Helgarpósturinn - 10.12.1987, Side 4
LITRÍKT FÖLK
Hér á eftir fer kafli úr bókinni LITRÍKT FÓLK eftir séra
Emil Björnsson. Bókaforlagið Örn og Örlygur gefur bók-
ina út og var birting góðfúslega heimiluð af útgefendum.
Helgarpósturinn þakkar leyfið. Séra Emil er landskunnur
maður, var m.a. lengi fréttastjóri sjónvarpsins. Ress má
geta að séra Emil og Björn Guðbrandsson barnalæknir
voru samtíða í Menntaskólanum á Akureyri, en sá kafli
sem hér er birtur úr bók Emils fjallar einmitt um mennta-
skólaár hans.
INGA LAXNESS
Í AÐALHLUTVERKI
Hér á eftir fer kafli úr bókinni í AÐALHLUTVERKI —
INGA LAXNESS. Þetta er saga Ingu Einarsdóttur sem síð-
ar varð Laxness. Mál og menning gefur bókina út og Silja
Aðalsteinsdóttir skráði. Kaflinn er birtur með góðfúslegu
leyfi útgefenda og þakkar Helgarpósturinn birtingarleyf-
ið. Inga, sem var þekkt leikkona og lék bæði hérlendis
og erlendis, segir hér frá einu af mörgum ferðalögum
sem þau Halldór Laxness fóru í.
Skólahaldið fyrir norðan var að
því leyti ólíkt skólahaldi á Laugar-
vatni, að enginn kennaranna bjó í
heimavist nema Skólameistari, og
lítil kynni voru af flestum þeirra ut-
an kennslustunda.
Náttúrufræðikennarinn, Steindór
Steindórsson frá Hlöðum, var ein-
hver sá allra skemmtilegasti, og
honum kynntumst við líka vel utan
kennslustunda, einkum á ferðalög-
um. Ferð sú, er hann fór með okkur
í 5. bekk suður um Dali og Snæfells-
nes, var allra minnilegust, sem hann
drepur á í stórskemmtilegri ævisögu
sinni. Steindór var og verður ætíð
bráðhress og frjálslegur í fasi og
ferðagarpur mikill. Hafsjór af fróð-
leik um náttúru íslands, blómin í
hlaðvarpanum jafnt og smæstu grös
á úfnustu öræfum landsins. Raunar
virtist hann næstum jafnvígur á
blómablöð og gulnuð sagnablöð, al-
fræðingur eins og það er nefnt. Hef-
ir það ekki síst sannast af hinu stór-
merka ritverki Landiö þitt, um Is-
land, náttúru þess og náttúrufyrir-
bæri, landsögu, sagnir og þjóðsög-
ur. Hann er annar aðalhöfundur
þess verks, sem nefnt hefir verið
Sáttmálsörk lands og þjóðar.
Steindór kryddaði kennsluna með
frásögnum af flestu milli himins og
jarðar og var að því leyti líkur Guð-
mundi Olafssyni á Laugarvatni, að
sumt var aðeins sungið í karlakór
hjá honum, og þá utan kennslu-
stunda.
Brynleifur Tobiasson, sögu- og lat-
ínukennari, var líka mikils metinn
þó með allt öðrum hætti væri. Hann
lést bera litla virðingu fyrir fræðum
Steindórs, og annarra kennara í
þeirri grein, og nefndi þau gjarnan
kvikindafræði. Miklir herstjórnend-
ur og menntaðir einvaldar; Sesar
sjálfur, Hannibal hinn púnverski,
Alexander mikli, Napóleon mikli,
Friðrik mikli og Bismarck voru hans
menn. Og með einhverjum hætti
var afar auðvelt að hugsa sér Bryn-
leif sjálfan í hlutverki af því tæi.
Hann var svipmikill, herforingja-
lega vaxinn, átti öðrum betra með
að halda uppi aga með festu, sem
nálgaðist óttablandna virðingu, án
þess að þurfa að grípa til hörku,
vegna þess hve persónuleikinn var
mikill. Þessi eiginleiki kom sér best
þegar hann var að kenna latneska
málfræði. Annaðhvort var að fylgj-
ast með hverjum tíma eða heltast
úr lestinni og standa á gati, og það
vildu menn síst af öllu hjá Brynleifi.
Hann beitti rómversk-prússneskum
járnaga við kennsluna, sem ómögu-
legt var annað en virða, sökum þess
að hjá honum voru allir jafnir fyrir
lögmáli skyldunnar við sjálfa sig.
Hann skilaði þeim boðum orðalaust
beint í æð að maður brygðist fyrst
og fremst sjálfum sér með því að
vera of linur við námið. Það er ótrú-
legt en satt um jafn þurra náms-
grein, og latnesk málfræði er oft tal-
in vera, að Brynleifi tókst að blása
þvílíku lífi í hana að hún varð
skemmtileg. Veldur hver á heldur.
Hann sóaði ekki tímanum í að segja
skemmtilegar sögur, en margar at-
hugasemdir hans voru meitlaðar og
meinfyndnar.
Þórarinn Björnsson var einn
þeirra sem eru jafnvígir á allar
greinar húmanískra fræða. Þó
franska, og franskar bókmenntir,
væri sérgrein hans, kenndi hann
einnig latínu og sögu, og jafnvel
fleira. Hann var með sínu lagi, eins
og Steindór og Brynleifur, sérsmíð-
aður: Höfuðeinkenni hans voru
mannvit mikið, manngæska og
skilningur. Hann tók það beinlínis
persónulega sárt, og sárara en nem-
andann, ef einhver gataði hjá hon-
um í tíma eða á prófi. Það átti því við
hann, einan allra kennaranna, að
menn kappkostuðu að standa sig
sem best af tillitssemi við hann, en
ekki til að koma sjálfum sér hjá vel-
forþéntum skútyrðum. Þeim gat
Þórarinn ekki komið út fyrir sínar
varir, en leið fyrir okkur undir slík-
um kringumstæðum. Enginn vildi
gera honum svo illt, og þessvegna
lásu allir vel, og stóðu sig eins vel
hjá Þórarni og þeim var unnt. Hon-
um tókst það með ljúfmennskunni,
sem Brynleifi tókst með agasem-
inni. Þeir náðu sem sé báðir því
marki að vera frábærir kennarar,
þótt þeir færu gjörólíkar leiðir að
markinu. Og Steindór náði sama
marki með sínu lagi.
Þórarinn Björnsson var einlægur
aðdáandi allra lista, enda stundaði
hann háskólanám sitt í París, háborg
listanna, í sama skóla og Sæmundur
fróði. Engan mann hefi ég vitað lýsa
yndisþokka kvenna, einkum
franskra, af jafn hreinni fegurðar-
dýrkun og hann, rétt eins og hann
væri að koma af listsýningu.
Mig minnir að Örlygur Sigurðsson
kæmist svo að orði, um Þórarin
Björnsson látinn, að banamein hans
hefði verið of stórt hjarta. í líkingu
talað a.m.k. mun það ekki vera
fjarri sanni. Hann unni lífinu svo
sárt og heitt að honum gat stundum
virst ofraun að lifa því. . .
RÍKIÐ í RÍKINU
Flestir utanbæjarmenn í M.A.
bjuggu í skólahúsinu. Heimavistar-
herbergin voru bæði í norður- og
suðurenda hússins og nefndust
Norður- og Suðurvistir. Að þessu
leyti var skólabragurinn líkur og á
Laugarvatni og heimavistin mynd-
aði kjarna skólalífsins. Þeir, sem þar
bjuggu, þurftu hvorki að sækja
kennslustundir né skemmtanir út
fyrir veggi hússins, og af skiljanleg-
um ástæðum sóttu skólasystkini,
sem bjuggu úti í bæ, fremur á þeirra
fund en öfugt.
I rauninni var skólinn ríki í ríkinu
á Akureyri, óvinnanleg borg uppi á
Brekku, sjálfri sér nóg um flest.
Þarna fór kennslan fram og þar lás-
um við undir tíma, sváfum og átum
og urðum að vera komin í hús
klukkan 10 öll kvöld, nema hálftólf
á laugardagskvöldum. Á klukku-
slaginu var portum skólans harð-
læst og umsjónarmenn vistanna
gengu á öll herbergi og tóku mann-
tal. Þá átti hver vistmaður að vera
kominn í sína vistarveru. Síðan
gengu umsjónarmenn rakleitt á
fund skólameistara og tilkynntu
fjarvistir, ef einhverjar voru. Undan-
þágur voru stundum veittar, eða úti-
vistarleyfi, fram yfir lokun. En um
það varð þó að sækja persónulega
til Skólameistara og tilgreina ástæð-
ur. Honum var meinilla við að veita
leyfi til að sækja skemmtanir utan
skólans, nema helst stúkuskemmt-
anir, þótt enginn stúkumaður væri
hann sjálfur. Þeim mun viljugri var
hann að veita leyfi fyrir skemmtun-
um innan veggja skólans, eins og
hann komst gjarnan að orði.
Reykingar voru stranglega bann-
aðar á skólalóðinni, vegna eldhættu
í þessu mikla timburhúsi, og af
sömu ástæðu var allt rafmagn tekið
af húsinu klukkan hálfeitt á hverri
nóttu og fram undir morgun. Fyrsta
skólaveturinn minn hafði Inspector
Scholae það embætti með höndum
að skrúfa stofnöryggin laus. Hann
bjó á Briemsgerði, þar sem öryggja-
taflan var, og hét Olafur Jóhannes-
son. Seinna varð hann forsætisráð-
herra íslands.
Þeir, sem reyktu, voru oft hálfum-
komulitlir, þar sem þeir hímdu eins
og gaddhestar í öllum veðrum utai.
við hlið skólalóðarinnar, undir skjól-
litlum frökkum, eða öðrum flíkum,
og soguðu norðangjóstinn ofan í sig
með sælureyknum. Það var ekki
nærri jafn alvarlegt að dreypa á
flösku og kveikja á eldspýtu innan
veggja skólans. Skólameistari horfði
svona á það með blinda auganu, ef
menn kunnu að fara með áfengi,
blótuðu Bakkus á laun, eins og hann
orðaði það. En þeim mun alvarlegra
var að sýna sig undir áhrifum í skól-
anum. Það gat kostað brottvikningu
úr heimavist, sem enginn mátti við,
er þar bjó. Heimavistarhúsnæðið
var sem sé frítt, og jafnframt einu
fríðindin, af hálfu hins opinbera,
sem færa mátti til verðs. Þá fékk
ekki nokkur lifandi maður námslán,
hvað þá námsstyrk, úr opinberum
sjóðum. Þeir, sem einskis fjárstuðn-
ings nutu að heiman frá sér, urðu því
algerlega að kosta sig sjálfir, og þeir
voru ekki fáir.
„Sumarið 1932 fórum við Halldór
til Þýskalands, Svíþjóðar og sjálfsagt
víðar. Við vorum meðal annars í
Leipzig, Hamborg og Berlín þetta
sumar; þangað hafði ég ekki komið
áður. Eg hafði gaman af því þegar ég
kom í nýja bæi að athuga þá, fara
ekki bara um götur sem allir ganga.
Einn fyrsta daginn í Berlín fór ég í
margra klukkutíma göngutúr, alla
leið frá Spicherstrasse þar sem við
leigðum herbergi hjá konu og bók-
staflega yfir hálfa borgina til Pots-
damerplats, rataði auðvitað ekkert
en gekk báðar leiðir, á þessum háu
hælum! „Hvar ertu búin að vera,
barn, í allan dag?“ spurði Halldór
þegar ég kom aftur. Hann hafði ekki
getað unnið af ótta um mig.
Ég labbaði afskaplega mikið alltaf
og var alveg sama þó ég væri ein.
Þetta voru mínir einkaleiðangrar
sem aðrir nenntu ekki með mér í.
Annað fólk vildi bara fara beina leið
á vissan stað, ég þurfti að sjá svo
margt á leiðinni og setjast niður og
fá mér kaffi. Ég var aldrei hrædd um
að einhver reyndi að taka mig á
löpp. Ég hugsaði aldrei út í það,
enda kom ekkert fyrir mig.
Rétt hjá þar sem við bjuggum í
Berlín var stórt verslunarhús sem ég
fór oft inn í. Maður varð að sjá sig
um í verslunum þótt ég hefði litla
peninga til að kaupa fyrir. Ég hef
alltaf haft gaman af að skoða í búð-
arglugga.
Reyndar er ekki alveg rétt að ekk-
ert hafi komið fyrir mig í Berlín. Eitt
kvöldið vorum við Halldór á labbi
og fórum inn á Romanischer Café á
Kúrfúrstanum. Það var alþjóðlegt
kaffihús þar sem listamenn „héngu
út“ eins og ég kallaði það. Við héng-
um þar stundum Iíka. Þarna var
listafólk sem átti ekki grænan eyri
en er oft á tíðum skemmtilegasta
fólkið — já yfirleitt alltaf — það hékk
löngum stundum yfir einni lítilli
bjórkollu. Þegar við erum lögð af
stað heim bregður Halldór sér frá til
að ná í blað en ég held áfram ein.
Veit ég þá ekki fyrr til en að mér
kemur ein heljarmikil júfferta, tekur
mig í faðminn og ætlar að rembings-
kyssa mig. 1 því kemur maðurinn
minn að og flæmir hana náttúrlega
í burtu með þjósti og segir svo:
„Hvað viltu vera að láta lesbískar
kerlingar narra þig? Ég vil ekki hafa
það!“
„Hvað er þetta," ansaði ég, „kon-
an var rétt að koma. Ég hélt að hún
ætlaði að spyrja til vegar!“
„En sástu ekki hvað hún var í karl-
mannlegri dragt?“ spurði maðurinn
minn hneykslaður.
Ég var ekkert hneyksluð. Það var
svo móðins þá að vera hómó og
lesbískur, þetta flóreraði í Berlín fyr-
ir valdatíma Hitlers.
Fáeinum árum seinna vorum við
á ferðinni heim frá Ítalíu og ákváð-
um að koma við í Berlín, okkur
hafði liðið svo vel þar uppi á fjórðu
hæð við Spicherstrasse hjá kerling-
unni okkar. Þá fékk ég einhverja
fjandans blóðkrejjpusótt og þurfti
að fara á spítala. Eg man að ég mátti
ekkert smakka í heila viku nema
eina skeið af rauðvíni — vonandi
nokkrum sinnum á dag! En þá var
Berlín brugðið. Það var merkilegt
að vera í Berlín fyrir valdatöku
Hitlers þegar allt var svo frjálst og
yndislegt, gaman allan sólarhring-
inn. Koma svo bara eftir örfá ár að
dauðri borg. Maður flúði bara.
í Leipzig buggum við hjá tveim
eldri dömum. Við unnum heima við
á daginn en á kvöldin fórum við allt-
af á eldgamalt vertshús sem hét
Thúringer Hof. Þar hlustuðum við á
nið aldanna, þömbuðum Múnchen-
Löwenbráu og stúderuðum al-
menninginn sem strunsaði hjá. Þar
hitti ég Jóhann Jónsson skáld og frú
Elísabetu Göhlsdorf sem hann bjó
með, þú vissir það? Þetta var árið
sem Jóhann dó og hann lá bana-
leguna þegar ég hitti hann. Ég sé
hann fyir mér. Ég sá hann aldrei á
ferli og hann gat varla talað, hvíslaði
hásum rómi. En hann var ógurlega
mikill persónuleiki. Ég held að
Elísabet hafi alveg séð um hann og
að einhverju leyti fyrir honum líka.
Hún kom hingað til íslands eftir
að hann dó og bjó hér lengi. Gullfal-
leg kona. Henni þóttu óskaplega
góðir sveppir og var alltaf að fara út
í mýri að tína. Mér þykja sveppir líka
góðir en ég þorði aldrei að smakka
á sveppunum hennar því þeir geta
verið eitraðir. Hún var elskuleg
kona, en hún vildi ráðskast með
mig. Hún mátti vel steikja sveppina
sína hjá mér en ekki taka öll heim-
ilisvöld.
Þegar kom að því um haustið að
fara til Rússlands var ég búin að fá
nóg af ferðalögum. Þrátt fyrir mót-
mæli Halldórs fór ég heim til barns-
ins míns. Hann var ekki lengi í burtu
eftir að ég fór. Tolldi ekki þegar
nöldrið var farið."
Ferðalagið til Rússlands sem Inga
fór ekki var það sem Halldór segir
frá í ferðabókinni í Austurvegi frá
1933. Hann var önnum kafinn við
að skrifa fyrsta hluta Sjálfstæðs fólks
og eitt af því sem hann kynnti sér
eftir föngum var rússneskur land-
búnaður.
Jóhann Jónsson var náinn vinur
Halldórs frá æskuárunum. Hann var
fæddur 1896 en varð ekki stúdent
fyrr en 1920 og var samtímis Hall-
dóri í menntaskóla. Árið eftir fór
hann til Þýskalands og las bók-
menntir við háskólana í Leipzig og
Berlín, en veiktist af tæringu og
missti heilsuna. Halldór skrifaði
minningargrein um Jóhann, for-
Opið til kl. 16.00 aðfangadag.
Sendum um allt land.
Opið 10-22.
Geysilegt úrval af ódýru skreytingarefni. Greni, skreytingar, krossar,
skreyttar greinar, jólatré, leikföng, gjafavara, afskorin blóm
og greinar.
^jji^lómashálinn
Nýbýlavegi 14, á horni Nýbýlavegar og Audbrekku. Sími 40980.
B-4 HELGARPÓSTURINN