Helgarpósturinn - 11.12.1986, Page 23
TÍÐARANDI
VETUR
KVÖLDKLÆÐNAÐUR RÆR UPPREISN ÆRU
Tíska! Hvað er tíska? Eins og orðið bendir til er tíska í raun og veru
aðeins tíðarandinn sem ríkir hverju sinni — það sem tíðkast. Tískan
verður ekki til á teikniborðum örfárra útvaldra. Hún þróast og breytist
í hugum og lifnaðarháttum mannanna. Þessar breytingar taka síðan
hönnuðir og útfæra, hver eftir sínu höfði — hver með sínum stíl.
Tískan í dag er því ekkert undur, fundið upp af örfáum sniílingum.
Hún er afleiðing þess sem er að gerast og gerjast í þjóðfélögum okk-
ar. Lykilorðin „kvenlegt" og „glæsilegt" eru í raun aðeins rökrétt
framhald af breytingum sem orðið hafa á hugarfari og stöðu kvenna
undanfarin ár og áratugi. Konur leita nú aftur til upprunans án þess
að afsala sér nokkru því sem kvennabaráttan hefur fært þeim.
Og kvenlegt og glæsilegt skal það vera. Hvert sem leitað er — til
Parísar, Ítalíu, Bretlands eða Bandaríkjanna. Alls staðar eru megin-
áherslur þær sömu. Flíkur eru aðskornari og kvenlegri en sést hefur
ímarga áratugi. Efnin eru fínlegri og glæsilegri og litir eru sígildir með
svart í broddi fylkingar. Talað er um afturhvarf til fimmta og sjötta ára-
tugarins, þegar glæsileiki kvikmyndastjarnanna náði hámarki. Og
vissulega eru áhrifin sterk en útfærsl urnar hins vegar sniðnar að þörf-
un nútímakonunnar þar sem þægindi sitja í fyrirrúmi.
Hliðstæðar tilhneigingar er að finna í herratískunni. Þar gildir nú
að vera vel til hafður og óaðfinnanlega til fara. Jakkaföt og hálstau
eru nú hvunndagsklæðnaður og um helgar er slappað af ífrjálslegum
sportfatnaði. Og eftir sólsetur er það smóking sem fær uppreisn æru
— semsagt kvöldklæðnaður eins og hann gerðist hvað glæsilegastur
hér á árum áður. Útfærslurnar eru þó eins og hjá kvenfólkinu mun
þægilegri en áður var. Sniðin eru frjálslegri og efnin þægilegri, án
þess að gengið sé á glæsileikann.
í þessu blaði drepum við niður fæti hér og þar í tískuheiminum og
skoðum hvað erlendir tískukóngar hafa til málanna að leggja í vetur.
Við beinum sérstaklega athyglinni að kvöldklæðnaði nú þegar jólin
eru framundan og í kjölfar þeirra hávertíð árshátíða og annarra veg-
legra samkvæma.
l
HELGARPÓSTURINN 23