Helgarpósturinn - 14.11.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTAPÓSTUR
Fjárlagafrumvarpiö: menningin undir hnífinn
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra hélt fjár-
málaræðu sína á Alþingi á þriðjudag. Breyting-
arnar sem Þorsteinn boðaði frá upphaflegu
frumvarpi Alberts Guðmundssonar voru í raun
litlar miðað við yfirlýsingar hans á Stykkis-
hólmsfundinum. Tekjuhlið frumvarpsins
lækkar um 0,9% og útgjöldin um 1,7% sem ekki
skiptir sköpum í ríkisfjármálum. Hins vegar
mun niðurskurðurinn skipta sköpum fyrir þær
menningar- og þjónustustofnanir sem fyrir nið-
urskurðinum verða, en framlög til þeirra eru
lækkuð um samtals 179 milljónir króna. '
Átök á landsfundi Alþýðubandalagsins
Landsfundur Alþýðubandalagsins var haldinn
um síðustu helgi. Þar var Svavar Gestsson end-
urkjörinn formaður með 90% atkvæða, Kristín
Ólafsdóttir kjörin varaformaður með 70% at-
kvæða, Pálmar Halldórsson ritari og Margrét
Frímannsdóttir gjaldkeri. Þessi stjórn Alþýðu-
bandalagsins var kjörin án mótframboða. Mikil
spenna rikti á fundinum um kjör forystu-
manna en úrslitin eru afleiðing samkomulags
milli helstu fylkinga á fundinum og voru tillög-
ur kjörnefndar um stjórn og framkvæmda-
stjórn allar samþykktar án mótframboðs. Fjöl-
margir voru hins vegar i framboði til 40 sæta í
miðstjórn. Efstur í miðstjórnarkosningunni
varð Lúðvík Jósefsson. Margir þingfulltrúar
eru sammála um að landsfundurinn hefði
styrkt flokkinn, þrátt fyrir að hann einkennd-
ist af talsverðum átökum, eða jafnvel einmitt
þess vegna.
Landsfundur Kvennalistans laus við ágreining
Þriðji landsfundur Kvennalistans var haldinn í
Reykjavík um helgina. Fundinn sátu um 80
konur úr öllum landshlutum, en formleg félög
Kvennalistans eru nú starfandi í sex kjördæm-
um af átta.
Framsóknarmenn: vantraust á ríkisstjórnina
Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins á Suð-
urlandi um síðustu helgi kom fram mjög mikið
vantraust á ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar. í skoðanakönnun sem fram fór meðal
þingfulltrúa um afstöðu manna til ríkisstjórn-
arinnar lýstu aðeins 10% yfir stuðningi við
stjórnina. Á þinginu lagði Magnús Ólafsson
varaformaður SUF fram þá hugmynd að fram-
sóknarmenn bjóði fram tvo lista, B og BB, í
Reykjavík og á Reykjanesi í næstu kosningum.
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og
formaður flokksins er þessu andvígur.
Okurlánarannsóknirnar halda áfram
Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur nú af full-
um krafti i okurlánamálinu sem er orðið eitt
umfangsmesta rannsóknarmál í sögu stofnun-
arinnar. í kjölfarið á gæsluvarðhaldi Hermanns
Björgvinssonar hafa margir verið kallaðir til yf-
irheyrslu.
Sextándi hver Reykvíkingur hefur sagt sig „til
sveitar“
Nær 4. hvert barn sem býr með einstæðu for-
eldri í Reykjavík, rúmlega 5. hvert einstætt for-
eldri í borginni og um 8. hver ellilifeyrisþegi eru
meðal skjólstæðinga fjölskyldu- og ellimála-
deildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborg-
ar. Alls eru þessir skjólstæðingar 5.345 sem eru
rúmlega 6% eða um 16. hver af öllum íbúum
höfuðborgarinnar. Tölur þessar eru úr árs-
skýrslu Félagsmálastofnunar.
Mannlausir þingsalir
Vinnubrögð voru mjög í sviðsljósinu á Alþingi á
mánudag. Fundur í efri deild stóð einungis í
nokkrar mínútur vegna verkefnaskorts og í
þeirri neðri lauk fundi um hálfri klukkustundu
fyrr en áætlað var vegna fjarvista þingmanna.
Að vísu eru allnokkrir þingmenn erlendis en þó
er þetta verklag eftirtektarvert nú í miðjum nóv-
embermánuði vegna þeirra anna sem þingheim-
ur hefur venjulega þurft að kljást'við fyrir jóla-
og sumarleyfi þingmanna.
Könnun á húsnæðiskjörum
Félagsvísindadeild Háskóla íslands hefur gert
könnun á húsnæðiskjörum í samvinnu við
nefnd sem félagsmálaráðherra skipaði í fyrra.
Þar kemur fram að hátt i 60% kaupenda notaðs
húsnæðis eru undir 35 ára aldri og vinnuþrælk-
un húsnæðiskaupenda er gifurleg; þeir vinna
að jafnaði 12% lengri vinnutima en verkamenn
almennt, en 22% lengri vinnutíma en skrif-
stofumenn, eða 55 klukkustundir á viku. Þeir
sem kaupa i fyrsta sinn verja 68% af f jölskyldu-
tekjum til húsnæðisins.
Flugfreyjur sömdu við Flugleiðir
Á fimmtudag sömdu flugfreyjur við Flugleiðir
án þess að afskipti kjaradóms rikisstjórnarinn-
ar kæmu til. Kjarasamningur flugfreyja og
Flugleiða gildir til 1. janúar eins og gert var ráð
fyrir í kjaradómi. Flugfreyjur fá nokkra hækk-
un launa með samningum, u.þ.b. 20% auk
hækkunar á bílastyrk og dagpeningum.
Dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir morð
Sigurður Adolf Frederiksen, tvitugur Kópavogs-
búi, var á fimmtudag dæmdur í 17 ára fangelsi
í sakadómi Kópavogs fyrir að hafa orðið Jósef
Liljendal að bana aðfaranótt 14. mars sl. Dóm-
urinn yfir Sigurði er sá þyngsti sem upp hefur
verið kveðinn hér á landi síðan 1981 þegar
Hæstiréttur dæmdi mann i 17 ára fangelsi fyrir
að hafa orðið tveimur mönnum að bana í svo-
nefndum Geirfinns- og Guðmundarmálum.
Fréttapunktar
• Fjórum færeyskum sjómönnum af flutninga-
skipinu Rona frá Klakksvik var bjargað um
borð í togarann Sveinborgu frá Siglufirði 35 míl-
ur suðaustur af Hvalbak síðdegis á laugardag.
Þá var mikill leki kominn að skipinu.
• Skólasafnanefnd hefur ákveðið að mæla ekki
með að ný kynfræðslubók, ,,Þú og ég“, verði
keypt á skólabókasöfn landsins þrátt fyrir hrós
fjölmargra aðila, þ.á m. starfsfólks kynfræðslu-
deildar Heilsuverndarstöðvarinnar.
• Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir að framlag ríkisins til Þróunarfélagsins
verði skorið niður úr 150 milljónum í 100 millj-
ónir.
• Borgarsjóður greiddi eina milljón fjögur
hundruð og sautján þúsund krónur fyrir hellu-
steina sem fluttir voru til landsins frá Portúgal
vegna endurbóta á Laugaveginum. Borgaryfir-
völd misreiknuðu sig á grjótinnflutningnum
því um þriðjungur þess varð afgangs, að and-
virði hálfrar milljónar króna.
Andlát
Sigurður Jónsson frá Haukagili lést í Landa-
kotsspítalanum í Reykjavik þann 7. nóvember
sl., 73 ára að aldri.
SMARTSKOT
UÖSMYND JIM SMART
Saumaðir þú
Alþýðubandalagið
saman?
Kjartan Ólafsson
„Ég tel ekki að það hafi verið mitt verk eingöngu þó að ég
hafi átt hlut að því ásamt öðru fólki, einkum í kjörnefnd lands-
fundarins, að gera tillögur um þá forystusveit sem þarna var
valin. Mér sýnist á sumum fjölmiðlanna að það sé litið svo á að
þarna hafi gerst eitthvert kraftaverk en ég er ekki þeirrar skoð-
unar. Ýmsir fjölmiðlar höfðu dregið upp þá mynd af ástandinu
innan Alþýðubandalagsins að þar væri allt í kaldakoli og þar
biði ekkert framundan nema algjör sundrung, að flokkurinn lið-
aðist í sundur. Þeir sem hafa talið að þetta væri rétt mynd af
veruleikanum fyrir fundinn hafa orðið undrandi á því að aðilar
náðu tiltölulega auðveldlega saman bæði um málefnalegar
ályktanir og skipan forystusveitar flokksins."
— Telurðu að þú hafir af einhverjum ástæðum verið
heppilegri sáttasemjari en ýmsir aðrir?
„Fyrst fjölmiðlar hafa nefnt mitt nafn sérstaklega í þessu
sambandi get ég svo sem sagt frá því til gamans að á fundinum
varð mér hugsað til langafa míns sem var sáttanefndarmaður
í litlu byggðarlagi í marga áratugi á síðustu öld. Ég sé það líka
hjá Sighvati Borgfirðingi, ágætum fræðimanni, að þessum
langafa mínum hafi tekist að sætta öll deilumál í sínu byggðar-
lagi og alla hans áratugi hafi aldrei farið mál fyrir dómstóla og
frá hans hendi. Það má svo sem vel vera að ég hafi erft eitthvert
brot af eiginleikum hans í þessa veru svo að ég sé nú ekki með
eintómt litillæti."
— Telurðu að allir hagsmunahópar innan bandalags-
ins geti vel við unað eftir fundinn?
„Það ber að hafa í huga að stjórnmál eru ekki síst jafnvægis-
list og allir þeir sem koma nálægt stjórnmálastarfi og ætla sér
að verða farsælir komast ekki hjá að átta sig á þeim veruleika.
Ekki síst á þetta við í stjórnmálastarfi sem lýtur að því að halda
saman stjórnmálahreyfingum. Það er að sjálfsögðu jafnan svo
í stjórnmálaflokkum, ekki síst í nútímanum, að oft á tíðum eru
uppi nokkuð breytileg viðhorf til manna og málefna, en ef dreg-
ur til sviptinga í þeim efnum hlýtur að vera heppilegast að eng-
inn hafi fullan sigur heldur aðeins hálfan því þá bíður heldur
enginn algjöran ósigur. Að svo miklu leyti sem hægt var að tala
um deilur í þessum efnum innan Alþýðubandalagsins — og ég
tek fram að ég geri ekki mikið úr þeim deilum — þá tel ég að
niðurstöður landsfundar hafi verið mjög heppilegar fyrir flokk-
inn sem heild og þau málefni sem hann stendur fyrir. Ef einhver
var sigurvegari á þessum fundi var það flokkurinn sjálfur og
hafi einhverjir orðið fyrir sárum vonbrigðum voru það ein-
dregnustu andstæðingar flokksins sem höfðu fyrir landsfund
gert sér alvarlegar vonir um að Alþýðubandalagið væri að leys-
ast upp."
— Ertu sammála guðföður flokksins, Lúðvík Jósefs-
syni, um að menn eigi að láta sér nægja að rífast á bak
við tjöldin, að óviðurkvæmilegt sé að gera það á lands-
fundi — eða tekurðu fremur undir orð össurar Þjóð-
viljaritstjóra um að þessar opinskáu umræður á lands-
fundinum séu til marks um frísklegt lýðræði?
„Það fer allt eftir því hvað við er átt. Ég hef ekkert á móti því
að menn deili í stofnunum flokksins og eins á opinberum vett-
vangi um einstök málefni þar sem menn eru ekki alveg sam-
mála, svo fremi sem deilurnar eru málefnalegar og ætlaðar til
þess að leiða menn til sameiginlegrar niðurstöðu og umfram
allt að þær séu heiðarlegar gagnvart þeim sem deilt er við. En
ef deilur komast hins vegar á það stig að menn sitji um náunga
sinn og leiti færis á að koma á hann höggi leynt eða Ijóst án
þess að hann eigi það skilið, þá er það náttúrulega aldrei hollt
eða heppilegt í mannlegum samskiptum."
— Er það rétt sem blöðin herma að þú hafir vart sofið
fyrstu þrjá sólarhringa landsfundarins?
„Það lít ég á sem mitt einkamál hvort ég vaki eða sef og ég
gef engar skýrslur um það hvað mig kann að dreyma á nóttinni
eða hvort ég sofi rótt. Ég læt mér í léttu rúmi liggja hvað fólk
kann að tala um í þeim efnum. En allavega taldi ég mig vera að
vinna þarft verk þessa daga og kannski að einhverju leyti á nótt-
inni líka og ég er enn sannfærðari um það eftir fundinn. Og ég
tel að að svo miklu leyti sem þau mál voru í höndum kjörnefnd-
ar fundarins hafi tekist að ná mjög vel saman. Ef einhver aðili
á þakkir skilið þá er það nefndin í heild. Ég er sannfærður um
að Alþýðubandalagið hefur betri möguleika á að ná sér á strik
eftir fundinn en fyrir hann. Síðan verður að koma í Ijós hvernig
forystusveitinni og almennum liðsmönnum tekst að nýta þá
möguleika."
Kjartan Ólafsson fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans kom mjög við sögu
á landsfundi Alþýðubandalagsins um síðustu helgi. Var það mál
manna að hann hefði gengið hvað ötullegast fram í því að bera klæði
á vopnin og sætta menn og málefni, en Kjartan átti sæti í fimmtán
manna kjörnefnd fundarins.
HELGARPÓSTURINN 3
r