Helgarpósturinn - 14.11.1985, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthlasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásler
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Armúla 36, Reykjavík, slmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Slmi 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Eins dauði er
annars brauð
Helgarpósturinn birtir í dag
yfirlitsgrein um okurmálin á ís-
landi. Okurlánastarfsemin er
orðin stór hluti af neðanjarðar-
hagkerfinu sem er aftur á móti
svarta gatið í íslensku efna-
hagslífi; umfangsmikið og sem
stýrir efnahagsástandi landsins
án þess að þessir fjármunir
komi neins staðar fram.
Þjóð sem býr við litlar þjóðar-
tekjur í fábreyttu atvinnulífi þarf
að snfða sér stakk eftir vexti.
Peningafyllerí stríðsáranna er
rétt að renna af okkur og verstu
timburmennirnirað byrja. Þjóð-
inni er haldið á floti með erlend-
um lánum og skyndiráðstöfun-
um sem gera það eitt að vont
ástand versnar. Verðbólgubál,
lánskjaravísitala, raunvextir —
allt eru þetta orð sem síast inn
í íslenska hugtakavitund frá
blautu barnsbeini.
[ slíkri ringulreið lenda hinir
pólitískt spilltu ríkisbankar í
lausafjárerfiðleikum sem gerir
það að verkum að viðskiptavin-
irnir eru teknir í ákveðna for-
gangsröð — þeir sem eiga pen-
inga fyrir — og þeir sem hafa
rétt pólitísk sambönd. Allur
þorri almennings og smærri at-
vinnurekenda þarf að leita á
aðrar slóðir — til hinna svörtu
lánastofnana sem lána pen-
inga á margföldum bankavöxt-
um. Þar með lenda flestir í víta-
hring sem einn viðmælandi
blaðsins líkir við heróínneyslu
— og sem endar með gjald-
þroti eða sjálfsmorði í mörgum
tilvikum.
Ríkisstjórnin og ráðamenn
landsins eiga stóran þátt í því
að slík starfsemi viðgengst í
landinu. Þeir hafa skapað hinar
efnahagslegu forsendur fyrir
hinum svarta peningamarkaði.
Það er einnig til umhugsunar
að á sama tíma og Rannsóknar-
lögreglan hirðir upp okurlánar-
ana úr skúmaskotum sínum,
birta „virt" ávöxtunar- og fjár-
festingarfélög auglýsingar sín-
ar í helstu dagblöðum þjóðar-
innar. Þar er almenningi boðin
ávöxtun á fjármunum sínum.
Þessi fyrirtæki leika sama af-
fallaleik og bankarnir þegar
skulda- og verðbréf eru annars
vegar. Á slíkri starfsemi og okri
hákarlanna er enginn eðlis-
munur.
Vonandi verður rannsóknin á
okurlánurunum til þess að um-
ræða vakni hérlendis um hlut-
verk lánastofnana, vaxtapólitík
og efnahagsstefnuna í heild —
því allt eru þetta greinar af
' sama meiði.
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Ólafur Haukur og Ólafur Thors
Til ritstjóra Helgarpóstsins
í síðasta tölublaði Helgarpóstsins
er stutt viðtal við Ólaf Hauk Sím-
onarson rithöfund, sem ég kemst
ekki hjá að gera athugasemd við.
Viðtalið, sem ber yfirskriftina Ertu
dóni? snýst um útsendingu Ríkisút-
varpsins á Galeiðunni eftir Ólaf
Hauk, en þar voru látin falla orð um
Ólaf Thors sem útvarpsráð og út-
varpsstjóri töldu sig verða að biðjast
afsökunar á.
í viðtali þessu ber rithöfundurinn
af sér aliar sakir og heldur því fram
að hér hafi einungis verið á ferð sak-
laus gamansaga. Honum er það að
sjálfsögðu fullheimilt, þó að hann
hafi af einhverjum sökum sleppt
henni í skáldsögunni Galeiðunni,
sem kom út fyrir nokkrum árum og
mun vera samin upp úr leikritinu
Blómarósir. Aftur á móti sýndi hann
Ríkisútvarpinu þann sóma að halda
henni til haga í útvarpsgerðinni.
Sannleikurinn er hins vegar sá að í
útvarpsleiknum er sagan þannig
fram sett, og birt í því samhengi, að
hún verður bæði smekklaus og ræt-
in. Hirði ég ekki um að færa rök fyr-
ir þessu áliti á meðan höfundur sér
„Ljótt ef
satt er“
Hr. ritstjóri.
í síðasta tölublaði Helgarpóstsins
birtist frétt þar sem blaðinu hafa
borist rangar upplýsingar. Fréttin er
lævísleg og gefur til kynna að undir-
ritaður hafi brotið trúnað í starfi
sínu.
Það er ábyrgðarhluti fyrir blað að
birta óstaðfestar sögur sem ritstjóra
berast, án þess að sannreyna þær.
Hitt er þó öllu alvarlegra fyrir þá er
lenda í slúðri af þessu tagi að oft er
erfiðara að hnekkja en af stað að
koma.
ekki ástæðu til að láta þennan texta
sinn koma fyrir almenningssjónir.
í umræddu viðtali talar Ólafur
Haukur um að ég hafi orðið eins og
„barinn rakki" við það að fá
skammir frá útvarpsráði. Vegna
þessarar aðdróttunar vil ég það
komi skýrt fram, að yfirlýsingar út-
varpsráðs hafa nákvæmlega engin
áhrif haft á afstöðu mína til þessa
máls. Það er skoðun mín sjálfs að
ekki hefði átt að útvarpa verkinu
með margumtöluðum ummælum
og það af einföldum og augljósum
velsæmisástæðum. Ég hef þegar
lýst opinberlega þeim mistökum,
sem urðu til þess að upptökunni var
útvarpað (í Morgunblaðinu sl. laug-
ardag) og læt nægja að vísa tii þeirr-
ar greinargerðar.
Hitt er svo annar handleggur að
það er alitaf álitamál hversu alvar-
lega á að taka smekkleysur af þessu
tagi, en mér er kunnugt um marga
sem heyrðu útsendingu Galeiðunn-
ar án þess að hneykslast; hafa vænt-
anlega talið lýsinguna á tiltektum
Ólafs Thors í salthúsinu svo augljós-
an tilbúning að hún gæti með engu
Þar sem þessi frétt og ályktanir
sem af henni eru dregnar eru upp-
spuni frá rótum, fer ég þess vinsam-
legast á leit að bréf þetta verði birt
þegar í næsta tölublaði Helgarpósts-
ins með eftirfarandi leiðréttingum.
1) Ráðgarður hefur aldrei unnið að
verkefnum fyrir Fjárhagsdeild
Sambandsins. Hið rétta er að Ráð-
garður vinnur að sameiginlegu ráð-
gjafarverkefni fyrir kaupfélögin og
Sambandið vegna vöruflutninga.
2) Hagvangur hefur aldrei unnið að
úttekt á Fjárhagsdeild Sambands-
ins. Hið rétta er að starfsmaður frá
Hagvangi vinnur nú að skipulagn-
ingu á innheimtumálum vegna til-
móti sett blett á minningu stjórn-
málaforingjans. Og það var að mín-
um dómi afskaplega vanhugsað af
yfirstjórn Ríkisútvarpsins að blása
komu tölvuvæðingar á viðskipta-
mannabókhaldi Sambandsins.
3) Undirritaður var starfsmaður
Hagvangs i nokkur ár og eignaðist
þá hlut í fyrirtækinu eins og ýmsir
aðrir starfsmenn. Það hefur engin
áhrif á það hvort Hagvangur tekur
að sér verkefni fyrir Sambandið eða
ekki. Sambandið leitar eftir sér-
fræðiaðstoð víða þegar leysa þarf
verkefni af hendi og leitar þá tii
Hagvangs sem annarra innlendra
og erlendra ráðgjafarfyrirtækja, allt
eftir eðli verkefnanna.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Eggert Á. Sverrisson.
þetta leiðindaatvik út og gera það
að stórmáli.
Jón Viöar Jónsson
leiklistarstjóri
LAUSN Á
SKÁKÞRAUT
21. Við sjáum strax að svarti
kóngurinn má hvorugan riddarann
drepa vegna máts. Hann getur því
einungis leikið riddaranum. Þá er
galdurinn ekki annar en sá að geta
svarað riddaraleik með máti:
1. Hh8 R eitthvað 2. Rc5 mát
(1. - Kxa8 2. Bc6, 1. - Kxa6 2. Bc8).
22. í upphafsstöðunni mynda
mennirnir stafinn X. Svartur á að-
eins um tvo leiki að velja: Kxe4 og
Kxc6. Þetta einfaldar lausnina:
1. Db3 Kxe4 2. Df3 eða 1. Db3
Kxc6 2. Db7.
Mátin eru laglega samhverf.
Það er kominn vetur
Kuldafatnaður í úrvali
Loðfóðraðir samfest- Kapp-klæðnaður. Still-long-ullarnærföt,
ingar. Kuldaúlpur.
þessi bláu norsku til
útiveru -hlýirsokkar.
0 HELGARPÓSTURINN