Alþýðublaðið - 13.04.1927, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 13.04.1927, Blaðsíða 4
4 ALfeÝÐUBLAÐIÐ Ma||iMss Guðmimdssoai. Fæddnr 4. Júll 1911, Dáiian 14. marz 1927. (Lag: Hve sæl, ól hve sæl t-'|) Hve misjafn er lífsdagur lýða hér á jörð og leyfi vort að njóta og örlög sumra hörð. Frá vöggu til grafar gefst einum alls kyns hnoss, en öðrum lagt á herðar að bera reynslukross. Og sorglegt er á vori að sjá þá fölna blóm og sjá þau hníga að foldu og hlýða skapadóín. Bn guð er í sorginni og gefur styrk og þrótt og græðir hrygðar sárin og fæðir dag af nótt. Hin íslenzka þjóð hefir mist einn sannan son, er „setti’ ei Ijós und mæli“, en gaf oss fagra von. Það rætist oft hið fornkveðna og einu sinni enn, að alloft verða skammlífir „framtakssamir“ menn. f haust, þegar skrautið á björkum fölna fór, tii flugs þú breiddir vængi í hjarta þifiu stór. Þú sveifst, unz að lokum að settist þú hér að, og síðasta ferð þín í lífinu var það. Og nú, þegar foreldrar soninn faðmað fá, þá falla sorgartár þeirra líkið hans á. Ó! Guð minn! Ó! Guð minn! Ó! Sár er sorgarstund og svíðandi í hjarta hin nývakta und. Ó! Himneski drottinn! Þú leggur líitn með þraut og lýsir þeim, er syrgir, á dimmri lífsins braut. Og ligg í friði, Magnús, unz lýsir degi af, og lofaðnr sé drottinn, sem burt tók þig og gaf. Þér, faðir og móðir! Nú gleðjist guði í. Hann geymir horfna soninn, unz hittist þið á ný. Ásgeir H. P. Hranndal. plLL CP- R.ICHMQnD.Va í heildsölu hjá Tóbaksverzlim Islanös h.f, Brfúgiir er lMjaIíaj,U"Clropimi hjá okkur. Við tökum bæði litlar og stórar tryggingar og gerum engan mun á, hvort viðskiftin erú stór eða lítil; við gerum alia vel ánægða. Eimskipaf élap shúsinu. f í JVýkemfð Káputaii | frá kr. 3.60 mfr. | | Matíhilöfir Bjðrnsdóttir, | Laugavegi 23. !GBi IIB son. f Landakotskirkju: Á skír- dag kl. 9 f. h. hámessa, kl. 6 e. h. bænabald, á föstudaginn langa kl. 9 f. h. guðsþjónusta, kl. 6 e. h. predikun og kross- ganga. i aðventkirkjunni: á skír- dag og föstudaginn ianga kl. 8 síðd. guðsþjónusta. í spítala- kirkjunni (kaþ.) í Hafnarfirði: Á iostudaginn langa kl. 6 e. h, pre- dikun.og krossganga. í Sjó- mannastofunni kl. 6 báða dagana guösþjónusta. Allir velkomnir. ár frá morði Abrahams Lincolns. Hann var myrtur í leikhúsi í Washington. Var það hefnd fyrir baráttu hans fyrir afnámi svarta þrælahaldsins í suðurfylkjum Bandaríkja NÓrður-Ameríku. Messur um bænadagana: 1 döinkirkj- unni: Á skírdag kl. 11 séra Frið- rik Friðriksson (altaiisganga, séra Bjarni Jónsson), á föstudaginn langa kl. 11 séra Friðrik Hall- grímsson, kl. .5 séra Bjarni Jóns- son. 1 Mkirkjunni: Á skírdag kl. 2 síðdegis séra Árni Sigurðsson (altarisganga), á föstudaginn langa kl. 2 próf. Haraídur Ní- elsso'if, kl. 5 séra Árni Sigurðs- Heilsufarsíréttir (Eftir símtali í morgun við land- lækninn.) Bæzt hafa við yfir 200 kikhósta”-sjúklingar liér íReykja- vík s. >1. viku, og hefir einn dáið. Kvefpest geisar mjög um bæ- inn og iegst aðallega á börn. Einn maður hefir tekið taugaveiki. Togararnir. . Njöröur", sem kom af veið- (um í fyrra dag, var með 98 tn. lifrar, en „Menja“ með 82 tn. „Jón forseti" með 65 tn. og „Ar- inbjörn hersir“ með 97 tn. „Hilm- ir“, Belgaum", ,,Njöröur“, „Menja" og „Jón forseti" fóru ó veiðar. „Mac Connel", brczkur togari, fór, en „Sirnon du Hammel", fransk- ur togari, kom, og „Lord Brad- bury“, brezkur togari, kom með veikan mann. Áfengisbruggunarmálið Því lauk þannig, að þeir Magn- ús Jónsson frá Seialæk og Kari Lárusson voru látnir sleppa með 500 kr. sekt hvor um sig án þess, að til dónxs kæmi, en 28 daga fangelsi til vara, ef sektin er ekki greidd, og 300 kr. málskostnað í sameiningu. Var sfi meðférð höfð' á -þeim grundvélli, að lögin leggi ekki við broti þessu þyngri refs- ingu en sektir. Þá skyldi og á- fenginu be.lt niður, og var þaó gert í gær. Voru ,það 6 ámur. Tvenn bruggunaráhöld fundust, og voru þau gerÖ upptæk ásamt í- látunum. - Er þar mikiii mun- ur á, hversu þyngri reísingar liggja við ýmsum þeim lagabrotum, sem almenningsheili stafar ólíku minni hætta af heldur en svo stór- feldri vínbruggun. Aheit á Strandarkirkju, afhetlt Alþbl., 5 kr. frá Svj. Hólaprentsmiðjan, Hafnarstræti 18, prentar smekklegast og ódýr- ast kransaborða, erfiljóö og alla smáprentun, sími 1998. * Mý|s»p vÖFEsr. fip jSj ' Mýtt verð. >• ■ ■ VÖEUHÚSIÐ. ■ Iffljarta^áfg sm|Di*gikill ©r bezt. Ásgarðnr. Póstkort: Sumardags-póstkort með upphleyptum rósum og alls konar gerðir. Mesta og bezta úr- valið er i Aroatörverzluninni, Þorl. Þorl. A% sérstöknm ástæðúm er til sölu fyrir hálfvirði: Kringlött borð, 4 stoppaðir stólar og tveggja manna rúm, alt vandað. Vaigeir Kristjánsson, Laugavegi 18 A, uppi. Verzlíd uið Vikar! Það uerður notadrýgst. Harðfiskur, riklingur, smjör, tólg, ostur, saltkjöt; alt bezt og ódýrast í Kaupfélaginu. Hús jafnan til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Kaupendur að hús- um oft til taks. Helgi Sveinsson, Aðalstr. 11. Heima 11—1 og 6—8. Fasteignastofan, Vonarstræti 11 B, annast kaup og sölu fasteigna í Reykjavík og úti um land. Á- herzla lögð á hagfeld viðskifti beggja aðilja. Símar 327 og 1327. Jónas H. Jónsson. Rjómi fæst allan daginn í Al- þýðubrauðgerðinn. Sokkar — Sokkar — Sokkar frá prjónastofunni Malin eru ís- lenzkir, eildingarbeztir, hlýjastir. Veggmyndir, fallegar og ódýr- ar, Freyjugötu 11. Innrömmun á sama stað. KHstjOrl off áhyrgöonaasöui HaiíhjöriE HalldórsssB. Alþýðuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.