Alþýðublaðið - 26.01.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
XX. ÁRGANGUB
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
FIMTUDAG 26. JAN. 1939
21. TOLUBLAÐ
Aðalfnndur Sjómannafélagsins;
Alpýðnflokksmenn kosnir með jflrpæf-
andi meirihlnta i Sjómannafélagi Rvikur.
—....—-»
Kommúniistar tengu að eins 18 hrein
flokksatkvæði við kosninguna.
Eignir félagsins nema nú krónum 174,146, þar
af eru nú í verkfallssjóði krónur 127,136,44.
AÐALFUNDUR Sjómannafélags Reykjavíkur var hald-
inn í gærkveldl í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Var
fundurinn vel sóttur og fór hið bezta fram.
Á fundinum voru tilkynt úrslit stj órnarkosningarinnar.
Hún hafði staðið í rétta tvo mánuði í skrifstofu félagsins
og um borð í skipunum. Hófst kosningin 25. nóvember s.l.
og var lokið 23. janúar. Stjórnarkosningu í Sjómannafélag-
inu er þannig hagað, að félagsfundur kýs 5 manna nefnd
til að gera uppástungur um stjórn. Nefndin tilnefnir tvo fé-
laga í hvert sæti, en síðan tilnefnir félagsfundur einn mann
í hvert sæti, svo að félagar hafa um 3 menn að velja.
Ólafur Árnason,
togaraháseti, nýi maðurinn f
Sjómannafélagsstjórnánni.
Hroðalegír iari-
skjðlftaH Chíle.
Henn óttast, að nm 10
lis. manns bafl farlzt.
LONDON í morgun. FÚ.
ENN eru nú orðnir
hræddir um, að allt að
10 þús. manns hafi farizt í
jarðskjálftunum, sem urðu í
Chile í gær.
Manntjón og eignatjón er
ennþá ekki fullkunnugt, því að
samgöngur við jarðskjálfta-
svœðið hafa verið teptar, en
flogið hefir verið yfir það. Er
sagí að jarðskjálftasvæðið nái
frá Concepcion til Talca, um 225
km. vegalengd, alllangt í suður
af höfuðborginni Santiago.
Smáborg ein 60 km. fyrir
nórðan Concepcion hefir alveg
fallið í rústir-
Forseti Chile og innanríkis-
málaráðherrann voru með
fyrstu hjálparlestinni, sem lagði
af stað frá Santiago og fjöldi
lækna og hjúkrunarkvenna.
Brezka stjórnin hefir boðið
stjórninni í Chile aðstoð tveggja
brezkra herskipa, sem þar eru
stödd.
50 ám
ier í dag frú Arnbjörg Þior-
döttir, Gnettisgötiu 58. ,
Hslgl GiU'ðimiuindsson
verkamaðiur Hofsvallagötu 20,
ier: fimtogrfr á morguií. Hélgi
Giuðmundsison ier hiinm giegmiasiti
maðjuir í hvivetna, • enida vimsæll
mjög. Hainm er áhiugasiaimiur Al-
þýöiuflokfesmiáðlur og meðUmur í
Atpýíiuflofeksféliagi Reyfejaivíkur.
Alóýðublaðið ósfear Helga tiil
h*toingju sneð-afmæið.
Það, sem fyrst og fremst
vekur athygli við úrslit
stjórnarkosnmgarinnar er,
að kommúnistar fá 18 —- átj-
án flokksatkvæði. Höfðu
kommúnistar allt frá upphafi
kosninganna haft mjög á-
kveðinn áróður, birt daglega
í ,,Þjóðviljanum“ áskoranir á
sjómenn að kjósa vissa menn,
sem í kjöri voru í hvert sæti
og auk þess sent bréf um
borð í öll skip. Sýnir það
glöggt, hve lítið fylgi stefna
kommúnista í verkalýðsmál-
um hefir, að aðeins 18 sjó-
menn greiddu atkvæði eins
og hinn svokallaði „Samein-
ingarflokkur" krafðist af
þehn.
Úrslitin urðu annars þessi:
Sigurjón Á. Ólafsson formað-
ur 479 atkvæði.
Sigurgeir Halldórsson fékk
179 atkv.
Jón Guðnason fékk 42 atkv.
Ólafur Friðriksson varafor-
maður 434 atkvæði.
Guðmundur Halldórsson fékk
125 atkv-
Ólafur Benediktsson fékk
97 atkv.
Sveinn Sveinsson ritari 443
atkvæði.
Bjarhi Kemp fékk 175 atkv.
Thorberg Einarsson fékk
59 atkv.
Sigurður Ólafsson gjaldkeri
596 atkvæði.
Ásgeir Torfason fékk 11
Rósinkrans Á. ívarsson fékk
97 atkv.
Ólafur Árnason varagjald*
keri 384 atkvæði.
Lúther Grímsson fékk 220
atkv-
Hafliði Jónsson fékk 72
atkvæði.
Allir þeir menn, sem kosnir
voru, eru ákveðnir Alþýðu-
flokksmenn, enda eru allir Al-
þýðufloklcsmenn, sem í kjöri
voru nema Rósinkrans Á. ív-
arsson, Lúther Grímsson og
Hafliði Jónsson, sem tilheyra
hinum svokallaða Sósíalista-
flokki.
Þess skal getið til skýringar
atkvæðatölu Lúthers Gríms-
sonar í varagjaldkerasæti, að
L. G. átti sæti í fráfarandi
stjórn, en snérist í klofningi
Alþýðuflokksins, enda vinnur
hann hjá Olíuverzlun íslands.
Fjölda margir greiddu atkvæði
með stjórninni eins og hún var
s.l. ár- Ólafur Árnason, sem nú
tekur sæti í stjórn félagsins í
stað Lúthers Grímssonar, er
starfandi togarasjómaður, á-
kveðinn verkalýðssinni, hinn á-
hugasamasti félagi og bezti
drengur.
Þátttaka í kosningunni var
meiri en nokkru sinni áð-
ur, eða 745, en 17 seðlar voru
auðir og 19 ógildir.
Þessi kosningaúrslit eru þver
öfug við úrslitin í kosningunum
í Dagsbrún, enda er Sjómanna-
félagið betur skipulagt og fé-
lagar þess faglega þroskaðri en
margir þeirra verkamanna, sem
upp á síðkastið hafa flykst inn
í Dagsbrún til að taka þar þátt
í pólitískum illdeilum.
Endurskoðendur voru kosnir
Bjarni Stefánsson og Rosen-
krans Á. ívarsson, en til vara
Thorberg Einarsson.
í styrkveitinganefnd voru
kosnir: Jón Bach, Björn Jóns-
son, Bala, Eggert Brandsson,
Þorvaldur Egilsson og Jón Jún-
íusson.
ðflupr verkfallssjððnr.
Sigurjón Á- Ólafsson for-
maðiir félagsins flutti á aðal-
fundinum langa og ítarlega
skýrslu um störf félagsins á
liðnu starfsári og verður skýrsl-
an biirt hér í blaðinu næstu
daga og síðan send hverjum fé-
laga.
Samkvæmt skýrslu formanns
og reikningum félagsins eru nú
í félaginu 1132 félagar. Á árinu
hafði verið innheimt í félags-
gjöldum kr. 20.192 (til saman-
burðar má geta þess, að í Dags-
brún eru 1780 gildir félgsmenn
og þó höfðu allir starfsmenn
þess félags aðeins innheimt
(Frh. á 4, síðu.)
Útsýn yfir Rómahorg, þar sem Chambérlain og Mussolini gerðu síðustu tilraun á dögunum
til að semja um Spánarmálin. í horninu til vinstri: Chamherlain, til hægri: Mussolini-
Höllin fremst á myndinni er Palazzo Venezia, þar sem hinar árangurslausu samningaum-
leitanir fóru fram.
Italír safna liði við frönsku iandamærin.
Barcelona Inniloknð af Sier Franeos
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
UM ALLA EVRÓPU híða menn þess nú með vaxandi
áhyggjum, hvað verða muni, eftir að Barcelona er
fallin í hendur Franco og hinum ítalska hjálparher hans.
Það er opinberlega viðurkennt í Rómahorg, að Musso-
lini hafi kallað 60 þúsund manns til vopna við landamæri
Frakklands og þykir augljóst, að hann ætli sér að koma í
veg fyrir það, að Frakkland hafizt nokkuð að til hjálpar
Barcelonastjórninni eða geri nokkrar ráðstafanir á Min-
orca og í Marokko til þess að tryggja sig gegn fyrirætlun-
um ítala á Spáni eftir að Bareelona er fallin.
ítölsku blöðin ráðast með offorsi á Frakkland og hóta
stríði, ef Frakkland leyfi sér yfirleitt nokkur afskifti af
Spáni og þeim viðburðum, sem þar eni að fara fram.
Stórpólitískar ræOnr i Par
fs, Berlfn, London og Róm.
—T---—..♦ -------
ViS þetta ástand bætist nú, að boSaðar hafa verið stórpóli-
tískar ræður leiðandi stjórnmálamanna í höfuðborgum Frakk-
lands, Þýzkalands, Englands og Ítalíu allra næstu daga, og það
er ekki talið Iíklegt að það verði til þess að draga úr þeim viðsjám,
sem þegar hafa skapast út af Spáni.
Daladier forsætisráðherra Frakka og Bonnet utanríkismála-
ráðherra halda loksins hinar margboðuðu ræður sínar um utan-
ríkispólitík Frakklands og afstöðu þess til viðburðanna á Spáni
í franska þjóðþinginu í dag.
Hitler hefir kaliað þýzka ríkisþingið saman á mánudaginn
og er búist við, að hann muni í ræðu sinni þar koma fram með
nýjar kröfur og hótanir af hálfu Þýzkaiands og Ítalíu — mönd-
ulsins milli Berlínar og Rómaborgar.
Mussolini talar á Iaugardaginn í næstu viku í Rómaborg.
Og loks hefir Chamberlain ákveðið að halda stórpólitíska ræðu
í London um ástandið í Evrópu. Er búist við að það verði á
sunnudaginn, daginn áður en Hitler heldur sína ræðu í Berlín.
Þykjast menn skilja á því, að Chamberlain vilji vara Hitler við,
áður en í óefni er komið.
Bíða menn allra þessara stórpölitísku yfirlýsinga með engu
minni spenningi en viðburðanna við Barcelona.
Astandið i Barcelona.
Barcelona er nú svo að segja
umkringd af hersveitum Fran-
cos og engin leið opin burt frá
henni önnur en sjóleiðin. E»
ennþá hefir Franco ekki talið
ráðlegt að gefa fyrirskipun um
áhíaup á borgina. Er talið víst,
að hann sé að safna þangað öllu
því liði, sem unt er, áður en úr-
slitahardagarnir byrja.
Það er fullyrt, að alt sé nú
með röð og reglu í borginni og
stjórnarherinn sé ráðinn í því
að verja hana til þess ítrasta.
I útvarpinu í BarceJöna var því
lýst yfir, að hún yrði yaíin götu
fyrir götu og hús fyrir hús.
Del Vayo utanríkismálaráð-
herra lýðveldisstjórnarinnar er
aftur kominn til borgarinnar til
þess að taka þátt í vörn hennar.
Er óvíst, hve margir hinna ráð-
herranna eru með honum þar,
en Negrin forsætisráðherra hef-
ir áður en borgin var umkringd
(Frh. á 4. síðu-)
Stðustu Iréttir;
Barcelona
fallin.
Þegar Waðið var að
fara í pressuna, kom
sú frétt frá útlöndum,
að hersveitir Francos
hefðu tekið Barcelona
fyrir hádegið í dag.