Helgarpósturinn - 04.07.1985, Page 20
Helgarpósturinn ræðir við t\
Eins ogfram kom í sídasta bladi, skrapp bladamadur
Helgarpóstsins til New York á dögunum til þess ad
kynna sérýmislegt er vardar farmflutning á Nordur-
Atlantshafinu, stödu Hafskips á markadnum og sitt-
hvadannad, er vardar Hafskip og rekstur fyrirtækis-
ins. I þessari ferd var annars vegar rætt vid Gunnar
Andersen, fyrrverandi framkvæmdastjóra Cosmos,
flutningsmidlunarfyrirtækis Hafskips í Bandaríkjun-
um, og hins vegar vid Björgvin Björgvinsson, fyrr-
verandi starfsmann („line manager“) hjá Hafskip
USA á Long Island.
Gunnar sagdi upp hjá fyrirtækinu í febrúar, en
Björgvin var rekinn sama dag ogfyrsta grein HP birt-
ist um málefni Hafskips. Hann fékk fimm mínútna
frest til þess ad hafa sig á brott af skrifstofum Haf-
skips USA. Honum var gefid ad sök ad hafa rætt
Björgvin Björgvinsson, fv. starfsmaður Hafskips!
„Bókhaldið vægast
sagt skrýtið. . /#
Georgia Export Import — hvað er nú það?
HP hitti Björgvin Björgvinsson á
heimili hans í gömlu húsi en vel
viðhöldnu á Long Island. Hann
var furðuhress miðað við aðstæð-
ur, því í Bandaríkjunum getur það
verið erfiður baggi að bera að hafa
verið rekinn — sama við hverskon-
ar aðstæður það kann að vera.
Björgvin var fyrst spurður hvers
vegna hann hefði verið rekinn og
hvaða ástæður hefðu verið gefnar
upp.
„Baldvin Berndsen, forstöðu-
maður Hafskips USA, kom til mín
og kvaðst hafa fengið leiðbeining-
ar um það frá íslandi, að hann ætti
að reka mig; bað um lykilinn og
annað í eigu fyrirtækisins, og
sagði að uppsögnin tæki gildi kl.
12 á hádegi. Klukkuna vantaði þá
fimm mínútur í tólf.
Ég hef haft mjög ákveðnar skoð-
anir á rekstrinum, „trans-atlantic-
siglingunum o.fl. Þeir segja að ég
hafi brugðizt trausti, en sjálfur tel
ég mig ekki hafa brugðizt trausti
með því að segja það sem ég veit
að er satt. Mín skoðun er reyndar
sú, að það sé félaginu fyrir beztu
að segja satt. Til dæmis að taka, þá
hefur reksturinn hérna megin
hafsins, sá hluti sem ég sé, ekki
komið vel út kostnaðarlega og
töluvert miklu verr en forráða-
menn fyrirtækisins hafa haldið
fram. Það er kannski rétt að það
komi fram, að ég er alis ekki sá
eini sem er óánægður með ýmis-
legt í rekstrinum og stefnumótun-
inni. Það eru margir starfsmenn á
sömu skoðun, sem ekki hafa talað
út.“
— Telur þú að brottrekstur-
inn hafi verið í hefndarskyni,
þar sem forráðamenn Haf skips
töldu þig vera annan af tveimur
heimildamönnum blaðsins,
samkvæmt eigin ágizkun?
„Já, ég geri það að vissu leyti."
— Og ertu þá ekki bitur út í
HP?
„Nei, ég er ekki bitur út í Helgar-
póstinn. Það stóð ekkert í þessari
fyrstu umdeildu grein, né öðrum,
sem ekki var rétt. Þessar upplýs-
ingar voru ekkert jákvæðar fyrir
Hafskip, því raunveruleikinn hefur
ekki gefið ástæðu til neinnar bjart-
sýni.“
— En hvers vegna þessi
harkalegu viðbrögð?
„Hafskip vill láta hlutina sjást
eins góðu ljósi og hægt er, og
kannski að láta þá birtast í enn
betra ljósi en hægt er.“
— Nú hafa veriö birtar upp-
lýsingar um stöðu Hafskips,
gífurlegt tap og spá um að
framtíðin sé ekki sérlega björt
á Atlantshafsleiðinni. En hvað
segirðu mér um rekstur Haf-
skips USA, dótturfyrirtækisins
hér í Bandaríkjunum?
„Hafskip USA er til þess að gera
tiltölulega nýtt félag, stofnað á ár-
inu 1982, og hlutverkskrifstofunn-
ar var að afgreiða skip, sem komu
á þriggja vikna fresti frá íslandi. Þá
var megnið af rekstrinum byggt á
herflutningunum, sem voru borg-
aðir út í hönd jafnóðum. Á sínum
tíma voru þetta um 18—20% af
tekjum félagsins og stóð vel undir
þessum rekstri hér. Gámaflæði var
lítið, 50—60 gámar á þriggja vikna
fresti og verðið var það hátt, að
það þurfti ekki marga gáma til að
ná inn miklum peningum.
Eftir að farið var út í „trans-at-
lantic'-siglingarnar, lítur dæmið
allt öðru vísi út. Gámaflæðið hefur
margfaldazt, ferðir eru tíðari, her-
flutningur heyrir til undantekn-
inga, félagið á ekki neitt sem telj-
andi er, að undanskildum örfáum
gámum; hafnarkostnaður hefur
rokið upp, og raunar allur rekstr-
arkostnaður, sem áður var sáralít-
ill.
Af þessum ástæðum m.a. þarf
kostnaðareftirlitið að vera miklu
strangara en það var og það hefur
kannski ekki verið gert nóg í því
að herða þetta eftirlit.
Mitt álit á rekstrinum núna er
það, að hann sé sennilega á bata-
vegi, en byrjunin var ákaflega dýr
og frekar lauslega haldið á hlutun-
um í sambandi við kostnað, þann-
ig að tapið varð kannski meira en
það hefði að mörgu leyti þurft að
vera.“
— Hvaö áttu nákvæmlega
við? Er eitthvad gruggugt við
reksturinn?
„Það er margt sem bendir til
þess að færslur á reikningum séu
vægast sagt skrýtnar. Jú, það er
margt sem bendir til þess."
— Nú hefur þér verid hótað
málshöfðun eftir krókaleið-
um, skipt var um lása o.s.frv.
Eru þessir menn eitthvað
hræddir viö þig?
„Það hlýtur að vera einhver
hræðsla."
— Veiztu eitthvað, sem þú átt
ekki að vita eða þeir vilja ekki
að verði opinbert?
„Auðvitað hafði ég aðgang að
öllum rekstrarskjölum innan Haf-
skips USA og eitthvað af þeirri vit-
neskju hlýtur að gera þá órólega."
— Viltu nefna dæmi?
„Það eru auðvitað ótal dæmi, en
ég nefni ekkert sérstakt hér. Þó má
nefna að bókari Hafskips hf. var
fullur efasemda um bókhaldsmál-
in hér til skamms tíma, og hann
kom hingað sérstaklega út af því.
Ég held að það komi engum á
óvart, sem til þekkir, að það er
mikil óregla á rekstrinum
hérna.Það er vissulega rétt.“
Hér nægir að nefna, að HP
vakti athygli á því, að Hafskip
bryti bandarísk tollalög og notaði
ótryggða gámavagna. Þetta stað-
festi Björgvin í viðtalinu. Þá stað-
festi hann jafnframt, að fjórir
gúmmítékkar hefðu verið gefnir
út um mánaðamótin maí/júni, en
ekki einn, eins og Hafskip hélt
fram. Þar af hljóðaði einn upp á
60—70 þúsund dollara og átti að
ganga til New York Shipping Asso-
ciation, og annar upp á 6—7 þús-
und dollara, sem var greiðsla til
Jerry Fenzels lögmanns, sem var
ráðgjafi fyrir Hafskip. Skuldin var
tveggja ára gömul!
Við spurðum Björgvin þvínæst
um fyrirtækið „Georgia Export
Import."
— Hvaða fyrirtæki er þetta?
„Þetta fyrirtæki er í eigu Bald-
vins Berndsens, forstöðumanns
Hafskips USA, sem hefur fengið
greitt fyrir umsjón og afgreiðslu á
skipum fyrir hönd Hafskips í New
York.
— En kaupir ekki Hafskip
þessa þjónustu frá öðrum?
„Hafskip kaupir þessa þjónustu
frá öðrum, ýmsum öðrum. Meðal
annars var Hafskip með mann í
því að sjá um að koma skipum í
gegnum toll og sjá um hleðslu, los-
un og lestun. En Georgia Export
Import skuldfærði samt Hafskip
fyrir vissa upphæð á hvert skip
fyrir afgreiðslu á þessum skipum.”
— Hversu mikið?
„Það voru fyrst 900 dollarar og
síðan hækkaði þetta í 1000 dollara
á hvert skip. Ég tók þetta verk að
mér í nokkur skipti eftir að starfs-
maður félagsins var hættur, og
mér var borgað fyrir þetta verk
300 doliarar í hvert skipti sem ég
fór. En það var ekki Hafskip sem
greiddi mér, heldur Georgia Ex-
port Import. En þetta hef ég nú allt
talið fram til skatts."
— Hefur þetta fyrirtæki
heimilisfang heima hjá for-
stöðumanninum?
„Já, síðast þegar ég vissi hafði
þetta fyrirtæki aðsetur á heimili
Baldvins Berndsens."
— í grein HP fyrir aðalfund
Hafskips hf., þar sem kynnt var
tap upp á 95 milljónir króna,
var sagt að altalað væri, að tap-
ið væri einhvers staðar í nám-
unda við 200 milljónir króna.
Er það rétt hjá mér, að aðalbók-
ari fyrirtækisins hafi sagt
þetta?
„Já, það er rétt, að Sigurþór
Guðmundsson bókari mun hafa
sagt þetta við marga. Hann sagði,
að tapið myndi verða um 200
milljónir. Það er rétt.“
— Sagði hann það við þig?
„Já, já.“
— An nokkurs fyrirvara?
„Hann sagði, að þetta væri hans
mat. Það hljómaði eins og þetta
væri skoðun hans."
— Staðreynd?
„Já.“
— Hvenær sagði hann þetta
síðast?
„Hann var hérna í janúar og
sagði þetta þá.“
— Var hann búinn að segja
það áður.“
„Já, það var búið að tala um það
fyrir áramót líka, að tapið myndi
verða þessi tala. Hann kom hing-
að til þess að skoða reikningana;
sannfæra sjálfan sig um að tölurn-
ar sem komu héðan væru nokk-
urn veginn réttar, og eftir að hann
var búinn að fara yfir þetta, var
hann sannfærður um að tapið
væri í kringum 200 milljónir
króna á árinu 1984.“
— Hvað heldur þú að hafi
valdið þeirri breytingu, að árs-
reikningurinn sýnir ekki nema
95 milljónir?
„Nu veit ég ekki. Það er utan
minnar þekkingar, hvernig þeir
komust að þeirri niðurstöðu, eða
hvort maðurinn hefur haft 100%
rangt fyrir sér. Það veit ég ekki
heldur."
HAFSKIP setdiskip
— og Útvegsbankinn hirti söluverðið
Hafskip USA, dótturfyrirtæki
Hafskips hf. í New York, hefur nú
flutt skrifstofur sínar frá Long
Island á neðri hluta Manhattan-
eyju í New York borg. Þessi flutn-
ingur hefur staðið lengi fyrir
dyrum, en er nú orðinn að veru-
leika. Talið er, að með þessu geti
fyrirtækið annazt þjónustu sína
betur og hraðar en áður var.
Tveir nýir starfsmenn hafa ver-
ið ráðnir til fyrirtækisins. Annar
verður framkvæmdastjóri sölu-
sviðs og hinn framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs.
Flutt var í nýja húsnæðið um
síðustu helgi.
Þá hefur Hafskip hf. selt eitt
skipa sinna, sem metið var á
350—400 þúsund dollara. HP
hefur ekki getað fengið það stað-
fest, en heimildir blaðsins telja
að Utvegsbanki Islands hafi tek-
ið til sín hverja einustu krónu
sem fékkst fyrir skipið. Söluverð
hefur ekki verið gefið upp.
Björgólfur Guðmundsson, for-
stjóri Hafskips, hefur nú dvalið í
New York í u.þ.b. hálfan mánuð
og hefur haft í ýmsu að snúast.
Þannig hefur hann setið á samn-
ingafundum hjá M&T bankanum
í New York vegna skulda Haf-
skips. Bankinn hefur lánað Haf-
skipi á fimmtu milljón dollara,
en Utvegsbankinn hefur ábyrgzt
þá fjárhæð. Hins vegar hefur
bankinn krafizt ábyrgðar Út-
vegsbankans vegna 250 þúsund
dollara skuldar Cosmos við
bankann. Hafskipi hefur ekki
tekizt að afla þeirrar ábyrgðar
20 HELGARPÓSTURINN