Helgarpósturinn - 04.07.1985, Blaðsíða 15
u.
Dypt
og kímni
Strindbergs
Stúdentaleikhúsið fékk í vor Kára
Halldór Þórsson, leikstjóra og leik-
listarkennara.til að vinna að sýn-
ingu á Draumleik eftir August
Strindberg (1849-1912). Leikrit
Strindbergs hafa ekki verið leikin
sérlega oft á íslensku leiksviði. Og
trúlega standa flestir í þeirri trú að
þessi skapmikli, litríki Svíi hafi helst
skrifað leikrit, drjúpandi af mjög svo
alvarlegri speki. En því fer vitanlega
fjarri. Kári Halldór sagði í samtali
við Listapóstinn að hópurinn í Stúd-
entaleikhúsinu hefði einmitt ein-
beitt sér að því að draga fram kímn-
ina í Draumleiknum. „Strindberg er
nefnilega mjög þversagnakenndur í
sinni leikritun," sagði Kári. „Og þeir
sem hafa fengist við verk hans, hafa
oft lokað augunum fyrir margbreyti-
leika þeirra. Olof Lagercrantz (sá er
hvað mest og best hefur kannað
Strindberg) hefur bent á, eða haldið
fram, að Svíar hafi verið alltof
þröngsýnir hvað þetta snertir. Menn
hafi viljað byggja upp hefðir í kring-
um túlkun á leikritum Strindbergs
— og að þeir hafi hangið fastir í þess-
um hefðum. Stundum hef ég upplif-
að sænskar Strindbergsuppfærslur
á þá lund, að þeir hafi talið að þeir
væru að leika „kórréttan Strind-
berg“. En þótt Strindberg hafi unnið
mikið við leikhús a.m.k. á vissum
tímabilum, þá gerði hann sér sjálfur
vel grein fyrir því að hann vissi ekki
allt um leikhús...
Nú er Strindberg ákaflega mót-
sagnakenndur höfundur. Hans
tengsl við lífið eru mjög svo spenn-
andi. Hann er t.d. ákaflega ólíkur Ib-
sen. Því fer fjarri að verk hans séu
nákvæmlega sniðin eftir formúlu
eða eigi að þjóna undir ákveðið
markmið. Strindberg er stundum
eins og hann ráði ekki við sig —
hann skrifar svo margslungið á köfl-
um. í Draumleiknum skýtur allt í
einu upp kollinum skemmtileg setn-
ing: „Hví skyldi eigi guðs eftirlíking
skipta um tennur?" — alveg út úr kú
og inn í samhengi þar sem verið er
að tala um háguðspekilega hluti.
Það er nokkuð mikið um svona hluti
hjá Strindberg.
Kannski lýsir það Strindberg vel
sem einn leikaranna okkar sagði
um daginn; þegar hann hafði lesið
Draumleik í fyrsta skipti, þá fannst
honum hann svipaður og málverkin
hans. Þessi dimmblái himinn og
hvítfyssandi haf. En svo þegar hann
hafði kynnst verkinu betur, unnið
meira með það, og Draumleikur
kannski orðinn hluti af lífi leikar-
anna, sáu menn nýjan sjóndeildar-
hring handan við þann sem blasti
við í fyrstu. Aðra liti, meiri dýpt.“
Kári sagði það spennandi að
vinna með ungu fólki sem sjálft
hefði valið verk eftir Strindberg
vegna þess að það höfðaði til þess.
„Hvernig skyldi þetta verk tengjast
okkar lífi núna?“ velti Kári vöngum
— „það er raunar merkilegur hlutur
sem sérlega gaman hefur verið að
vinna að og kanna."
Þýðingin á Draumleik er eftir Sig-
urð Grímsson. Flutt verður tónlist á
leiksýningum eftir Árna Harðarson.
Söngur og hljóðfærasláttur verður í
höndum leikaranna sjálfra. Og
frumsýningin verður 11. júní n.k.
- GG.
Kári Halldór Þórsson — leikstýrir Draumleik Strindbergs hjá Stúdentaleikhúsinu.
Tónlistarveisla
í Skálholti
Þrjúhundruð ár eru á þessu ári lið-
in frá fæðingu þriggja tónsnillinga,
þeirra Bachs, Hándels og Scarlattis.
Til að minnast þessa, verða veglegir
tónleikar haldnir í Skálholtskirkju
nú um helgina. Tónleikarnir munu
standa bæði laugardags- og sunnu-
dagseftirmiðdag, en aðaldagskráin
verður á laugardaginn.
Á laugardaginn mun Glúmur
Gylfason hefja dagskrána með því
að leika tokkötu eftir Bach og að
loknum ávörpum syngur kór M.H.
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdótt-
ur. Síðan mun Lars Ulrik Mortensen
leika sónötur eftir Scarlatti á semb-
al. Toke Lund Christiansen og Lars
Ulrik Mortensen munu síðan flytja
sónötur eftir Hándel og Bach og
leika á barokkflautu og sembal. Þær
sónötur verða svo fluttar aftur á
sunnudeginum. Klukkan 17 á
sunnudaginn verður svo messa í
Skálholti. Prestur verður sr. Agnes
Sigurðardóttir og listamenn munu
annast tónlistarflutning.
Þótt tónskáldin þrjú hafi verið
uppi á sama tíma og starfað í þjón-
ustu aðalsmanna, konunga, kirkju
og borgaryfirvalda eins og þá var
títt um tónskáld, þá voru innbyrðis
kynni þeirra ekki náin — en þeir
þekktust. Raunar þekktust þeir
Bach og Hándel aðeins af afspurn.
Hándel var sjálfsöruggur heims-
maður, hirðtónskáld Georgs I á Eng-
landi. Bach var af mikilli tónlistar-
mannaætt, starfaði sem kórdrengur,
semballeikari, fiðlari og músik-
meistari hertoga og fursta.
Þeir Hándel og Scarlatti þekktust
og báru mikla virðingu hvor fyrir
öðrum. Þeir hittust í Róm og voru
látnir keppa þar í hljóðfæraleik. Þeir
voru dæmdir jafnokar á sembal, en
Hándel talinn fremri í orgelleik. Þeir
voru 23 ára þegar þetta var.
Scarlatti hafði síðan ýmsar þýð-
ingarmiklar stöður við suður-evr-
ópskar hirðir og var um skeið tón-
listarstjóri við Péturskirkjuna í Róm.
Hann bjó síðar í Portúgal, flutti það-
an til Spánar og bjó tuttugu og þrjú
ár í Madrid þar sem hann starfaði
við hirðina og kompóneraði mikið,.
m.a. fyrir harpsikord.
Þeir Lars Ulrik Mortensen sembal-
leikari og Toke Lund Christiansen'
flautuleikari eru báðir útskrifaðir úr
Konunglega danska tónlistarskólan-
um og hafa síðan það var numið víð-
ar, fengið ýmsa viðurkenningu og
haldið tónleika í Evrópu og Ame-
ríku. Christiansen flutti flautukon-
sertinn sem Atli Heimir Sveinsson
fékk verðlaun Norðurlandsráðs fyr-
ir. Hann hefur verið einleikari með
Sinfóníuhljómsveit danska ríkisút-
varpsins síðan 1969. — GG.
Meistari HSndel — myndin er sögð likjast honum mjög.
Berkovsky
með
einleiks-
plötu
Stúdíó Mjöt hefur gefið út hljóm-
plötu með píanóleikaranum heims-
þekkta, Martin Berkovsky. Berkov-
sky leikur verk eftir Franz Liszt og
mun allur ágóði af sölu hljómplöt-
unnar renna til byggingar tónlistar-
húss í Reykjavík.
Mjög hefur verið vandað til allrar
gerðar hljómplötunnar. Upptökur
fóru fram í Þýskalandi, en platan
hljóðblönduð í stúdíói Mjöt og hjá
Ríkisútvarpinu. Magnús Guðmunds-
son hjá Mjöt á veg og vanda að þess-
ari útgáfu — sem Mjöt kostar og hef-
ur fengið styrk frá ýmsum fyrirtækj-
um.
Berkovsky er sem kunnugt er al-
þjóðlegur einleikari, starfar mest í
Evrópulöndum, en hefur um árabil
verið búsettur á íslandi. Á framhlið
plötuumslagsins er mynd af Berkov-
sky — hann er sýndur á vélhjóli
sínu, enda er hann kannski einmitt
þekktastur fyrir það á íslandi að
vera „píanósólistinn á vélfáknum".
-GG.
HELGARPÓSTURINN 15