Alþýðublaðið - 21.03.1939, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.03.1939, Síða 1
r RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAG 21. MARZ 1939 67. TÖLUBLAÐ Haraldur Guðmundsson end urkosinn formaður Alpýðu- flokksfélags Reykjavíkur. —- - ....— IktalfEiMsiMr félagsfns i gærkireMf lýsti vaxa ndi Msættl pess ®fg áSiiiga ----+----- AÐALFUNDUR Alþýðu- flokksfélags Reykja- víkur var haldinn í gær- kveldi í Iðnó, niðri. Fundurinn var sæmilega vel sóttur, þegar tekið er til- lit til þss að veður var mjög slæmt. Fyrst voru teknir inn nýir félagar, en síðan flutti for- maður félagsins, Haraldur Guðmundsson skýrslu fyrir hönd stjórnarinnar. Rakti hann í upphafi tildrögin að stofnun félagsins og rakti svo starf þess á liðnu starfs- ári. Gildir aðalfélagar um áramótin voru á 9. hundrað manns, en auk þess teljast einnig meðlimir Kvenfélags Alþýðuflokksins félagar í AI- þýðuflokksfélaginu, en þeir eru á annað hundrað. Þá rakti Haraldur funda- starfsemi félagsins, innra starf þess í deildunum og þátttöku þess í baráttu AlþýSuflokks- ins. Lauk hann ræðu sinni með hvatningu til félagsmanna um að halda ötullega áfram upp- byggingarstarfi flokksfélagsins. Var ræða formannsins þökk- uð með dynjandi lófataki. Þá voru lesnir upp reikningar fé- lagsins og hafði orðið töluverð- ur tekjuafgangur á árinu. Voru reikningarnir síðan samþykktir. Þá gerði Guðmundur í. Guð- mundsson cand. jur. grein fyrir nokkrum lagabreytingum og voru þær síðan samþykktar. Nú söng hinn blandaði kór félagsins, en að því loknu hófst kosning stjórnar. Var formaður fyrst kosinn sérstaklega og var’ Haraldur Guðmundsson kosinn í einu hljóði. Þá fór fram í einu lagi kosn- ing 6 manna í stjórn. Meðan atkvæði voru talin, var sýnd norska kvikmyndin „í sveita þíns andlitis." Lýsti hún lífsbráttu norskra fiskimanna, og baráttu norska Alþýðuflokks ins fyrir bættum kjörum þeirra. Var kvikmyndin skýr og vel gerð. Að kvikmyndasýningunni lokinni voru úrslit stjórnar- kosningarinnar tilkynt og hlutu kosningu: Arngrímur Kristjánsson skólastjóri. Er- Iendur Vilhjálmsson fulltrúi. Tómas Ó. Jóhannsson skrif- stofumaður. Ungfrú Hólmfríð- ur Ingjaldsdóttir. Frú Jóhanna Egilsdóttir og Ingimar Jónsson skólastjóri. Þá fór fram kosning í vara- stjórn. Kosnir voru: Sigurður Jóhannesson af- greiðslumaður. Guðm. í. Guð mundsson cand. jur. Guðm. R. Oddsson forstjóri. Endurskoð- endur voru kosnir: Jón Brynj- jólfsson skrifstofustjóri. Þorleif- ur Þórðarson skrifstofustjóri og til vara Pétur Halldórsson deild- arstjóri. Að kosningunum loknum var fundinum slitið og öðrum störf- um aðalfundar frestað til fram- haldsaðalfundar. Þriðji bíófundurinn: Kommúnistar bjéða ðllum Reykvib ingnm á fund en 0,6 °|0 páðu boðið ' 4---- Broslegar ráðagerðir um sovét-út gerð, yfirbanka og milljóna lántökur. OLLUM Reykvíkingum var boðið á fimd kommúnista í gær og valið stærsta sam- komuhús bæjarins, Gamla Bíó. 250 þáðu boðið. Það hefir frekar lítið farið fyrir tillögum hins endurfædda kommúnistaflokks til viðreisn- ar atvinnuvegum landsins, fyr en 60 milljónirnar þeirra Wrights, barónsins og „elsku Sturla“ komu til sögunnar, en síðan hefir líka látlaust verið unnið í tillagnaverksmiðju flokksins, og var framleiðslan lögð fram fyrir „alla Reykvík- inga“ á fundinum í gær. Ekki þótti þó gerlegt að leggja þær alveg umsvifalaust fyrir fundinn, og varð því að hafa fyrir þeim formála sem skyldi, í því fólginn, að lýsa „úrræðaleysi“ og ,,ræfilshætti“ andstöðuflokkanna, því annars gat orðið hætta á, að væntanleg- ar tillögur kommúnista féllu ekki í tilætlaðan jarðveg. Hafði Sigfús framsögu í þessum „for- mála“ tillagnanna, og sparaði hann ekki stóru lýsingarorðin, sem svo mjög eru einkennandi fyrir kommúnista. Það er eins og allir kommún- istar hafi fengið 60 milljónirnar fullkomlega á heilann. Þeir hvorki sjá né heyra fyrir þess- um svífandi milljónum. Allir eru því að brjóta heilann um, hvernig á því geti eiginlega staðið að þessir blessaðir ,,ensku“ fuglar skuli vera að koma hingað og bjóða okkur peninga. ísleifur uppgötvaði af sínu alkunna hyggjuviti, að hér væri bara um venjulega pen- ingafarandsala að ræða, en Sig- fús sló ísleif algerlega út. Kenning Sigfúsar er þessi: — „í Ameríku er til svo mikið af peningum, að menn eru komn- ir í standandi vandræði með hvað þeir eigi að gera við þá. Og bankarnir eru alveg hættir að greiða innlánsvexti. Ekki er það betra í Sviss. Ef einhver ætlar að leggja peninga á banka þar, þá fær hann það Frh. á 4. síðu. Frá óeirðunum í Slóvakíu: Múgurinn æðir um göturnar í Bratisiava daginn sem „sjálfstæð- inu“ var lýst yfir. V iðskiftastríð milliEnglands og Þýzkalands í uppsiglingu —..--- Landmœlingimi Dant bér á landi lokið 194® UpBdrættírnir fullprentaO ir 1942. KAUPM.HÖFN í gær. F0. TD FTIR ÞVÍ, sem forstjórinn A-t fyrir „Dansk Geodætisk In- stitut“, Nörlund prófessor, hefir tjáð fréttaritara ríkisútvarpsins í Kaupmannahöfn, mun landfræði- legum uppdráttum af Island verða lokið árið 1940. Uppdrættirnir munu geta legið fyrir fullprentaðir árið 1942. Hin- ir stærri uppdrættir verða gefnir út í mælikvarðanum 1/100 000 (einn hundraðþúsundasti), en auk þess verða þeir prentaðir í smærri mælikvarða. Til þessa hafa verið gefin út um 100 blöö af þessum uppdrætti íslands. Geodætisk Institut byrjar land- mælingar sínar á Islandi að þesstt isinni í júnímánuði næst komandi. Mælingum þeim, sem fram- kvæmdar eru úr flugvél, er þegar lokið, svo að landmælingamehn- irnir hafa enga flugvél með sér í sumar. Að þessu sinni verða fimm menn starfandi við land- mælingarnar. Brezka stjórnln nndlrbýr skarpar ráðstafanlr gegn yfirgangl Þjóðverja á viðskiftasviðlnu. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA BRETA, Lord Halifax, átti mjög annríkt í gær. Sendiherrar erlendra ríkja í London streymdu til hans, hver á eftir öðrum, þar á með- a! sendiherrar Rúmeníu, Póllands og Sovét-Rússlands. Sendiherra Bandaríkjanna í London heimsótti einnig brezka fjármálaráðherrann, Sir John Simon. Það þykir auðsætt, að þessar heimsóknir hafi allar staðið í sambandi við þær tilraunir, sem nú eru gerðar til að skapa víðtækt varnarbandalag í Evrópu með stuðningi Bandaríkjanna í Norður-Ameríku gegn frekari yfirgangi Þýzkalands. Það er einnig fullyrt, að brezka stjórnin sé alvarlega að yfirvega viðskiftalegar ráðstafanir gegn Þýzkalandi til þess að mæta kúgunartilraunum þess á viðskiftasviðinu, sem sérstaklega greinilega hafa komið í Ijós við kröfur þess og hótanir í Rúmeníu. Það er talað um, að hækka tollinn svo á innfluttum vörum frá Þýzkalandi, að þær verði raunverulega útilokaðar frá brezkum markaði. Enn fremur að banna allan útflutning brezkra vara til Þýzka- lands. Allir brezkir flokkar eru taldir einhuga um að láta iramvegis hart mæta hörðu í öllum viðskiftum við Þýzka- land, pólitískum og fjárhagslegum. En brezka stjórnin virðist líka einráðin í því, að taka nú upp harðvítuga baráttu gegn yfirgangi Þýzkalands á erlendum xiiörkuðum, ekki sízt í Suðaustur-Evrópu. Það er aðeins einn vottur þess, að stjórnin lýsti því yfir í neðri málstofu enska þingsins í gær, að brezk viðskiftamálanefnd myndi allra næstu daga verða send til Rúmeníu, og dró enga dul á það, að sú ráð- síöfuxi stæði í sambandi við kröfur og hótanir þýzku viðskifta- málanefndarinnar, sem kom þangað fyrir hálfum mánuði. Pólveriap óttast árás á Eystrasaltslðndin. en og Póllands um sameiginleg- ar varnarráðstafanir, ef Þýzka- land skyldi gera tiiraun til þess að færa út kvíarnar norðaustur á bóginn. Fulltrúaráðsfundur er annað kvöld kl. 8Va' i Bað- stofu iðnaðarmanna. Á dagskrá eru þessi mál: 1. maí, reglugerð fulltrúaráðsins, styrktarsjóðurinn, reikningar o. fl. Árnesingamót verður haldið að Hótel Borg 25. þ. m. ÞJóðverjar ætluðu að sölsa undir sig allan útflutning og olíuframleiðslu Rúmeníu ---—♦ -.. Viðskiftanefnd þess hafði í hótunum* Hvarvetna um Evrópu er nú talað um það, hvaða lönd það muni verða, sem Þýzkaland ræðst næst á og enginn þykist lengur öruggur um sig. Pólskír stjórnmálamenn óttast, að Þýzkaland hafi í hyggju að snúa sér næst norðaustur á bóg- inn, taka Danzig og Memel og kúga Eystrasaltslöndin: Lithauen, Lettland og Eistland til þess að gefa sig undir „vernd“ Þriðja ríkisins á svipaðan hátt og hin sundurlimaða Tékkóslóvakía. Þátttaka pólsku stjörnarinnar í þe:m umræðum, sem nú fara Ifram I London xim varnarbanda- lag gegn Þýzkalandi, er sett í samband við þetta, og sterkur orðrómur gengur um það, að leynilegar samningaumleitanir fari nú einnig fram milli Liíhau- Dr. Funk, viðskiftamálaráð- herra Hitlers. Þ LONDON í gærkveldi. FO. AÐ er nú viðurkent, að h'n þýzka sendinefnd, sem kom til Búkarest í Rúmeníu fyrir hálf- um mánuði, hafi verið mjög ó- vægin í kröfum og jafnvel haft í hótunum. Talið er, að Þýzkaland hafi síðan dregið nokkuð úr kröf- um sínum, en þær eru þð enn á þessa leið: 1) að Rúmenia selji Þýzkalandi alla umframframleiðslu sína af landbúnaðarvörum, 2) að Þýzkaland fái aukna hlutdeild um olíuframleiðslu Rú- meníu, 3) að Þýzkalandf verði veittur víðtækur einkaréttur í „cellulose" framleiðslunni i héruðunum við mynni Dónár. Viðskiftasamninonr Þýzkalanfls oo Rflmenin nndlrritaðnr ð moronn. LONDON i morgun. FÚ. I Búkarest er búizt við því, að hinn nýi verzlunarmála- samningur nxilli Rúmeníu og Þýzkalands verði undirritaður á morgun, Samningurinn gengur mjög miklu skemur en gert var ráð fyrir í hinum upphaflegu kröf- um Þýzkalands, og aðalhagnað- ur hans Þýzklandi til handa er aukinn olíuútflutningur til Þýzkalands og það, að Þýzka- land fær aukna hlutdeild í reyr- plöntuframleiðslunni við mynni Dónár, en þessi reyr er notaður til ,.cellulose“ framleiðslu. Það er staðfest, að Rúmenia hafi hafnað kröfum Þýzkalands um verðfellingu rúmenskrar íxiyntar. Málfundafélag Alþýðuflokksfélagsins heldur fund í kvöld kl. 8V2 í Alþýðu- húsinu. Mætið stundvislega. j

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.