michaels Ende. Framleiðandi: Bernd Eich-
inger og Dieter Geissler. Tónlist: Giorgio
Moroder (Cat People, Flashdance). Aðal-
hlutverk: Barret Oliver, Noah Hathaway,
Tami Stronach, Moses Gunn.
Sýnd í sal 3, kl. 5 og 7.
Rafdraumar
(Electric Dreams)
Sýnd í sal 4, kl. 5 og 7.
1984
★★★
Bresk. Árg. 1984. Kvikmyndataka: Roger
Deakins. Framleiðandi: Simon Perry/
Embrella Films. Handrit og leikstjórn:
Michael Radford (eftir sögu George Orwells,
1984). Aðalhlutverk: John Hurt, Richard
Burton, Suzanna Hamilton, Cyril Cusack,
Gregor Fisher o.fl.
Hin sígilda skáldsaga Orwells um mar-
tröðina í verkamannaríki fámennisstjórnar.
Góöur leikur og vönduð sviðsetning í um-
hverfi eftirstríösáranna.
Sýnd í sal 4, kl. 9.
í fullu fjöri
(Reckless)
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: James Foly.
Aðalleikarar: Daryl Hanna (skutlan í Splash).
Aidan Quinn, Cliff Young. Þessi mynd er frá
MGMUA um unglinga sem kunna að lifa og
leika sér, eins og það heitir víst.
Sýndísal 4, kl. 11:05.
Háskólabíó
París, Texas
★★★★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Wim
Wenders. Aðalhlutverk: Harry Dean Stanton
og Nastassja Kinski. Efniviður myndarinnar
er á þá leið að maður lætur sig
hverfa í 4 ár en þegar hann snýr aftur á gaml-
ar slóðir að vitja konu og barns, kemst hann
að því að konan hefur stungið af og orðið sér
úti um sérkennilegt starf, nefnilega að vera
sýningargripur í búðarglugga. Maðurinn er
skynsamur og vill sameina fjölskylduna á
ný.
Sýnd kl. 5 og 9:30.
Vistaskipti
(Trading Places)
★★
Bandarísk. Árg. 1983. Handrit: Timothy
Harris/Herschel Weingro. Tónlist: Elmer
Bernstein. Leikstjórn: John Lands. Aðalhlut-
verk: Dan Aykroyd, Eddie Murphy, Denholm
Elliot, Ralph Bellamy, Don Ameché o.fl.
„Ríkur gerður fátækur, fátækur gerður rík-
ur... Leikstjóranum hefur tekist að gera bráð-
fyndna mynd um þvælt þema... frábær af-
þreying... Stjörnuleikur. Handrit pottþétt og
plottþétt." -IM. Sýnd kl. 7:30.
Laugarásbíó
The Trouble with Harry
★★
Hitchcock með svartan húmor. Aðalhlutverk
ShirleyMacLaine, John Forsythe, Edmund
Gwenn o.fl.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Nýja Bíó
Steggjapartý
(Bachelor Party)
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Neal Israel.
Aðalleikarar: Tom Hanks, Tarny Kitaen. Þessi
filma hefur að geyma gamanmál: Ungur
maður hyggst steypa sér, sjálfviljugur, útí
mýrarfen hjúskapar og vinirnir sjá sig knúna
til að koma saman og kveðja í hinsta sinn...
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Regnboginn
All of me
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Carl Reiner.
Aðalhlutverk: Steve Martin, Lily Tomlin,
Victoria Tennant. Ridiculous efni, að hætti
gamanmynda.
Cannonball Run II
0
„Handritsgerð, iss, og leikstjórn, nei
takk..." -SER.
Harry og sonur
(Harry and Son)
Bandarísk. Árg. 1983/84. Leikstjóri: Paul
Newman. Aðalhlutverk: Paul Newman,
Joanne Woodward. Myndin segir frá sam-
skiptum feðga, framtíðardraumum sonarins
og hvernig þeir stangast á viö þann veruleika
sem faðirinn hefur kynnst á lífsferli sínum.
Einkar áhugavert efni, ef vel er farið með.
Indiana Jones
og musteri refsingarinnar
★★★
Tónabíó
Hefndin
(Utu)
Ný-sjálensk. Árg. 1983. Handrit: Keith
Aberdin. Leikstjórn: Geoff Murphy. Aðal-
hlutverk: Zac Wallace, Tim Elliott. Tónlist:
John Charles. Myndin styðst við sannsögu-
lega atburöi í sögu Nýja Sjálands. Árið 1870
tóku engilsaxneskir innflytjendur að flykkj-
ast þangað og sendu hersveitir sínar til höf-
uðs Maoriunum, frumbyggjunum. Myndin
fjallar síðan um baráttu milli þeirra og hvítra.
Sýnd kl. 5, 7 og 9:10.
Stjörnubíó
The Karate Kid
Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðandi: Jerry
Weintraub. Handrit: Robert Mark Kamen.
Kvikmyndun: James Crabe. Leikstjóri: John
G. Avildsen. Aðalhlutverk: Ralph Macchio,
Noriyuki „Pat" Morita, Elisabeth Shue,
Martin Kove, Randee Heller, William Zabka,
Ron Thomas, Rob Gerrison, Chad Mc-
Queen o.fl. Tónlist: Bill Conti.
Sýnd í A-sal, kl. 5, 7:30 og 10.
Draugabanar
(Ghostbusters)
★★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjórn og fram-
leiðsla: Ivan Reitman. Handrit: Don Aykroyd
og Harold Ramis. Kvikmyndun: Lazlo Kov-
acs. Brellur: Richard Edlund. Tónlist: Elmer
Bernstein og Ray Parker jr. Aðalleikarar: Bill
Murrey, Dan Aykroyd, Sigourney Weaver,
Harold Ramis, Rick Moranis.
„Myndin er BÍÖ, full af mikilfenglegu fjöri
sem oft kostar bakföll. Stemmningin er þess
eðlis að menn taka þátt í henni, ekki ósvipað
og þegar setið er framan við beina útsend-
ingu. ..." -SER
Sýnd í B-sal, kl. 5 og 9.
LEIKLIST
Kjarvalsstaðir
Alþýðuleikhúsið sýnir Petru von Kant á Kjar-
valsstöðum á laugardag og sunnudag, kl. 16
og gott betur: Á mánudagskvöld kl. 20:30.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Alþýðuleikhúsið sýnir Klassapíur í Nýlista-
safninu sem hér segir: í kvöld, fimmtudag
(uppselt), og sunnudaginn 24. febrúar. Sýn-
ingarnar hefjast kl. 20:30.
TÓNLIST
Háskólabíó
Áskriftartónleikar Sinfóníunnar verða á sín-
um stað í kvöld, fimmtudag, stundvíslega
kl. 20:30. Á efnisskránni eru verk eftir Jón
Nordal, W.A. Mozart, Rl. Tsjaikovski. Stjórn-
andi á tónleikunum verður Klauspeter
Seibel. Einleikari: Guðný Guðmundsdóttir.
Norræna húsið
Tvfieikur á píanó og fiðlu er á dagskránni í
Norræna húsinu á laugardaginn, 23. febrúar.
Það verða þau Kathleen Bearelen og Snorri
Sigfús Birgisson sem sitja við stjórnvölinn
og sjarmera gesti upp úr skónum. Við sem
förum fáum að heyra tónlist á borö viö a la
Schubert, Ysaýe, Stravinsky og Ives. Mæt-
ing kl. 17.
Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut
Jasshátíð verður haldin í Félagsstofnun
stúdenta annað kvöld, 22. febrúar og á laug-
ardagskvöld á vegum Grammsins en dag-
skrána nefna Grammarar, „Spunasmiðju".
VIÐBURÐIR
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Neshaga 16
Menningarstofnun Bandaríkjanna heiðrar
minningu Charlie Chaplin, með sýningum á
fimm helstu kvikmyndum hans næstu
kvöld. Fimmtudaginn 21. febrúar verða
sýndar The Kid (1921) og The Gold Rush
(1925); á mánudagskvöld, 26. febrúar: The
Circus (1928) og City Lights (1931) og
fimmtudagskvöldið, 28. febrúar: Limelight
(1952). Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleik-
stjóri mun kynna verk Chaplins við upphaf
hverrar sýningar, kl. 20:30.
16 HELGARPÖSTURINN