Helgarpósturinn - 28.01.1988, Page 26

Helgarpósturinn - 28.01.1988, Page 26
Húsnæöi Nýlistasafnsins viö Vatnsstíg. Nú hefur eigandinn, Alþýöubankinn, ékveðið að segja safninu upp leigunni. Nýlistasafnid 10 ára Húsnæðislaust á afmælisári Safnid hysir eitt stœrsta safn íslenskrar og erlendrar nútímalistar hér á landi. Það er kannski kaldhœðni örlag- anna að nú, þegar Listasafn Islands er að uígja nýtt stórglœsilegt hús- nœði, ersafn íborginni að hrökklast úr sínu sem er bœði gamalt og í lé- legu ásigkomulagi. Safn sem að sumu leyti var stofnað vegna óánœgju með Listasafnið. Hér er átt við Nýlistasafnið við Vatnsstíg. Það hefur eftil vill ekki farið ýkja mikið fyrir Nýlistasafninu í hugum al- mennings og fœstum sennilega kunnugt um aö það hefur nú um tíu ára skeið verið stœrsti safnari nú- tímalistar í landinu. Gildir þá einu hvort hún er erlend eða innlend, enda nýtur safnið mikillar virðingar erlendis og hefur oröspor þess farið víða. Það sem er neyðarlegast er að safnið á 10 ára afmceli í ár. Liggur fyrir því að leggjast af á afmœlisári sínu? Tveir af forsvarsmönnum safnsins, Kristján Steingrímur og Halldór Ásgeirsson, svara þeirri spurningu neitandi. En staðan er engu að síöur slœm. Þeir félagar segja að nú hafi stjórn safnsins borist þau skilaboð frá Al- þýðubankanum að þeim verði sagt upp leigunni, þeir hafi skriflega heimild fyrir tilvist safnsins í núver- andi húsnæði fram á sumar en hugs- anleg framlenging vari aðeins út þetta ár. Það sé því engin spurning hvort safnið fer, heldur aðeins hvenær. Þá verður það á götunni. Reyndar segja þeir að samskipti við bankann hafi alla tíð verið góð og skilja sjónarmið hans. Leigan hafi alla tið verið í lágmarki enda ráði safnið ekki við að borga leigu sem miðist við markaðsverð. Það sem safnið þurfi þvi á að halda sé nýtt húsnæði, myndarlegt húsnæði. Nýlistasafnið var stofnað 1978. Það er sjáifseignarstofnun mynd- listarmanna sjálfra og geta menn gerst félagar í safninu en nú eru þeir um áttatíu talsins, þar af um þrjátíu sem taka virkan þátt í starfsemi þess. Safnið setti sér í upphafi háleit markmið, að safna og skrásetja verk eftir innlenda og erlenda listamenn, að afla heimilda um sýningar jafnt innanlands sem utan og að vera miðstöð nýjustu strauma og tilrauna í íslenskri list. Safnið var stofnað ut- an um verk eftir meðlimi SÚM-hóps- ins fyrst og fremst og töldu stofn- endur að Listasafn íslands falsaði myndlistarsöguna með því að veita enga eða litla athygli þeim hópi og fleiri nýjungagjörnum listamönnum þess tíma, þ.e. 7da og 8da áratugar- ins. Með stofnun Nýlistasafnsins skyldi þessum verkum bjargað frá glötun. Það var og gert, enda kemur það fram í viðtali við Beru Nordal hér í blaðinu í dag að Listasafnið bráðvantar verk frá þessu tímabili. Það væri einsdæmi í heiminum, að því er þeir Kristján og Halldór sögðu, að starfandi myndlistarmenn starfræktu safn með hætti sem þess- um, enda hefði það m.a. þess vegna vakið gífurlega athygli erlendis. Öll vinna við safnið hefur verið unnin í sjálfboðaliðavinnu, en slíkt gengur ekki lengur, að sögn þeirra. Einfald- lega vegna þess að safnreksturinn er orðinn svo umfangsmikill, verk í eigu safnsins eru hátt á annað þús- und og mörg hver iiggja undir skemmdum í lélegu geymsluhús- næði. Mikil þörf er á viðhaldi verk- anna og segja þeir félagar að nauð- synlegt sé að ráða fólk í fasta vinnu við safnið ef vel eigi að vera. Safnið hefur aldrei keypt verk heldur er eign þess einvörðungu til- komin með gjöfum. Má þar á meðal nefna gjöf Ragnars Kjartanssonar á verkum eftir Dieter Roth, en um 300 verk Roths eru í eigu safnsins. Fé- lagsmenn þess gefa eitt verk á ári og þeir erlendu listamenn sem sýna í safninu hafa sömuleiðis gefið því verk, þannig að listaverkaeignin hefur stöðugt aukist og er einnig af- ar fjölbreytt. Reyndar hefur engin aðstaða verið til söfnunar á síðustu árum, vegna plássleysis, og því eru mörg verk félagsmanna ókomin til safnsins. Starfsemi safnsins hefur alla tíð verið tvíþætt, þ.e.a.s. söfnun verka og heimilda annars vegar og hins vegar rekstur gallerísins, en þar hafa margar af merkustu sýningum undangengins áratugar verið haldn- ar. Margir mjög merkilegir erlendir listamenn hafa sýnt og safnið hefur til að mynda verið Listahátíð innan handar við að fá erlenda listamenn til landsins og svo mun einnig verða í sumar, tvö af stærri nöfnum nú- tímalistar, Richard Long og Donald Judd, munu koma hingað í tengsl- um við hana, en þeir eru eftirsóttir af galleríum viða um heim, en koma samt hingað og sýna á veg- um Nýlistasafnsins. Þannig sannar safnið enn einu sinni gildi sitt sem miðstöð nýrra strauma og stefna, sem tengiliður við það sem ferskt er í erlendri list. Safnið hefur aldrei verið rekið með gróðasjónarmið í huga og tekur til að mynda engin umboðslaun eða neitt slíkt fyrir seld verk af sýningum þess. Hefur þvert á móti, að sögn viðmælenda, lagt sig eftir að kynna hluti sem ljóst var að yrðu sennilegast aldrei markaðs- vara og þannig borið á borð fyrir listunnendur ýmislegt sem hefði að öðrum kosti aldrei sést. RUNNI 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.