Helgarpósturinn - 23.10.1986, Blaðsíða 13
A
Wmilt er nú í fullum gangi hjá
Rannsóknarlögreglunni við
rannsókn á viðskiptum Páls Jóns-
sonar frá þeim tíma er hann seldi
landsmönnum sumarhús á Spáni.
Páll sveik umtalsverðar fjárhæðir út
úr viðskiptamönnum sínum, en
neitar því staðfastlega að þær séu
jafn háar og fyrrv. viðskiptafélagi
hans, Guðmundur Óskarsson og
spánska fyrirtækið Soumi Sun
Spain vilja meina. Við rannsókn
þessa máls hafa allir viðskiptavinir
Páls verið kallaðir til yfirheyrslu þó
einungis einn þeirra Árni Sörens-
son, hafi lagt fram kæru á hendur
Páli. Um 14 af 20 viðskiptavinum
Páls gerðust brotiegir við gjaldeyris-
Iögin og hugsanlegt er að ríkissak-
sóknari leggi fram ákæru á hendur
þeim í kjölfar þessarar rannsóknar.
Páll er ekki borgunarmaður þeirra
fjárhæða er hann sveik út úr við-
skiptavinum sínum og því verður bú
hans tekið til gjaldþrotaskipta. Páll
telur að Guðmundur Óskarsson hafi
svikið sig og hlutafélag þeirra, Or-
lofsferðir, og mun því sannieikur-
inn í því máli að öllum líkindum
koma fram í skiptarétti. ..
| þróttafélögin tóku þann sið upp
fyrir nokkrum árum að selja auglýs-
fngar á búninga sína og hefur þetta
reynst félögunum allsæmileg tekju-
lind. Þannig greiddi t.d. Esso 100
þúsund krónur fyrir auglýsingar á
búninga knattspyrnumanna KA á
Akureyri í sumar. Það er í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi. Hins vegar
gerði Esso betur. Að loknu keppnis-
tímabilinu færði fyrirtækið KA 54
þúsund króna fjárhæð til viðbótar
með þeim orðum, að þetta væri
uppbót. Höfðu þá Esso-menn bætt
við einum þúsundkalli á hvert skor-
að mark KA manna í sumar, en alls
voru mörkin 54. ..
Lorentsson heitir um-
deiidur athafnamaður í Vestmanna-
eyjum. Hann á og rekur HÓtel Gest-
gjafann og Skansinn en þrátt fyrir
mikil umsvif mun gjaldþrot hafa vof-
að yfir Pálma oftar en einu sinni.
M.a. keypti hann nýverið samkomu-
hús Sjálfstæðisflokksins í Eyjum
(síðasta Sjallann í landinu sem var
enn í eigu flokksins), og hyggst reka
þar skemmtistað þótt rætnar tungur
spyrji hvernig kaupin verði fjár-
mögnuð. En Pálmi er ekki maður
sem gefst upp. Sl. föstudag tók hann
sig til og bauð öliu gamla fóikinu í
Eyjum í heljarmikla veislu á Gest-
gjafanum þar sem fram var borinn
matur og serverað léttvín með. Á
eftir fengu allir boðsgestir koníak
og kaffi og síðan dansaði fólkið
gömlu dansana. Og bæta má við
söguna að Pálmi lét ná í gamla fólk-
ið í rútum og aka því heimleiðis eftir
skemmtunina. Þessa dagana er því
Pálmi Lorentsson einn vinsælasti
maðurinn í Vestmannaeyjum. Og
eflaust á hann eftir að verða enn
vinsælli á næstu mánuðum og miss-
erum. Því er nefnilega þannig varið
að sami Pálmi hefur fest kaup á loft-
púðaskipi frá Bretlandi og hyggst
stunda farþegaferðir milli Eyja og
lands. Loftpúðaskipið tekur um 200
farþega og verður kortér á leiðinni
til Þykkvabæjar en þar er áætlað að
verði löndunaraðstaða fyrir skipið.
Pálmi mun einkum hafa augastað á
túristum næsta sumar en einnig fær
Herjólfur gamli samkeppni. . .
SENDUM UM ALLT LAND
Kjötmiöstööin, Laugalœk
HELGARPÓSTURINN 13