Helgarpósturinn - 14.11.1985, Qupperneq 22
HELGARDAGSKRAVEIFAN
Föstudagurinn
15. nóvember
19.15 Á döfinni.
19.25 Jobbi kemst í klípu. Sænskur barna-
myndaflokkur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.45 Þingsjá . . .
20.55 Kastljós ...
21.30 Ljósið. Finnskur látbragðsleikur.
22.05 Derrick: Hallvaröur Einvarðsson flytur
inngangsorð.
23.10 Rocky. ★★★ Bandarísk bíómynd frá
'76. Leikstjóri John G. Avildsen. Aðal-
leikarar: Sylvester Stallone, Talia
Shire, Burt Young, Burgess Meredith.
Upphafið að dæmalausum fram-
haldsflokki sem enn sér ekki fyrir end-
ann á. Fyrsta flokks afþreying sem
fékk óskarinn á sínum tíma fyrir leik-
stjórn, klippingu og sem besta mynd-
in, en því voru ekki allir sammála ...
01.05 Fréttir í dagskrárlok og síðan litljós-
mynd af fornfálegri kirkju einhverstað-
ar á Austfjörðum, sem fólk á að geta
upp á hvað heiti, hvar hún sé og helst
hversvegna. Sniðugt. Rosalega.
Laugardagurinn
16. nóvember
14.45 Watford—Aston Villa. Bein útsend-
ing með skáhallri lýsingu Bjarna Fel
neðan af Laugavegi 176.
17.00 Móðurmáls-framburður. Árni Böðv-
arsson sýnir fram á gallana í máli
Bjarna Fel hér á undan og eftir...
17.10 fðróddir.
18.30 Hlé vegna bilunar á textavél (t.d.).
19.20 Steinn Marcó Póló. Börnin góna og
éta Prins Póló.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttaágrip á talmáli.
20.35 Staupasteinn. Bandarískur gaman-
gaman-jibbý-þáttur. Jón dómsmála
varpar upp skýringarmyndum að
loknum hverjum meiriháttar brand-
ara . . .
21.10 Fastir liðir „eins og venjulega". Þáttur
af því að nokkrum konum datt í hug
að gaman væri að sjá nokkra karl-
menn sem konur í lok kvennaáratugar,
en að því hlytu konur að hlæja og karl-
menn kannski líka . . . Og þar með
sniðugt..?(!)
21.40 Nikulásog Alexandra. ★★ Bresk bíó-
mynd frá '71. Leikstjóri Franklin J.
Schaffner. Aðalleikarar Michael Jay-
ston, Janet Suzman, Sir Laurence
Olivier, Jack Hawkins. Afskaplega vel
leikin mynd um síðustu keisarahjónin
f Rússlandi, ævi þeirra og atburði allt
til 1918 þegar þau voru drepin í kjölfar
byltingarinnar. Samt fjarri því besta
sem Schaffner hefur gert (t.d. Patton
og Papillion), handritið losaralegt og
leikstjórnin ráðvillt á köflum.
00.50 Dagskrárlok. Allir að skipta um stell-
ingu í sóffanum áöur en stillt verður á
víddeóið...
Sunnudagurinn
17. nóvember
16.00 Sunnudagshugvekja. Hópefli presta í
sjónvarpssal. Séra Emil Björnsson
svífur yfir vötnum og segir véfréttir.
16.10 Áfangasigrar. Þriðji þáttur um sjúk-
dóma sem eru aö deyja út án þess að
læknar hafi nokkuð fengið við ráðiö!!
17.10 Feim, æ vonna livv forewer 8. þáttur
af endalausum.
18.00 Stundin okkar. Barnatími með inn-
lendu hasarefni.
18.30 Stiklur. Ómi rekur sig f þverbita inni í
myrkum göngum gamla Laufásbæjar-
ins. Bolli Gústavs líka. Endursýnt út af
kvikindishætti sjónvarps ...
19.35 Hlé vegna bilunar í tökuvél (t.d.).
19.50 Það helsta úr fréttum á handahlaup-
um ...
20.00 Það helsta úr fréttum á höfrunga-
hlaupum ...
21.00 Gestir hjá Bryndísi, eða öfugt; Bryn-
dís hjá gestunum.
22.00 Verdi.
23.25 Þjóðsöngurinn, allir að standa upp
(beint bak og lófann þóttingsfast um
brjóstið). . .
Fimmtudagskvöldið
14. nóvember
19.00 Kvöldfréttir (ef útvarpsráð leyfir)...
19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson
beygir nafnið sitt fram og til baka, hár-
rétt.
20.00 Gagnslaust gaman. Ása H. Ragnars
og Þorsteinn Marels með allt það sem
þau máttu ekki segja í Stundinni
(þeirra). . .
20.30 Sinfónían í Háskóla. Jón Múli lýsir
göngulagi Jean-Pierre Jacquillat í sal-
inn og fleiri tiktúrum hans!
21.30 Á vegum Ijóðsins. Þáttur um skáldið
Sigga Páls.
22.25 Fimmtudagsumræðan. Um íslensku
utanríkisstefnuna. Geir stekkur upp á
nef sér, Ólafur Ragnar á eftir. . .
23.25 Píanótríó af teipi.
24.00 Síðustu fréttir fyrir svefn. Dong.
Flöskudagurinn
15. nóvember
7.00 „Þetta er á Veðurstofu íslands."
7.15 Morgunvaktin. Alvara lífsins beint í
æð . ..
9.05 Morgunstund barnanna. Baldvin
Halldórsson les sögu fyrir börnin (sem
því miður, voru að fara inn í skólastof-
urnar rétt í þessu).
9.45 Þingfréttir. Sagt frá ómerkilegu laga-
frumvörpunum sem komust ekki af
þeim sökum í aðalfréttatímana!
10.40 „Sögusteinn" Haraldur Ingi Haralds-
son sagar steina á Akureyri: Nútíma-
tónlist. . . Atli Heimir hlustar. ..
11.10 Málefni aldraðra. Aldurstakmark 67 ár.
11.25 Morguntónleikar. Gary Glitter leikur á
fagott.
12.20 Hádegisfréttir: Talað við Denna, ekki
við Steina ...
14.00 Miðdegissagan.
14.30 Sveiflur.
16.20 Síðdegistónleikar. Gary Glitter leikur
enn á fagott. .
17.00 Helgarútvarp barnanna. Vernharður
Linnet hagar sér barnalega.
19.00 Kvöldfréttir: Talað við Steina, ekki við
Denna . . .
19.35 Þingmál. Atli Rúnar málar skrattann á
vegginn.
19.55 Daglegt mál. Næstum því. . .!
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen lögfræðingur kynnir sér engil-
saxnesk lög
20.40 Kvöldvaka. Frískamín eða hitt þó
heldur (!).
21.30 Frá tónskáldum. Já, já — langt í frá.
22.25 Meðalþung lög af kassettum.
22.55 Svipmynd. Jónas Jónasson brosir
hamingjusamlega þvert yfir andlitið.
>*
Eg mœli með
Sjónvarp, laugardagskvöldið 16. nóv-
ember, klukkan 20.35: Staupasteinn,
bandarískur gaman-gaman-jibbý-
þáttur. Jón dómsmála varpar upp skýr-
ingarmyndum loknum hverjum meiri-
háttar brandara . . .
(En það sést bara ekki I útvarpi, hvern-
ig sem tækið er stillt. Sorrý.) Rúvak.
24.00 Djassþáttur. Jón Múli sést í útvarpinu.
Duló ..(..........)
01.00 Jón Múii hverfur, enda búinn að
skipta yfir á næturvaktina fyrir
löngu .. .
Laugardagurinn
16. nóvember
(ekki nema það þó)
7.00 Vont veður, vondar fréttir. Bjútí bæn.
7.20 Jónína nær af sér grammi (á innan-
verðum vinstri kálfa).
9.30 Sjúkleg ósk lögmanna (eða Óskalög
sjúklinga eins og Helga Þ. Stephen-
sen kynnir það víst.)
11.00 Bókaþing.
12.20 Hádegisfrétt ef útvarpsráð lofar.
13.50 Þá og þegar. Fréttaþáttur í vikulokin
með tilheyrandi bömmerum tækni-
manna. Kári Jónasar bítur á jaxl-
inn ...
15.00 Miðdegistónleikar. Fallega hugsað.
Vel meint.
15.40 Fjölmiðlun vikunnar (ef einhver var).
15.50 íslenskt mál. Guðrún Kvaran les upp
úr óbirtri Orðabók Háskólans. 635.
þáttur. Endurtekinn vegna fjölda
áskorana. Spennandi.
16.20 Listagrip.
17.00 „Ævintýraeyjan" fyrir börn eftir
Blyton.
17.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur. Falskt
inn á milli og því miður án effekta eins
og þjóðhátíðarrokhljóða en þess utan
fínt. Strákurinn með óbóið efnilegur!
19.00 Kvöldfréttin. (Eitthvað að gerast á
Dormbanka?)
19.35 Stungiö í stúf. He-he-he-þáttur, ís-
lenskur.
20.00 Harmónikkuþáttur. Dú-bi-dú-þáttur,
austfirskur.
20.30 Kvöld í öngulstaðahreppi. Nú ...?
Kvöldar þar líka?
21.20 Vísnakvöld. Gísli Helgason vísar veg-
inn.
22.25 Á ferð með Sveini Einarssyni.
23.00 Danslög meö Sveini Einarssyni.
00.05 Miðnæturtónleikar með Sveini
Einarssyni
01.00 Dagskrárlok með Sveini Einars-
syni...
Sunnudagurinn
17. nóvember
8.00 Morgunandakt. Sveinn Einarsson
birtist lærisveinunum.
8.35 Létt morgunlög. Mjög svo.
9.05 Morguntónleikar. Mjög svo.
10.25 Sagnaseiður. Einar Karl gluggar í
gamla Þjóövilja.
11.00 Messa í Siglufjarðarkirkju. Sveinn
Einarsson þjónar tilgangi.
12.20 Hádagsfréttir. Fyrst góðu fréttirnar og
svo . . .
13.30 Matti Joch 150 ára. Fjallað um gamla
sálmasmiðinn.
14.30 Miðdegistónleikar. Mjög svo.
15.10 Leikrit Þorsteins Marels „Húsnæði í
boði" endurflutt.
16.20 Vísindi og fræði. Æði.
17.00 Með á nótunum. Páll Heiðar svarar
fyrir sína parta.
19.00 Kvöldfréttir (munið að slökkva á elda-
vélinni) . . . Stórfrétt að öðrum kosti.
19.35 Milli rétta. Gunni Gunn spjallar við
sjálfan sig og hlustendur milli afrétt-
ara.
20.00 Stefnumót. Unglingaþáttur um
sjensa.
21.00 Ljóð og lag. Miðaldramannaþáttur
um sjensa.
21.00,Utvarpssagan „Saga Borgaraættar-
innar''
22.25 íþróttir. Samúel örn spjallar við
læknaráð íslands um vinstra hnéð á
honum Ásgeiri Sigurvins sem er bara
alltaf að klikka ...
22.40 Svipir - Tíðarandinn 1914-1945.
Vandað, gott.
eftir Sigfinn Schiöth
23.20 Kvöldtónleikar. Falskir, flopp.
00.05 Milli svefns og vöku. Hildur Eiríks-
dóttir að drepast úr leiðindum . ..
00.55 . .. og hættir þessu bara þessvegna!
Fimmtudagskvöldið
14. nóvember (e.K.)
20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar 2. Páll
Þorsteinsson velur sér lögin og kynnir
af kúnst.
21.00 Gestagangur. Ragga-Dabba-dú tekur
á móti Lögreglukórnum og kemst ekki
að eftir það . . .
22.00 Rökkurtónar. Svavar Gests lost í
myrkrinu. Ellý að leita. Lions-félagar
kallaðir út.
23.00 Poppgátan finnur Svavar Gests „I pre-
sume..."
24.00 Tjaldið fellur.
Föstudagarnir
15. og 15. nóvember
10.00 Morgunógleði. Ásgeir Tómasson og
Páll Þorsteinsson finna til þungunar.
12.00 Hléið.
14.00 Fósthólfiö. Valdís Óskarsdóttir safnar
frímerkjum í safnið sitt.
16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafsson opnar
munninn.
18.00 Hléið.
20.00 Hljóðdósin.
21.00 Djassspjall.
22.00 Rokkrásin.
23.00 Næturvaktin.
03.00 Suð.
Laugardagurinn
16. nóvember
10.00 Morgunþáttur. Sigurður Blöndal með
suð fyrir eyrunum.
12.00 Suð.
14.00 ... til lukku. Svavar Gests stuðar
næsta mann og svo koll af kolli. Þang-
að til allir vankast. Bojojoj.
16.00 Lystarpopp. Gunni Sal poppreiðir.
17.00 Hringborðið. Um það hvernig fólki
finnst hin og þessi lög vera.
18.00 Suð.
20.00 Pétur Steinn kynnir svarta músíkanta.
Er sjálfur hvítur.
21.00 Milli stríða. Jón Gröndal í pásu.
23.00 Svifflugur, randaflugur, dægurflugur.
Og allt það.
24.00 Næturvaktin. On Maggie's Farm.
03.00 Nágranninn andar léttar. Getur loks
sofnað.
Sunnudagurinn
17. nóvember
13.30 Krydd í tilveruna. Óskalagaþáttur
hlustenda sem eiga eflaust afmæli og
er þessvegna bannað að velja sér lög!
15.00 Dæmalaus veröld. Eiki og Þórir tísta.
16.00 Tveggja tíma nonnstopp dægursæla.
Úgga-sagga-úgga.
18.00 Amen, vúmen, kúmen, hálsmen. Eða
barasta: Bless!
ÚTVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Starfsmannaútvarpið
Um síðustu helgi ræddi Bjarni Sigtryggs-
son fréttamaður útvarps við Katrínu Páls-
dóttur fréttamann útvarps í þættinum Hér
og nú af því að hún hafði hitt nýkosinn
borgarstjóra New York. Á sama vettvangi
talaði annar fréttamaður útvarps við enn
annan fréttamann útvarps af því að sá síð-
arnefndi hafði nýlega gist Austur-Berlín. í
morgunútvarpi í vikunni ræddu þau Gunn-
ar Kvaran og Sigríður Árnadóttir frétta-
menn útvarps við Jón Baldvin Halldórsson
fréttamann útvarps á Akureyri af því að
hann dvaldi um tveggja ára skeið á Irlandi
og þar er jú alltaf eitthvað að gerast.
Mínútu síðar eða svo ræddu svo sömu
fréttamenn af sama tilefni við Pál Heiðar
Jónsson, enn annan útvarpsmenn, af því
að hann hafði fyrir margt löngu dvalist í
Englandi sem er ekki alls fjarri írlandi. Og
svo við vindum okkur yfir í hitt útvarpið,
rásina í Hvassaleiti, þá heyrðist þaðan um
daginn þegar Jónatan Garðarsson og
Gunnlaugur Sigfússon dagskrárgerðar-
menn á rás 2 hófu útsendingu nýs popp-
gátuþáttar að viðmælendurnir voru tveir
dagskrárgerðarmenn rásar 2; þau Andrea
Jónsdóttir og Ásgeir Tómasson.
Maður spyr sisona: Hvað er að gerast?
Ekki segja mér að fámennið hérna sé svo
ofboðslegt að fjölmiðlar neyðist orðið til
þess að tala við sjálfa sig. Og nú er ég ekk-
ert, alls ekkert, að agnúast út í það í sjálfu
sér, að útvarpsfólki eins og öðru launaliði
þessa lands, sé gefinn kostur á að tala svar-
megin borðs í þessum góða miðli. Barasta
ekkert. í þættinum Hringborðið á rás 2 á
laugardögum hefur mér heyrst vera notuð
ákveðin regla í þessu tilliti. Þar er alla jafna
rabbað við þrjá aðkomumenn. Að minnsta
kosti einn þeirra er alltaf útvarpsmaður.
Petta er sennilega góð regla, því þegar allt
er saman talið er sjálfsagt ekki fjarri lagi að
þriðji hver landsmaður hafi stjórnað þætti
hjá útvarpinu í gegnum tíðina. Ég veit samt
ekki alveg. Hitt er náttúrlega öllu alvar-
legra þegar hlutfall útvarpsmanna fer langt
fram úr þessum kvóta í þáttum sem Hring-
borði og öðrum eins. Ég veit ekki hvort það
er beinlínis hættulegt, en altént hef ég það
á tilfinningunni að eitthvað sé rangt við
það. í eðli sínu, eins og sagt er. Það gerðist
til dæmis um daginn, við þetta títtnefnda
Hringborð, að allir viðmælendur spyrils-
ins, þrír að tölu, voru útvarpsmenn. Ég
nefni fyrstan Vernharð Linnet, dagskrár-
gerðarmann á rásinni, og reyndar í gufunni
líka; Sigríði Árnadóttur fréttamann
útvarps, og að síðustu Georg Magnússon
tæknimann rásar 2. Þetta voru viðmælend-
urnir. Og þetta var ekki innanhússþáttur
starfsmannafélagsins. Og það, að svo hafi
ekki verið, er í ólagi.
SJÓNVARP
Af fréttum, börnum
eftir Ingólf Margeirsson
og AIDS
Sjónvarpsfréttirnar hafa tekið nokkrum
útlitsbreytingum. Það er kominn lítill kassi
fyrir ofan og til hliðar við fréttaþulina sem
sýnir mynd af fréttinni. Svo eru upplesar-
arnir farnir að fá myndavélina á hlið á sig
þannig að þeir þurfa að snúa sér í sætinu til
að geta lesið í vélina. Þetta er allt gott og
blessað og skemmtileg tilbreyting frá lesnu
útvarpsfréttunum með myndunum. Þetta
ögmundur með vandaða umfjöllun um AIDS I
Kastljósi.
form á fréttum er víða notað erlendis og
gefur umgerðinni fjölbreytileika. En frétta-
flutningurinn sem slíkur er jafn óvirkur
sem áður, það skortir enn þor, hugrekki og
eflaust tíma og peninga til að fréttamiðill
sjónvarpsins sé afgerandi og finni fréttir í
stað þess að vera afgreiðslufréttastofnun.
Hinn venjulegi fréttaneytandi upplifir það
kvöld eftir kvöld að heyra í fréttatíma sjón-
varps útþynningu á sömu fréttum sem
hann heyrði í útvarpi klukkutíma áður. En
kannski er hin nýja „pródúksjón" á fréttum
sjónvarps boðberi nýrri og betri frétta þeg-
ar byltingin á fréttastofunni verður gerð
opinber um áramótin.
Barnaþættir sjónvarpsins hafa tekið
miklum og góðum stakkaskiptum. Bæði
Stundin okkar og stuttir barnaþættir virku
daganna hafa farið vel í yngstu áhorfend-
urna. Bravó! Þetta eru mikilvægir dag-
skrárliðir. Ein aðfinnsla þó — það mætti
kannski aðeins minnka tékknesku teikni-
myndirnar og brúðumyndirnar, þótt ágæt-
ar séu í sjálfu sér. Fjölbreytni sakar ekki.
Kastljósþættirnir lofa góðu. Aids-þáttur-
inn svonefndi hefur vakið mikla athygli og
blendnar tilfinningar. Það má alltaf deila um
hvort miðill sem sjónvarpið eigi að fjalla
um viðkvæm málefni sem AIDS; hvort um-
ræðan sé málefnaleg eða vekji „hysteríu"
og fjöldaótta að óþörfu. Þátturinn sem var
í stjórn Ögmundar Jónassonar frétta-
manns sýndi hins vegar á yfirvegaðan hátt
stöðuna í þessum sjúkdómsmálum á ís-
landi í dag og hvað er hægt að gera til að
sporna við útbreiðslu ónæmistæringar.
Slíkir þættir breiða ekki út fjöldaangist
heldur hafa róandi áhrif og upplýsandi á al-
menning. Og eru þarafleiðandi af hinu
góða.
22 HELGARPÓSTURINN