Alþýðublaðið - 19.01.1939, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 19.01.1939, Blaðsíða 1
LISTINN- er okkar listí i Dagsbrðn RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR FIMTUDAGINN 19. JAN. 1939 15, TÖLUBLAÐ B LISTINN hrindir hinni kommúnist- isku óst'jórn í Dagsbrún Dað er barizt um framtíð Dagsbrúnar. Kommúnistf sk ústjérn í 1 ár enn þýð ir fyrtrsjáanlega npplausn félagsins ------..... Bjargið stærsta verkalýðsfélaginn á land- Inn með pvi að kjósa D-Ustann! —.---—— ------- T\ AGSBRÚNARKOSNINGARNAR standa aðeíns í dag og á ^ morgun. í kvöðd vertSur kosið tii kl. 10 og á morgun ki. 9 f. h. til kl. 10 að kvöldi. ð gær kusu aöeins 343 félagar, og er það von kommúnista að andstæöingar þeirra veröi seinni tilf svo að meirihluti þeirra veröi viss. En ef andstæðingar þeirra, ef fylgismenn B-listans, þeir verkamenn, sem vilja binda enda á það, að stærsta verkalýðsfélag landsins sé pólitískur vettvangur hinna komm- únistiskú æsingamanna, mæta vel, þá er sigur B-listans viss. Ef B-Iistinn fær jafnmörg atkvæði nú> og andstæðingar kommúnista fengu í haust, þá hafa kommúnistar tapað. Það er því áríöandi, að hver DagsbrúnarmaÖur greiöi at- kvæöi nú þegarf geymi það ekki til morguns, og krossi viö B á báðum seðlunum. Nokkrir af beatu starfsmönnum Dagsbrúnar hafa nú í dag sent Dagsbrúnarmönnum svo- hljóðandi ávarp: Félagi! Okkur er kunnugt um, að kommúnistarnir, sem standa að A-listanum við stjórnarkosninguna í Dagsbrún, hafa sent út rógbréf um B-listann, verkamannalistann, sem studdur er af Alþýðu- flokknum, og um baráttu Alþýðuflokksmanna yfirleitt innan Dagsbrúnar á umliðnu ári. Tilgangurinn með þessu rógbréfi kommúnistanna er vitanlega enginn annar en sá, að reyna að fæla þig frá því að kjósa B-listann, því þeir vita, sem er, að sigri B-listinn, er yfirráðum þeirra í Dagsbrún lokið og sundrungarstarfsemin, sem þeir byggja alla sína tilveru á, kveðin niður í félaginu. Þú veizt, hvernig ástandið hefir verið innan Dagsbrúnar þetta eina ár, sem kommúnistar hafa farið þar með stjórn. Þeir hafa sóað sjóðum félagsins í pólitíska æsingafundi, pólitíska blaðaútgáfu (Nýtt land) og pólitískar sendiferðir fyrir kommúnistaflokkinn út um land (Gvendur Ó.) og haft tvo og þrjá starfsmenn á launum samtímis, auk hjálparmanna, við innheimtu fé- lagSgjalda. Það hefir ekki gengið á öðru en brottrekstrum úr félaginu, sem hófust með brott- rekstri Jóns Baldvinssonar í fyrra vetur og enduðu í haust með brottrekstri tveggja manna. sem kosnir voru í fyrra við allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórn félagsins, og nokkurra annara af þektustu og beztu starfskröftum þess, af því að þeir reyndu að hamla upp á-móti óstjórn þeirra og klofningsfyrirætlunum. Og Sigurð Guðmundsson ráku þeir frá störfum í félaginu til þess að geta óáreittir ráðið yfir fjármunum félagsins flokki sínum til framdráttar. Fjölda Alþýðuflokks- manna, sem.um mörg ár hafa verið félagsmenn, hafa þeir með lögleysum og ofbeldi svift félags- réttindum til þess að tryggja sér sigur í atkvæðagreiðslum innan félagsins. Og að endingu hafa þeir tekið höndum saman við íhaldið til þess að kljúfa Dagsbrún út úr heildarsamtökum verka- lýðsins í landinu, Alþýðusambandi íslands, undir því yfirskini, að þeir ætluðu að stofna nýtt, „óháð“ og ,,ópólitískt“ verkalýðssamband. Árangurinn af þessari „ópólitísku“ starfsemi er nú orðinn sá, að Dagsbrún logar nú öll í pólitískum illdeilum og kommúnistar og íhaldsmenn eru aftur komnir í hár saman og stilla nú sínum listanum hvor. Þessu ömurlega ástandi, 'sem kommúnistar hafa leitt yfir Dagsbrún, viljum við gera enda á. Og við trúum ekki öðru en að þú sért okkur sammála um að brýn nauðsyn beri til þess, ef félagið á ekki að verða lagt í rústir. Við skorum því á þig, að taka höndum saman við okkur og aðra þá Dagsbrúnarmenn, sem sjá í hvert óefni er komið. Og með því einu, að sem allra flestir fylki sér um B-listann og skapi honum sigur við stjórnarkosninguna, fæst þessu ófremd- arástandi breytt. Það er þýðingarlaust að kjósa íhaldslistann fyrir þá, sem vilja binda enda á óstjórn komm- únista í félaginu. Til þess hefir hann alt of lítið fylgi. Og hverju atkvæði, sem hann fær, er á glæ kastað- Haldi kommúnistar áfram völdum í félaginu, þýðir það fyrirsjáanlega upplausn þess á örstuttum tíma og stórtjón fyrir verkalýðssamtökin í landinu í heild sinni. Sigur B-listans, verkamannalistans, sem studdur er af Alþýðuflokknum, er því eina leiðin til þess að bjarga Dagsbrún og skapa aftur frið, festu og fyrirhyggju í starfsemi hennar. Við treystum því að þú mætir á kjörstað, í Hafnarstræti 21, og greiðir atkvæði bæði stjórn og trúnaðarráði B-listans. - V- ^ ! Stefán Sigurðsson. Sig. Guðmundsson, Freyjugötu 10. Felix Guðmundsson. Þórður Gíslason. Sigurbjörn Maríusson. Haraldur Guðmundsson. Ólafur Friðriksson. Ágúst Jósefsson. Kjartan Ólafsson. Jón Arason. Ásgrímur Gíslason. Jón S. Jónsson. Felix Guchmmdsson flytto’ ©rfmidi' í últvtarpjilö í (da|g kl. 8,15 é. h. iU'm sijúknasaimlög. ísfisksiala. Gyllir (siel-di í Hiull í gær 2062 væit'ir fyrír 928 iStfM- AðtaManzleik hidlidtajr Kvemnadeild Siysavarn- aféliaigsi Isfanidis í OddMlowhús- inlu anniaíð kvölid kl. 10 síödegis. Danzmærin Bána Siguirjóinsldiótt- ir skemtlr. Chamberlain og Daladier neita að hjálpa Eareelonastjórninni. -- » -— Verðnr Daladier steypt al fulltrda* deild Vranska pjéðpingsins f dag? Chamberlain og Daladier, mennirnir, sem í dag ráða stefn- unni á Englandi og Frakklandi. — Myndip var tekin þegar Chamberlain kom til Parísar L haust. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. T-nAÐ er nú víst, að hvorki enska né franska stjórnin vill breyta um afstöðu til borgarastyrjaldarinnar á Spáni af ótta við það, að ekki aðeins bein íhlutun í því skyni að hjálpa Barcelonastjórninni, heldur meira að segja afnám vopnasölubannsins til Spánar, myndi leiða til Evrópu- styrjaldar. Það er kunnugt, að Ítalía hefir undanfarna daga dreg- ið saman mikið lið í Libyu, ítölsku nýlendunni á norður- strönd Afríku, við landamæri Tunis, og ítölsk blöð hóta aídráttarlaust stríði, ef Frakkland geri nokkra tilraun til þess að styðja Barcelonastjórnina. Viðsjárnar milli Frakklands og Ítalíu hafa farið stór- kostlega vaxandi við viðburði þessara síðustu daga. Franski flotinn, sem nú er að mestu leyti saman kominnn í Mið- jarðarhafi, hefir fengið skipun um að safnast saman við norðurströnd Afríku, í orði kveðnu til þess að æfa sig, en raunverulega til þess að svara liðsafnaði Ítalíu við landa- mæri Tunis. Chamberlain neitar að kalla enska þingið saman á fund. Hljóinsvieit Reykjaivikiur sýn'ir Meyjasfeemimiuna annaö fevöld M. 8V2. Dnottiningln fóir frá FæneyjlUim í gærkvöMi áloiöis til Kaupmaapiahafnar. Kröfur verkalýðsflokkarma og frjálslyndu flokkaima á Englandi og Frakklandi um stuðning við Barcelonastjórn ina og að minsta kosti áfnám vopnasölubannsins til Spánar eru stöðugt að verða háværari. Attlee, leiðtogi enska AI- þýðuflokksins á þingi, skrifáði Chamberlain í gærmorgun bréf í nafni flokks síns, þar sem hann krafðist þess, að enska þingið yrði kallað saman tafar- laust til þess að ræða og taka ákvörðun um afstöðu Englands til síðustu viðburðanna á Spáni. Attlee segir í bréfinu, að þjóð- arheiður og þjóðarhagsmunir Breta séu í veði, ef lialdið sé áfram að neita spænsku stjórn- inni um réttinn til þess að kaupa og flytja inn vopn sér til varnar gegn uppreisnarmönn- um og hinum erlenda hjálpar- her þeirra. Chamberlain svaraði þessu bréfi að afloknum ráðuneytis- fundi í London í gær og neit- aði að verða við kröfu Alþýðu- flokksins um að kalla þingið saman að svo stöddu. Hann færði þá ástæðu fyrir því í svari sínu, að Englaud væri bundið af hlutleysissamningn- um og myndi fylgja hlutleysis- stefmmni gagnvart borgara? styrjöldinni á Spáni eftir sem áður, enda myndi afnám vopna- sölubannsins til Spánar fyrir- sjáanlega hafa hinar alvarleg- ustu afleiðingar í för með sér og að öllum likindum verða til þess, að styrjöldin á Spáui breiddist út um alla Evrópu. Hvað gerir fransks Btnglð ? í París var einnig haidmn ráðimeytisfundur í. gær til þess að taka afstöðu til síðustu við- burðanna á Spáni og kröfunnar um stuðning við Barceloua- stjórnina. Það er fullyrt, að stjórnin hafi ákveðið fyrir sitt leyti að halda fast við hina svokölluðu hlutleysispólitík og leyfa enga yopnasajlu frekar en áður til Spánar. En þar sem umræður standa yfir um utanríkismálin í fulltrúadeild franska þingsius, er búizt við að utanríkismála- ráðherrann Bonnet, muni gera grein fyrir afstöðu stjórnarinn- ar í fulltrúadeildinni í dag, og Daladier forsætisráðherra síð- an fara fram á traustsyfirlýs- ingu þingsins. Og það er talið mjög vafasamt, hvernig sú atkvæðagreiðsla kunni að fara, (Frh. á 4. síðu-) ALÞÝÐUBLADIÐ Neðanmálsgreinin í dag. Jón Gunnarsson. Jón Gunnarsson skrifar neð- anmálsgreinina í Alþýðublaðið í dag um gufubaðstofur. Gerir hann grein fyrir ýmis konar gufubaðstofum og skýrir frá reynslu sinni í þeim efnum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.