Helgarpósturinn - 04.12.1986, Síða 29
3 léttar frá Monty Python
14 BIIAR
158 ADRIR VINNIN6AR
AUIR DRE6NIR IIT
Time Bandits
★★
Árgerð 1981.
Leikstjórn/fram leiöandi: Terry
Gilliam.
Aðalhlutverk: John Cleese, Sean
Connery, Shelly Duval.
Kevin litla hundleiðist dauðyflis-
legt líferni foreldra sinna, sem
hafa nánast engan tíma aflögu til
að sinna öðru en lágkúru lífsgæða-
kapphlaupsins. Því verður hann
að sjálfsögðu himinlifandi, er hon-
um gefst færi á að slást í för með
sex litlum ærslabelgjum, sem stol-
ið hafa korti Æðstu veru (Guðs
almáttugs) yfir „tímagöt" þau í til-
verunni, sem hann hefur um aidir
nýtt sér til að ferðast fram og aftur
um sköpunarverk sitt... óháð
tíma og rúmi. Eitt þessara tíma-
gata liggur um herbergi Kevins.
Hann fer á stúfana með körlunum
sex, hittir m.a. Napóleon,
Agamemnon konung, leiðtoga
Hellena í Trjóustríðinu og sjálfan
Hróa hött.
Sómasamleg dægrastytting fyr-
ir börn á öllum aldri. Þó er hætt
við að yngstu aldurshópunum
kunni að þykja hún helst til ógnvæn-
leg á köflum.
The Meaning of Life
★★★
Árgerð 1985.
Leikstjórn: Terry Jones.
Handrit og aðalhlutverk: Gra-
ham Capman, John Cleese,
Terry Gilliam.
Þessi botnlausa rangtúlkun á
eðli lífsins og tilverunnar er væg-
ast sagt engu öðru lík. Myndin er
ein af gullvægari afurðum ærsla-
belgjanna úr Monty Python-hópn-
um, og vann á sínum tíma (flestum
til mikillar undrunar og ekki síst
framleiðandanum sjálfum) Grand
Prix Spécial Du Jury á kvik-
myndahátíðinni í Cannes.
Ógerningur er í stuttu máli að
lýsa atburðarás þessa dæmalausa
óðs til lífsins af nokkru viti. Enda
er hann í sjálfu sér álíka botnlaus
og ófyrirsjáanlegur og sjálft lífið.
Óhætt er þó að iofa hverjum þeim,
er unun hefur af góðum försum,
nánast óborganlegri ánægjustund
frammi fyrir þessu tiltæki þeirra
Python-manna.
Ó.A.
Monty Python’s Life of Brian. ★★★
Bresk. Árgerð 1979.
Leikstjórn: Terry Jones.
Handrit og aðalhlutverk: Graham
Chapman, Terry Gilliam, John
Cleese, Eric Idle, Michael Palin.
Þeir sem enn hafa ekki haft tæki-
færi til að berja þessa vægast sagt
guðdómlega anarkísku guðlaststil-
burði þeirra Pyhton manna augum
hafa farið mikils á mis. Víðast hvar
erlendis var þessi óður þeirra félaga
til goðsagnarinnar um ævi og lífs-
starf frelsara okkar, Jesú Krists ekki
sýndur opinberlega fyrr en eftir að
kvikmyndaeftirlit viðkomandi
landa höfðu farið um hana óvægum
höndum, vopnuð skærum sínum.
Frændur vorir Norðmenn bönnuðu
alfarið sýningar á myndinni.
Monty Python's Life of Brian. hefst
aðfaranótt 25. desember annó núll í
Betlehem. í næstu jötu við hlið frels-
ara vors hefur í þennan heim verið
borið sveinbarnið Brian, sonur
,,ástands‘-hóru af Gyðingaættum og
rómversks hundraðshöfðingja. Þeg-
ar vitringarnir þrír mæta á staðinn
fara þeir að sjálfsögðu mannavillt.
Þrjátíu árum síðar, á laugar-
degi. . ,,just after teatime", hyggjast
Brian frá Nasaret og móðir hans, líkt
og aðrir samlandar þeirra leita sér
afþreyingar í vægast sagt ríkulegu
skemmtanalífi Júdeu á þessum
tírna. Þau velja ,,grýtinguna“, íljós
kemur að sökum mannmergðar
heyrast vart orðaskil í fjallræðu
Frelsarans.
Brian er nú á þeim aldri, að hann
er að vakna til pólitískrar meðvit-
undar um eigin stöðu í þjóðfélaginu,
og þó einkum stöðu þjóðar sinnar
gagnvart heimsvaldastefnu Rómar-
veldis.
Það er skemmst frá því að segja að
dag nokkurn er hann staðinn að
verki og Rómverjar dæma hann til
dauða. A föstudaginn langa deyr
síðan Brian frá Nasaret fórnardauð-
anum á krossinum. Líkt og vitring-
arnir forðum, fóru ritarar heilagrar
ritningar síðan mannavillt á föstu-
daginn langa 33 árum eftir Krists-
burð. .. og telja þeir Monty Python-
menn þar með komna öllu skil-
merkari útlistun, eða skýringu á
,,upprisu“ frelsara vors Jesú Krists,
en greint er frá í Nýjatestamenti
framangreindrar ritningar.
Ó.A.
1 DAIHATSU ROCKY
3 DAIHATSU CHARADF
XU JLIiilMÍi, 1 aií ^
8 ¥lDEOTÖKlíVÉLAR
JVC GR-C2
23 ÚTVÖRP
JVC RC-W40
25 REIÐHJOL
BMXLUXUS
HELGARPÓSTURINN 29