Helgarpósturinn - 04.12.1986, Blaðsíða 4
SKODANAKÖNNUN HEtGARPOSTSIWS
Pingmönnum Alþýöuflokksins myndi fjölga úr 6 í 18 eöa 19
KRATAR KOMNIR A HÆLA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
• Alþýöuflokkurinn meö tœplega 30% fylgi • Rösklega helmingi stœrri en
Alþýðubandalag % Alþýðubandalag á í vök að verjast á Reykjanesi og Framsókn
í Reykjavík
Enn heldur Alþýðuflokkurinn
áfram að auka fylgi sitt um land allt
og nýtur flokkurinn samkvœmt
skoðanakönnun Helgarpóstsins
fylgis 28,6% kjósenda á landsvísu.
Sjálfstœðisflokkurinn hefur nú að-
eins rösklega 6% meira fylgi en Al-
þýðuflokkurinn á öllu landinu eða
34,7%. Allar tölur miðast við þá
sem tóku afstöðu. Óákveðnir voru
um 33%. Samkvœmt þessum niður-
stöðum fengi Sjálfstœðisflokkurinn
22 eða 23 þingmenn kjörna miðað
við nýju kosningalögint en Alþýðu-
flokkurinn 18 eða 19. Ovissan felst í
niðurröðun jöfnunarsœta og
,,Flakkarans", þ.e. 63. þingmanns-
ins.
Könnunin var gerð 1. og 2. des-
ember, þ.e. eftir að úrslit prófkjöra
lágu fyrir.
Þá sýnir þessi könnun, að Alþýðu-
flokkurinn er orðinn rúmlega helm-
ingi stærri en Alþýðubandalagið,
sem fær 13,6% fylgi á landsvísu.
Jafnframt er Framsókn með meira
fylgi en Alþýðubandalagið eða
16.2%.
Alþýðuflokkurinn hefur þannig
styrkt stöðu sína sem næststærsti
stjórnmálaflokkurinn á íslandi, en
snemma í nóvember birti Morgun-
blaðið niðurstöður skoðanakönnun-
ar Félagsvísindastofnunar um fylgi
flokkanna, þar sem kratar fengu
24,1% en Sjálfstæðisflokkur 33,6%.
Staða sjálfstæðismanna er nánast
hin sama og í könnun Félagsvísinda-
stofnunar, en sé tekið mið af skoð-
anakönnun HP í október hafa kratar
aukið fylgið um 7,4%, en sjálfstæð-
ismenn tapað um 6%.
Svo virðist sem Alþýðuflokkurinn
auki fylgi sitt fyrst og fremst á kostn-
að sjálfstæðismanna. Hins vegar
verður að taka tillit til þess, að nú
hefur Félag frjálslyndra jafnaðar-
manna (sterku öflin í BJ) gengið til
liðs við krata með 3 þingmenn. Þá
hefur fylgi annarra flokka einnig
minnkað miðað við könnun Félags-
vísindastofnunar. Ef miðað er við
könnun HP í október eykur kvenna-
listinn örlítið við sig.
í októberkönnun HP þótti sýnt, að
Framsóknarflokkurinn sækti í sig
veðrið í þéttbýli. Þessi sókn hefur
stöðvast. í Reykjavík er Framsókn
komin niður í 7,8% úr 11,4% í októ-
ber, en á Reykjanesi, þar sem Stein-
grímur Hermannsson fer fram hefur
fylgið aukizt um 1 '/2%. Þessar niður-
stöður þýða það, að Framsókn kem-
ur ekki manni að í Reykjavík og
Steingrímur rétt mer þingsæti í
Reykjaneskjördæmi.
I heild fengi Framsóknarflokkur-
inn 16,2%, Alþýðubandalag 13,6%
FRIÐRIK SOPHUSSON,
VARAFORM. SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS:
„MUNUM
BREGÐAST VIÐ
ÞESSARI
VIÐVÖRUN##
„Eg vil taka það fram að skoðana-
kannanir eru skoðanakannanir, en
ekki kosningar. Þær geta hins vegar
verið mönnum gagnlegar sem vís-
bending um hreyfingar sem eiga sér
stað í þjóðfélaginu.
Það er ljóst að meginniðurstaða
þessarar könnunar er sú, að Alþýðu-
flokkurinn græðir á kostnað Sjálf-
stæðisflokksins. Þetta er ítrekun á
stöðu, sem kominn er í ljós áður og er
alvarleg viðvörun fyrir sjálfstæðis-
menn. Við tökum að sjálfsögðu
mark á þeirri viðvörun og bregð-
umst við henni.
Þarna kemur í Ijós, að kjósendur
hafa á undanförnum vikum haft
hugann við gjaldþrotamál og önnur
slík leiðindamál, svo sem Hafskips-
og Útvegsbankamálin. Niðurstaða
könnunarinnar sýnir einnig, að
okkur hefur ekki tekist að koma til
skila þeirri lausn okkar að losa um
pólitísk bönd á bankakerfinu. Þar
að auki höfum við sjálfstæðismenn
vanrækt að rifja nægilega upp ár-
angur núverandi ríkisstjórnar og
minna fólk á hvernig ástandið var
þegar við tókum við.
Eg vil að lokum minna menn á
hvernig fór í kosningunum 1978,
eftir samsteypustjórn Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks, en þá hugðust
margir kjósendur okkar veita
flokknum aðhald með því að kjósa
Alþýðuflokkinn. Þetta gerðu þeir í
trausti þess að mynduð yrði við-
reisnarstjórn. En eina tryggingin
sem menn hafa fyrir því að viðhorfa
Sjálfstæðisflokksins og sjónar-
miða hans njóti í ríkisstjórn lands-
ins, er með því að kjósa D-listann.“
Áðspurður um það hvort listi Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík væri end-
anlega frágenginn og bindandi,
sagði Friðrik svo ekki vera. Listinn
Samhliða könnun HP á fylgi
stjórnmálaflokkanna spurðum við
hvort fólk styddi ríkisstjórnina.
Niðurstaðan var sú, að 52% styðja
hana, en 48% ekki. Hér er miðað við
þá, sem tóku afstöðu.
Einnig var leitaö eftir skoðunum
fólks á því hvers konar ríkisstjórn
þaö vildi sjá að loknum kosningum.
Flestir vildu nýja Viöreisn eöa
4 HELGARPÓSTURINN
væri bindandi fyrir kjörnefnd, en
Fulltrúaráðið hefði vald til þess að
gera við hann hvað sem það vildi.
-JL
SVAVAR GESTSSON, FORMAÐUR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS:
„REYKJAVÍKUR-
LISTINN MÆLIST
VEL FYRIR##
,,Ég er sannfærður um, að Al-
þýðubandalagið fær mun betri
kosningu en þessar tölur gefa til
kynna. Fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar fengum við um 15% í
Reykjavik í skoðanakönnun HP, en
vorum síðan með rúm 20% í kosn-
ingunum. Þær tölur, sem nú koma
fram, benda til þess að við fáum
svipað fylgi og þá.
Það er einnig greinilegt, að listinn
í Reykjavík mælist vel fyrir, þótt
hann sé að vísu ekki fullfrágenginn
enn.“ .jl
PÁLL PÉTURSSON,
ÞINGFLOKKSFORMAÐUR
FRAMSÓKNARFLOKKSINS:
„SETJUM MARKIÐ
VIÐ 25%/#
„Ég get ekki annað 'en verið
sæmilega hress með þessa útkomu.
Við erum á uppleið og það er enn
góður sprettur í kosningar, svo ég á
von á því að við eigum eftir að bæta
meira við okkur.
Það er þó engin ástæða til þess að
vera yfir sig lukkulegur fyrr en
Framsóknarflokkurinn er kominn í
upp undir fjórðung kjósenda og það
er markmið sem við setjum okkur.
Hlutur flokksins í Reykjavík er
vissulega rýr og þar er eflaust um að
kenna óheppilegum átökum, sem
þar áttu sér stað í prófkjörinu. Talan
ber þess greinileg merki. Við vorum
hins vegar með 11.4% í Reykjavík í
október og þessi tala á eftir að
hækka, þegar mönnum er runnin
versta reiðin. Það líður ekki á löngu
þar til það verður. Mér er þó engin
launung á því, að ég sé eftir Haraldi
30,5%, en á hcela slíkrar stjórnar
kom sama stjórnarmynstur og er
nú, þ.e. samsteypustjórn Sjálfstœðis-
flokks og Framsóknarflokks með
27,5%. Þá vildu 15,1% samstjórn
Alþýðuflokks, Framsóknar og Al-
þýðubandalags og 10% vildu aö
Sjálfstœöisflokkurinn fœri einn meö
stjórn landsins.
Ólafssyni af þingi."
Um hlut kvenna og áhrif óánægju
þeirra á gengi í könnuninni, sagði
Páll.
„Það er mikill misskilningur hjá
framsóknarkonum að vera óánægð-
ar með sinn hlut, enda eru þær það
alls ekki allar. Konur gjalda þess að
vera mun færri en karlar í flokks-
starfinu, en þær sem þar hafa látið
til sín taka, hafa flestar verið afar
farsælar í starfi. Framsóknarflokk-
urinn hefur líka sýnt konum mikinn
trúnað við kosningar í ráð og nefnd-
ir og ég held að við getum verið
stoltir af því.“ -JL
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON,
FORMAÐUR ALÞÝÐUFLOKKSINS:
„ANDSTÆÐINGAR
EIGA ÞAKKIR
SKILDAR"
Þar gerðuð þið Helgarpóstsfólk
mig orðlausan... Að vísu skal ég
játa, að ég er ekki eins hissa og ég
ætti að vera. Ég er eiginlega hættur
að fara út á götu — kemst þar ekkert
nema fetið fyrir fólki, sem tekur í
höndina á mér, og krökkum, sem
senda mér sigurmerki út um bíl-
glugga á rúntinum.
Eg hef það á tilfinningunni, að
fólk kunni að meta það sem við höf-
um á okkur lagt, m.a til þess að laða
nýtt hæfileikafólk að stjórnmálum.
Alþýðuflokkurinn er í vitund fólks
að verða endurnýjunarafl —
kannski von manna um að nú takist
að endurreisa virðingu á stjórn-
málastarfsemi. Svo má ekki gleyma
andstæðingunum. Við getum aldrei
nógsamlega þakkað það að eiga
slíka andstæðinga."
Varðandi góðan byr Alþýðu-
flokksins í höfuðborginni, hafði for-
maðurinn eftirfarandi að segja:
„Frábært gengi flokksins í Reykja-
vík má fyrst og fremst þakka því, að
fólk hefur nú séð hvaða hugur fylgir
máli hjá okkur í þeirri viðleitni að
greiða götu nýrra hæfileikamanna
til stjórnmálaþátttöku. Persónulega
heyri ég líka, að menn meta það við
formann Alþýðuflokksins að hann
er tilbúinn til að víkja úr sæti til þess
að gera þetta kleift." -JL
52% STYÐJA STJÓRNINA
Ný Viðreisn vinsœlust eftir kosningar
og Kvennalisti 6,4%.
í Reykjavík tapar Framsókn
nokkru fylgi niður í 7,8%, Alþýðu-
bandalag fer úr 16,5 í október í 14%
í höfuðborginni, en Kvennalistinn
úr 7,4% í 10,8%. Alþýðuflokkurinn
hefur hins vegar stokkið úr 18,8% í
október í 30,6% nú í Reykjavík. Mið-
að við októberkönnunina hrynur
Sjálfstæðisflokkurinn úr 45,5% í
36,3%.
Það athyglisverðasta við þessa
könnun er e.t.v. niðurstaðan á
Reykjanesi. Þar er Sjálfstæðisflokk-
urinn enn stærsti flokkurinn, en það
má ekki miklu muna, að kratar séu
jafnstórir. Þar fá þeir nú 36,5% nú
(25% í október), en sjálfstæðismenn
fá 39,4% (50% í október). Þetta þýð-
ir að báðir flokkar fá 4 þingmenn
hvor. Jöfnunarsætin á Reykjanesi
eru 2 og er líklegast, að þau renni til
sjálfstæðismanna annars vegar og
Alþýðubandalags hins vegar. Þann-
ig er Ólafur Ragnar Grímsson (2.
sæti G-lista) fjarri þingsæti sam-
kvæmt þessari könnun.
Varðandi jöfnunarsæti í Reykja-
vík, sem eru 4 talsins, benda niður-
stöðurnar til þess að í þau setjist 6.
maður krata, 7. maður sjálfstæðis-
manna, 3. maður Alþýðubandalags
og 2. maður kvennalista. Ólíklegt er
að Framsókn fái nokkurt jöfnunar-
sæti, en ef svo yrði færi það til
Reykjavíkur.
I öðrum kjördæmum en Reykja-
vík og Reykjanesi er Sjálfstæðis-
flokkurinn áfram öflugastur með
30,8% fylgisins. Framsókn með
24,5% og Alþýðuflokkurinn með
22,8%. Þá kemur Alþýðubandalag-
ið með 16,5% og Kvennalisti með
4,6%. Flokkur mannsins og BJ fá í
það heila frá 0,2% upp í 0,6%. Án
þess, að það væri sérstaklega kann-
að kom fram í svörum stuðnings-
manna Framsóknarflokksins í Norð-
urlandi eystra, að hugsanlegur
framboðslisti Stefáns Valgeirssonar
hlyti eitthvað fylgi, einkum í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu og kæmi stuðn-
ingur við hann einna helzt niður á
efsta manni Alþýðubandalagsins,
Steingrími J. Sigfússyni.
-H.H.
GREINARGERÐ SKÁÍS
Þessi skoðanakönnun var gerð
dagana 1—2. desember. Hringt var
í 800 einstaklinga skv. tölvuskrá yfir
símanúmer fyrir allt landið. Spurn-
ingunum var beint til þeirra sem
svöruðu og voru 18 ára eða eldri og
var miðað við jafnt hlutfall kynja.
Úrtakið skiptist í þrjú svæði:
Reykjavík (306 símanúmer), Reykja-
nes (182 símanúmer) og lands-
byggðin, þ.e. kjördæmi önnur en
Reykjavík og Reykjanes (312 síma-
númer).
Spurt var:
1. Ef kosið væri til Alþingis núna,
hvaða flokk myndirðu kjósa?
2. Styður þú ríkisstjórnina eða ekki?
3. Hvernig stjórn vildir þú fá eftir
kosningar?
Niðurstöðurnar birtast í meðfylgj-
andi töflum.
Ef kosið væri til Alþingis núna
hvaða flokk myndirðu kjósa?
Allt landið:
fjöldi % af % þeirra
heild sem tóku
afstöðu
Alþýðuflokkur 152 19,0 28,6
Framsóknarflokkur 86 10,8 16,2
Bandalag jafnaðarmanna 1 0,1 0,2
Sjálfstæðisflokkur 184 23,0 34,7
Alþýðubandalag 72 9,0 13,6
Kvennalisti 34 4,3 6,4
Reykjavík: fjöldi % af % þeirra
heild sem tóku
afstöðu
Alþýðuflokkur 48 15,7 30,6
Framsóknarflokkur 12 3,9 7,8
Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0 0,0
Sjálfstæðisflokkur 57 18,6 36,3
Alþýðubandalag 22 7,2 14,0
Kvennalisti 17 5,6 10,8
Reykjanes: fjöldi % af % þeirra
heild sem tóku
afstöðu
Alþýðuflokkur 50 27,5 36,5
Framsóknarflokkur 16 8,8 11,7
Bandalag jafnaðarmanna 0 0,0 0,0
Sjálfstæðisflokkur 54 29,7 39,4
Alþýðubandalag 11 6,0 8,0
Kvennalisti 6 3,3 4,4
Landsbyggðin: fjöldi % af % þeirra
Alþýðuflokkur 54 heild 17,3 sem tóku afstöðu 22,8
Framsóknarflokkur 58 18,6 24,5
Bandalag jafnaðarmanna 1 0,3 0,4
Sjálfstæðisflokkur 73 23,4 30,8
Alþýðubandalag 39 12,5 16,5
Kvennalisti 11 3,5 4,6
Þannig myndu þingsæt n skiptast:
Alþýðuflokkur 18 eða 19
Framsóknarflokkur 10 eða 11
Sjálfstæðisflokkur 22 eða 23
Alþýðuþandalag 8 eða 9
Kvennalisti 4
62
Mjög mjótt er á munum hvar síðasta þingsætið, „flakkarinn", lendir. A, D og G-listar eru hnífjafnir, en B-listi fyglgir fast á hæla
þeim.