Alþýðublaðið - 31.01.1939, Side 1

Alþýðublaðið - 31.01.1939, Side 1
V Aiþýðuflokksfélaaið: M W Wfll Tf IH Wflú Wwm Mnt í kvöld ALPYÐ UBLAÐIÐ 1 AlPlðHtlHSmil RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON . ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAG 31- JAN. 1938 25. TÖLUBLAÐ Sknggalegar horfur um frlðinn í Evrópu eftir rœðu Hitlers. -—■—♦——- Þýzkaland styður Italíu undir öllum kringumstæðum, ef til ófriðar kemur. Sjálft heimtar það nýlendur af Englandi og Frakklandi. Hitler lætur hylla sig eftir eina af símun mörgu stríðsæs- ingaræðum- Frá fréttaritara Alþýðublaðsins, KHÖFN í morgun. X_T ORFURNAR á friðsamlegri lausn þeirra ágreinings- ■*■ mála, sem nú eru uppi í Evrópu, eru ekki glæsiiegar eftir ræðu þá, sem Hitler hélt fyrir þýzka ríkisþinginu í gær, í tilefni af því, að þá voru sex ár liðin frá því að nazista- i'lokkurinn tók við völdum á Þýzkalandi. Þó að Hitler léti þau orð falla einu sinni í ræðunni, að hann spáði langvarandi friði, þá var ræða hans engin frið- arræða, heldur full af nýjum kröfum og nýjum hótunum. Hann dró engan efa á það, að Þýzkaland gerði kröfur til þess að fá aftur þær nýlendur, sem England og Frakkland hefðu tekið af því í heimsstyrjöídinni. Og hann lýsti því einnig afdráttarlaust yfir, að Þýzkaiand myndi styðja Ítalíu undir öllum kringumstæðum, ef hún ienti í styrjöld. Slík yfirlýsing er, þegar litið er á kröfur og stríðshót- anir Ítalíu í garð Frakklands undanfarna daga, ekki þess Ieg» að til friðar sé boðað í Evrópu fyrst úm sinn. Gyðingar m bolsévikar notað- ir sem tirýla, eins 09 endranær. -----—..•■■■, ■■■ . Kommúnistaklíkan samþykklr Dagsbrún úr Alúíðnsanbandinn. ----» Fyrsti áþreifanlegi árangurinn af samfylkingu íhaldsmanna og kommúnista i verklýðsfélögum. - , —— ÖgreMdnr skattur félagsins verð ui* innkeimtur með málssékn. HIÐ SVOKALLAÐA Trúnaðarráð í Dagsbrún, sem ein- göngu er skipað kommúnistum, samþykti á fundi sín- um í gærkveldi, að Dagsbrún segði sig úr Alþýðusambandi íslands. Frá þessu er skýrt í blaðsnepli kommúnista í dag, en um það hefir stjórn Alþýðusambandsins ekkert borist. Aðalsamþykt kommúnista- klíkunnar um þetta er á þessa leið — og ber sannarlega öll merki hinna óhreinu fingra þeirra: „Verkamannafélagið Dags- brún er ekki lengur meðlimur stofnimar þeirrar, er Stefán Jó- hann Stefánsson er forseti fyrir og nefnir sig Alþýðusamband íslands, og telur sér óviðkom- andi með öllu stjórn þess, lög og skattgreiðslur til þess og fel- ur félagsstjórn að tilkynna þetta forseta ofangreindrar stofnunar.“ Samkvæmt framangreindu mun félagið ekki greiða yður neinn skatt, enda munuð þér ekki hafa átt von á því.“ Til áréttingar þessu munu kommúnistar ætla sér að boða til félagsfundar og láta hann samþykkja samhljóða ályktun. Eins og menn muna, var því haldið fram af Alþýðuflokks- mönnum í sambandi við alls- herjaratkvæðagreiðsluna í haust, að tilgangur kommúnista ALÞÝÐUBLAÐIÐ N eðanmálsgreinin i dag. fc Gísli Guðmundsson gerlafræðingur. Af tilefoi 20 ám afmælis simjör- líkiisgfiTÍðlairiininar Smára isfcrifar V. S. V. um þeniniain brautrýðjanda í smj ö rríkisgerð'itmi í 'nfiðatntmiál&- gneliin i Idag. Stofniaudi sanjönliikis- gfirðiariiininar vair Gísli Guðmundls- son geriatfnæðiingur slem var hmn mierkasti rna&ur og verður fyrst og friemist að þakika brautryðj- andasitanfi hiainis hve vtel tdkst til uirn þennan iðnuð, þfigar í upp- hafi. - væri sá að slíta Dagsbrún úr tengslum við Alþýðusamband- ið. En þá mótmæltu kommúnist- ar þessu harðlega og töldu að það væri blekking og lygi. Nú er þetta orðið lýðum Ijóst — og þó að ýms formsatriði séu eftir, þá verður að líta svo á að félagið sé komið úr sam- bandinu og njóti hér eftir engra réttinda sambandsfélaga. Frh. á 4. síöu. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. OMMÚNISTAR hafa notað sér það neyðará- stand, sem nú ríkir í Norð- austur-Kataloníu, til þess að gera uppreisnartilraun að baki stjórnarhersins. Quintina, foringi setuiiðsins í smábænum Puigcerda uppi í Pyreneafjöllum, rétt við landa- mæri Frakklands, sem hafði forystu fyrir þessari uppreisn- artilraun, notaði sér aðstöðu sína til þess að taka borgar- stjórann þar og helztu forvíg- ismenn lýðveldissinna fasta og setja kommúnistiska ógnar- stjórn á stofn í bænum- Eu uppreisnartilraunin var bæld niður af lögreglu llýðveldis- stjórnarinnar innan skamms og fangarnir frelsaðir. Quintina er flúinn frá Puig- cerde, en óvíst hvert hann hefir farið. Ognrleg nevð á meðal flóttafðlksins. Neyðin meðal flóttafólksins, sem nú er komið norður að frönsku landamærunum í Py- reneafjöllum, er ógurleg. Fjölda fólks hefir þó þegar verið veitt móttaka af frönsku yfirvöldun- um, en um 50 þúsund manns AlÞýðnflokkstélagið: Umræður um sjávarútvegsmðlín FÉLAGAR í Alþýðu- flokksfélagi Reykja- víkur eru hvattir til að sækja vel fundinn í kvöld í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu- Aðalumræðuefnið verð- ur um sjávarútvegsmálin, en auk þess verður rætt um viðhorfið innan verka- lýðshreyfingarinnar nú og framtíðar hennar. Fundurinn hefst kl. 8V2 og eru félagar beðnir að mæta stundvíslega. eru ennþá fyrir sunnan landa- mærin. Það er stórhríð þarna uppi í fjöllunum og hörkufrost og þjáningar flóttafólksins ósegj- anlegar. Frönsku yfirvöldin hafa látið úthluta mjólk og brauði meðal þeirra, sem komn- ir eru yfir landamærin, en fjöldinn er svo mikill, að mat- vælin, sem flutt hafa verið til landamæranna nægja ekki. Það hefir einnig tafið fyrir móttöku flóttafólksins, að læknisskoðun þarf að fara fram á hverjum manni, því að marg- ir flóttamennirnir eru með húðsjúkdóma og taugaveiki hef- ir einnig gert vart við sig á meðal þeirra. Margir hafa dáið áður en hægt var að veita þeim nokkra hjálp. Þjófnaður á „Nafta“ í nótt. INÓTT var stolið 120 krón- um á „Nafta“, og er þjóf- urinn ófundinn ennþá. Var peningunum stolið úr skúffu á • afgreiðslustöðinni, meðan afgreiðslumaðurinn var úti að afgreiða. Hafði skúffan verið læst, en lykill staðið í skránni. Ræða Hitlers, sem stóð í meira en tvær klukkustundir, var þrungin hatursfullum árás- um á lýðræðisríkin, og hvar- vetna var reynt að koma því að, að Gyðingar væru öllu ráð- andi í þeim löndum, það væru þeir, sem heimsfriðinum stæði hætta af, og takmark þeirra væri að koma á „hinum al- þjóðlega bolsévisma“. Móti þessari hættu hefðu Þýzkaland, Ítalía og Japan tekið höndum saman. „En ég ætla að leyfa mér að spá því,“ sagði Hitler, „að ef Gyðingum tekst að koma nýrri heimsstyrjöld af stað, þá verð- ur árangur hennar ekki sá, að hinn alþjóðlegi bolsévismi leggi undir sig heiminn, heldur sá, að Gyðingakynstofninum verður útrýmt fyrir fult og alt í Ev- rópu.“ Hitler byrjaði ræðu sína á því, að rekja sögu nazista- stjórnarinnar og lýsa sigur- vinningum hennar út á við og inn á við. Því næst snéri hann sér að ástandinu í milliríkja- málunum í dag, og fer hér á eftir útdráttur úr því sem hann sagði um þau: Nýlendur aooað hv«rt með samhomnlagi eða hervaldi. BERLÍN í morgun. FÚ. „Hver er orsökin að örðug- leikum vorum?“ spurði Hitler. Ofmikið fjölmenni, sem verður að hafast við á of takmörkuðu landssvæði. Þýzkaland hefir verið féflett og rænt nýlendum sínum og sér þó fyrir íbúum sínum. En til eru lönd, sem eru mjög strjálbýl og hafa gnægð hráefna og geta þó ekki veitt íbúum sínum sæmileg lífsskil- yrði.“ „1918 hefði verið hægt að koma á skynsamlegu samkomu- lagi, en stjórnmálamennimir þá vissu ekki, hvað þeir voru að gera. Vandamálin stóðu nú skýrar en fyrir stríðið. Hvern- ig er hægt að tryggja réttláta. skiftingu á lífsmöguleikum þjóðanna? Það er ekki hægt, að gera 80 milljónir Þjóðverja að hornrekum- Annaðhvort verður að skifta auðæfum heimsins með her- valdi eða réttlátu samkomulagi, Það er misskilningur, að Þýzka- land og ítalía láti sér lynda að yera útilokuð frá því að hafa áhrif á gang málanna í Evrópu.“ „Því hefir verið borið við gagnvart nýlendukröfum okk- ar, að okkur gæti ekkert gagn orðið að þeim. Það ætti að vera því meir ástæða til að fá okk- ur þær í hendur umyrðalaust. Því hefir einnig verið borið við, að við mvndum ekki kunna að fara með stjórn þeirra og eins það, að það myndi styrkja hernaðarlega aðstöðu Þýzka- lands. Þetta er ekki annað en viðbárur því til réttlætingar, að þjóð er neitað um rétt henn- ar. Þýzkaland þarf ekki á ný- lendum að halda til að koma sér þar upp hersveitum. Til þess nægir kraftur okkar eigin kynstofns. Þýzkaland þarfnast nýlendnanna af þjóðhagslegum ástæðum. fiden og Ghurehill kall- aðir „striíspostular"! ,,Ég tel þa-ð skyldu •mána að livfitja Þjó'ðverja tíl að skilja og styðja hijn, þjóðhagsílfigu sjónain mið okkar. aið skilja að fram- leiðislian ler aðalatriðið, en öryggi rii|kijsin.s er uwdiir hinu utatnriíkiisi- pólitíiskia öryggi komið. Ég tneysti hór skilningi þjóðærmmar og tn'inni hennair.. Það em að nokkru leyti sömu menniiimir, ísiem komu af sitað • heimistyrjðMiinni B^ðuisttí og ©nn undiiiibúa nýja sityrjöld. Glieymuim þvi ekki, að í visigum iýðtræðiisailkjum teist það tíl for- réttiinda að rækta og útbneiðaj haitur tíil etaræðislríikjiainlnla, Biean engri þjóð vilja mfiin gera. MieO- án slíkir stríðspostular sem Mr. Churchiil’l, Mr. Edfin, Mr. Duff- Cooper og Mr. Ickes ráðíaíst á; okkur, get ég fultvijslslalð ykkuir Um, að vilð munjuim svam. Á' meðian Pýzkaland fir sjálfstætt i'iíiki, mun það ekki láta bannfai sér aið svara átáislum sMkra stjiórn- málafmamna. Og Þýzka'laind mun vieirða sjálfs'tætt rtki, fyriir þvi: sjkulu vopn vor sjá og fjöldi vinn vorra“. Útrýming ðpðiuga boð- uð uodir mtklum fagn- aðarlátnm. , tsia „Um eitt vil ég fullvissa alla: Tilraunir þessara manna (Prh. á 4. íföu ) Kommúnistar gera npp- reisnartilrann i Katalonin aö bafci stjórnarhersins. ...—é" -. En hún var tafarlaust bæld niður. -----#.----

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.