Helgarpósturinn - 11.12.1986, Blaðsíða 13
Metsölutímaritið
brm»t
Oescmber 1986
8. tbl- 3- ár9-
Verð Kr. 279
Krossciötur maid««
K Sa'nmum.u-^'
Framboð huldumanns
Ú,'e95'e,ha,a
Ljos og
Uf, péturs Péturssonar
MANNLIE
er komið út!
ElnkaviMttl MAMHlífS
10.000 áskrifendur!
MANNLÍF er komið út, stærra og betra en nokkru sinni fyrr, 188 blaðsíður að stærð.
* ,
MANNLIF er útbreiddasta tímaritið, sem nokkru sinni hefur komið út á Islandi.
Ekkert annað tímarit getur státað af efni á borð við einkaviðtöl við Willy Brandt fyrrum kanslara
Vestur-Þýskalands, Milan Kundera rithöfund og kvikmyndastjörnuna Charlotte Rampling.
Enginn annar íslenskur fjölmiðill getur státað af að hafa sent blaðamann í suðupottinn í Nicaragua.
MANNLÍF — magnað tímarit!
hefur vakið meiri athygli í
heimsfréttunum undanfarnar vik-
ur en ástandið í Nicaragua, átök
stjórnar Sandinista og skæruliða
contra og aðild Bandaríkjastjórn-
. ar að þeim. Stefán Jón Hafstein,
fréttamaður fór fyrir Mannlíf til
Nicaragua fyrir stuttu og segir frá
þeirri reynslu í myndum og máli,
en hann var m.a. viðstaddur hin
afdrifaríku réttarhöld yfir banda-
ríska flugmanninum Hasenfus og
25 ára afmæli Sandinistahreyfing-
Pétur Pétursson, knattspyrnumað-
ur á Akranesi á að baki glæsta
sigra á vettvangi atvinnumennsk-
unnar í evrópskri knattspyrnu. En
hann hefur líka þurft að taka sár-
um ósigrum, bæði í knattspyrn-
■ unni og einkaiífinu. Frá hvoru
tveggja segir Pétur á hispurslaus-
an hátt í samtali við Mannlíf.
Gunnar Örn Gunnarsson er í
fremstu röð íslenskra myndlistar-
manna og bjóðast ýmis tækifæri á
erlendri grund. Gunnar Örn hefur
nú dregið sig út úr skarkala heims-
ins og lifir kyrrlátu lífi á bóndabæ
fyrir austan fjall. En lífið hefur
ekki alltaf leikið við Gunnar Örn.
Hann segir frá göngunni gegnum
hreinsunareldinn.
I
Sókn Alþýðuflokksins í íslenskum
stjórnmálum hefur þótt miklum
tíðindum sæta. Margir telja að
framboð Jóns Sigurðssonar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar í efsta
sæti á lista flokksins í Reykjavík sé
eitt af lykilatriðum í þeirri sókn.
Jón hefur um árabil verið einn af
áhrifamestu mönnum íslenskra
þjóðmála bakvið tjöldin en nú
stígur hann fram á sviðið og veitir
Mannlífi fyrsta persónulega viðtal-
ið á sínum ferli. Þar kemur m.a.
fram að Jón hefur ekki aðeins
i fengist við tölur; hann hefur líka
tekist á við ljóðlist.
Einn virtasti leikari þjóðarinnar,
Hjalti Rögnvaldsson er fluttur úr
iandi, — flúinn mannfjandsamlegt
þjóðfélag okkar, að því er hann
segir sjálfur í viðtali við Mannlíf,
þar sem hann skefur ekki utan af
hlutunum.
Þrjár heimsfrægar manneskjur,
hver á sínu sviði, segja frá sjálfum
sér í einkaviðtölum við blaða-
menn Mannlífs, — Willy Brandt,
fyrrum kanslari Vestur-Þýska-
iands og formaður vestur-þýskra
jafnaðarmanna, rithöfundurinn
sem æ oftar er nefndur í sömu
andrá og Nóbelsverðlaunin í bók-
menntum, Milan Kundera, og
kvikmyndastjarnan Charlotte
Rampling.
Meðal fjölmargs annars efnis:
Fjallað um afbrigðilegt kynlíf í at-
hyglisverðri grein sem nefnist
Dýrið í manninum? Óvenjuleg at-
hugun á þróun hugmyndarinnar
um Grýlu, Leppalúða og jóla-
sveina gegnum breytingar ís-
lensks þjóðfélags. Greint frá at-
hvarfi unglinganna sem hvergi
eiga heima í Reykjavík og þeirra
sem ekki þora heim, „Húsinu",
sem Rauði krossinn rekur við
Tjarnargötu. Starfsmenn nýju ljós-
vakamiðlanna Bylgjunnar og
Stöðvar tvö fagna fyrsta ári frjáisr-
ar fjölmiðlunar í samkvæmisfatn-
aði frá nokkrum tískuverslunum
borgarinnar í tískuþætti Mannlífs.
Rætt við söngkonuna góðkunnu
Sigríði Beinteinsdóttur sem nú er
að hefja sinn sólóferil. Sagt í máli
og myndum frá séríslensku ferða-
málafyrirbæri, kvennaferðunum
svokölluðu til Parísar. Og margt,
margt fleira.
HELGARPÓSTURINN 13