Helgarpósturinn - 04.07.1985, Side 22
jmmmmmmmmmmm.
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 5. júlí
19.25 Bjargiö. Endursýning. Myndin gerist
í Grímsey aö vori til og er um nokkur
börn sem fá að fara í fyrsta skipti í
eggjaferð út á bjargið. Umsjón og
stjórn: Elín Þóra Friðfinnsdóttir.
19.40 Sögur og draumar. Finnsk barna-
mynd.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.00 Skonrokk. Umsjónarmenn Haraldur
# Þorsteinsson og Tómas Bjarnason.
21.15 Drengskaparmenn. Bresk heimilda-
mynd um starfsemi mafíunnar á Sikil-
ey, Ítalíu og í Bandaríkjunum.
22.00 Konuraunir. (Poor Cow). Bresk bíó-
Söguhetjan er gift atvinnu-
glæpamanni og stendur uppi ein með
ungan son Þeirra Þegar maðurinn er
dæmdur til fangelsisvistar. Hún reynir
að bjarga sér með ýmsu móti og
kynnist mörgu misjöfnu í því basli.
23.40 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 6. júlí
16.00 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felix-
é son.
19.25 Kalli og Sælgætisgerðin. Sjötti
W Þáttur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20 00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Sambýlingar. Sjötti þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í sex þáttum.
21.05 Allt í pati í paradís. (There's Some-
* thing Wrong in Paradise). Bresk dans-
og söngvamynd gerð fyrir sjónvarp.
22.30 La Paloma. Svissnes-frönsk bíó-
0 mynd frá 1974. Leikstjóri Daniel
Schmid.Óásjálegur aðalsmaður fellir
ást til fagurrar söngkonu sem er tær-
ingarveik. Að endingu lætur hún til-
leiðast að eiga hann en geymir ást
sína öðrum. Þýðandi Sonja Diego.
00.25 Dagskrárlok.
Sunnudagur 7. júlí
18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Guðni
Þór Ólafsson flytur.
18.10 Ferðin til tunglsins. Bandarísk
teiknimynd gerð eftir sígildri sögu
eftir Jules Verne. Þýðandi Eva Hall-
varðsdóttir.
19.0Q Hló.
19.50 Fróttaágrip á táknmáli.
20íÖ0 Fréttir og veður.
2ÖI25 Auglýsingar og dagskrá.
20.4Ö Sjónvarp næstu viku. Umsjónar-
W maður Magnús Bjarnfreðsson.
2(fi.55 ^aga og samtíð. Hús og heimilis-
jfólk I. I þessum þætti verður fjallað
um húsakost íslendinga fyrr á tímum
og þær aðstæður sem fólk bjó við.
21Í40 Til þjónustu reiðubúinn. Lx)kaþátt-
§ ur. Breskur framhaldsmyndaflokkur í
f þrettán þáttum.
22.30 Blúsinn, það er ég. Bandarískur
djassþáttur tileinkaður tónsmiðnum
og blússöngvaranum Willie Dixon og
verkum hans.
23.35 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 4. júlí
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
20,00 Leikrit: „Aríetta", einleikur eftir
Odd Björnsson.
2ÖÍ30 Samleikur í útvarpssal.
21.00 Misskilningur.
21.30 Jazz í stúdíó eitt: Tónlist eftir
Jukka Linkola.
22.00 Bókaspjall. Áslaug Ragnars sér um
þáttinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Slarkari, skáld og kraftamaður.
Um ögmund Sívertsen.
23.00 Kvöldstund ídúrog moll.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 5. júlí
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna: ,,Litli
bróöir og Kalli á þakinu".
09.20 Leikfimi.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Það er svo margt að minnast á".
11.15 Morguntónleikar.
12.20 Fróttir.
14.00 ,,Úti í heimi", endurminningar dr.
Jóns Stefánssonar.
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Lótt lög.
16.00 Fréttir.
16.20 A sautjándu stundu.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Barnaútvarpið.
17.35 Frá A til B. Létt spjall um umferðar-
mál.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Daglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Frá tónskáldum.
22.00 Hestar.
22.1j£réttir.
22.35 Úr blöndukútnum.
23.15 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands í Garðabæ.
Laugardagur 6. júlí
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.30 óskalög sjúklinga.
10.00 Fréttir.
Óskalög sjúklinga, frh.
11.00 Drög að dagbók vikunnar.
12.20 Fréttir.
14.00 Ligga ligga lá.
14.20 Listagrip.
15.20 ,,Fagurt galaði fuglinn sá"
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Helgarútvarp barnanna. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
17.50 Síödegis í garðinum.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Sumarástir.
20.00 Harmonikuþáttur. Umsjón: Bjarni
Marteinsson.
Val Sigrídar Gunnarsdóttur
ljósmyndara:
Á föstudagskvöld horfi ég sennilega á bresku heimildamyndina;
Drengskaparmenn, en kveiki síðan á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar á rás 1. Á laugardeginum horfi ég örugglega á Kalla og sælgætisgerð-
ina og fréttir. Ef til vill horfi ég á síðari bíómyndina. Á sunnudegi horfi
ég á fréttir, og það sem á eftir kemur til dagskrárloka. Annars horfi.ég
meira á sjónvarp vegna þess að ég er bundin heima yfir barni, fremur
en af miklum áhuga á efninu. Á rás 2 sé ég ekkert sem höfðar til mín
nema þátt Svavars Gests. Á fimmtudagskvöld ætla ég að hlusta á hann,
annars dagskrá rásar 1, sérstaklega leikritið. Á föstudag hlusta ég á fréttir
auk sinfóníutónleikanna, en á laugardag held ég mig mest við sjónvarp-
ið, nema hvað ég fylgist með útvarpsfréttum. Það er enginn sunnudagur
án útvarpsmessunnar, en það sem mestan áhuga vekur í útvarpinu þá,
eru miðdegistónleikarnir. Ætli það verði svo meira?
20.30 Útilegumenn. Þáttur í umsjá Erlings
Sigurðarsonar. RÚVAK.
21.00 Kvöldtónleikar. Þættir úr sígildum
tónverkum.
21.40 Einkunnarorð ævi minnar. Ræða
eftir Karen Blixen.
22.35 Náttfari — Gestur Einar Jónasson.
RÚVAK.
23.35 Eldri dansarnir.
24.00 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón
örn Marinósson.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 til kl. 03.00.
Sunnudagur 7. júlí
08.00 Morgunandakt. Séra Ólafur Skúlason
dómprófastur flytur ritningarorð og
bæn.
08.10 Fréttir.
08.35 Létt morgunlög.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónieikar.
10.00 Jréttir.
10.35 Útog suður. — Friðrik Páll Jónsson.
11.00 Messa á Grenjaðarstaö. Hádegis-
tónleikar.
12.20 JFiréttir.
13.30 List og kristindómur.
14.30 Miðdegistónleikar.
léT0 Milli fjalls og fjöru.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Leikrit: ,,Raddir sem drepa" eftir
Poul Henrik Trampe.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Frá afmælistónleikum Svjato-
siavs Richters í Moskvu.
18.00 Tónleikar.
18.45 Veöurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar.
'M
19.35 Það var og. Þráinn Bertelsson rabb-
ar við hlustendur.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins.
21.00 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
21.30 Útvarpssagan: ,,Leigjandinn"
eftir Svövu Jakobsdóttur. Höfund-
ur les (2).
22.00 Að vera tré. Norska skáldkonan Hall-
dis Moren Vesaas les úr Ijóöum sín-
um.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 iþróttaþáttur. Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
22.50 ,,Að kveðja er að deyja agnar-
ögn". Þáttur um Ijóðskáldið Rúnar H.
Halldórsson í umsjá Sfmonar Jóns Jó-
hannssonar. Lesari með honum: Þór-
dís Mósesdóttir.
23.10 Djassþáttur — Tómas R. Einarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur 4. júlí
20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda
Rásar 2. 10 vinsælustu lögin leikin.
21.00?32.00 Gestagangur. Gestir koma í
stúdíó og velja lög ásamt léttu spjalli.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
23.00-24.00 Orðaleikur.
Föstudagur 5. júlí
10.00-12.00 Morgunþáttur.
14.00-16.00 Pósthólfið.
16.00-18.00 Léttir sprettir.
Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan:
11.00, 15.00, 16.00 og 17.00.
20.00-21.00 Lög og lausnir.
Spurningaþáttur um tónlist.
21.00-22.00 Bergmál.
22.00-23.00 Á svörtu nótunum.
23.00-03.00 Næturvaktin.
Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá
Rásar 1.
Laugardagur 6. júlí
10.00-12.00 Morgunþáttur.
14.00-16.00 Við rásmarkið.
16.00-17.00 Listapopp.
17.00-18.00 Hringborðið.
20.00-21.00 Innsýn.
21.00-22.00 Stund milli stríða.
23.00-24.00 Bárujárn.
23.00-24.00 Svifflugur.
24.00-03.00 Næturvaktin.
Rásirnar samtengdar að lokinni dagskrá
Rásar 1.
Sunnudagur 7. júlí
13.30-15.00 Krydd ítilveruna. Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
15.00-16.00 Dæmalaus veröld. Þáttur um
dæmalausa viðburði liðinnar viku.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda
Rásar 2. 20 vinsælustu lögin leikin.
UTVARP
Utvarp á
krossgötum
Hvað gerir Ríkisútvarpið/hljóðvarp nú?
spyr maður sjálfan sig eftir að útvarpslögin
voru samþykkt á Alþingi. Er útvarpið með
stóru U-i reiðubúið að mæta flóðbylgju nýrra
rása og hvernig mun því reiða af i vaxandi
samkeppni? Það er augljóst mál að ef Út-
varpið ætlar að spjara sig (sem þýðir einfald-
lega að einhver nenni að hlusta á það), þurfa
ráðamenn Rásar 1 og 2 að hrista töluvert upp
í öllum deildum sínum. í fyrsta lagi mun
fréttastofan lenda í nýrri og óvæntri sam-
keppni; hverjir verða nú fyrstir með fréttirn-
ar? Og áfram: Hvernig verður fréttamatið og
matreiðslan á fréttum? Fréttatimum Út-
varpsins verður að fjölga, en jafnframt þarf
að stytta fréttirnar og hætta öllum þjónustu-
fréttum, sem eru aðeins ókeypis auglýsingar.
Dagskrárdeildin fær einnig þarft verkefni
að glíma við. Dagskrárgerð Rásar 1 hefur
einkennst af handahófskenndu vali og prófíl-
leysi; því hafa nánast ekki verið sett nein skil-
yrði hverjir geti vaðið inn í stúdíó, né gerðar
kröfur til efnis. Þessi stefna hefur fengið að
viðgangast vegna þess að hún er ódýr,
þ.e.a.s. amatörarnir kosta lítið. Nu verður
dagskrárdeildin hins vegar að huga að því að
hún er ekki lengur með einokun á öldum
ljósvakans, og því kynni svo að fara að eng-
inn nennti að hlusta á þá (sem reyndar hefur
þegar komið fram í hlustendakönnuninni,
varðandi flestalla þáttagerð á Rás 1.) Eins
verður tóniistardeildin að fara í naflaskoðun,
svo ekki sé meira sagt. Rás 2, sem hefur verið
alltof einhæf í þáttagerð, verður einnig að
sýna fleiri hliðar á sér, vegna þess einfald-
lega að nú verður hún ekki lengur eina rásin
með tónlistarlegt léttmeti á bóðstólum.
I heild má segja að Ríkisútvarpið verði að
gera sér grein fyrir því að með nýju útvarps-
lögunum hlusta færri á minna. Það er hin
sorglega niðurstaða aukins valfrelsis í út-
varpsmálum. Ríkisútvarpið ætti að byggja út
svæðaútvarpið, efla stutta og markvissa dag-
skrárgerð, koma meira til móts við fólkið í
landinu og vera meira meðal almennings.
Samtímis má Ríkisútvarpið ekki falla í gryfju
alþjóðlegrar útvötnunar og skrílmennsku.
Það verður að standa vörð um íslenska
menningu (sú varðveisla minnir æ meira á
uppgefinn kennara sem reynir að halda
tossabekknum við efnið) og gera hana að-
gengilega fyrir stressaða og þreytta alþýð-
una.
Og í lokin: Allt kostar þetta peninga. Ríkis-
útvarpið, sem afgreitt hefur auglýsinga-
greiðendur sem fiokk tiikynningapúka,
missir vænan spón úr aski sínum með tii-
komu nýrra auglýsingastöðva. Verður ekki
að sameina auglýsingastofur Rásar 1, 2 og
Sjónvarpsins í alvöruauglýsingastofu sem
tekur upp arðvænleg vinnubrögð?
SJÓNVARP
eftir Gunnar Gunnarsson
Draugar í Þingholtunum
Einn er sá staður á Islandi, sem íslenska
sjónvarpið ætlar seint að lukkast að ná til
með útsendingargeisla sína. Það eru Þing-
holtin í Reykjavík. í flestum húsum í því
hverfi næst myndin ekki nema illa bjöguð
og skæld — draugagangur á skjánum, eins
og það er kallað, sem magnast stundum í
slæmri vindátt. Ég kann ekki að útskýra
hvað það er sem veldur; væntanlega bara
landslagið og stefna útsendingargeislans.
En svo mikið er víst, að væru það íbúar ein-
hvers afdalsins norður við íshaf sem byggju
við svo bjagaða sjónvarpsmynd sem Þing-
hyltingar, hefði verið bætt úr fyrir löngu.
Móttökuskilyrðin í Þingholtunum eru
raunar mismunandi eftir því hversu ofar-
lega í Holtinu menn búa, hve há húsin eru
og hve hátt til lofts loftnetin teygja sig. En
langflestir hafa árum saman látið sér lynda
afleita mynd. í rándýrum, beinum útsend-
ingum af knattspyrnuleikjum heimsins
hlaupa fjörtíu og fjórir fótboltakarlar um
völlinn í stað tuttugu og tveggja. Og hadd-
ur sjónvarpsþuia er oft eins og margföid
lagkaka á höfði þeirra, nefin tvö, augun
fjögur, fingurnir tuttugu.Þessi ósköp stafa
auðvitað af því að Þingholtin í Reykjavík
snúa vitlaust í veröldinni — og sennilega
skerpist ekki myndin á skjánum fyrr en
höfð verða endaskipti á landslaginu. Sumir
Þinghyltingar kæra sig kollótta, segjast
hvort eð er sjaldan eða ekki horfa á sjón-
varp; myndbönd færi þeim heim í stofu
þann kúltúr sem þeir vilji hvílast við hverju
sinni og útvarpið sé merkari fréttamiðill.
En afnotagjöldin eru jafnhá í þessu hverfi
Reykjavíkur og annars staðar á landinu og
ætti því að vera sjálfsagt réttlætismál að
kippa þessu í liðinn.
En kannski þurfa Þinghyltingarnir ekki
að velta vöngum yfir sjónvarpsmyndinni
lengi enn. Sjónvarpið er sagt vera á heljar-
þröm,- verður væntanlega að hætta útsend-
ingu í haust sökum mannfæðar. Og fátækt
þessa fjölmiðils er raunar löngu farin að
gera vart við sig. Þessa dagana, þegar
starfsmenn stofnunarinnar eru margir í
sumarleyfum, er dagskráin fábreytilegri en
ella, fréttir ekki sendar út beint, heldur
teknar upp nokkru fyrir venjulegan frétta-
tíma og hljóðið sett við í öðru hljóðbyrgi —
eiginlega minna vinnubrögðin meira á
annálsgerð en fréttamiðlun. Og draugarnir
í Þingholtunum eru kannski ekki afsprengi
tæknilegra örðugleika — heldur raunsönn
mynd af deyjandi fyrirtæki?
22 HELGARPÓSTURINN