Helgarpósturinn - 04.12.1986, Blaðsíða 27
raunsæja lýsingu á atburðarrásinni.
Aðstæðum og tilfinningalífi höfuð-
persónanna eru gerð góð skil bæði
fyrir og eftir morðið, og er sérstak-
lega átakanlegt að sjá hvaða áhrif
morðið hefur á lögguna sem slapp
úr hildarleiknum. John Savage gerir
þeirri sálarflækju mjög góð skil í sín-
um rullum. Woods sem hinn hálf-
geðveiki ídealisti, sem dreymir um
stóra og styrka fjölskyldu líkt og hjá
mafíósunum, og Seales í jafnvel enn
flóknari persónu sem auðvelt er að
hafa að handbendi. _pQ
The Black Marble: ★★
Bandarísk, árgerd 1980. Leik-
stjórn: Harold Becker. Aöalhlut-
uerk: Robert Foxworth, Paula
Prentiss, Harry Dean Stanton.
Enn ein lögreglumyndin eftir hina
fyrrverandi löggu, Joseph
Wambaugh. Alveg hreint með ólík-
indum hvað kvikmyndaframleið-
endur eru ginnkeyptir fyrir verkum
hans. Þeir gætu eflaust gert kvik-
myndahandrit eftir ávísun skrifaðri
af honum, slík er ofsatrú þeirra á
honum. Að vísu er Wambaugh á allt
annarri línu í þetta skiptið, því enda
þótt sagan fjalli um samvinnu karl-
og kvenlöggu, þá er hér um róman-
tíska mynd að ræða, með kómísku
ívafi og obbolitlu af spennu. Þó get-
ur hann ekki stillt sig um að taka fyr-
ir hið mikla andlega álag sem óum-
flýjanlega fylgir lögreglustarfinu.
Því er síðan með snjallri leikstjórn
snúið yfir í þægilegustu rómantík.
Gallinn er hins vegar sá að róman-
tíkin keyrir um þverbak og ástarsen-
urnar verða hálf tilgerðarlegar,
nema kannski lokaatriði myndar-
innar þar sem James Woods bregð-
ur skyndilega fyrir í algeru auka-
hlutverki. Þ.Ó.
Mischief: ★íé
Bandarísk, árgerð 1985. Leik-
stjóri: Mel Damski. Adalhlutuerk:
Dough McKeon, Chris Nash.
Aftur og aftur endast bandarísk-
ir kvikmyndaframleiðendur til að
gera unglingamyndir sem allar
eru nákvæmlega eins. Lítill og
óframfærinn náungi í fyrsta bekk
menntó verður yfir sig hrifinn af
sætustu stelpunni í skólanum sem
tekur náttúrulega ekki eftir hon-
um. Eldri, stærri og sterkari strák-
arnir hæða’nn og berja með reglu-
bundnu millibili, svo kynnist hann
svölum gæja sem margt hefur
reynt og reddar öllu fyrir hann,
kemur honum í kynni við drauma-
píuna og kemst þá að því að kápan
á bókinni segir ekki allt um inni-
haldið og loks endar öll vitleysan
eins og flestir höfðu vonað. Þetta
útþynnta efni er einmitt söguþráð-
urinn í Mischief. Karakterarnir og
atburðarásin eru oft óþægilega
fyrirsjáanleg. Samt er einhver stíg-
andi í myndinni sem lyftir henni á
örlítið hærra plan en sambærileg-
ar ræmur. Það er mest að þakka
skemmtilegum leik þeirra
McKeon sem hinn óframfærni og
Nash sem hinn veraldarvani félagi
hans. _ j c
Bresk kvikmyndahefð í sókn
PERSONULEG VERK
FÁ LOKS NOTIÐ SÍN
Nýjar og frumlegar fjármögnunarleidir óháöra framleiðenda bera
mikinn árangur
Það hefur tœpast farið framhjá
neinum, hversu hlutdeild breskœtt-
aðra kuikmynda hefur aukist á
myndbandamarkaðnum að undan-
förnu. Það sem er hvað eftirtektar-
verðast uið þessa óuœntu sókn
breskra kvikmynda á heimsmark-
aðnum eru þær viðhorfsbreytingar
og sú formbylting, sem orðið hefur á
fjölmiðlamarkaðnum þar í landi á
liðnum misserum. Ein af meginfor-
sendum þessarar formbyltingar er,
að þar til fyrir nokkrum árum áttu
sjónvarpið og kvikmyndaiðnaður-
inn, líkt og víðast huar annarsstað-
ar, í hatrammri baráttu um tíma og
neysluvenjur áhorfenda. Á síðari ár-
um lítur einna helst út fyrir að þess-
um fornu fjendum hafi loksins skil-
ist mikilvœgi þess fyrir afkomu
þeirra beggja, að þeir sameini
krafta sína til eflingar innlendrar
dagskrárgerðar.
Fyrir ekki svo löngu síðan var
meginhluti kvikmyndaframleiðslu
landsins í höndum þriggja stórfyrir-
tækja. Tvö þeirra (Rank og ACQ
hafa nú að mestu hætt framleiðslu,
en eftir stendur aðeins eitt, nefni-
lega EMI sem eftir nokkrar mis-
heppnaðar tilraunir til að komast
inn á Ameríkumarkaðinn á áttunda
áratugnum hefur nú endurskipulagt
starfsemi sína frá grunni. í stað þess
að leggja allt undir við framleiðslu
stórmynda dreifir fyrirtækið núorð-
ið fjármunum sínum á fleiri og ódýr-
ari verkefni í þeirri von að a.m.k.
eitt þeirra komi til með að slá í gegn.
BBC FJÁRMAGNSAÐILI
KVIKMYNDA
Arið 1983 bárust kvikmyndaiðn-
aðinum þau óvæntu gleðitíðindi að
BBC hyggðist í fyrsta sinn í 60 ára
sögu sinni hasla sér völl sem fjár-
magnsaðili á kvikmyndamarkaðn-
um. Til að byrja með mun fyrirtæk-
ið (í samvinnu við bandaríska kapla-
sjónvarpsfyrirtækið Home Box
Office) veita sem samsvarar 290
milljónum íslenskra króna árlega til
framleiðslu breskættaðra kvik-
mynda. Árinu áður hafði hin þá ný-
stofnaða sjónvarpsstöð Channel
Four riðið á vaðið með því að fjár-
festa sem samsvarar 430 milljónum
króna í framleiðslu 20 kvikmynda.
Ein þessara mynda var The
Draughtsman’s Contract, sem síðar
varð ein af söluhæstu myndum ver-
tíðarinnar 1983, og hefur þ.a.l. greitt
upp taprekstur þeirra mynda er
verst seldust og vel það. Allar voru
þessar myndir síðan sýndar innan
árs á vegum Channel Four og brutu
menn þar með (og með góðum ár-
angri) gegn þeirri hefð að láta
a.m.k. þrjú ár líða frá frumsýningar-
degi til þess er nýjar myndir eru
sýndar í sjónvarpi.
Á síðari árum hafa tveir eftirtekt-
arverðir nýir fjármagnsaðilar hasl-
að sér völl í breskum kvikmynda-
iðnaði, en það eru Handmade Films
og Goldcrest Films. Hið fyrrnefnda
var stofnsett þegar EMI dró til baka
fjármagnshluta sinn í Monty Python’s
Life ofBrian á grundvelli hins „van-
virðugá’ efnisinntaks þeirrar mynd-
ar. Bítillinn George Harrison fregn-
aði að félagar hans væru í fjárhags-
kröggum og bað Denis O’Brien um
að útvega fjármagn til kvikmyndun-
arinnar. Eins og flestum mun kunn-
ugt varð kvikmyndin síðan ein af
söluhæstu myndum áttunda áratug-
arins, þannig að þeir Python-félagar
gátu stofnsett sitt eigið framleiðslu-
fyrirtæki. Síðan hefur Handmade
Films framleitt kvikmyndir á borð
við Time Bandits (sem er hvað fræg-
ust fyrir að hafa gefið af sér u.þ.b.
1,5 milljarða króna á Bandaríkja-
markaði einum saman), The Long
Good Friday og The Missionary svo
dæmi séu nefnd.
GOLDCREST FILMS
ORÐINN SÁ STÆRSTI
Goldcrest er að öllum líkindum
stærsti óháði framleiðandi mynd-
efnis fyrir kvikmyndir og sjónvarp í
Evrópu. Árlega framleiðir fyrirtæk-
ið um 10 kvikmyndir og 30—40
sjónvarpsdagskrár. Flest þessara
verkefna eru unnin í samvinnu við
framleiðendur í Þýskalandi, Frakk-
landi, á Ítalíu, Spáni og á Norður-
löndunum. Höfuðmarkmiðið er að
komast inn á Ameríkumarkaðinn,
sem samsvarar 60% af heimsmark-
aðnum fyrir kvikmyndir og 80% af
neyslu sjónvarpsefnis í heiminum í
dag.
Aðferðin sem Goldcrest notar til
að komast inn á þennan markað er
að einskorða framleiðsluna við per-
sónuleg verk einstakra breskra og
evrópskra leikstjóra, sem mynda þá
eins konar mótvægi við þá geril-
sneyddu stöðnun á öllum sviðum,
sem óneitanlega er núorðið einn
helsti ljóður bandarískrar kvik-
myndahefðar.
Árleg velta Goldcrest Films er nú-
orðið um 2 milljarðar króna og ein
helsta ástæða þess hversu vel hefur
tekist að afla fjár til framleiðslunnar
er að fyrirtækið býður utanaðkom-
andi fjármagnsaðilum s.k. pakkatil-
boð, sem þá fela í sér möguieika á að
fjárfesta að hluta í fleiri velskipu-
lögðum verkefnum í einu: t.d.
nokkrum sjónvapsdagskrám, tveim-
ur ódýrum kvikmyndum og einni
stórmynd. Eitthvert þessara verk-
efna hlýtur að ganga upp fjárhags-
lega, þannig að persónuleg áhætta
fjármagnsaðilanna er mun minni,
en ef þeir veðjuðu t.d. öllu áhættu-
fjármagni sín á eitt spil.
LIFANDI MYNDIR í
STÓRSÓKN
Þessir viðskiptahættir tíðkast nú
mjög víða í Bretlandi og hafa orðið
til að hleypa, svo um munar nýju
blóði í þarlenda kvikmyndagerð.
Með tilkomu nýrrar tækni hefur
heimsmarkaðurinn fyrir hverskyns
myndefni fyrir kvikmyndir og sjón-
varp tekið slíkum stakkaskiptum,
að sambærilegrar byltingar verður
vart leitað í tæplega aldarlangri
sögu hinna „lifandi mynda”. Þó svo
að kvikmyndahús víða um heim
eigi víðast hvar í kröggum, hefur
eftirspurnin eftir hverskyns mynd-
efni stóraukist. Neysluvenjurnar
hafa m.ö.o. breyst: Núorðið eru það
myndböndin og kapalkerfin, sem að
mestu leiti sjá fólki fyrir því mynd-
efni, sem það í síauknum mæli virð-
ist hafa svo mikla þörf fyrir í gráma
hversdagslífsins.
Með hliðsjón af framangreindu,
ásamt þeirri staðreynd að framan-
greind útvíkkun heimsmarkaðarins
og breyttar neysluvenjur gera nú-
orðið ekki ráð fyrir að nefnt fjöl-
miðlaefni þurfi endilega að vera á
enskri tungu, er ekki úr vegi að hér-
lendir fjármagnsaðilar fari, líkt og
breskir stéttarbræður þeirra að
hugsa sér til hreyfings og gaumgæfi
þá möguleika er gefast til slíkra fjár-
festinga hér á landi. Því þrátt fyrir
að Kvikmyndasjóður hafi nú loksins
yfir að ráða því fjármagni, sem hon-
um er lögum samkvæmt ætlað til
ráðstöfunar, þá er enganveginn við-
búið að honum megi einum síns liðs
takast að reisa íslenska kvikmynda-
hefð endanlega úr öskustónni.
Opið laugardag í
öllum deildum frá kl. 9—16
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut
'A Á á A A A
i_i i_Z1 — _J
z ~ i_juacjaj5j
_ _ u
um iuuuyuiii iiii
121 Sími 10600
HELGARPÓSTURINN 27