Alþýðublaðið - 13.03.1939, Qupperneq 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
BITSTJÓBI: F. E. VALDEMAESSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKUBINN
XX. ÁRGANGUR
MÁNUDAG 13. MARZ 1939
60. TÖLUBLAÐ
Stúdentar ræða um uppsðgn
sambandslaganna frá 1918.
...—•.
En áhugl vlrðlst þó enn ekki vera orð«
Inn mlkUl meðal peirra lyrir pessn máli.
Tllkjmning frá
"1
félagsReykjaviknr.
AÐALFUNDUR félags-
ins verður mánu-
daginn 20. marz í
Iðnó. — Lagabreytingar,
sem bornar vefða fram að
tilhlutun stjórnar og
laganefndar liggja frammi
til athugunar fyrir félags-
menn á skrifstofu félags-
ins.
Árshátíð félagsins verður
á laugardaginn kemur, 18.
marz, í Iðnó. Nánar sagt
frá árshátíðinni í Alþýðu-
blaðinu á miðvikudaginn.
Fjolmennir fundir i gær í
Reykjavík og á Akureyri.
flrpntinukeppnin:
Vaxandi eftirvænting
nm hverjir fara tU
Bnenos flires.
ÞRIÐJA umferð í Argentínu-
keppninni var tefld í gær
og fóru leikar sem hér segir:
Baldur Möller vann Eggert
Gilfer, Steingrímur Guðmunds-
son vann Sæmund Ólafsson,
Einar Þorvaldsson og Ólafur
Kristmundsson biðskák. Ás-
mundur Ásgeirsson átti að
tefla við Sturlu Pétursson, en
var forfallaður, skákin er því
biðskák.
Frh. á 4. síðu.
STÚDENTAFÉLAG
Reykjvíkur, Stúdenta-
félag háskólans og Stúdenta-
félag Akureyrar gengust
fyrir umræðufundum í gær
um sambandsmál íslands og
Danmerkur og hvort segja
beri að fullu og öllu upp
sambandinu við Danmörku
1943. Tilefnið til þessara
fundahalda munu vera þær
umræður, sem orðið hafa um
þetta stórmál nú, en þær hóf
Rgnar E. Kvaran landkynnir
með greinum sínum hér f
blaðinu fyrir nokkru.
Fundur stúdentafélaganna
hér í Reykjavík var haldinn
í Oddfellowhúsinu og var
fundarsalurinn niðri full-
skipaður, er Hörður Bjarna-
son byggingafræðingur, for-
maður Stúdentafél. Reykja-
víkur, setti hann. Hann gat
þess, að það væri tilgangur
stúdentafélaganna að koma
á slíkum umræðufundum í
framtíðinni um ýms meiri
háttar mál, og að þess væri
vænst að allar umræður
færu fram á „saglegum“
grundvelli. Þá gat hann þess
einnig, að stúdentafélögin
myndu efna til umræðu-
fundar í útvarpinu innan
skamms um þessi mál.
Þrátt fyrir fjölmenni
fundarins var ekki margt
yngri stúdenta, það virtist
Biófundur í S.~A.-flokkimm:
ForínoiDD ðt á við vildi iitlar npp-
iýsingar gefa til viðbótar um 60
milli. og baróninn af Baikanskaga.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN,
Kommúnistaflokkurinn, Sam-
einingarflokkur alþýðu — sósíal-
istaflokkurinn, S.A.S. eða S.S.-
flokkurinn, hélt í gærdag fund um
,,þjóðmálin“. Á fundarstað voru
mætt öll stórmenni flokksins, for-
mennirnir út á við og inn á við,
stjórn flokksins og þingmenn, en
auk þeirra voru sárafáir mættir
þegar fundur átti að hefjast. Tæpri
klukkustund síðar var þó fundur
settur, með þessum einkennandi
orðum fyrir þá „stemningu“, sem
þarna ríkti: „Það er víst tilgangs-
laust að bíða lengur, hugsa ég, og
er því bezt að við förum að byrja.
Segi ég því þennan fund settan, og
gef hér með formanni flokksins út
á við Héðni Valdimarssyni orðið.“
Sté þá í ræðupontuna út á við
formaðurinn, og byrjaði ræðu sína
á því, að hann ætlaði eiginlega
ekki að halda neina ræðu. Ef ekki
hefði verið frá því sagt í Þjóð
viljanum, að framsöguræða H. V.
»Má *S flftll* vun viðr*i»narmAl
sjávarútvegsins, þá hefði engan
fundarmanna getað rennt grun í
að svo væri, svo gersamlega hélt
ræðumaðurinn sér fyrir utan efn-
ið.
Það má segja, að kommúnistar
hafi fengið vænan hvalreka á sína
stefnu- og úrræðaleysis fjöru, þar
sem voru 60 milljónirnar hans
Wrights, og einhverntíma hefir
flokkurinn haft verri flotholt, þó
engan veginn séu þau örugg, en
það verður að notast við það, sem
til fellur, og 60 milljónir eru þó
há tala. Þeir kommúnistarnir hafa
líka til þessa flotið á hávaðanum.
Öll ræða H. V. snérist um Wright,
„baróninn“, og hve svívirðilegar
móttökur þessir „ágætismenn"
hefðu fengið hjá ríkisstjórninni.
Þegar H. V. hafði lokið ræðu
sinni, hvatti fundarstjóri menn til
þess að koma fram með spurningar
viðvíkjandi þessu „alvarlega máli“.
En áhugi fundarmanna fyrir þessu
bjargræðis- og stefnumáli flokks-
Frh. á síöu.
svo, að gömlu bardagamenn-
irnir úr sjálfstæðisbaráttu
okkar fyrir 1918 væru þar
mjög fjölmennir. Var það og
áberandi á fundinum, að
menn eru enn ekki fullráðn-
ir í þessu stórmáli. Vilji
fundarmanna kom ekki á-
berandi í Ijós.
Þingmönnum og ríkis-
stjórn hafði verið boðið á
fundinn. Enginn ráðherr-
anna mætti og aðeins örfáir
þingmenn.
Ragnar E. Kvaran hóf um-
ræðurnar. Var ræða hans 1
höfuðdráttum samhljóða efni
greina hans hér í blaðinu. „Það
er nauðsynlegt fyrir okkur að
fara nu þegar að ræða þessi
mál til hlítar. Skmmur tími er
til stefnu og í þessu máli er
nauðsynlegt að að engu sé
hrapað.“ Hann lýsti nokkuð
flókkaskipan meðan harðast
var barizt um sjálfstæðismálin
og benti svo á hina algerlega
nýju flokkaskipun, sem skapazt
hefði og byggðist á allt öðru en
sú fyrri. Hann taldi sjálfsagt að
í þessu máli skiptust menn ekki
eftir pólitískum flokkum.
Hreinlegast væri fyrir flokks-
stjórnirnar að gefa allar út yfir-
lýsingar um það, að flokkamir
tækju ekki, sem slíkir, afstöðu
til málsins — og að þær létu
flokksmennina alveg sjálfráða
um afstöðu sína.
í örfáum setningum sagði
Kvaran m. a.:
„Sjálfstæðislöngunin hefir
stigið okkur til höfuðsins ef við
höldum að við þurfum ekki að-
stoðar neinnar annarar þjóðar.
Og engum manni með óbrjál-
aðri skynsemi dettur í hug að
okkur sé hentugt að leita að
sambandi við eitthvert stór-
veldanna.“ „Við erum ekki
menn til að bera allan þann
kostnað, sem er af því að hafa
sendiherra í öðrum löndum.
Það er sjálfsagt hægt að gera
miklar umbætur á umboðs-
starfi Dana fyrir okkur í öðr-
um löndum. Ég veit að á því
hafa verið ýmsir vankantar. En
ég tel að það sé ekki síður okk-
ar sök en Dana.“ — Kvaran
gerði ráð fyrir ýmsum breyt-
ingum á sambandslögunum, en
gerði þó ekki nánari grein fyrir
tillögum sínum í því efni.
Benedikt Sveinsson fyrver-
andi alþingismaður. einn allra
ötulasti og harðskeyttasti frum-
herji í sjálfstæðisbaráttunni,
tók næstur til máls. Hann
ræddi um sambandslögin, dró
sérstaklega fram galla þeirra,
en gat einnig þess, sem unnizt
hefði við þau. Hann lýsti að-
stöðu Dana um það leyti, er
sambandslögin voru samin. Þá
var alls staðar tekið undir kröf-
una um sjálfsforræði smáþjóð-
anna og hún færði Dönum Suð-
ur-Jótland. Hvernig áttu Danir
að geta neitað okkar kröfum?
Annars var aðalatriðið í ræðu
Benedikts það, að málið væri á
góðum rekspöl. Það lægi fyrir
í yfirlýsingum allra stjórn-
Frh. á á. síðu.
Hinn nýkjörni páfi, Pius XII., á svölrnn Vatikansins,
Vaxandi ótti við pýzka i-
iilutun í Tékkéslévakii.
— -------——
Þýzka stjérnln tekur opinberlega
atstððn gegn stjórninnl f Prag.
Frá fréttaritara AlþýðublaSsins.
K.HÖFN í morgun.
ASTAND það, sem skap-
ast hefir í Tékkóslóv-
akíu við uppreisnartilraun
Slóvaka gegn stjórninni í
Prag, veldur stjórnmála-
mönnum úti um heim mikl-
um áhyggjum. Sérstakleega
fer óttinn vaxandi við það,
að Þýzkáland muni nota
tækifærið til þess að blanda
sér inn 1 deilurnar og liða
landið alveg í sundur með
því að viðurkenna „sjálf-
stæði“ Slóvakíu og einangra
þar með tékknesku héruðin
svo að þeim verði framvegis
nauðugur einn kostur að
sitja og standa eins og naz-
istastjómin í Berlín vill
hafa.
Óttinn við þetta hefir farið
vaxandi við opinbera tilkynn-
ingu, sem gefin var út í Berlín
í gær svohljóðandi, að stjórnin
í Prag hafi gengið á réttindi
Slóvaka á þann hátt, að þýzka
minnihlutanum í Tékkóslóva-
kíu sé á ný hætta bú-
in. Er tékkneska stjórnin
sökuð um það, að hafa tekið
upp stefnu Benes fyrverandi
forseta á ný, og því lýst yfir, að
Þýzkaland hljóti að líta mjög
alvarlegum augiun á það, sem
gerzt hafi.
fftvarpið í Wien æsir
Slóvaba til uppreisnar.
Útvarpið í Wien flytur stöð
ugt síðan á laugardaginn ávörp
og ræður á tungu Slóvaka, sem
bersýnilega eru ætlaðar til þess
að æsa þá til áframhaldandi
mótþróa og uppreisnartilxauna
gegn stjórninni í Prag.
Þannig flutti forsætisráð-
herra Slóvaka, sá sem settur
var af á laugardagsmorguninn,
útvarpsræðu frá Wien í gær og
hvatti Slóvaka til að halda bar-
Radolf Beran, forsætisráðherra
Tékkóslóvakíu, sem nú á úr
vöndu að ráða.
áttunni áfram. Einnig hélt leið-
togi þýzka minnihlutans í Sló-
vakíu, sem einnig er staddur 1
Wien, útvarpsræðu í gærkveldi,
þar sem hann sagði, að Þjóð-
verjar myndu koma Slóvökum
til hjálpar, ef þörf gerðist.
Samkvæmt fregnum frá
Slóvakíu er og fullyrt, að bæði
vopn og sjálfboðaliðar séu nú
sendir frá Wien yfir landamær-
in til Bratislava, höfuðborgar
Slóvakíu.
Tékknesku hersveitirnar,
sem voru sendar þangað á laug-
ardagsmorguninn, hafa þó yfir
höndina í borginni, og hafa
bælt niður allar frekari tilraun-
ir til að stofna til • uppþota.
Tékkneskir skriðdrekar eru á
stöðugri ferð um götur borgar-
innar.
Hin nýja stjórn í Slóvakíu,
sem endanlega var skipuð á
laugardagskvöldið með Seedor
sem forsætisráðherra, eftir að
Sivak fyrverandi forsætisráð-
herra hafði færst undan að taka
að sér forsæti hennar, hefir
nána samvinnu við stjórnina í
Prag, og Seedor er sem stendur
staddur þar til þess að ræða
allar frekari ráðstafanir. Tékk-
Frh. 4 4. síðu.
Píns pðfl XII. krýnd-
nr á svðlntn Pét-
urskirkjnnnar i Rém.
LONDON i gærkv. F.D.
PIUS PÁFI XH. var í dag
krýndur samkvæmt kirkju-
siðum á svölum Péturskirkjuimar
í Rómaborg.
Hátíðahöld mikil voru í tiiefni
þessa höfð i Westminsterkirkj-
vunni í London, og var þar mikill
mannfjöldi samankomin.
Skíðamótið;
R]ðrn Rlðndal vann
gðngnna og Tilborg
Hjaltested vann í
svigi kvenna.
SKÍÐAMÓTI Reykjavíkur var
haldið áfram í gær að Kol
viðarhóli og var kept í göngu
og svigi kvenna, en ekki var
hægt að keppa i stökkum saklr
veðurs.
Hryðjuveður var og þungt færi
en þrátt fyrir það voru efra um
400 manns og tóku öll íþróttafé-
lög bæjarins þátt í mótinu.
í göngunni var kept um bikar,
sem Smári hafði gefið og hlaut
K. R. bikarinn.
Fyrstir urðu: Björn Blöndal., K.
R. 1 klst. 41 min 7 sek, Gunnar
Johnson K. R. 1,44,09, Georg
Ludvigsson K. R. 1,44,52.
Aðeins þrjár stúlkur keptu í
svigi kvenna. Fyrst varð Vilborg
Hjaltested, Skiðafélagi Reykjavík-
ur, 65,6 sek, önnur Gerður Þór-
arinsdóttir 67,3 sek. og þriðja
Kristín Pálsdóttir K. R. 101,2 sek.
Hjilp handa Chile.
Ailsherjat samskot
Rauða krossins.
Frá Rauða krossí íslands heflr
Alþýðublaðið fengið eftirfarandí,
Hinn 25. janúar s. 1. urðu í
Chile í Suðurameríku einhverjir.
hinlr ægilegustu jarðskjálftar sem
sögur fara af. Heilar borgir lögð-
í rústir og talið er að 30 þúsund
manns hafi látið lífið en um 50
þúsund manns orðið algerlega
heimilislausir. Ástand fólksins er
hörmulegt i þeim borgum, sem
mest afhroð hafa goldið í jarð-
skjálftunum. Alt viðskiftalif þar
hefir stöðvast og íbúarnir standa
uppi heimilislausir, matarlausir
og klæðlitlir og margir þeirra
sjúkir og særðir.
Rauða kross félög um aliari
heim hafa hafizt handa til að-
stoðar hinu bágstadda fóiki,
Rauði kross Islands hefir ákveð-
ið að beita sér fyrir samskotum,
jþótt í smáum stíl verði, til þess
að sýna samúð íslendinga þeirri
þjóð, sem orðið hefir fyrir hinni
miklu ögæfu, sem nú er kunn
vegna jarðskjálfta. islendingar
minnast sjáifir þeirra hörmunga,
sem þeir hafa orðið fyrir af um-
brotum náttúrunnar og munu
því flestum betur geta sett sig
Frh. á 4. síðn.