Helgarpósturinn - 15.08.1985, Page 5
Ur að eiga fleiri peninga en
Birkir Baldvinsson í Lúx. Lands-
vlrkjun átti nýlega viðskipti við
blómafyrirtæki hér í borg og mun-
aði þá ekki um að snara út 7,8 millj-
óna króna ávísun (notuðu bara eitt
blað úr heftinu). í kjallara hússins
þar sem Landsvirkjun hefur aðalað-
setur sitt í Reykjavík, við Háaleitis-
braut, hefur Blómamiðstöðin haft
sína aðstöðu í kjallaranum. Fyrir-
tæki þetta sér um heildsölu á blóm-
um til blómabúða og átti sjálft hús-
næðið. Aftur á móti hafði Lands-
virkjun keypt aðra hluta kjallarans
af Sláturfélaginu. Þegar til kom nýtt-
ist sá hluti Landsvirkjun mjög illa
nema hún eignaðist blómahlutann
líka. Eftir langar og strangar samn-
ingaviðræður samþykktu blóma-
bændur að selja. Og verðið sem
sæst var á: 7,8 milljónir á borðið fyr-
ir gluggalaust kjallararými. Þá vildi
Blómamiðstöðin fá húsnæðið leigu-
frítt í ár frá útborgun (sem þegar hef-
ur farið fram) og síðan með leigu í
þrjá mánuði til viðbótar. En Lands-
virkjunargreifum þótti alltof mikið
tilstand að þurfa að rukka leigu í
þrjá mánuði. Buðu í staðinn leigu-
frítt í tvo mánuði af þessum þremur
en um leið að Blómamiðstöðin færi
að þeim tíma liðnum. Og auðvitað
samþykkt. . .
Í^Hins og við höfum áður sagt í
HP, þá mun vera ljóst að búið var að
ákveða fyrirfram hverjir hljóta
skulu yfirmannsstöður nýjar í sjón-
varpinu. Þannig mun Ingvi Hrafn
Jónsson verða nýr fréttastjóri og
Hrafn Gunnlaugsson dagskrár-
stjóri innlends efnis. Munu báðir
þessir menn hafa samið um laun sín
við Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóra áður en þeir lögðu inn
umsóknir sínar. Við heyrum einnig
að Guðbrandur Gíslason sé ör-
uggur sem innkaupastjóri erlends
efnis. Ingvi Hrafn, verðandi frétta-
stjóri, mun hafa ýmsar hugmyndir
tilbúnar þegar hann sest í stól frétta-
stjóra. Mun hann m.a. hafa hug á að
breyta sjálfri útsendingunni á frétt-
unum og laga hana að bandarískri
fyrirmynd. Hefur Ingvi Hrafn hug á
að taka upp form hins þekkta sjón-
varpsmanns Walter Cronkite, og
sitja sjálfur í öndvegi sem fréttastjóri
og lesa fréttirnar frá fréttastofunni
en síðan komi einstakir fréttamenn
inn í sendinguna með sín fréttainn-
skot. Enn er þó óráðið hvort þetta
form verður tekið upp fyrr en sjón-
varpið flytur í nýja útvarpshúsið...
H
■ Mann varð heldur betur von-
svikinn hveitiáhugamaðurinn sem
lagði upp í Parísarferð með leið-
sögubók Jónasar Kristjánssonar
ritstjóra upp á vasann. Þar las
hann um hina gagnmerkustu búð,
„Maison du Miel“, en um hana er
farið svofelldum orðum í bókinni
París heimsins höfuðprýði: ,,I næsta
nágrenni Madeleine-torgs er hveiti-
búðin Maison du Miel að 24 Rue Vig-
non. Þar fást rúmlega 30 tegundir
hveitis, þar á meðal fjallahveiti og
ungverskt akasíuhveiti, allar til sýn-
is við búðarborðið. Til eru fleiri sér-
hæfðar hveitibúðir í borginni, en
þessi er hin merkasta." Hveitiáhuga-
maðurinn kunningi okkar bjóst
sumsé við því að finna einhvers kon-
ar franskan kornmarkað, og varð
eðlilega nokkuð bilt við þegar hann
sá að í búðinni var ekkert að finna
utan einhver ókjör af hunangi í ýms-
um gerðum og litum. Hann fór heim
og fletti upp í litlu vasaorðabókinni
sinni, og jú — þarna lá hundurinn
grafinn; „Miel“ á frönsku þýðir
nefnilega ekki mél, eins skringilega
og það kann að koma mönnum fyrir
sjónir, heldur hunang. . . Vinurinn
leitaði sumsé að Kornmarkaði, en
fyrir tilstuðlan Jónasar fann hann
Hunangshús. Þeim sem vilja fá
frekari botn í þessa ráðgátu er ráð-
lagt að fletta upp í frönsku leiðsögu-
bókinni „Gault-Millau...“
lEiins og hlustendur morgunút-
varpsins hafa sjálfsagt tekið eftir
hefur verið þar einum umsjónar-
manni færra undanfarnar vikur.
Það er Hanna G. Sigurðardóttir
sem hefur hætt störfum, en ástæður
þess mun vera að rekja til óánægju
með samstarfið við þá Guðmund
Árna Stefánsson og Önund
Björnsson. Hún hefur verið í sum-
arafleysingum hjá útvarpinu undan-
farin fimm sumur og var t.a.m. með
morgunútvarpið í fyrra ásamt
Illuga Jökulssyni. Oft á tíðum
mun hafa verið um hugmynda-
fræðilegan ágreining að ræða, en
meirihlutavald réð og þeir Önund-
ur og Guðmundur Árni hafa líkar
hugmyndir um það hvernig þáttur-
inn eigi að vera. Gafst Hanna að
lokum upp og kvartaði við vara-
dagskrárstjórann en ennfremur
þótti Hönnu þeir leggja of litla vinnu
í þættina. Eftir kvörtunina fór þátt-
urinn undir smásjá yfirmanna út-
varpsins, sem hafa bent á ýmislegt
sem betur mætti fara...
||
m manaðamótin hefur ný
auglýsingastofa starfsemi sína í nýja
húsinu við Lækjartorg, þar sem
samnefnt gallerí Jóhanns G. Jó-
hannssonar var til húsa. Opnun
auglýsingastofunnar er heldur bet-
ur blóðtaka fyrir auglýsingastofuna
Gott fólk, því þar hætta 5 starfs-
menn á sama tíma, til þess að færa
sig um set, og fylgja fyrrum drif-
fjöðrum Góðs fólks, þeim Ólafi
Inga Ólafssyni og Kristjáni Frið-
rikssyni, aðstandendum nýju aug-
lýsingastofunnar. Helgarpósturinn
sagði á sínum tíma frá þessum yfir-
vofandi breytingum hjá Góðu fólki.
Og nú er sem sagt sagað og neglt á
fullu á 250 fermetra gólffleti við
Lækjartorg, og eru innréttingar
Tryggva Tryggvasonar arkitekts
sagðar hið mesta nýmæli. Og nafn
auglýsingastofunnar: „Svona ger-
um við...“
ið höfum áður sagt frá hinum
fyrirhuguðu sérverslunum í nýju
Hagkaupa-verslunarmiðstöðinni í
Kringlunni. Þetta er amerískt sér-
verslanakerfi sem nefnist „Shopp-
ing Mall" á ensku og felst í því að
sérverslanir með litlar búðir hlið við
hlið eru staðsettar í kringum stóran
verslunarkjarna með aðdráttarafl, í
þessu tilfelli Hagkaup. Um tíma
gekk sala húsnæðis fyrir sérverslan-
irnar treglega, ekki síst vegna þess
að forráðamenn Hagkaupa gerðu
miklar kröfur til þeirra verslana sem
þeir seldu húsnæði. Var m.a. komið
fyrir ákvæði í sölusamningi þar sem
Hagkaup áskildu sér endurleigu á
selda húsnæðinu ef viðkomandi
verslun sýndi ekki arðbæran rekst-
ur. Nú hefur hins vegar komið mikill
kippur í sölu húsnæðis fyrir þessar
sérverslanir. Er það bæði því að
þakka að byggingu Hagkaupa hefur
miðað vel, svo og að fasteignasalan
Miðborg hefur tekið að sér sölu á
umræddu verslunarhúsnæði. Hafa
nokkrir starfsmenn Miðborgar farið
til Frakklands sérstaklega til að
kynna sér nánar rekstur og sölu
slíkra sérverslana...
FALCONCREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi '
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.
pj n i BYGGINGAVORUR I
BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 símí 28600 STÓRHÖFÐA sími 671100
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
HELGARPÓSTURINN 5