Helgarpósturinn - 11.12.1986, Side 3
FYRST OG FREMST
fjögur. Við þessa sjón man hann
eftir því loforði sínu við Jón
Baldvin að borga háa fjárupphæð
inn á reikning formannsins í
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis, vegna útlagðs kostnaðar í
tengslum við auglýsingu í Morgun-
blaðinu.
Þessi uppgötvun varð til þess að
Amundi reis dofinn og tannlaus
upp úr stólnum og rauk á dyr með
þeim orðum að tannlæknirinn
yrði að hafa sig afsakaðan eitt
andartak. Síðan hljóp hann við fót
til aðalstöðva SPRON við Skóla-
vörðustíg, þar sem hann lét öllum
illum látum í biðröðinni, glennti
fram hálfu framtönnina og sagðist
verða að flýta sér aftur til tann-
læknis sem biði eftir honum á
fullum taxta. Þótt þetta hafi átt sér
stað mánudaginn 1. desember,
gekk Ámunda greiðlega að troða
sér að hjá skilningsríkum gjald-
kera. Og þegar heiðri Jóns
Baldvins í bankakerfinu var
bjargað, gat Ámundi Ámundason
látið sig falla áhyggjulausan aftur í
stólinn hjá tannlækninum sem
hefur örugglega aldrei áður verið
beðinn um að bíða á meðan kúnn-
inn brygði sér frá.. .
ÞEGAR blaðamaður HP hringdi
í Árna Johnsen og fékk hann til
DAVIÐ Oddsson veifar núna
lyklum Borgarspítalans svo
Þorsteinn fjármála sjái. Ýmsum
flokksbræðrum líkar miður, öðrum
skár. Annars er gaman hvað orða-
notkunin hefur verið vísandi í um-
ræðum um þetta mál: Hugmyndin
um sölu spítalans hefur þótt
„niðurdrepandi", ellegar til-
lögurnar þar um „frísklegar", úr-
ræðin „slöpp" og staðan muni
„veikjast". Þetta á við ...
.. . en bara spurning hvort til-
gangurinn helgar meðalið . . .
ÞEIR, sem lengst eru til vinstri í
breskum stjórnmálum, eru oft
kallaðir „the loony left“, eða
„vinstri vitleysingjarnir". Fólk á
þessari pólitísku línu er við völd í
nokkrum bæjar- og borgar-
stjórnum á Bretlandseyjum og þar
framfylgir það stefnu, sem sumum
finnst orðin nokkuð ofstækisfull.
Má nefna sem dæmi, að barna-
bækur Enid Blyton eru m.a.
bannaðar á nokkrum opinberum
bókasöfnum þar sem þessir
að taka þátt í léttu gríni, sem sagt
verður frá í næsta blaði, var þing-
maðurinn staddur í sama herbergi
og Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra. Árni svaraði málaleitan
þessari meðal annars með því, að
það tæki langan tíma að ganga
endanlega frá sér. Heyrðist þá ráð-
herrann segja í fjarska: „Hvað
tekur það langan tíma, Árni?!“
PÉTUR STEINN á Bylgjunni
tók fyrir síðustu helgi viðtal við
hina bresku Bonnie Tyler, sem hér
var á hljómleikaferð. Þýddi Pétur
viðtalið jafnóðum, eins og venja
er í útvarpi þegar talað er á er-
lendum tungumálum. Þegar söng-
konan sagðist hafa fjölbreyttan
tónlistarsmekk (á ensku: a wide
musical interest) fræddi Pétur
Steinn hlustendur á því að Bonnie
hefði „hvítan“ tónlistarsmekk
(white). Þessi lauflétti mis-
skilningur kitlaði hláturtaugarnar
hressilega...
vinstrimenn fara með stjórn, og
um daginn bannaði eitt bæjar-
ráðið að Stjáni blái yrði notaður á
fána í tilefni einhverrar hátíðar,
sem fram átti að fara í bæjarfé-
laginu. Töldu ráðamenn Stjána
vera dæmigerða sjómannakarl-
rembu og slíkum föntum ætti ekki
að flíka á almannafæri...
ÞAÐ ER lítið gaman fyrir
þekkta krata að fara til tannlæknis
þessa dagana. Amundi Ámunda-
son, hægri hönd Jóns Baldvins, lét
sig þó hafa það um daginn, þegar
ágreiningur tannlækna og vara-
formanns Alþýðuflokksins var á
hápunkti í fjölmiðlum. Segir ekki
af Ámunda fyrr en hann liggur
hálfdofinn í tannlæknastólnum og
búið að bora úr honum hálfa
framtönn. Lítur þá ekki vinur vor
á klukkuna á veggnum fyrir ofan
sig og sér, að hana vantar kortér í
SMARTSKOT
HELGARPÚSTURINN UMMÆLI VIKUNNAR
Hver borgar spítalann? Best er að leggja upp laupa, láta ríki kaupa. Seljum alla sjúka sem ekki er hægt að brúka. „Bara að ég hefði fallið á prófunum og orðið ríkur í staðinn." ELLERT B. SCHRAM RITSTJÖRI, FORMAÐUR KSl OG FYRRUM ÞINGMAÐUR 1 SlÐASTA LAUGARDAGSPISTLI DV.
Niðri
Er nauðsynlegt að
skjóta
Bubbi Morthens
rokkstjarna og rjúpnaskytta
„Rjúpurnar? Það fer auðvitað eftir smekk hvers og eins! Ég
skýt þær til að éta þær. Það er töluverður munur á rjúpnaveið-
um og hvalveiðum og hann liggur í því að rjúpnastofninn er í
engri útrýmingarhættu. Ég er hræddur um að þarna sé tölu-
verður munur á."
— Heldur þú að rjúpur séu greindar skepnur?
„Spyr sá sem ekki veit."
— Eru rjúpnaveiðarnar hjá þér kannski heilsurækt og
útivera að mestu?
„Að sjálfsögðu blandast inn í þetta og er stór partur af þessu,
að fara á fjöll, fyrst og fremst. Ég hef stundað vertíðina vel í
vetur."
— Hvert er þá helst farið?
„Ég upplýsi ekki um slóðirnar, sko, nei, nei. En við förum allt-
af nokkrir saman."
— Má upplýsa hverjir það eru?
(Hlátur) „Nei, nei. En ég fer á sunnudaginn og ykkur er vel-
komið að koma með!"
— Talandi um útiveru. Hljómleikahald útheimtir
vafalaust gott úthald. Hjálpar þetta mikið til? Stundar
þú aðra heilsurækt jafnframt?
„Ég stunda reglulega lóðalyftingar. Og er ansi slyngur borð-
tennisleikari. En að ganga á fjöll held ég að sé eitt það erfiðasta
sem ég hef tekið mér fyrir hendur. En jafnframt eitt hið ánægju-
legasta. Og það er ekkert einskorðað við rjúpnavertíðina, held-
ur yfir allt árið. Einn með sjálfum sér er djöfull gott að príla á
fjöll, til að losna frá stressinu og kannski að læra að umgangast
landið á annan hátt og þekkja það öðruvísi."
— Hvað segir þú okkur af sölunni á nýju plötunni?
„Hún rokselst. Hún er að nálgast 6000 á þremur vikum. Það
er víst venjan að veita gullplötu þegar farið er yfir 5000 eintök.
Þetta er kannski óvenjulega hröð sala. En þú verður að spyrja
Ása í Gramminu nánar um þetta."
— Hefur þú skýringu á þessari miklu og hröðu sölu?
„Þrotlaus vinna."
— Þú hefur gengið í gegnum ýmis skeið á ferlinum,
ýmist einn sem trúbador eða með öðrum. Ertu á ein-
hverju ákveðnu skeiði núna?
„Nei, það held ég ekki. Það er voða erfitt að svara þessu, ég
spila alltaf trúbadorinn og MX-ið er á fullu líka, þannig að þetta
er svona í bland."
— Hvaða stórviðburðir eru framundan hjá þér?
„Ég fer út eftir áramótin að klára ensku útgáfuna, í Svíþjóð,
þar sem ég er á fimm ára samningi."
— Er gott aö búa í Svfþjóð?
„Það er ágætt að vera þar, en ekki of lengi. Ég hafði það
ákvæði í samningnum að lögheimili mitt yrði á íslandi."
— Þú vilt halda tryggð við heimalandið?
, Já, hér eru mínar rætur og mín uppspretta. Með því að yfir-
gefa hana þá slít ég í rauninni úr sambandi forsendurnar fyrir
því að geta verið sá sem ég er að reyna að vera."
Á morgun fær Bubbi Morthens gullplötu I hendurnar eftir fádæma
góðar viðtökur plötunnar „Frelsi til sölu" og við óskum honum að sjálf-
sögðu innilega til hamingju. Bubbi hefur komið viða við á ferli sinum
og er meðal annars mikill náttúruverndarsinni og hvalveiðiandstæðing-
ur. Eitt laga plötunnar ber nafnið „Er nauðsynlegt að skjóta þá?" og fjall-
ar á gagnrýninn hátt um hvalveiðar. En við fréttum að Bubbi færi á fjöll
til að skjóta rjúpur og því ákváðum við að striða honum dulitið.
HELGARPÓSTURINN 3