Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 03.10.1985, Qupperneq 19

Helgarpósturinn - 03.10.1985, Qupperneq 19
KVIKMYNDIR Zelig í okkur öllunn eftir Ingólf Margeirsson og Sigmund Erni Rúnarsson Austurbœjarbíó: Zelig. ★★★ Handrit og leikstjórn: Woody Allen. Bandarísk. Árgerð 1983. Kvikmyndataka: Gordon Willis. Tónlist: Dick Hyman. Aðalhlutverk: Woody Allen, Mia Farrow, Garret Brown, Stephanie Farrow, Will Holt, Sol Lomita o.fl. Kvikmyndir Woody Allens verða bara æ betri. Allt frá því að hann setti sjálfan sig á svið sem hinn taugaveiklaða, smávaxna gleraugnaglám og Manhattan-gyðing í fyrstu myndunum (Take the Money and Run (1969), Bananas (1971) og Everything You Álways Wanted to Know about Sex, But Were Afraid To Ask (1972) hafa kvikmyndir hans þróast og orðið formfastari og öruggari með nokkr- um hliðarsporum eins og ástarjátningunni til Bergmans í Interiors (1978) og sjálfspæling- unni í Stardust Memories (1980). í nýjustu mynd sinni, The Purple Rose ofCairo (1984) sem undirritaður sá nýlega erlendis, nýtir hann og ýkir kvikmyndaformið í hreina full- komnun með kvikmynd í kvikmyndinni þar sem persónur og leikendur mætast og eigast við. Af hinum nýlegri myndum hans er nú Zelig (1983) komin til landsins en A Midsummer Night's Sex Comedy (1982) og Broadway Danny Rose (1983) enn ókomnar. Zelig er makalaus og meinfyndin mynd. Hún fjallar um fyrirbærið Leonard Zelig sem er upp á sitt besta á þriðja og fjórða áratugnum. Zelig er eiginlega persónulaus, óöruggur og með enga sjálfsvirðingu eða sjálfsvitund. Hann vill einungis geðjast öðrum og þetta gerir hann með því að breyta sér í bókstaf- legri merkingu eftir því fólki sem hann er með hverju sinni. Þannig breytist hann í negra, íra, hornaboltaleikara, stjórnmála- mann, lækni, sálfræðing og þar fram eftir götunum. Zelig verður þjóðfrægur, sem ,,Kamelljónmaðurinn“. Geðlæknir (Mia Farrow) fær hann til meðferðar, læknar hann og það takast með þeim ástir. En kreppan er skammt undan, nú streyma fram ýmsir kven- menn sem hafa átt með Zelig börn þegar hann var í hinum og þessum hamnum. Vin- sældir Zeligs breytast í úlfúð og hann hverf- ur. Loks skýtur honum upp í Þýskalandi Hitlers, orðinn SA-maður í fremstu áróðurs- línu. Þessa sögu alla segir Woody Allen í svart- hvítri heimildarmynd, þar sem hann klippir. saman gamlar fréttamyndir, bregður upp myndum af þekktum bandarískum persón- um í dag sem segja frá kynnum sínum og áliti á Zelig (innskot í lit). Kvikmyndataka Gordon Willis er afbragð, stundum veit maður hrein- lega ekki hvað er ekta gömul fréttamynd og hvað er „fölsuð" gömul ræma. Tónlist Dick Hymans er í sama dúr, áhorfandinn getur á engan hátt áttað sig á hvað eru stolnir gamlir slagarar og hvað er frumsamið. Með því að nota heimildarmyndaformið, tekst Woody Allen að halda bíógestum fastfjötruðum, fá þá til að trúa lyginni sem sannri frásögn. Maður veit að Leonard Zelig var aldrei til, en maður trúir samt á tilvist hans. Leonard Zelig verður einnig einstakt verkfæri í hönd- um Woody Allens til að hæðast endalaust að tískufyrirbrigðum i sálfræði og læknisfræði, og aldrei hef ég séð freudianismann skorinn jafnsr.yrtilega niður, þótt Allen (og fleiri góð- ir menn) hafi oft lagt sig fram við að grínast með Freud. Það er ennfremur hæðst að fjöldahysteríu og delluákefð Bandaríkja- manna, kreppu, stjórnmálum og þjóðlífs- þáttum. Eiginlega er Zelig saga Bandaríkj- anna á fyrri hluta aldarinnar en hún er enn- fremur um samsemd og sjálfsímynd einstakl- ingsins. Það er Zelig í okkur öllum; við erum pródúkt af umhverfi og menningu hvers tíma. Zelig-stigið er æðsta þrep áhrifagirni og öryggisleysis. Zelig er stutt mynd (79 mínútur) en ég er ekki frá því að hún hefði verið enn betri við styttingu. Sem klukkustundar „heimildar- mynd“ hefði Zelig orðið fullkomið meistara- verk í réttri heimildarmyndalengd. Söguþráðurinn í Zelig er borinn uppi af þuli, og hrein hneisa að texti sögumanns skuli ekki vera þýddur á kópíunni í Austur- bæjarbíói. Zelig er nefnilega erfið mynd í texta, og oftar snjöll en fyndin, og engin leið iyrir bíógesti sem ekki kunna enska tungu vel, að fá viðunandi botn í myndina. -1M Woody Allen sem Leonard Zelig: Hið mannlega kamelljón í eillfri leit að sam- bandi og viðurkenn- ingu. Tryllt samband fréttamanns og fréttaefnis Regnboginn: Árstíð óttans (The Mean Sea- son): ★★★ Bandarísk, árgerð 1985. Framleiðendur: David Foster og Lawrence Turnman. Leikstjórn: Philip Borsos. Handrit: Leon Piedmont, eftir bók John Katzenbach „In the Heat of the Summer". Kvikmyndun: Frank Tidy Tónlist: Lalo Schifrin. Aðal- leikarar: Kurt Russell, Mariel Hemingway, Richard Jordan, Richard Masur, Joe Pantoliano, Andy Garcia. Malcolm Anderson er að krepera eftir átta ára fréttamennsku á Miami Journal og er eig- inlega á því að skipta yfir á smáblað úti á landi, þegar hann fær heldur óvenjulega upphringingu eftir að vera búinn að skrifa frétt um stúlku sem skorin var um nóttina. Maðurinn á hinum enda línunnar er morð- inginn. Hann segist vera svo hrifinn af stíl Malcolms að sér finnist óvitlaust að gera hann að eiginlegum miðli milli sín og um- hverfisins; hann skapi fréttirnar, Malcolm skrifi þær. Reyndar sé hann búinn að skipu- leggja næstu fjögur morð, svo það verði nóg að gera við fréttaskrifin á næstunni hjá fé- laga Anderson! Þetta er gott plott og reyndar verður ekki annað sagt um þennan þétta þriller Philip Borsos en hann sé þrælvel skrifaður, ef und- an er skilin persónan sem vinstúlka frétta- mannsins á að túlka, en hún hangir um of í lausu lofti. Leikur Mariel Hemingway í þessu hlutverki er ákaflega flatur eftir því, en hið sama verður fráleitt sagt um leik Richard Jordan í hlutverki sálsjúka morðingjans. Hann er innan við tíu mínútur framan við tökuvélina, en nær á þeim kafla að skapa svo sturlaðan karakter að hrollur manns varð meiriháttar. Russel sýnir og góðan leik, virk- ar altént mjög sannfærandi sem æsifrétta- maður. Og reyndar verður ekki annað sagt um myndina í heild, en að hún gefi nokkuð trúverðuga innsýn í bandaríska blaða- mennsku. -SER. Dino droppar vid hjá Stebba Kóng Bíóhöllin: Auga kattarins (Cat’s Eye) ★★ Bandarísk, árgerð 1985. Framleiðandi: Dino de Laurentiis. Leikstjórn: Lewis Teague. Handrit: Stephen King, eftir þremur smásögum sínum. Kvik- myndun: Jack Cardiff. Tónlist: Alan Sil- vestri. Aðalleikarar: James Woods, Drew Barrymore, Alan King, Kenneth McMillan, Robert Hays, Candy Clark, James Naugh- ton, Tony Munafo. Dag einn labbaði Dino kallinn yfir til Stebba Kóngs og spurði: „Heyrðu Stefán, mér skilst að þú skrifir ansi skemmtilegar spennusögur. Værirðu ekki til í að rubba af einu kvikmyndahandriti fyrir mig upp úr þessum verkum þínum?" En Stebbi svaraði að bragði: „Mér þykir það leitt, Dino minn, en ég er bara algjörlega andlaus þessa dag- ana, fær bara ekki fátæklegustu hugmynd í kollinn." Dino: „Hva..., gildir ekki einu hvað frá þér kemur, verður það ekki allt vinsælt? Svona; byrjaðu nú, þú veist að þetta er ekki spurning um pening af minni hálfu." Og Stebbi gaf sig að lokum: „Jæja þá, ég get svo sem reynt að hressa hérna upp á þrjár smá- sögur sem ég fann ófullkláraðar undir rúmi i gærkveldi, og þrætt þær saman í mynd. Er það ókey?“ Og Dino de Laurentiis er aldeilis hræddur um það, veit eins og fram kom hér að ofan, að allt verður að gulli sem Stebbi Kóngur snertir þessa dagana. Síðan er frumsýnt. Fyrsta sagan er broslega fáránleg, önnur giska spennó, sú þriðja spielbergsk. Þetta er tengt saman með tilviljanakenndum ferðum flækingskattar um borgir og bý og kallað einu nafni „Cat’s Eye“. Basta; allir fara ánægð- ir heim, enda er þessi kvikmynd nosturslega unnin og til dæmis ekkert upp á hana að klaga hvað leik varðar. En hver ástæðan er fyrir því að þessi samsetningur verður að filmu önnur en sú að Stephan King hafi verið vita andlaus daginn sem Dino de Laurentiis bankaði upp á hjá honum, skal ekki fjölyrt frekar um. -SER. Góð mynd í vondu bíói Tónabíó: Ragtime. ★★★ Bandarísk, árgerð 1981. Framleiðandi: Dino de Laurentiis. Leikstjórn: Milos Forman. Handrit: Michael Weller. Kvikmyndun: Miroslaw Ondreizek. Tónlist: Randy Newmann. Aðalleikarar: James Cagney, Elizabeth McGovern, Howard E. Rollins Jr., Mary Steenburger, Brad Dourif, James Olsen, Donald O’Connor. Ekkert kvikmyndahús í Reykjavík sýnir viðskiptavinum sínum jafn mikla lítilsvirð- ingu og Tónabíó. Þjónustan við kúnnana er nærfellt engin, nema ef vera skyldi popp- kornssalan. Þannig hættu forráðamenn þessa bíóhúss að prenta prógrömm með myndum sínum fyrir allnokkrum misserum og hefur það verið með herkjum síðan að bíógestir hafi getað notið sjálfsagðra upplýsinga um þá mynd sem þeir eru að fara að horfa á. Þá gerist það æ ofan í æ að þetta bíó sýni mein- gölluð eintök af kvikmyndum, rispaðar og slitnar filmur, brenglaðar hljóði. Og það sem er kannski verst af þessu öllu og sýnu aum- ingjalegast er að stjórnendur þessa kvik- myndahúss geta ekki hundskast til þess að láta íslenska allar þær myndir sem þeir taka til sýninga. Það er agalegt að jafn góð mynd og Rag- time skuli vera tekin til sýninga í jafn vondu kvikmyndahúsi og Tónabíói. Og hafði maður þó beðið nógu lengi eftir því að sjá þetta sjar- merandi verk Formans á íslensku breiðtjaldi, en myndin er árgerð ’81. Það eintak sem Tónabíó sýnir af þessari mynd haustið 1985 er bæði lélegt og óþýtt (skýringartexti á dönsku að visu). Og leikskrá er náttúrlega víðs fjarri. Þó ekki væri nema af þessum sök- um, vil ég benda fólki á að nálgast Ragtime einhverstaðar annarstaðar en í Tónabíói, til dæmis á vídeóleigum. Þessi þriggja stjörnu mynd sem er einstaklega sterk lýsing á tíðar- andanum í bandarísku þjóðfélagi rétt uppúr aldamótum með hörkuleik Rollins, Cagney og fleiri á skilið betri sýningarstað en í titt- nefndu bíóhúsi. -SER. HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.