Helgarpósturinn - 15.08.1985, Side 24
A
■^■fcgreiningurinn innan Banda-
lags jafnaðarmanna er nú að brjót-
ast út á fullu. Hefur lengi kraumað
milli frjálshyggjuhópsins og jafnað-
armanna í BJ en upp úr sauð fyrir al-
vöru eftir að Kristófer Mór Krist-
insson, formaður landsnefndar,
lýsti því yfir í morgunútvarpi í fyrra-
dag, að nefndin hafnaði fulltrúalýð-
ræði og engir innan BJ hefðu um-
boð til að bera fram skoðanir nema
þingmenn bandalagsins. Vöktu um-
mæli Kristófers mikla reiði meðal
jafnaðarmanna í BJ og hefur verið
ákveðið að jafnaðarmannavængur-
inn, undir forystu Garðars Sverris-
sonar, hittist á lokuðum fundi í
kvöld, fimmtudag (sennilega á Torf-
unni), og stofni sérstakt félag jafnað-
armanna. Þegar Valgerður
Bjarnadóttir, sem talin hefur verið
tii frjálshyggjuhópsins ásamt Kristó-
fer Má, frétti af þessum fundi í morg-
un, hafði hún samband við jafnaðar-
mennina í BJ og spurði hvort henni
væri boðið á fundinn. Var henni þá
tilkynnt að nærveru hennar væri
ekki óskað og hún fengi ekki að-
gang. Það sama mun gilda um Krist-
ófer Má og aðra frjálshyggjumenn í
BJ. Þá spurði Valgerður hvort hún
gæti gengið í tilvonandi félag jafn-
aðarmanna ef það yrði stofnað í
kvöld. Fékk þá Valgerður þau svör,
að hún gæti reynt að sækja um inn-
göngu og henni yrðu send umsókn-
areyðublöð, þótt því fylgdu engin
loforð um inngöngu í hið nýja fé-
lag...
G,8„«
deila á málsmeðferðina við sölu
hlutabréfa ríkissjóðs í Flugleiðum,
verða æ háværari. Er almennt talað
um söluna sem fjármálahneyksli
þar sem tilboðsaðilum hafi verið
mismunað. Er hér átt við að Flug-
leiðum hafi verið kunnugt um inni-
hald tilboðs Birkis Baldvinssonar
og getað á þann hátt sniðið sér
stakk eftir vexti. Sá sem misst hefur
andlitið einna mest í þessu máli er
Aibert Guðmundsson fjármála-
ráðherra. hann hefur áður lýst því
yfir, að hagstætt væri fyrir Flugleið-
ir að fá nýtt blóð inn í fyrirtækið,
menn með nýjar hugmyndir. Hins
vegar gekk hann þvert á þær hug-
myndir með því að selja Flugleiða-
32 HELGARPÖSTURINN
mönnum hlutabréf ríkissjóðs. Mikið
er nú rætt um hvernig lekinn frá
fjármálaráðuneytinu og yfir í her-
búðir Flugleiða hafi átt sér stað. Á
lofti eru aðallega tvær kenningar. í
fyrsta lagi að Albert hafi talað um
innihald tilboðs Birkis á vikulegum
fundi Þorsteins Pálssonar, for-
manns Sjálfstæðisflokksins, með
ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. í
öðru lagi að Albert hafi talað af sér
við Flugleiðir. Er þá tvennt nefnt:
Annað hvort hefur Albert misst til-
boð Birkis út úr sér við Sigurð
Helgason, forstjóra Flugleiða, sem
gekk á fund fjármálaráðherra sama
dag og tilboð Birkis barst. Eða þá,
og það þykir mönnum sennilegra,
að Albert hafi óvart tjáð Leifi
Magnússyni, framkvæmdastjóra
stjórnunarsviðs Flugleiða, innihald
tilboð Birkis. Leifur og Albert eru
gamlir vinir og sátu m.a. saman áð-
ur fyrr í flugráði og hafa mikið sam-
band. En auðvitað eru þetta allt get-
gátur...
II
WmF r bankaheiminum heyrum
við að allir stærstu bankarnir, með
ríkisbankana í forystu, hyggist nú
einangra Iðnaðarbankann og um-
svif hans. Hefur Iðnaðarbankinn
farið mjög fyrir brjóstið á banka-
stjórum annarra banka, einkum
vegna þess að bankinn hefur farið
eigin götur í vaxtamálum. Er þess
skemmst að minnast að bankinn
fylgdi markaðslögmálum í sumar
og hækkaði vextina, þvert á stefnu
ríkisstjórnarinnar. Var Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra mjög óhress með þessa sjálf-
stæðu vaxtastefnu bankans sem þó
reyndist hárrétt, enda fylgdu aðrir
bankar í kjölfarið. Þá var Iðnaðar-
bankinn fyrstur banka með tölvu-
banka sem gerir viðskiptavinum
kleift að taka út peninga allan sólar-
hringinn. Iðnaðarbankinn hefúr
heldur ekki látið vel að stjórn í aug-
um hinna bankanna og fylgt sjálf-
stæðri stefnu sem gert hefur bank-
ann sterkan og vakið athygli í við-
skipta- og fjármálaheiminum. Nú
finnst öðrum bönkum nóg komið,
og ekki síst ríkisreknu fyrirgreiðslu-
bönkunum, þar sem pólitík skiptir
meiru en viðskipti. Hafa bankarnir
nú tekið sig saman og munu með
ýmsum ráðum reyna að skáka Iðn-
aðarbankanum. Fyrsta skrefið í-
þessa átt verður að stofna sameig-
inlegan tölvubanka allra bankanna,
þannig að viðskiptavinur t.d. í
Landsbankanum getur tekið út pen-
inga í tölvubanka Búnaðarbankans
o.s.frv. Þetta mun náttúrlega þýða
margfalt auðveldari og handhægari
tölvubankaþjónustu en Iðnaðar-
bankinn býður upp á, einfaldlega
vegna þess að bankarnir og útibúin
eru margfalt fleiri en Iðnaðarbank-
ans. Og fleira er víst í deiglunni í
baráttunni gegn Iðnaðarbankan-
um...
■ járveiting til framhaldsskólanna
hefur verið af skornum skammti og
óttast nú margir skólastjórar að
einkaskólarnir verði það sem koma
skal. Menntaskólarnir hafa verið
best settir hvað fjárveitingu snertir,
svo og varðandi kennsluhúsnæði,
heimavist og kennaraíbúðir. Sem
dæmi um vanda annarra framhalds-
skóla, heyrum við að skólastjóri Iðn-
skólans á ísafirði, Jón Ingi Har-
aldsson, hafi sagt upp eftir eitt ár í
starfi vegna þess að húsnæði fyrir
hann og fjölskyldu hans hafi ekki
verið fyrir hendi. Hins vegar hefur
Jóni Inga snúist hugur, þar eð skól-
inn útvegaði honum íbúð í Hnífsdal.
Ekki munu húsnæðismál skólans
heldur vera í góðu standi. Kennt er
í gömlu frystihúsi, Sandfelli, og hef-
ur aðstaðan verið sérstaklega erfið.
Hafa forráðamenn skólans nú
ákveðið að reyna að fá bóklega
kennslu færða í menntaskólann en
notast við Sandfell undir verklega
kennslu...
Vinsœlu
greidslukjörin okkar
gilda á útsölunni.
iViö tökum vel á móti bér
Skipholti 19, sími 29800
Nú er kjörið tœkifœri til að endurnýja hljóm-
tœkin, fá sér nýjanplötuspilara, nýjan magn-
ara, stœrri hátalara, betfa útvarp, nýtt
segulband eða skáp utan um samstœðuna, nú
eða nýja hljómtœkjasamstœðu.
w**********?**********************************
Við rýmum fyrir
'86-LÍNUIMNI
' ÆT _ _ _
A
HLJÓMTÆKJUNUM
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN
Á ÖLLUMELDRI
HLJÓMTÆKJUM
Nú rýmum vid til fyrir 86-línunni frá
Marantz og seljum öll
eldri Marantz-hljómtœki á
16—15% lœgra verði á útsölunni.