Helgarpósturinn - 25.02.1988, Side 34

Helgarpósturinn - 25.02.1988, Side 34
PENINGAR & MARKAÐUR FRYSTIIÐNAÐURINN GENGISFELUNG EÐA GAGNG ER VANDI FRYSTINGARINNAR MEIRI EN SVO AÐ HANN VERÐI LEYSTUR MEÐ EINU PENNASTRIKI? Þad hefur víst ekki farið framhjá neinum að vandi fisk- vinnslunnar og þá einkum frystiiðnaðarins er stórfelldur um þessar mundir. Verð á Bandaríkjamarkaði, okkar stærsta og öruggasta markaði um langt árabil, hefur að vísu hækkað nokkuð, en þó ekki nándar nærri nóg til að vega upp á móti þeirri rýrnun á verðgildi dollarans, sem orðið hefur á sama tíma. Þegar þar við bætist stórfelld kostnaðarhækkun innanlands, á bilinu 30—40%, þarf engan að undra að frystihúsin eru farin að ganga stór- lega á eignir sínar, þ.e.a.s. þau, sem ekki báru skuldahala fyrir, en þau eru einfaldlega komin að lokun og gjald- þroti. Það þarf því engan að undra, að frystiiðnaðurinn hefur sótt hart eftir því mánuðum saman, að gengið yrði fellt til að jafna þennan mun. 22 HELGARPÓSTURINN Ríkisstjórnin hefur hins vegar varist af hörku, enda byggt fiest sín efna- hagsmarkmið á því að halda gengi stöðugu. Útgerðin, sem nú hefur um tveggja ára skeið búið við það óvenjulega ástand að vera rekin með hagnaði, hefur líka bent á, að með gengisfellingu, sem nægði til að leysa vanda frystihúsanna, væri bara verið að flytja vandann yfir á útgerðina: Erlendar skuldir hennar mundu hækka að sama skapi svo og olía og önnur aðföng. Ef fiskverði yrði haldið niðri mundu siglingar með fiskinn og gámasala á upp- boðsmarkaði í Evrópu stóraukast svo og sala gegnum fiskmarkaði hér. Samhliða opinberri ákvörðun um fiskverð yrði semsé að loka landinu og banna frjálsar sölur er- lendis. Hinn raunverulegi vandi væri með öðrum orðum sá, að okk- ar hefðbundni Bandaríkjamarkaður stæðist ekki lengur samkeppni við aðra fiskmarkaði og ósanngjarnt að skipa útgerðinni að selja afurðir sín- ar sér í óhag. Þar með væri líka far- inn sá vísir að frelsi, sem hefur óneitanlega gert gæfumuninn fyrir útgerðina sl. tvö ár, og ólíklegt ann- að en að þeir útgerðarmenn, sem eru sjálfstæðir og ekki í tengslum við fiskvinnsluna, mundu verja það með kjafti og klóm og hafa tak- markaðan áhuga á að hverfa aftur til þess tíma þegar ríkisvaidið gat nær einrátt skammtað þeim afurða- verðið. Röksemdir ríkisstjórnarinnar gegn því að grípa til skjótra aðgerða til lausnar vanda frystingarinnar voru lengi vel þær að sjá yrði til hvort alþjóðlegar aðgerðir til styrk- ingar dollarnum bæru ekki árangur. Allar slíkar tilraunir hafa reynst árangurslausar. Síðan þær, að sameig- inlegur hagur fiskvinnslu og útgerð- ar væri nægjanlega góður til að draga mætti aðgerðir á langinn þar til kjarasamningum væri lokið. Lík- legt má telja að þeir verði komnir í höfn eða upp úr viðræðum slitnað um það leyti sem þetta kemst á prent. En nú bendir allt til að stjórn- völd telji vanda fiskvinnslunnar flóknari og dýpri en bara samspil gengisbreytinga og innlendrar þensluverðbólgu. í síðasta Reykjavíkurbréfi Morg- unblaðsins eru leidd rök að því að í núverandi samkeppni um fiskinn með siglingum, gámasölu og ís- lensku uppboðsmörkuðunum sé Bandaríkjamarkaður einfaldlega

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.