Alþýðublaðið - 03.03.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FÖSTUDAG 3. MARZ 1939
52. TÖLUBLAÐ
Hýlr taxtar hjá Rafmagnsveit-
nnni til fnllrar npnhitunar ibúða.
------------------ ¦»
Byggt á reymslu Norðmanna.
Uk if konu fannst
f morpn fyrír tsían
Örfirisey.
"""' X .'_1 hi . '.'"¦¦'
LÍK af konu fanst í morgun
á floti fyrir vestan Örfir-
isey. Var konan bersýnilega ný-
drukknuð og var líkið óskadd-
að.
Ágúst Guðjónsson, Nýlendu
við Nýlendugötu, fann líkið í
morgun kl. 7,15 á floti austan
við nyrzta tangann á Örfirisey.
Gerði hann lögreglunni þegar
aðvart.
Fór lögreglan á báti úteftir,
en þá var fallið undan líkinu
og lá það í flæðarmálinu.
Konan virtist vera ný-
drukknuð, um 35 ára, og var
líkið algerlega óskaddað. Lög-
reglan hefir ekki ennþá haft
uppi á nafni konunnar.
Maoo teknr fyrir
borð. Náðist eftir
alllanp stnnd.
ÞEGAR vélbáturinn Ársæll
frá Njarðvíkum, form.
Þorvaldur Jóhannesson, var að
leggja línur sínar í fyrri nótt,
reið sjór yfir bátinn og einn
hásetanna tók út, Svavar
Helgason frá Grindavík, sem er
25 ára að aldri.
A'ilmldð myrfeur var, er þietta
viddi til og fnemlur silæmt í sjó.
Skipverjar snénu bátnuin pegar í
stáð ag geriðu tiiraiun til alð iná
Svavari, en það tókslt eklkji í þa'ð)
skÉti. Varð alð snúa 'hátniuan aftur
og pá tólksit að ná hásietawum.
Vieiiðiur næstuan að télja paíð til-
viiljun.
Svavar Helgaison vwc trneðvit-
luwdarlaius piegar hann náðist, ein
við lífgunartilTaiunir féfek hann
aftur mieðvitunidjnia. — Báitturjim
snéri .strax til Kefiatyieur og
fefciMÍ eftir 9 bjólð i isalónluirn,
¦—i««i
Haðnr
níla
slasast.
IMORGUN varð maður milli
bíla niðri við Steinbryggju
og slasaðist svo, að hann var
fluttur á Landsspítalann.
Sorpbíll frá bænum stóð
austanvert við Steinbryggjuna.
Eru sorpbílarnir þannig bygðir,
að bílstjórinn getur ekki horft
aftur fyrir bílinn úr ekilssæt-
inu. Ók bílstjórinn bílnum aft-
ur á bak og ætlaði að snúa, en
í sama bili kom annar bíll og
stanzaði fyrir aftan öskubílinn
ofurlítið til hliðar.
Stóð maður hjá þeim bíl og
var að tala við bílstjórann inn
um gluggann. Varð hann á milli
bílanna og marðist.
BÆJARSTJÓRN Reykjavík-
ur hefir nýverið samþykt
eftirfarandi viðauka við gjald-
skrá Rafmagnsveitunnar:
Viðauki við D-lið gjaldskrár
Rafmagnsveitu Reykjvíkur.
Tilraunataxti fyrir hitun
íbúðarhúsa í Reykjavík.
Rafmagnsveitan selur raf-
orku með eftirfarandi skilyrð-
um, til upphitunar íbúða, þar
sem götulínur og spennubreyt-
ar leyfa, að dómi rafmagns-
stjóra.
Hitalagnir, þar með talin öll
tæki, skulu vera gerðar eftir
fyrirmælum Rafmagnsveitunn-
ar. Ofnar skulu vera fasttengd-
ir meó sérstökum rofum og
hitastillum (Thermostat), að
minsta kosti í aðal íveruher-
bergjum:
D4. Um sérmæli fyrir hita-
lögnina á 4 aura kwst., eða
D5 eftir neðantöldu verði,
með því skilyrði, að Rafmagns-
veitan hafi rétt til að rjúfa
strauminn af hitalögninni frá
kl. 11 f. m. til kl. 12 á hádegi
(1 klst.), og skal húseigandi
kosta tengingu dofans og greiða
leigu fyrir hann eftir reglum,
sem gilda um leigu mæla.
a) Um tvígjaldsmæla á 3
aura á kwst. frá kl. 8 að morgni
til kl. 11 að kvöldi. Á 1% eyrir
á kwst. frá kl. 11 að kvöldi til
kl. 8 að morgni.
b) Sameina má þetta verð við
heimilistaxta B3, þannig, að
fyrstu 1500 kwst. á ári (á dýra
tíma) verði reiknaður á 7 aura
á kwst., en síðan á 3 aura á
kwst., miðað við dýra tíma tví-
gjaldsmælisins. Næturverðið
Frh. á 4. síðu.
Hðtíðasnndmðt K. B.
i gœrkvöldi.
HÁ.TÍÐASUNDMÓT K. É.
fór fram í Sundhöll
Reykjavíkur í gærkveldi. Mót-
ið var haldið í tilefni af 40 ára
afmæli félagsins. Um fimm
hundruð áhorfendur voru á
mótinu, þar af ca. tvö hundruð
börn og unglingar.
Erlendur Pétursson setti
mótið og lýsti í fáum orðum að-
aldráttum í árangri og starfi K.
R. í þágu sundíþróttarinnar.
Að því loknu hófst sýningin.
Keppendur voru 19 frá K. R.,
13 frá Sundfélaginu Ægi, 13 frá
Ármanni og 1 frá U .M. F.
Reykdæla.
Keppt var í eftirfarandi í-
þróttum:
* 1. 100 m. bringusund, dreng-
ir innan 16 ára (9 þátttakend-
ur). Fyrstur var Jón Baldvins-
son (Æ) 1 m. 33,4 sek., annar
Björgvin Magnússon (KR) 1 m.
34,4 sek., þriðji Einar Steinars-
son (KR) 1 m. 37,6 sek.
2. 100 m. frjáls aðferð, karl-
ar. 1. Logi Einarsson (Æ) 1
m. 6 sek. 2. Guðbrandur Þor-
kellsson (KR) 1 m. 6,9 sek. 3.
Halldór Baldvinsson (Æ) 1 m.
8,4 sek. (6 þátttakendur).
3. 400 m. bringusund, karlar.
1. Ingi Sveinsson (Æ) 6 m. 40
sek. 2. Einar Sæmundsson (KR)
6 m. 56,3 sek. 3. Sigurjón Guð-
jónsson ((Á) 7 m. 5,7 sek. (5
þátttakendur).
4. 100 m. bringusund. stúlk-
ur innan 16 ára. 1. Hulda Bergs-
dóttir (KR) 1 m. 47 sek. 2.
Hulda Jóhannesdóttir (Á) 1 m.
447,1 sek. 3. Kristín Mar (Á) 1
m. 448,3 sek. (10 þátttakendur).
5. 50 m. bringusund, drengir
innan 14 ára. 1. Jóhannes Gísla-
son (KR) 46.6 sek. 2. Einar
Hjartarson (Á) 49,1 sek. 3. Eg-
ilí Valgeirsson (KR) 49,8 sek. (9
þátttakendur).
Frh. á 4. síðu.
Saltf iskaf linn er rftmlega
helmingi meiri en i fyrra.
ALTFISKAFLINN hefir ?
verið óvenju góður það
sem af er þessari vertíð og hefir
veiðst meira en helmingi meira
en á sama tíma í fyrra og má
þakka það sérstaklega góðum
gæftum við Faxaflóa í janúar-
mánuði og byrjun febrúar.
Hefir afli efeki orðáið svona
¦mikili íuimi nokkur undiainfairiin ár,
og' er afli alls á öilu landiíniú
7211 IsknéJesÖr. Fier hér é eftir
skýrsla Um aíliann, og er hatnm
IneiknáðuT í stmálestum!.
Afli samtels í fiebrúarloik 4
Uíhdanfa'riin ár: 1939 7211, 1938
3343, 1937 1942, 1936 1917.
Aflinn skiftist isvo eftír tiegunid-
Uim: Stórfiskur 6137, smáfiiskur
994, ým 20, uísi 60.
Aflinin skiftist s«vo eftir ver-
sitöðvium: Vestmaninaieyjar 865,
Þoitílákshöfn o,g Selvogur 14,
Grinidavík 216, Haínir 77, Sanid-
gerði 929, Garðiur 328, Kieflalvík
1669, Vatosleyisuströnd 37, Hafn-
arfjöröiur 165, Reyfcjavík 473,
Akranes 1213, Ólafsvik 109, Vest-
firðlr 1081, AiustfirÖir 55.
Sæoska stjðroio viil
eogar niaíir frá
fiðriog.
KHÖFN í gærkveldi. FÚ.
¥ SÆNSKA ÞINGINU hefir
* komið til snarprar umræðu
vegna þess, að sænska stjórnin
hafði hafnað tilboði frá Göring
um að gefa til Svíþjóðar sjúkra-
flugvél. Lét talsmaður jafnað-
armanna þau orð falla í um-
ræðunum, að ástæða væri til áð
efast um tiilgang Görings með
slíku boði.
Leiðtogi íhaldsmanna sagði
meðal annars, að árásir
sænskra marxista á Göring
væru stórhættulgar fyrir land-
ið.
Forsætisráðherrann Per Al-
bin Hanson bað menn að stilla
orðum sínum í hóf á báðar hlið-
ar vegna þess, að stórdeilur og
Stórpólltísk páf akosning.
Schuster kardínáli, erkibiskup
í Milano, sem einnig keppti um
páfatignina.
Pacelli kardináli,
sem var kosinn páfi í gær og
kallar sig nú Pius Xn.
Frægur heishðf ðingí sendl-
herra Frakka bjá Fraoco.
—i----------------e------------:----------
Hershöfðingi ítala á Spáni floginn til
Rómaborgar á fund Mussolinis.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
K.HÖFN í morgun.
PETAIN marskálkur hefir
verið skipaður fyrsti
sendiherra Frakka hjá stjórn
Francos á Spáni. Hann er nú 83
ára að aldri, en heimsfrægur
hershöfðingi, hafði á tímabili
yfirstjórn franska hersins í
heimsstyrjöldinni og hefir eftir
það ávalt síðan gegnt ábyrgðar-
miklum stöðum í frönsku her-
stjórninni.
Petain marskálkur og Franco
eru persónulega kunnugir síðan
þeir unnu sameiginlega að því,
að bæla niður uppreisn Riffkaby
la gegn yfirráðum Spánverja og
Frakka í Marokko á árunum
1925—1926. Og því er haldið á
lofti, að Franco sé mikill heiður
sýndur, að þessi gamli sam-
verkamaður hans sé gerður að
fyrsta sendiherra Frakka hjá
honum.
Það er þó engan veginn víst,
að það sé aðeins í heiðursskyni
við Franco, að þessi þráut-
reyndi hershöfðingi hefir nú
verið sendur til Spánar til þess
að vera fulltrúi Frakklands þar.
Grunur manna er það, að
frönsku stjórninni þyki vissara
að hafa sérfræðing á sviði hern-
aðarins þar fyrst um sinn, til
þess að hafa eftirlit með ítalska
hernum á Spáni og öllum víg-
búnaði Francostjórnarinnar.
Enn hefir ekkert heyrst um
það, hvernig Mussolini muni
snúast við beiðni Francos um
það, að kalla ítölsku hermenn-
ina heim, né hve alvarlega hún
harðyrði gætu aðeins orðið til
að skaða samkomulagið milli
Svíþjóðar og Þýzkalands.
muni vera meint. Hins vegar
hefir það orðið kunnugt, að
Gamberra, yfirforingi ítalska
hersins á Spáni, hefir skyndi-
lega brugðið sér í flugvél til
Rómaborgar á fund Mussolinis
og telja menn víst að för hans
standi í isambaridi við þessa
málaleitun FrancOs.
Arslitasókn i aislgi á
Spáni?
OSLO í gærkveldi. FB.
Franco hefir tilkynt, að úr-
slitasóknin af hálfu hers hans
verði hafin næstkomandi laug-
ardag og hefir lýðveldisstjórn-
in fengið tveggja sólarhringa
frest til þess að taka ákvörðun
um hvort hún vill semja um
vopnahlé og frið eða halda
stríðinu áfram.
Undirbúningi sóknarinnar er
lokið og verður aðallega sótt
fram á tveimur stöðum, í þeim
tilgangi að rjúfa sambandið
milli Madrid og Valencia, í
þeim tilgangi að umkringja
Madrid algerlega og knýja
þannig fram uppgjöf höfuð-
borgarinnar.
Preotaraverbfallioa f
Iaapi.hðfo frestað.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
K.HÖFN í morgun.
ASEINUSTU STUNDU
hefir tekizt að f á prent-
araverkfallinu, sem búizt
var við að byrjaði í Kaup-
mannahöfn á morgun, fre»tað.
Pacelli kardioðli, ot
aorikisráðherra pðf
stðisios 08 ðkveði
aodstæðiogor oaz-
isoiaos var kjðriio.
KHÖFN í morgun.
"p* FTIR tvær árangurs-
*"*' lausar kosningaatrenn-
ur í Vatíkaninu í gær var
Eugenio Pacelli kardínáli
kosinn páfi í þriðju umferð.
Sem páfi hefir hann tekið
sér nafnið Pius XII,
Þessi úrslit páfakjörsins eru
talin stórpólitískur viðburður
úti um heim. Hinn nýi páfi hef-
ir árum saman verið taiinn einn
áhrifamesti stjórnmálamaður
kaþólsku kirkjunnar, endá ut-
anríkisráðherra páfastólsins
síðan árið 1930.
Fyrir þann tíma hafði hann
um heilan áratug verið sendi-
herra páfastólsins í Berlín og er
því gagnkunnugur bæði stjórn-
málalífi og högum kaþólsku
kirkjunnar á Þýzkalandi. Það
er litið svo á, að einmitt þetta
atriði hafi valdið miklu um það,
að Pacelli kardínáli varð fyrir
kjörinu, því að hvergi stenður
kaþólska kirkjan í dag á alvar-
legri tímamótum en á Þýzka-
landL þar sem nazistar hafa nó
hafið hatrammar ofsóknir gegn
henni, og fyrirsjáanlegt þykir,
að hún muni verða að berjast
beinlínis fyrir tilveru sinni gegn
ofbeldi og kúgun nazistastjóm-
arinnar í nánustu framtíð.
Naiístar lita sér fátl
am finnast.
Það vekur líka þegar niikla
eftirtekt í sambandi við páfa-
kjörið úti um heim, að þvi er
tekið með miklum fáleik- á
Þýzkalandi. Þýzka útvarpið var
ekki einu sinni látið útvarpa
fréttinni í gærkveldi. enda þótt
meira en þriðjungur þýzku
þjóðarinnar sé kaþólskur.
Það er heldur ekki talinn
neinn efi á því. að hinn nýi páfi
sé ákveðinn andstæðingur naz-
ismans. Menn minnast þess f því
sambandi, að hann gerði kyn-
þáttakenningu nazismans að*
umtalsefni i ræðu sem hann
hélt á kirkjuþingí í Lourdes á
Suður-Frakklandi árið 1935 og
tók skarpa afstöðu gegn þcim.
Eins er það kunnugt, að hann
hefir sem utanríkisráðherra
páfastólsins frá því fyrsta verið
mjög andvígur bandalagi ftalíu
og Þýzkalands.
Einnig meðal stjórnmála-
manna ítalska fasismans er úr~
slitum páfastólsins af þeim á-
stæðum tekið með litlum fögn-
uði. Á Frakklandi láta blöðin
hinsvegar í ljós ánægju sína yf-
ir þeim og fara miklum viður-
kenningarorðum um hinn nýja
páfa, menntun hans og stjorn-
arstefnu.
(Frh. á 4. ií«u.)