Helgarpósturinn - 15.08.1985, Síða 11
Bíla- og birgðageymsla Landsbankans við Höfðatún í Reykjavík. Lítið áberandi hús, enda leynileg geymsla; og skortur á mannasiðum að leggja leið sína þangað og taka myndir, sagði Jónas Haralz bankastjóri við
blaðamann HR
ans þegar svo ber undir. Munu þeir
Jónas Haralz og Helgi Bergs einna
helst notfæra sér þá þjónustu þegar
þeim þykir ástæða til. En þá setjast
þeir inn i Peugeot-fólksbílinn, þann
elsta í flotanum, sem að öllum lík-
indum verður seldur á næsta ári.
Range Rover-jepparnir eru notað-
ir til ferða út um landið á veturna, til
eftirlits varðandi afurðalán, en eitt-
hvað er þó notkun þeirra á huldu,
nema hvað vitað er að þeir eru not-
aðir í Iax. Nauðsynlegt þykir að nota
framhjóladrifna bíla til vetrarferða.
Þetta eru dýrustu bílarnir í flotan-
um; gangverðið á þeim yngri er 1,4
milljónir króna og þeim eldri 950
þúsund.
Þeir Jón og Jakob sögðu að bílar
Landsbankans væru einungis not-
aðir í þágu bankans, og starfsmenn,
hvort sem um bankastjóra eða bíl-
stjóra væri að ræða, notuðu þá
aldrei að loknum vinnudegi. Þeir
sögðu líka að viðhald bíla væri án
efa hvergi jafn mikið og í bíla-
geymslunni, enda stöðugt liaft að
markmiði að bílarnir hröpuðu ekki
í verði þrátt fyrir mikla notkun
sumra þeirra. Og ekki sögðu þeir
laust við að þeir væru stoltir af útliti
bílanna, þótt enginn bílstjóranna
væri haldinn bíladellu.
Hinir bankarnir eiga
líko bíla
Og hvað skyldu svo hinir ríkis-
bankarnir vera auðugir að bílum?
Hjá Seðlabankanum fengust þær
upplýsingar að bankinn hefði yfir
fjórum bílum að ráða; tveimur jepp-
um af gerðinni Range Rover sem
notaðir væru til bankaeftirlits og
tveimur fólksbílum af gerðunum
Audi og Volvo, sem notaðir væru til
að flytja bankastjóra og annað fólk
þegar ástæða væri til. Þá mun
Seðlabankinn hafa einn sendiferða-
bíl til flutninga.
Hærri tala en þrír fékkst hvorki
uppgefin frá Búnaðarbankanum né
Útvegsbankanum. Útvegsbankinn
notar þrjá bíla af gerðinni Volks-
wagen Golf, sem geymdir eru í
læstri geymslu bankans, og Útvegs-
bankinn notar gamlan Peugeot,
sem hefur verið ekið vfir 150 þús-
und kílómetra, og tvo litla Ford-
fólksbíla í alla flutninga. Frekari
upplýsingar um bílaeign og bíla-
notkun þessara banka fengust ekki.
Og þegar kvölda tekur lokast
rammgerðar dyr að baki þessa bíla-
flota ríkisbankanna, sem ætti nú
tæplega að teljast launungarmál, en
hitt vitum við ekki, hvort bílarnir
eru alls staðar jafn vel þrifnir og
þeirra í Landsbankanum. Eitt er þó
víst; að ábreiðan verður ekki tekin -
af Olds Mobile-bílnum fyrr en næsta
gest ber að garði, því það má ekki
falla rykkorn á gljáfægt svart
„boddíið".
sendiferðabíll, tveir Galant „station-
bílar“, annar árgerð 1985 og hinn ár-
gerð 1983, Peugeot „station-bíll“ frá
árinu 1980, og elsti bíllinn í flotan-
um er fólksbíll af Peugeot-gerð frá
árinu 1978. Þá er ótalinn sá bíll sem
óneitanlega hlýtur að teljast sá
glæsilegasti; Olds Mobile árgerð
1981, og geymdur er undir ábreiðu
utan þá sjaldan hann er notaður.
Bílarnir eru mismunandi mikið
notaðir eins og eðlilegt hlýtur að
teljast. Til dæmis er búið að aka
elsta bílnum yfir hundrað þúsund
kílómetra, en kílómetramælirinn í
Olds Mobile-bílnum sýnir undir 15
þúsund kílómetra.
Bílakostur upp á
fimm milljónir
Og hvað kostar þetta nú, spyrja
menn að vonum? Eftir að hafa feng-
ið upplýsingar um gangverð þeirra
bíla sem hér um ræðir á bílasölum í
borginni, er verðmæti bíla Lands-
bankans um fimm milljónir króna,
lauslega áætlað. Og miðað við upp-
lýsingar bílstjóranna Jóns G. Jóns-
sonar og Jakobs Matthíassonar, selj-
ast bílarnir aldrei undir gangverði,
því þess er vandlega gætt að gæði
þeirra séu sem best þegar að endur-
sölu kemur.
Liðir í því eru gott viðhald og
þrifnaður. Það er í verkahring bíl-
stjóranna að sjá um minni háttar
viðhald, en þurfi að kalla til fag-
menn er leitað til starfsmanna
Höfðanausts, sem er verkstæði við
hliðina á bílageymslunni.
Þvottaaðstaða er í húsinu, og þó
svo mest þurfi að þrífa yfir vetrar-
tímann, er aldrei skilið svo við bíl-
ana að kvöldi að þeir hafi ekki verið
þvegnir og pússaðir eftir notkun
dagsins. Það eru því gijáfægð farar-
tæki sem aka úr geymslunni að
morgni. Að sögn þeirra Jóns og
Jakobs eru það óskráð lög að bílarn-
ir séu vel þrifnir, og umsjón með því
hefur sá fyrrnefndi.
Verkaskipting er nokkuð jöfn
meðal bílstjóranna átta, og að sögn
þeirra tveggja eru þeir allir í fullu
starfi hjá Landsbankanum við að
aka og annast bílana. Sögðu þeir
verkefni næg fyrir bílana, og sáu
ekki ástæðu til að ætla að um nokk-
urt bruðl væri að ræða. Bílarnir
væru þó mismikið notaðir, t.d. væri
Olds Mobile-bíllinn lítið hreyfður.
Hann er ætlaður til fólksflutninga,
svo sem þegar erlenda gesti ber að
garði, og er einn áttamenninganna
sérstaklega með það hlutverk að
aka bílnum undir þeim kringum-
stæðum. Sá sami annast reyndar
alla fólksflutninga; þar með talið
flutninga bankastjóra Landsbank-
„Nauðsynlegt að hafa framhjóladrifna bfla yfir vetrartímann". Annar tveggja Range Rover jeppanna sem bflageymslan
hýsir. Og svo eru þeir líka notaðir til að skreppa í lax...
Olds Mobile árgerð 1981 og ekinn undir 15 þúsund kflómetrum. Við hátíðleg tækifæri og þegar erlenda gesti ber að garði er hann dreginn fram í dagsljósið. Þess
á milli er yfir honum ábreiða, þvf ekki má setjast rykkorn á lúxuskerruna (flotanum.
HELGARPÖSTURINN 11