Alþýðublaðið - 17.03.1939, Side 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALÐEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
FÖSTUDAGINN 17. MARZ 1939
44. TÖLUBLAÐ
Deilur miUi mflrara
og trésmlða hafnar
AUsherjar atkvæðagreiðsla
iihjá trésmíðam um verkfall
gegn múrurum.
ALLHÖRÐ DEILA er
komin upp milli
Múrarameistarafélags
Reykjavíkur annarsvegar
og Trésmiðafélags Reykja-
víkur. Leiddi þessi deila
til þess, að múrarar neita
að vinna við hús, sem tré-
smiðir hafa tekið að sér og
stjórn Dagsbrúnar hefir
hlaupið til og gert verkfall
með múrurunum, vegna
samnings, sem Dagsbrún
hefir við þá. Trésmiðafé-
lagið hélt fund í gær og
ákvað að láta fara fram
allsher j aratkvæðagreiðslu
um það, hvort trésmiðir
skuli gera verkfall gegn
Múrarameista^rafélagmu.
Er sú atkvæðagreiðsla
hafin og verður ekki lok-
ið fyr en á sunnudag.
Ný of beldisverk f aðslgl:
Rððln komin að Danzig.
Slóvakla var innlimuð I
I gœr eftlr |>rlgg|a daga
Þýzkaland
sjálðstæði!
Arshátfð AIMðnfl.-
félags Reykjavíknr
annað_kvðld.
A RSHÁTIÐ Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur verður
annað kvöld I Iðnó og hefst með
samsæti kl. 8.
Verður þetta afarfjölbreytt
skemtun og vel til hennar vandað
í alla staði. Verða ræðuhöld og
syngur kór félagsins milli ræðn-
anna. Finnur Jönsson flytur
minni félagsins; flutt verður á-
varp frá forseta Alþýðusambands
íslands og formönnum Alþýðu-
flokksfélaga í Reykjavík og
Hafnarfirði; frú Soffía Ingvars-
dóttir les upp, sjónleikur verður
sýndur og að lokum danzað.
Allir félagar ættu að mæta á
þessari ágætu skemtun.
f DA6.
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
OTVARPIÐ:
20.15 Útvarpssagan.
20,45 Hljómplötur: Norskir pjóð-
danzar.
21,00 Bindindisþáttur (Guðj. Ben.
múrari).
21,20 Otvarpstríóið leikur.
21,40 Hljómplötur: Harmónikul.
22,00 Fréttaágrip.
22.15 Dagskrárlok.
Munið
merkjasölu kvennadeildar Slysa-
varnafélagsins á morgun og send-
ið sölubörnin tímanlega á s'krif-
stofu félagsins eftir merkjunum.
Komið svo á danz- og söng-
skemtunina á Hótel Island i
kvöld og takið kunningjana með.
Rakarameistarafélag Reykjavíkur
auglýsir verðskrárbreytingu í
þlaðinu í dag.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.4
T VIÐBÓT við tékknesku héruðin Bæheim og Mahren
■A hefir Hitler nú einnig innlimað Slóvakíu í Þýzkaland,
eftir að Tisso, sem kjörinn var forsætisráðherra Slóvaka
um leið og landið lýsti yfir sjálfstæði sínu í Bratislava á
þriðjudaginn, hafði í gær verið kúgaður til þess að leggja
landið undir vernd Hitlers á sama hátt og Hacha, forseti
Tékkóslóvakíu, tékknesku héruðin aðfaranótt miðviku-
dagsins.
Flæðir þýzki herinn nú yfir Slóvakíu og er búist við,
að Hitler komi á eftir honum til Bratislava í dag.
Þetta nýja ofbeldisverk hefir vakið mikinn óhug um
alla Evrópu, og þó ekki sízt á Póllandi, sem eftir innlimun
Slóvakíu er orðið umkringt af Þýzkalandi einnig að sunn-
an, eða á þrjá vegu, eins og Tékkóslóvakía eftir innlimun
Austurríkis.
Stjórnmálamenn um alla Evrópu eru við því búnir,
að ný ofbeldisverk fari á eftir þessum viðburðum jafnvel
allra næstu daga. Sterkur orðrómur gengur þegar um það,
að þýzka stjórnin sé ráðin í því að nota sér glundroðann
til þess að innlima Danzig fyrirvaralaust í Þýzkaland, og
er þegar altalað, að þess sé að vænta áður en vika er liðin.
Það væri ekki aðeins nýtt brot á Versalafriðarsamn-
ingunum, heldur og hið alvarlegasta áfall fyrir Pólland,
sem myndi skoða innlimun borgarinnar sem fyrsta skrefið
til að taka af því pólska hliðið í Vestur-Prússlandi norður
að Eystrasalti og þar með allan aðgang yfirleitt að sjó.
Júgoslavia næsta takmark-
íð í Suðaustur-Evrópu?
Hin fræga franska hlaða-
kona Madame Tabouis skrifaði
í gær í Parísarblaðið „L’
Oeuvre“ langa grein tun fyrir-
ætlanir Hitlers, sem vekur
mikla eftirtekt.
Hún heldur því fram, að
næstu árásarfyrirætlanir hans í
Suðaustur-Evrópu beinist ekki
fyrst og fremst gegn Rúmeniu,
eins og álitið hefir verið, held-
ur gegn Júgóslavíu, en þar með
væri ftalíu lokuð landleiðin yfir
á Balkanskaga, sem Mussolini
hefir lagt mikla áherzlu á að
halda sér opinni, og Ungverja-
land umkringt af Þýzkalandi á
þrjá vegu og nauðugur einn
kostur að beygja sig fyrir vald-
boði þess.
Því næst sé það áform Hitlers
að kynda undir þjóðernisríginn
milli Flæmingja og Vallóna í
Belgíu til þess að kúga Belgíu
til að láta af hendi að minsta
kosti nokkurn hluta af Kongo í
Afríku, sem nú er belgisk ný-
lenda. En undanfarið hefir ó-
samkomulagið milli Flæmingja
og Vallóna í Bélgíu farið! í
skyggilega vaxandi, sennilega
ekki án tilverknaðar þýzkra
nazista, og varð fyrir skömmu
síðan stjórn Spaaks þar að falli.
Frakkland hýst við
drslitakostnm.
í dag hefjast umræður um
utanríkismálin í franska þing-
Csaky greifi utanríkisráðherra
Ungverja.
inu, og er búizt við hörðum á-
rásum á pólitík Bonnet utan-
ríkisráðherra Daladiers. Eru
þeir báðir, og þó sérstaklega
Bonnet, í frönsku blöðunum
sakaðir um frámunalega trú-
girni gagnvart yfirlýsingum og
loforðum Hitlers.
Sú skoðun er nú mjög út-
breidd meðal franskra stjórn-
málamanna, að þess sé aðeins
skammt að bíða, að Ítalía muni
með stuðningi Þýzkalands inn-
an skamms senda Frakklandi
kröfur sínar til landa á þess
kostnað sem úrslitakosti.
Þjóðv erjar á leið
til landsins.
Vil]a fá lendlngarstaði
fyrir flngvélar sinar og
ætla aðrannsaka „hreyf-
ingn“ landsins.
ÞJÓÐVERJAR virðast hafa
allmikinn áhuga fyrir Islandi
og íslenzkum málum.
Með Aléxandrínii drottningu,
sem lagði af stað frá Kaup-
mannahöfn í gær, kváðu vera
nokkrir þýzkir vísindamenn og
fulltrúar frá þýzka flugfélaginu
Luft-Hansa.
Ætla peir að gera hér á landi
vísindalegar rannsóknir. Um för
fulltrúanna frá Luft-Hansa er svo
frá skýrt, að peir muni ætla að
semja við islenzk stjórnarvöld
um leyfi til pess að hafa lend-
ingarstaði á íslandi á flugleiðinni
milli Þýzkalands og Ameríku, Er
í pví sambandi talað um tilrauna-
flug á komandi sumri milli LQ-
bech og Reykjavíkur. Um för
hinna pýzku vísindamanna segir,
að peir taki pátt í alþjóðlegum
rannsóknum og muni leitast við
að fá staðfestingu á kenningu Al-
fred Wegeners um pað, að meg-
inlöndin færist til frá austri til
vesturs.
Þá hafa komið fregnir um pað,
að þýzka herskipið Emden, sem
áður hefir komið hingað, muni
koma hingað í pessum mánuði
og dvelja hér alllengi. Er sagt,
að pað eigi áð hafa eftirlit með
pýzkum veiðiskipum hér við
land.
Fyrir rúmum hálfum mánuði kom Ciano greifi utanríkis-
ráðherra Mussolinis í heimsókn til Póllands. Nú reynir á hver
stuðningur Pólverjum er í vináttu hans. Myndin sýnir Ci-
ano greifa og Beck utanríkisráðherra Pólverja í Varsjá.
Samkomulagið við Norð-
menn gefur heimild til auk-
innar kjotsölu við Noreg.
Ýmsar breytingar á aðstilðu Norð
manna tll sfildveiða bér vfið land
SAMKOMULAGIÐ milli
Noregs og íslaifds um
verzlunarviðskifti milli land
anna var birt í gær.
Var að þessu samkomulagi
unnið af fulltrúum beggja
þjóða, fyrst í Noregi og síðar
hér heima.
Það fjallar aðallega um
innflutning á söltuðu ís-
lenzku kindakjöti til Noregs
og aðstöðu Norðmanna til
síldveiða hér við land.
Heimild okkar til útflutn-
ings á kindakjötinu til Nor-
egs hefir verið hækkuð um
2000 tunnur, úr 6000 tunn-
um upp í 8000 tunnur. Um
þetta segir m. a. í samkomu-
laginu:
„að heimilt skuli að flytja
inn til Noregs beint frá íslandi
8000 tunnur á 112 kg. nettó,
eða alls 896 tonn, af söltuðu
kindalcjöti á ári. Þar af 6000
tunnur á tímabilinu .20. okt. til
Ungverski herinn hnminn
tU pðlskn landamæranna!
-----«.--
Stjórn Ruthenín flúin tii Rúmeníu.
LONDON í morgun. FÚ.
PÓLSKUR OG UNG-
VERSKUR HER hafa
nú mætzt á pólsku landa-
mærunum, og heilsuðust
herirnir með vinsemd.
Utanríkismálaráðherra
Ungverja, Csaky, hefir lýst
yfir því, að með hertöku
Rutheníu ætli Ungverjaland
ekki að vinna neinu ná-
grannaríki tjón. Rúmenska
stjórnin hefir lokað landa-
mærum sínum fyrir flótta-
mönnum þaðan.
Augustin Volosin, forsætisráð-
Kerra Rútheníu, sem nú er stadd-
ur í Rúmeniu, hefir ákallað ýmsa
til hjálpar sér. Þýzkaland og Rú-
menía hafa bæði neitað að verða
við þeirri hjálparbeiðni.
1 Prag hafa vélbyssur verið
settar upp á öllum götum með
fárra metra millibili, og er her-
vörður hafður við allar brýr.
Þýzka leynilögreglan á nú
mjög annríkt og hefir tekið fast-
an mikinn fjölda manna. Einn
fréttaritari segir, að svo að segja
hver maður eigi einhvern kunn-
ingja ,sem hefir horfið. Ögern-
ingur er að komast úr landinu
vegna hins sterka hervarðar við
landamærin, og allar flugferðir
eru bannaðar.
31. des., en eftirstöðvarnar á
tímabilinu 1. jan. til 30. júní.
Ef innflutningsskamturinn fyr-
ir tímabilið 20. okt. til 31. des.
notast ekki að fullu, skal það,
sem á hann skortir, alt að 1000
tunnum, flytjast yfir á tíma-
bilið 1. jan. til 31. júní.“
Þá hefir sú breyting verið
gerð frá norsku samningunum,
að „norsku síldarverksmiðj-
unni í Krossanesi leyfist að
halda áfram rekstri, með við-
haldi og nauðsynlegum endur-
nýjungum, sem ekki hafa í för
með sér aukningu á núverandi
afköstum hennar, sem eru um
4000 mál á sólarhring“.
En þegar norsku samning-
arnir voru gerðir, voru 2 norsk-
ar síldarverksmiðjur hér.
Um þetta segir enn fremur í
2. grein samkomulagsins:
„Fyrgreindri norskri síldar-
verksmiðju er heimilt að afla
60% af hráefnisnotkun sinni á
vinslutímanum með kaupum á
nýrri bræðslusíld af norskum
síldveiðiskipum.
Annars er norskum síldveiði-
skipum leyft að selja ísl. síldar-
verksmiðjum nýja bræðslusíld,
er nemi 400 málum fyrir rek-
netaskip og 600 málum fyrir
herpinótaskip, og íslenzkum
saltendum 100 tn. af nýrri síld
af hverju skipi, í samræmi við
gildandi ísl. lög um síldarútvegs
nefnd. Að því er viðkemur sölu
til saltenda, er það þó skilyrði,
að skip það, er um er að ræða,
afhendi ekki síld til söltunar i
móðurskip eða annað erlent
skip. í „norsku samningun-
um“ var ekkert ákveðið um
það, hve mikið norsk síldveiði-
skip gætu selt íslenzkum síld*
arverksmiðjum. Um sölu Norð»
manna til saltenda var þá á-
kveðið að norskum fiskiskip-
um, sem ekki afhentu síld til
söltunar í móðurskip, skyldi
heimilt að selja í land um 500
tunnur af reknetaskipi og 700
tn. af herpinótaskipi.