Alþýðublaðið - 20.03.1939, Blaðsíða 4
MANUDAGINN 20. MABZ 1939.
■GAMLA Blð
Broadwají Nelody
1938
Bráðskemtileg og skraut-
leg amerísk dans- og
söngvamynd frá Metro
Goldwyn Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
Robert Taylor og
Eleanor Powell.
NÝTT BLAÐ.
Frh. af 1. síðu.
greinaflokkur með ýmsum fróð-
leik, sjómannafréttum o. s. frv.
Auk þessa eru í ritinu ýmsar
töflur um skip og annar fróðleik-
ur fyrir sjófarendur, kvæði o. fl.
Forsíðan er prýdd tveimur mynd-
um, stórfenglegum og undurfögr-
um.
. Blaðið er selt á götunums1 í dag.
Annars fæst það í bókaverzlun-
um, en aðalútsalan er í bóka-
verzluninni á Laugavegi 18. Það
er mjög fróðlegt og skemtilegt
og öllum sjómönnum ómissandi.
Aðalfundur
Bygglngasamvinniifélagið ,Félagsgarður4
heldur aðalfund sinn að Hótel Borg fimtud.
23 fi. m. kl. 8,30 síðd.
Venjuleg aðalfundastðrf. Mcetið stundvlslega
Stjórnin
MÞYBUMIÐIi
Í; REYKJAVÍK
IÉg undirritaður óska að gerast kaupandi
ALDÝBUBL4BSINS HEfi SUNNUDAOSBLABI
i; Nafn .............................
ji Heimili ..........................
i; Staða ............................
Má láta
í póst ó-
frímerkt
Nýir kaupendur
fc,.., fá Alþýðublaðið ókeypis til næstu mánaðamóta.
t Hringið í síma 4906 eða 4900 eða útfyllið
* áskriftarmiðann, sem er í blaðinu og setjið
hann í póst eða sendið hann á afgreiðslu blaðs-
ins. — GERIÐ ÞAÐ STRAX í DAG!
ÁRSHÁTÍÐ ALÞÝÐU-
FLOKK SFÉL AGSIN S.
Frh. af 3. síðu.
félagsins, blandaður kór 35 fé-
laga undir stjórn Ólafs Mark-
ússonar kennara og vakti hrifn-
ingu og aðdáun. Söng kórinn
mörg lög, og leikflokkur undir
stjórn Helga Guðmundssonar
verkamanns, sem sýndi bráð-
skemtilegan gamanleik. Auk
þessa söng allur mannfjöldinn
hvað eftir annað mörg gleðilög.
Hinni venjulegu skemtiskrá var
lokið kl. rúmlega 12. Hófst þá
dans fyrir hina yngri, en hinir
eldri settust upp í veitingasal
og í hliðarherbergin og spiluðu.
Aðalfundur félagsins er í kvöld
1 alþýðuhúsinu Iðnó niðri. Þar
fer fram stjórnarkosning og
önnur aðalfundarstörf.
TRÉSMIÐIR OG MÚRARAR.
Frh. af 1. síðu.
þyktar, er múrarameistarar hafa
gert með sér um að vinna eftir
gildandi ákvæðisvinnuverðtaxta
sínum, samkvæmt þeim reglum,
sem um það eru settar í starfs-
reglugerð félagsins. Ákvæðis-
vinnutaxtinn nær aSeins til
þeirra verka í byggingum, er
heyra til múraraiðninni. Líta
múrarameistarar því svo á, að
þeir hafi fulla heimild til að
skapa sér sínar starfsreglur, er
aðeins snerta þeirra eigin iðn.
Þessu hyggjast trésmiðir að mót-
mæla með verkfalli.
Það er því mishermi hjá blað-
inu i gær, að múrarar neiti að
vinna við hús, sem trésmiðir hafa
yfirumsjón með. Múrarameistarar
eru reiðubúnir til að vinna hjá
hverjum sem vera skal, en á-
TÉKKÓSLÓVAKÍA.
Frh. af 1. síðu.
Rutheníu og Ungverjalands. I Bu-
karest er lýst yfir því, að engin
allsherjarhervæðing hafi farið
^ram í Rúmeníu, en hins vegar
hafi verið kallaður undir vopn
mikill fjöldi manna á aldrinum
24 og 25 ára.
Póllandsforseti lét í gær svo
ummælt,:
„Vér höfum skapað frjálst og
óháð Pólland, og vér munum
halda áfram að vera óháðir og
treysta sjálfum oss einum. Vér
munum ekki leggja framtíð vora
á vald neins verndara."
Benes hvetur lýðræðis-
rikin til aS vera viðbðin.
Benes, fyrverandi forseti Tékkó-
slóvakíu, hélt í gæ!r í Chicago út-
varpsræðu, sem endurvarpað var
til lýðræðislandanna, þar sem
hann hvetur þessi lönd til að
búast sem bezt undir það, að ö-
friður kunni að brjótast út. Hann
sagði, að sjálfstæði Tékkóslóva-
kíu væri ekki enn endanlega
brotið á bak aftur. Hann kvað
það hafa sýnt sig í mannkyns-
sögunni, að hið ruddalega ofbeldi
hafi altaf hrunið eftir slíkar
‘grimmilegar misbeitingar valds-
ins.
Farfuglafund
hefir U. M. F. Velvakandi í
Kaupþingssalnum á þriðjudags-
kvöld kl. 9.
skilja sér rétt til að hlíta settum
starfsreglum."
AlÞtiOBlUIIB
Arpentinufeeppnin:
Urslitin
nálgast*
A UKAUMFERÐ í Argen-
tínukeppninni var
tefld í gærdag, vegna þess
hve margar skákir voru ó-
tefldar frá fyrri umferðum.
Leikar milli einstakra
manna fóru sem hér segir:
Ásmundur Ásgeirsson vann
Eggert Gilfer, Baldur Möller og
Einar Þorvaldsson gerðu jafn-
tefli, biðskák varð milli Stein-
gríms Guðmundssonar og Ólafs
Kristmundssonar.
Ásmundur hafði svart gegn
Gilfer og lék slavneska vörn,
sem breyttist svo í Griinfelds-
vörn með frábrugðinni leikja-
röð. Gilfer fékk óvenjulega
þröngt tafl á hvítt og átti mjög
í vök að verjast vegna þess að
mennirnir drottningarmegin
voru heima og ekki svo auðvelt
að fá þá í spil nema á kostnað
stöðunnar. Gilfer lenti í mikilli
tímaþröng, sem vitanlega hafði
sín áhrif á seinni hluta skákar-
innar. Staða svarts var mjög
sterk og ógnandi, þar eð hann
réði yfir öllum línum. Gilfer
gaf í 30. leik, því manntap var
þá greinilegt og óumflýjanlegt.
Ólafur lék á svart gegn Stein-
grími og tefldi Cambridge-
springsvörnina gegn drottning-
arbragði og fékk gott tafl eftir
byrjunina. Framan af var stað-
an jöfn hjá báðum, en Ólafur
náði peði á mjög laglegan hátt
og hélt því. Þegar skákin fór í
bið, var hún komin út í enda-
tafl. Álitið er að erfitt sé fyrir
Ólaf að vinna á peðið vegna
þess að Steingrímur á tvo ridd-
ara og Ólafur riddara og bisk
up og ekki svo þægilegt að ná
uppskiftunum, þar eð skákin er
að öðru leyti steindautt jafn-
tefli.
Einar hafði svart gegn Baldri
og tefldi orthodoxa vörn gegn
drottningarbragði. Um tíma
virtist skákin ætla að verða
mjög fjörug, en þá urðu mjög
mikil mannauppskifti, en stað-
an að öðru leyti mjög svipuð
hjá báðum. Þeir sömdu því um
frið samstundis.
Biðskák þeirra Gilfers og
Einars fór þannig, að Einar
vann. Biðskák þeirra Stein-
gríms og Einars varð jafntefli.
Vinningar standa því þann-
ig: Ásmundur 3 v., 1 ótefld.
Baldur 2Vz v. Einar, Stein-
grímur og Sturla 2 v. -Stein-
grímur á biðskák. Sturla 1 ó-
tefld við Ásmund, Einar á bið-
skák.) Gilfer 1 v. Ólafur Vi v.
2 biðskákir. Sæmundur 0.
Biðskákir verða tefldar í
kvöld. Næsta umferð verður
tefld á miðvikudg.
Stjórnarkosningu
í Stýrimannafélagi Islands er
nýlokið. Skýrir blað félagsins,
sem út kom í dag, Sjómaðurinn,
frá úrslitunum. Stjórnarkosningin
fór þannig: Jón Axel Pétursson
formaður, Valdimar Stefánsson
varaformaður, Kristján Aðal-
steinsson ritari Sigurður Gísla-
son gjaldkeri og Stefán Dagfinns-
son meðstjórnandi. Endurskoð-
endur voru kosnir Sigmundur
Sigmundsson og Sigurður Jóns-
son. Á fundi þeim, sem þessi úr-
slit voru tilkynt, var stjórninni
falið að fara með samninga við
Eimskipafélagið og taka félaga
sér til aðstoðar, ef hún teldi þörf
á því.
f DAG.
Næturlæknir er í nótt Berg-
sveinn ólafsson, Hávallagötu 47,
sími 4985.
Næturvörður er í Iðunni og
Reykjavíkur apóteki.
OTVARPIÐ:
18.15 tslenzkukensla.
18,45 Þýzkukensla.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.35 Skíðamínútur.
19,50 Fréttir.
20.15 Um daginn og veginn.
20.35 Hljómplötur: Vínarvalsar.
21,00 Húsmæðratími: Umgengni
á heimilum, II. (frú Guð-
björg Birkis).
21.20 Útvarpshljómsveitin leikur
alþýðulög.
Innanfélagskeppni í svigi
héldu Ármenningar í Jósefsdal
í gær. Þátttakendur voru 16. —
Brautarlengdin var um 400 metr-
ar og kept í tveim umferðum.
Fyrstur varð Stefán Stefánsson
'á 2 mín. 4,7 sek. samanl, 2. Karl
Sveinsson 2 mín. 11,7 sek. 3.
Eyjólfur Einarsson 2 mín. 11,9
sek. Enn fremur fór fram stökk-
keppni, 5 þátttakendur. Þar varð
hlutskarpastur Ármann Sveins-
son.
Maður drukknar af vélbát.
Það slys varð síðast liðinn
fimtudag á vélbátnum Dagstjörn-
unni frá ísafirði, að maður, að
nafni Herbert Kristjánsson, féll
útbyrðis og drukknaði. — Skipið
var í fiskiróðri, er slysið varð.
Reið alda undir það, en Herbert
heitinn, sem var á leið fram eftir
þilfarinu, náði taki á stýrishús-
inu. Handfestin sveik, og fór
hann þá útbyrðis. Herbert var
nálægt tvítugu, ókvæntur og bjó
hjá foreldrum sínum á ísafirði.
Eldsvoði á Isafirði.
Síðast liðinn miðvikudag varð
eldur laus í húsinu við Aðal-
stræti 21 á ísafirði. Slökkviliðið
var þegar kvatt á vettvang, og.
tókst brátt að slökkva eldinn.
Skemdir urðu þó talsverðar á
húsinu af eldi og vatni. Einnig
skemdust talsvert innanstokks-
rounir og fatnaður, hvorttveggja
óvátrygt. Eldsupptök voru þau,
að þriggja ára barn ,er var eitt
í herbergi, hafði náð í eldspýtur.
Kviknaði fyrst í barnaleikföngum
úr celluloid. — Húsið var eign
Páls Einarssonar raflagnaeftirlits-
manns.
Fornar dyggðir
voru leiknat: í 50. sinn á föstu-
dagskvöldið við húsfylli og mik-
inn fögnuð áhorfenda. Margir
blómvendir bárust, og að lokum
voru leikarar og höfundar kall-
aðir fram. Til hátíðabrigðis hafði
verið bætt við nokkrum atriðum
úr fyrstu útgáfu revyunnar og
breytt um íslenzkan „diktator" í
lokaþættinum. Sökum hinnar
miklu aðsóknar verður leiksýn-
ingin endurtekin annað kvöld.
Siglfirðingar á skíðamótið.
Frá Siglufirði fóru á Dettifossi
á laugardag 18 keppendur á
Thule-skíðamótið, 10 frá Skíða-
félagi Siglufjarðar og 8 frá Skíða
félaginu Siglfirðingi. Fararstjórar
eru Sófus Árnason og Einar
Kristjánsson.
Stefano íslandi.
Á þriðjudaginn kemur kl. 18,40
eftir íslenzkum tíma syngur Ste-
fano Islandi íslenzka söngva i
danska útvarpið með aðstoð Har-
aldar Sigurðssonar slaghörpuleik-
ara. FÚ.
Sníðum dragtir og frakka og
alian kvenfatnað. Lækjargötu
8. Ingibjörg Sigurðardóttir.
Reykjavikurannáll h.f.
Reifan
Fornar ðygðir
model 1939.
Sjning á morgnn
kl. 8. stundvislega
Aðgöngumiðar seldir kl.
4—7 í dag og eftir kl, 1
á morgun.
Venjulegt leikhúsverð eft-
ir kl. 3 daginn sem leikiðj
1. O. G. T.
IÞAKA. Kaffisamsæti annað
kvöld kl. 8^/2 i Góðtemplara-
húsinu uppi. Að því loknu
skemtun í salnum niðri. Sjón-
leikur, söngur 0. fl. Templarar!
Fjölmennið! — Nefndin.
Lyra
kemur hingað annað kvöld.
Alexandrína drottning
kom í dag um kl. 12. Með
henni kom hinn þýzki rannsókn-
arleiðangur.
■ NYiA BIO U
Hin heimsfræga saga
Nðmar
Salomons.
eftir H. RIDER HAGG-
AARD sem ensk stórmynd
frá Gaumont British. Að-
alhlutverkin leika: Paul
Robson sem Umbopa
prins, Sir Cedric Hard-
wick sem Allan Quater-
main og Rooland Young
sem Good höfuðsmaður.
Saga þessi hefir komið út
í ísl. þýðingu og hlotið hér
sem annars staðar feikna
vinsældir. Myndin er eins
og sagan óvenju spenn-
andi og æfintýrarík.
Aukamynd: SVIFFLUG.
Amerísk fræðimynd um
svifflug og kenslu í svif-
flugi.
Börn yngri en 10 ára fá
ekki aðgang.
KÁPUBÚÐIN,
Laugaveg 35. Kápur og frakkar
í úrvali. Verð við allra hæfi.
Sigurður Guðmundsson, dömu-
klæðskeri.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Framhalds-
aðalfundur
Knattspyrnufélagsins ¥ikingur verðnr hald«
inn i öddfellow-hiísinu uppi í kvöfd kl. 8.
DAÖSKRÁ:
Lagabreytingar o. fl.
STJÓRNIN
Við kvefpestinni sem nú gengur
er ekkert læknislyf, sem jafnast á við
FJallagrasa* te
Fjölmargir heilsusamlegir réttir eru auk þess búnir
til úr fjallagrösum. Kynnið yður gæði þeirra og gagnsemi!
Kaupið fjallagrös! Þau fást í mörgum verzlunum í Reykja-
vík, en í heildsölu hjá
Samb. isl. sanavlm&ufélaga
Sími 1080.
M. A. kvartettinn
syngur í öamla Hió fimtudaginn 23. p. m.
kl. 7 siðdegís.
Næst siðasta sinn.
Bjarni Þórðarson aðstoðar.
Aðgöngumiðar seldir í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar og Bókaverzlun ísafoldarprentsmiðju.
LOGTAK.
Eftir kröfu útvarpsstjórans í Reykjavík og að undan-
gengnum úrskurði, verður lögtak látið fram fara fyrir ó-
greiddum afnotagjöldum fyrir útvarp hér í lögsagnarum-
dæminu, fyrir árið 1938, að 8 dögum liðnum frá birtingu
þessarar auglýsingar.
Lifgmaóuriim í Eeykjavkí.