Alþýðublaðið - 20.03.1939, Blaðsíða 1
AðalVundur
Alpýðuflokksfé-'
lagsinsf IÐNÖÍ
kvöld kl. 8,30.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. Argangur
MÁNUDAGINN 20. MARZ 1939.
66. TÖLUBLAÐ
Monið aðalfnnd
Alþýð nflobksf élags-
ins í kvðld.
NÝTT BLAÐs
Sjóiaðiiriiin.
F]Sldi ðgætra greina um
lil og starf sjómanna,
prýtt fjðlda mynda.
O JÓMAÐURINN heitir nýtt
^ blað eða tímarit, sem kom
út í dag. Er það gefið út af
Stýrimannafélagi fslands; ábyrgð-
armaður er formaður félagsins,
Jón Axel Pétursson, en að öðru
leyti sér ritnefnd úr félaginu um
útgáfuna.
Ritið er hið myndariegasta í
alla staði. Pað flytur fjölda
greina um líf og starf sjómanna
og mikinn. fjölda af myndum af
sögulegum skipurn, sjómyndir,
teknar af sjómönnum sjálfum,
og fleira. Annars er efni ritsins
þetta: Ávarpsorð, Frækileg sigl-
ing hraðskreiðasta seglskips ís-
lendinga með mynd, eftir Bjarna
Kristjánsson skipstjóra, Belgiska
skólaskipið Mercator, ferðir þess
og starfsemi, með þremur mynd-
um eftir Jón Axel Pétursson,
Hvað eru brúttó registertonn?,
Eitt dægur við gæzlustarf við
Vestmannaeyjar með mynd, eftir
Guðbjörn Bjarnason stýrimann,
Fyrsta og eina barkskipi Islend-
inga siglt heim, með mynd eftir
Einar Jónsson hafnsögumann,
Neyðarkallið, Hjálpið mér, frá-
saga af sjóslysi, þýtt af Pétri
Bjarnasyni stýrimanni, Um vita-
málin með mynd eftir Emil Jóns-
son vitamálastjóra, Ungur Iandi
og félagi erlendis, með mynd
eftir Jón Axel Pétursson, Hálf
Óld síðan fyrsti stóri kútterinn
kom til Reykjavíkur, með mynd,
Hið nýja skip Skipaútgerðar rík-
isins, lýsing af því og mynd,
Eimskipafélag íslands 25 ára,
með lýsingu og mynd af hinu
nýja skipi félagsins, Stýrimanna-
félag Islands, Nokkrir drættir úr
20 ára sögu þess, Viðtal við
fyrsta formann félagsins, Jón Er-
lendsson, Innan borðs og utan,
Frh. á 4. síðu.
Sendiherrar Breta og Frakka 1 Berlín og Djóð-
verja i London hafa verið kaiiaðír heim!
---*---
Bretland, Frakkland, Bandarfkin og Sovét-Bdssland
nelta ðll að viðurkenna innlimun Tékkóslóvakfn.
¥ arnarbandalag mllll Bretlands, Frakk«
lands og Sovét-Rússlands í aðslgl ?
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. K.höfn í morgun.
C T J ÓRNMÁLAS AMB ANDIÐ milli Bretlands og
^ Þýzkalands og Frakklands og Þýzkalands hefir nú að
minnsta kosti í bili verið raunverulega rofið með því, að
sendiherrar Breta og Frakka í Berlín og sendiherra Þjóð-
verja í London hafa verið kallaðir heim. í orði kveðnu eiga
þeir allir að koma heim til að gefa skýrslur, — en engin
yfirlýsing liggur fyrir um það, að þeir muni ekki snúa aft-
ur, en það er þó stórlega dregið í efa, að úr því verði.
Sendiherra Þjóðverja í London ætlaði áður en hann fór
af stað, að afhenda Lord Halifax utanríkisráðherra Breta
mótmæli þýzku stjórnarinnar gegn þeim ummælum Duff
Coopers fyrrverandi flotamálaráðherra, í neðri málstofu
enska þingsins á föstudaginn, að Hitler væri þrefaldur
meinsærismaður og svikari, en Lord Halifax neitaði að veita
þessum mótmælum viðtöku.
Stjórnir Bretlands, Frakklands, Bandaríkjanna og Sov-
ét-Rússlands hafa síðan á laugardaginn haft náið samband
sín í milli um alt það, sem gert hefir verið, og það er talið
iíklegt, að Bretland, Frakkland og Sovét-Rússland geri með
sér formlegt varnarbandalag gegn yfirgangi Þýzklands inn-
an skamms.
Bandaríkjastjórnin hefir þegar tilkynt, að hún muni
leggja fyrir þingið í Washington tillögu um afnám hlutleys-
islaganna til þess að Bretland og Frakkland geti Heypt bæði
vopn og vistir í Ameríku, ef til ófriðar kemur.
Bretland og Bandaríkin hafa einnig komið sér saman
um það, að neita að láta af hendi það gull eða greiða þær
innieignir, sem Tékkóslóvakía átti í þessum löndum. Það er
fcalið, að Þýzkaland tapi þar með um helmingi þeirrar fjár-
upphæðar, sem það gerði ráð fyrir að fá við innlimun lands-
ms.
Trésmlðlr samþykktu
verkfall gegn múrurum
með 318 atkv. gegn 4.
VerkfalUO hefst aðlviku llðlnni,
ef sœftlr hafa pá ekki tekist.
-------«------
A LLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLUNNI innan Tré-
***• smiðafélags Reykjavíkur lauk í gær og voru atkvæði
talin klukkan 5.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var geysilega mikil. Alls
neyttu atkvæðisréttar síns 324 félagar af 350 félögum, sem
eru í bænum. Atkvæðagreiðslan fór þannig, að 318 sögðu
já við tillögunni um að hefja vinnustöðvun gegn Múrara-
meistarafélagi Reykjavíkur, en 4 voru á móti, 1 seðill auður
og 1 ógildur.
Stjórn TrésmiÓafélagsins til-
kynnir í dag sáttasemjara og
Múrarameistarafélaginu úrslit at-
kvæöagreiðslunnar og þar með á-
kvörðun félagsins, og ef málið
verður ekki leyst á friðsamlegan
hátt að 7 dögum liðnum, en sá
frestur er ákveðinn fyrir vinnu-
stöðvun sarnkvæmt vinnulöggjöf-
inni, hefst vinnustöðvunin.
* Brezka og franska stjórnin
tilkyntú þýzku stjórninni
seinnipartinn á laugardaginn,
áður en sendiherrar þeirra fóru
frá Berlín, að þær skoðuðu
innlimun Tékkóslóvakíu sem
algert brot á Miinchensáttmál-
anum og þar af leiðandi sem ó-
löglega ráðstöfun, sem þær
myndu ekki viðurkenna.
Sovétstjórnin fór að dæmi
þeirra í gær og lét sendiherra
sinn í Berlín afhenda þýzku
stjórninni harðorða yfirlýsingu,
undirskrifaða af Litvinov, þess
Á Iaugardag fékk Alpýðublaðið
svo hljóðandi athugasemd frá
Sambandi meistara í byggingar-
iðnaði:
„Þessa dagana stendur yfir at-
kvæðagreiðsla í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur um það, hvort tré-
smiðir skuli gera verkfall hjá
múrarameisturum vegna sam-
Frh. á 4. sfðu.
Lord Halifax utanríkisráðherra
Breta.
Dircksen sendiherra Þjóðverja
í London.
Aðalfnndur Alþýðu
flokksfélagsim
i kvðld.
Aaðalfundi Al-
þýðuflokksfélagsins
í kvöld syngur söngflokk-
ur félagsins nokkur lög.
Þar verða einnig sýndir
kaflar úr kvikmyndinni:
„í sveita þíns andlitis,“
sem er lýsing af lífi
norskra fiskimanna.
Aðalfundurinn verður í
Iðnó og hefst kl. 8M>. Er
skorað á alla félaga að
fjölmenna á fundinn.
Forseti hollenzka
flngféiagsins ferst
við f lngslys f Amerfkn
LONDON í gærkveldi. FÚ.
FARÞEGAFLUGVÉL á til*
raunaflugi féll til jarðar
í gær yfir Seattle í Bandarfkj-
unum, og fórust 10 manns.
Meðal þeirra, sem fórust, var
forseti hins konunglega flug-
félags Hollands.
Ármenningar.
Frjáls-íþróttamenn! Æfing í is-
húsinu við slökkvistöðina i kvöld
kl. 9. Fjölmennið!
Henderson sendiherra Breta í
Berlín,
efnis, að hún neitaði algerlega4
að viðurkenna þær breytingar,
sem þýzka stjórnin hefði með
hervaldi gert á réttarstÖðu
Tékkóslóvakíu.
Það vekur nokkra eftirtekt,
að sovétstjórnin fer í þessari
yfirlýsingu til þýzku stjórnar-
innar einnig hörðum orðum um
það, að Ungverjaland skuli hafa
lagt undir sig Rutheníu, og
kveðst ekki geta látið sér á
sama standa um það, en þess er
að gæta í því $ambandi, að
Sovét-Rússland sleit fyrir
nokkru síðan öllu stjórnmála-
samhandi við Ungverjaland og
hefir því engin sambönd við
ungversku stjórnina.
Sendiherra Rússa í Berlín
heldur enn kyrru fyrir þar og
er ekki kunnugt, að hann hafi
verið kallaður heim enn sem
komið er.
Það er búizt við, að Banda-
ríkjastjórnin muni senda þýzku
stjórninni samskonar yfirlýs-
ingu og Bretland, Frakkland og
Sovét-Rússland. En því hefir
þegar verið lýst yfir opinber-
lega af utanríkismálaráðuneyt-
inu í Washington, að Bandarík-
in muni ekki undir neinum
kringumstæðum viðurkenna
innlimun Tékkóslóvakíu.
Stöðugir ráðuneytisfundir
voru haldnir í London í gær og
verður þeim haldið áfram fyrri-
partinn í dag, en seinniparinn
er gert ráð fyrir, að fundur verði
haldinn í neðri málstofu enska
þingsins, og er búizt við, að
Chamberlain muni þá gefa op-
inbera yfirlýsingu um ástandið.
M.-A.-kvartettinn
syngur í næst siðasta sinn á
fimtudag.
Stöðugar handtökur fara
fram i Tékkóslóvakíu.
--------«------
Tékkar kúgaðir til þess að vera við-
staddir við hersýningar Þjóðverja.
LONDON í morgun. FÚ. 4
"C* REGNIR koma frá Prag
um áframhaldandi hand-
tökur, og hafa nú verið teknar
höndum margar þúsundir
manna, einkum flóttamenn frá
Austurríki og Súdetahéruðun-
um, sem eru andstæðingar naz-
ista, auk fjölda tékkneskra
stjórnmálamanna og blaða-
manna. Meðal þeirra er for-
stöðumaður pólsku fréttastof-
unnar og Jan de Kotsak pró-
fessor, kennari í heimspeki við
háskólann í Prag.
Miklar ógnir eru nú sagðar
ganga yfir Gyðinga í Tékkósló-
vakíu.
Frá því er skýrt í morgun, að
tékknesku ráðherrunum hafi ver-
ið skipað að vera viðstaddir her-
sýningu þá hina þýzku, er fram
fór í PrS(g í gær, og að þeir hafi
staðið ásamt yfirmönnum hersins
á kveðjupallinum. í annari fregn
segir, að hinir tékknesku ibúar
borgarinnar hafi dregið niður
hina tékknesku fána, sem þeim
hafði verið skipað að draga að
húni, þegar hersveitirnar fóru
fram hjá.
Komið hefir verið á fullkom-
inni ritskoðun að þvi er snertir
efni dagblaðanna í Tékkóslóva-
kíu.
Rúmenía sendir 90—100 þúsund
manna liðsauka til landamæra
Frh. á 4. síðu.
Noregnr vill hvorki
vernd Bngianðs né
annara.
Vtirlýsing Hambro forseta
norska stórpingsins.
'UT AMBRO, forseti norska stór-
•■■A þingsins, kefir, vegna um-
mæla, er fallið hafa i neðri máls-
stofu brezka þingsins um að Eng-
land ætti að aðstoða hin norrænu
smáriki, látið í Ijósi opinberlega,
að hann mæti mikils góðvilja
þann, er fram kæmi í þessum
ummælum, en Noregur hafi ekki
óskað eftir hernaðarlegri vernd,
hvorki einstakra ríkja eða rikja-
sambanda.
Hann kvað það vera skoðun
sína, að vernd stðrvelda tií handa
smáþjóðum hefði oft reynst litils
virði og minni á hinum allra síð*
ustu tímum en nokkru sinni fyr.
Hlutleysi, sem aðeins nýtur ein-
hliða ábyrgðar, er ekki hlutleysi,
sagði Hambro. Noregur verður
að verja sig sjálfur, bæði með
pólitískri framkomu sinni og
auknum landvörnum. FÚ.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í kvöld
kl. 8Vs í Alþýðuhúsinu Iðnó, í