Helgarpósturinn - 22.12.1987, Side 12
DAGBÓKIN HENNAR DÚLLU
Kæra dagbók.
Ég er viss um, að það er erfitt að
finna fjölskyldu, sem jafnlítið er
hugsað um fyrir jólin. Það liggur við
að maður fari bara niður á Hjálp-
ræðisher til að kría út smákökur og
laufabrauð. Mamma tók nefnilega
upp á því að fara á kvöldnámskeið í
Kvennaathvarfinu, þegar aðrar kon-
ur eru á fullu við að undirbúa jólin
fyrir fjölskylduna. Hennar hátign
hefur hugsað sér að taka stundum
vaktir í athvarfinu — svona af því að
hún er bara í fullri vinnu, á kafi í
Kvennalistanum og með fimm
manns í heimili. (Ég held, að hún sé
komin á yfirgangsaldurinn! Það
hlýtur eiginlega að vera, því maður
veit aldrei upp á hverju hún tekur
næst. Við krakkarnir ætlum líka að
gefa henni bókina Á besta aldri í
jólagjöf.)
Ég veit ekki hvað þeim er kennt á
þessu námskeiði, en það er örugg-
lega ekki smákökubakstur og mat-
reiðsla á Hamborgarhrygg, sem er
einmitt það sem hún ætti að ein-
beita sér að þessa dagana. Hún seg-
ir, að það vanti svo rosalega fólk til
að hjálpa konunum í athvarfinu og
það getur auðvitað verið alveg rétt.
En af hverju getur ekki einhver ann-
ar reddað því máli? Hún pælir bara
ekkert í því að okkur vantar laufa-
brauð og jólakonfekt! Að vísu var
pínulítið bakað hérna um daginn,
en þá gerðist líka soldið merkilegt.
Hún fór með helminginn niður í at-
hvarf! Ég meina það... Þetta er nú
sko ekki hægt.
Pabbi hefur kvartað alveg merki-
lega lítið yfir þessu öllu, enda er
hann líka búinn að vera voða upp-
tekinn allan þennan mánuð. Það er
nú ekkert smáræði af jólaglöggs-
partýjum, sem maðurinn hefur farið
í! Fyrst fór hann í eitt í deildinni
sinni í vikunni. Svo var partý fyrir
alla. Svo fór hann í glögg með
„strákunum". Svo var Siggi, sem var
að verða pabbi, með boð fyrir veiði-
klúbbinn. Svo var það Lions og að
minnsta kosti tvö önnur félög, sem
hann er í. Það er eiginlega bara
mesta furða hvað hann lítur vel út,
maðurinn. (Stebba systir segir, að
hann sé búinn að byggja upp svo
æðisgengið þol í gegnum árin. Ég er
nú ekki alveg klár á því hvort það er
rétt.)
Núna erum við Addi bróðir bara
mest hrædd um að mamma verði
kölluð út á vakt á aðfangadags-
kvöld. Það leiðinlegasta virðist
nefnilega alltaf lenda á henni í þessu
„félagsstarfi" hennar. Hún er ein af
þessum konum, sem eru alltaf að
„fórna sér", en fattar ekki að það
þakkar henni enginn fyrir það. Ég
hef í það minnsta ekki heyrt um að
hún hafi fengið riddarakross eða
fálkaorðu nýlega.
Amma á Einimelnum sá a.m.k. til
þess að við ættum eitthvert laufa-
brauð á jólunum, því hún bauð okk-
ur í bakstur með familíunni eins og
venjulega þó mamma mætti ekki
vera að því að koma. Það var alveg
jafnmikið fjör og venjulega, því um
leið og eldhættan er liðin hjá og bú-
ið er að slökkva undir palmínfeit-
inni fer amma að hita jólaglögg.
(Pabbi hellti sér auðvitað yfir pott-
inn, eins og hann hefði ekki séð
þennan drykk í 77 ár! Ætli hann
verði ekki á Vogi og mamma í
Kvennaathvarfinu um jólin... í
alvöru! Við krakkarnir endum ör-
uggiega á upptökuheimilinu í Kópa-
vogi með þessu áframhaldi.) Það er
svo rosalega gaman að sjá ömmu og
Fríðu föðursystur eftir þrjú glös af
glögg. Þær sungu sig hásar af „Der
var en skikkelig bondemand" og
„Kan du bage kager" en svo kom í
ljós að þær kunnu slatta í Járnkarl-
inum og Týndu kynslóðinni. Þetta
var meiriháttar.
Bless. Dúlla.
Kristín Ketilsdóttir og Ólafur Laufdal heilsuöu gestum sínum meö virktum.
Bylgjumenn á Hótel íslandi. Páll
Þorsteinsson dagskrárgeröarmaöur,
Einar Sigurðsson útvarpsstjóri og
Ólafur N. Sigurösson, nýskipaöur
fjármálastjóri Bylgjunnar.
Þetta prúöbúna fólk var í fínu skapi
og ekkert bar á stressi hjá þeim þótt
jólin væru ískyggilega nærri. Frá
vinstri: Friðrik Þór Halldórsson,
Reynir Kristinsson, Magnús R.
Magnússon, Guðrún Möller og Jóna
Larusdóttir.
Guðvarður Gíslason og Guðlaug Halldórsdóttir. Guðvaröur er reyndar betur
þekktur sem Guffi á Gauknum, enda á hann hina vinsælu krá Gauk á Stöng.
FORMLEG OPNUN
HÓTELS ÍSLANDS
2.500 boösmidar
sendir út. Allir mœttu.
Fólk fær sem betur fer fleira í pósti
en reikninga. Slíkir viðburðir eiga
sér einkum stað fyrir jólin. í síðustu
viku bárust 2.500 íslendingum
boðskort í kokkteilboð. Ólafur Lauf-
dal var að opna formlega nýjasta
hótelið í borginni, Hótel ísland.
Gestunum var boðið klukkan átta.
Þeir komu stundvíslega. Allir. Já,
það er vart orðum aukið að 2.500
manns hafi verið mættir á Hótel Is-
land þetta kvöld. Biðröðin náði frá
hóteldyrunum niður að næsta
skemmtistað Ólafs Laufdal, Holly-
wood. Sumir sögðu að hún hefði
náð niður að Múlakaffi. Þeir hinir
sömu hættu víst við að bíða. Sáu
fram á klukkustundar langa bið í
rigningunni. Hárgreiðslan hefði ver-
ið orðin ónýt þegar inn væri komið.
Miðað við fólksfjöldann inni í hús-
inu er hins vegar hæpið að mjög
margir hafi gefist upp. Sumir unnu í
nágrenninu og voru með lykla. Þeir
gátu beðið á vinnustaðnum til níu.
Þá var biðröðin að mestu komin inn
í hús. Þar beið einkennisklætt starfs-
fólk Hótels íslands með kampavín
og fleira bragðgott. Hjónin Kristín
Ketilsdóttir og Olafur Laufdal heils-
uðu gestum með handabandi.
Þarna var ekki bara creme de la
creme Reykjavíkur. Aldrei slíku
vant. Þarna var fullt af venjulegu
fólki. Allir voru spariklæddir. Mikið
var klappað fyrir iðnaðarmönnun-
um sem komu Hótel ísiandi upp á
skömmum tíma. Mennirnir frá
Singapore sungu vísu frá heima-
landi sínu. Baldvin Jónsson kallaði
þá „litlu, gulu mennina". Svolítið
niðrandi fannst sumum gestanna.
En allt fór þetta fram með pomp og
pragt. Skemmtiatriðin voru glæsi-
Íeg en færri sáu þau en vildu. Allt
um það. Hótel ísland er glæsilegur
staður og fólk var sammála um það.
Ekki á hverjum degi sem 2.500
manns eru sammála um eitthvað.
efnTTm Jólagjöfin sem gleður
wlUiliUAA allaáaldrinum 5-105 ára
Hér er
lausnin á
jolagjofinm!
Sex tölublöð
Sígildra sagna
saman í möppu.
HEIMSINS BESTU
BÓKMENNTIR
TÁKN HF.
Fjölmiðlunar- og kynningarþjónusta
Bókaútgáfa
Klapparstíg 25-27, Reykjavík. Sími 621720
12 HELGARPÓSTURINN