Helgarpósturinn - 14.11.1985, Síða 4
eftir Guðmund Arnlaugsson
SKÁK
Tignin hékk á örfáum leikjum
Aldrei hefur keppni um heims-
meistaratitilinn í skák lokið á jafn
spennandi og tvísýnan hátt og
þeirri sem lauk austur í Moskvu á
laugardagskvöldið var.
Þar valt það á örfáum leikjum í
tímaþröng hvort Karpov héldi tign-
inni eða hinn ungi áskorandi hans
tæki við. „Hinn ungi“, skrifaði ég —
Kasparov er yngsti maður sem bor-
ið hefur heimsmeistaratitil í skák,
aðeins 22 ára að aldri, fæddur
13.04. 1963. En Karpov er enginn
öldungur heldur, hann er 34 ára,
fæddur 23.05. 1951. Æskan hefur
tekið völdin, einnig í skákinni sem
löngum var talin íþrótt þroskaðra
manna. Algengast er að menn hafi
verið milli þrítugs og fertugs þegar
þeir innbyrtu þennan stóra vinning.
Capablanca, sem ýmsir telja að
hafi haft meiri eðlisgáfur til skákar
en nokkur annar maður, var orðinn
33 ára þegar hann varð heimsmeist-
ari. Fischer var 29 ára að aldri þegar
hann sigraði Spasskí hér í Reykjavík
í „einvígi aldarinnar" fyrir 13 árum.
Yngsti heimsmeistari á undan Kasp-
arov var Tal sem var á 24. ári þegar
hann vann Botvinnik árið 1960.
Svo vill til að á þessu ári eru 99 ár
síðan fyrst var teflt um þennan eftir-
sótta titil. Að vísu höfðu snjöllustu
skákmenn heims oft þreytt einvígi
áður, og á stundum að minnsta kosti
ekki verið neinn vafi á því hver væri
öflugasti skáksnillingur heims. En
það var Wilhelm Steinitz sem fann
titilinn upp og það var árið 1886
sem hann og Zukertort settust við
skákborðið í New York til að tefla
fyrsta einvígið þar sem heimsmeist-
aratitillinn var lagður undir. Sá
skyldi vera sigurvegari sem fyrri
yrði til að vinna 10 skákir. Zukertort
fór vel af stað, staðan var 4:1 honum
í vil, þegar einvígið var flutt frá New
York til St. Louis. Þar tókst Steinitz
að minnka muninn. Síðasti hluti ein-
vígisins fór fram í New Orleans og
þar seig á ógæfuhliðina fyrir Zuker-
tort. Hann var ekki nógu heilsu-
hraustur og loftslagið í New Orleans
átti ekki við hann. Eftir 17 skákir
var hann orðinn tveimur vinning-.
um undir. I 17. skákinni gerði hann
úrslitatilraun til þess að fá fram
straumhvörf. Hann náði vinnings-
stöðu en missti vinninginn aftur úr
höndum sér. Eftir það var hann brot-
inn maður, hann fékk hita og þurfti
þriggja daga frí en hélt svo áfram að
tapa. Einvíginu lauk með sigri Stein-
itz með 10 unnum skákum gegn 5,
en 5 lauk í jafntefli. Þetta var sorg-
legur endir á einvígi sem menn
höfðu gert sér miklar vonir um,
Zukertort náði sér ekki eftir þetta
áfall og lést tveimur árum seinna, 46
ára að aldri.
Kasparov er 13. heimsmeistarinn í
röðinni frá því að titillinn var fund-
inn upp. Við skulum líta á röðina:
1886—1894 Wilhelm Steinitz.
Fæddur í Prag 1836 — lést í New
York 1900.
1894—1921 Emanúel Lasker.
Fæddur í Berlinchen 1868 — lést í
New York 1941.
1921—1927 José Raoul Capa-
blanca.
Fæddur í Havana 1886 — lést í New
York 1942.
1927—1935 Alexander Aljekín.
F. í Moskvu 1892 — lést í Lissabon
1946.
1935-1937 Max Euwe.
F. í Amsterdam 1901 — lést í Hol-
landi 1982.
1937—1946 Aiexander Aljekín.
1946—1948 Enginn heimsmeist-
ari.
1948-1957 Mikael M.
Botvinnik.
Fæddur í St. Pétursborg 1911.
1957— 1958 Vassilí Smyslov.
Fæddur í Moskvu 1921.
1958— 1960 Mikael Botvinnik.
1960- 1961 Mikael Tal.
Fæddur í Riga 1936.
1961— 1963 Mikael Botvinnik.
1963—1969 Tigran Petrosjan.
Fæddur í Tvílýsi 1929 — lést 1984. .
1969—1972 Boris Spasskí
Fæddur í Leningrad 1937.
1972—1974 Robert J. Fischer.
Fæddur í Chicago 1943.
1974—1985 Anatoli Karpov.
Fæddur 1951 í Zlatoust (Úral).
1985— Garrí Kasparov.
Fæddur 13.04. 1963 í Baku.
Steinitz hefur hlotið viðurkenn-
ingu sem einhver fremsti hugsuður
skákarinnar fyrr og síðar. En honum
gekk ekki allt of vel á skákmótum
þegar hann var heimsmeistari og
vann enga yfirburðasigra á keppi-
nautum sínum um titilinn. Lasker
var hins vegar einhver sigursælasti
meistari allra tíma. Hann vann sigur
á nærri öllum meiri háttar skákmót-
um sem hann tók þátt í og í 9 einvíg-
um sem hann háði um heimsmeist-
aratitilinn vann hann 59 skákir, tap-
aði 18 og gerði 45 jafntefli.
Samtímamenn Capablanca litu á
hann sem undramann í skákinni,
óskeikulan snilling sem fyndi ávallt
besta Ieikinn af eðlishvöt enda
tapaði hann svo sjaldan kappskák
að birt var bók er hafði að geyma
tapskákir hans, mig minnir þær
vera 35. Aljekín hafði aldrei unnið
af honum skák er hann hóf einvígið
við hann 1927, úrslitin komu því
óskaplega á óvart.
Næstu árin stóð mikill ljómi um
Aljekín er tefldi manna glæsilegast
og vann hvern stórsigurinn á fætur
öðrum. Það kom því á óvart að hann
skyldi falla fyrir Euwe og enn kom
það á óvart að honum skyldi takast
að endurheimta titilinn tveimur ár-
um síðar. Slíkt hafði enginn reynt
nema Steinitz og honum mistókst
hrapallega. En nú rekur engan í
rogastans þótt heimsmeistari í skák
endurheimti titil sinn, Botvinnik er
búinn að sýna að slíkt er hægt að
gera jafnvel oftar en einu sinni.
Eftir heimsstyrjöldina síðari tekur
við nýr kafli þessarar sögu þar sem
alþjóðasamband skákmanna, FIDE,
stjórnar þessari keppni. Það væri
freistandi að gera allri þessari sögu
betri skil, því að margt forvitnilegt
gerðist, bæði á árunum fyrir 1886
og ekki síður á þessari tæpu öld sem
liðin er síðan. En það verður að bíða
betri tíma, kannski kem ég aftur að
þessari sögu í síðari þáttum.
GÁTAN SKÁKÞRAUT LAUSN Á KROSSGÁTU
Fjórtán fjórtán ára drengir úr
unglingadeild Hjálparsveitar
skáta í Kópavogi eru við æfing-
ar uppi á öræfum undir stjórn
Hafliða Beck. Líka hreindýr. It's
a long way to Tipparery, isn't it?
sigiaintuos 'np :jbas
21. Sigurbjörn Sveinsson
122. Sigurbjörn Sveinsson
Mát í 2. leik
Mát í 2. leik
Lausnir á bls. 10
. K <3 E t B 4 ■ *
H í) 5 3 'O N 7> fí H G L L U R • H 5
o r r P> R 'o L fí r fí N ■ 'fí rí K 'o
P i R R fí R D R fí fí 6 K fí p
- F & /r> fí D u R. . u R R fí K 1 ■ K fí u P fí
• F r L P t) • u f L 5 J fí L • N r 'fí 5 T F
5 N F u r 1 • 5 E 1 L '0 R £ <S L fí • ! r • R
G P r A • fí L r P) D £ fí U P fí • / N fí
V / K u 5 L 'fí ■ L fí r fí 6 U L N fí Ð / • B m
* • 0 R K fí • R > 2> u • 'fí rz fí G R. fí 5 F r fí
L 'fl 5 . fí U m fí R . N fí • R Ú • 5 /n 1 r •
5 r p> R f fí V • fí N <S fí R ■ N Ö L fí • fí
5 r i R 1> * K fí S r fí fí R 1 N • /A ’O R ) N N
( LÓ'T/’ / 5 ‘ÓTRfí KjfíH- /NN — BoRÐfí v£7 í>/ RflFTuR ^cr FLUTH /N6 mjöG flG/ET- LEGfl . \ SKANR MÐ S£/fl B/tTT ER V/fli ÓVRLfíR LOKK fíS VOHDflN i/
MJU/fí SK-ST. FORSK- SK.Sf? V TR.É
S'/SU - nn/ TfíLfl
‘ £l < Kfí UH6 VTDl
Vó 0' ° ( * r* lPLsuh FÆÐ 'fí
cXff s 1 RÓLTIIZ DREP/t) fl dyr GfíHGFL. SL’/Tfí EUD FJflLU
Kom V/Ð víSflH
jt- f fall- £6fí £/NS oe, HV'iL' /ST Forsr. Tt'omuR AlíE> - KErvrVfl
mu/vN HRYCiG /R FRfl 5ÖGN/N
0- IfYTfíR yaK- RÆKT/ LEND RE/Ð/ Hljób
GfíRm fíRN/R GBoFflR £NT>. fíK/ERfl
TRjfí GRaFUR brbgd
f HLros ENV/R DRflrr UR SBLDRfl
/3fí rtz>fí BOFfl
SUP/) TÆPflR stefhu m/Ð 5Y/16UR
BlKKjfí 7J/W5 -Tr/E
5lt>fl - \ ^ r BVfíDlJR /E/DBR. KtYR/ SKRTt
STÓR PORR £>N£) fís- YNJfl
l X>u6 LSfíUR. OyÐjfl GfímHLL þREyTr F/SKUR
'fí SX/RNi HRYll /R FL//<
BR05T/ r'o" 1 HB/Dufí FUGMx RÆLH/ '/té/n
L£ST MyngL
SKjÓl STYNJfí 'OHRE/N /<fí ÖLVflDfl
fargd Srrtfí flSKHR FjALL SVfíLL
4 HELGARPÓSTURINN