Alþýðublaðið - 25.03.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 25.03.1939, Page 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. Argangur LAUGARDAGINN 25. marz 1939 71. TÖLUBLAÐ Norðlendingar og Vestfirðingar nnnn í gærðag skiðakappgöngnna með sðma. ---—♦_--—- Sunnlendingar stóðufþeim langt að baki. Ísfírðingurinn Magnús Krist- Jánsson varð fyrstur að marki. Úrslit í 17 km. skíðakappgöngunni á Thulemótinu í gær urðu: 1. Magnús Kristjánsson, Einherjum, ís., á 1 klst. 13,08 mín. 2. Guðm. Guðmundsson, Skíðaf. Siglufj. á 1 klst. 14,47 min. 3. Jóhann Sölvason, Skíðaborg, Sigluf., á 1 klst. 18,26 mín. Röð félaganna varð: 1. Skíðaborg Siglufjarðar átti 3., 5., 6. og 10. mann. Saman- lagður tími þeirra 5 klst. 21,40 mín. 2. Skíðafélag Siglufjarðar átti 2., 7., 9. og 11 mann. Saman- lagður tími þeirra 5 klst. 23,39 mín. 3. Skátafélagið Einherjar, ísafirði átti 1., 4., 8. og 20. mann. Samanlagður tími þeirra 5 klst. 24,26 mín. , 4. KR átti 15., 19., 28. og 29. mann. Samanlagður tími þeirra 6 klst. 9,49 mín. Frá Ármann komu ekki 4 menn að mark og kemur það ekki til röðunar í þessari keppni. | Því MÞÝÐU8LAÐIÐ ¥ ANDSMÓT skíðamanna hófst í gær kl. 1 í sól- skini og 4 stiga hita. Fyrst fór fram 17 km. skíðaganga og voru þátttakendur tæp- lega 40. Fjöldi áhorfenda var, bæði börn og fullorðnir. Það var sameiginlegt álit allra keppenda, að færðin hafi Neðanmálsgreinln i dao BARÐI GUÐMUNDSSON “O ARÐI GUÐMUNDSSON þjóðskjalavörður ritar neð- janmálsgrein í blaðilð í dag. Nefn- ir hann greinina: „Myndskerinn mikli frá Valþjófsstað." I grein þessari leiðir hann sterk rök að því, .að Randálín Filippusdóttir, kona Odds Þórarinssonar að Val- þjófsstað hafi gert hina frægu hurð frá Valþjófsstað, sem hér er á þjóðminjasafninu. Annað að- alefni greinarinnar er að leiða rök að því, hver hafi verið höf- undur Njálu og kemst greinar- höfundur að þeirri niðurstöðu, að höfundur hennar sé Þorvarður Þórarinsson, bróðir Odds á Val- þjófsstað, -en mágur Randalínar. Rök greinarhöfundar eru svo sterk og sannfærandi, að telja má nærri því sannað, að höfund- ur Njálu sé fundinn. verið með erfiðasta móti, vegna þess hvað heitt var í veðri, enda komu ekki að marki og luku göngunni 6 af keppendunum. Meðal þeirra sem gáfust upp, var Björn Blöndal, sá, sem margir höfðu spáð að yrði Norðlendingunum og Vestfirðingunum skeinu- hættur. í Reykjavíkurkeppninni fyrir skömmu varð Björn Blöndal fyrstur, en, að því er hann sjálfur segir, þá kennir hann ófarir sínar að þessu sinni því, að hann hafi borið á skíðan sín áburð, sem ekki hæfði þeim. Hjá öllum keppendum gékk ferðin slysalaust, og var sjúkrasleðinn tómur fiuttur aft- ur til Skíðaskálans, sem talandi tákn þess. En einn keppendanna braut annað skíðið, þegar hann átti ófarið í mark 7 km., og má það teljast þrekvirki af hon- um að halda keppninni áfram og koma að roarki 22. í röðinni. Sá, sem varð fyrir þessu ó- happi er frá Skutulsfirði og heitir Bjarni Halldórsson. Fréttaritari Alþýðublaðsins náði tali af sigurvegaranum Magnúsi Kristjánssyni, þar sem hann sat í einu horni Skíðaskál- ans með fararstjóra þeirra ís- firðinganna, Gunnari Andrew. — Eg óska þér til hamingju með sigurinn, en fanst þér færð. in ekki vera þung? „Jú, hún var erfið, en það þýðir ekki að tala um það. í sólskini er maður í sólskins- skapi, eins og reyndar alltaf, — hvort maður er fyrstur eða síð- astur.“ Þegar fréttaritari spyr Magn- ús, hvort hann hafi oft tekið þátt í keppnum áður og farið með sigur af hólmi, telur hann upp fjöldan allan af sigrum og svo hratt, að fréttaritarinn hafði hvergi nærri við að skrifa þá alla niður, en þessu náði hann þó á blaðið hjá sér. „Þrisvar tekið þátt í Thulemóti og fengið önnur, þriðju og nú í þetta skifti fyrstu verðlaun, þá í 8 km. kappgöngu 2. aldursflokks." „Hann á heldur ekki langt að sækja að vera duglegur á skíð- um,“ segir Gunnar Andrew, „því að faðir hans var ágætur skíðamaður, og svo varð bróðir- inn Gísli sá 4. núna. En það er annað, sem þú mátt gjarna segja frá,“ heldur Andrew á- fram, og það er, að Magnús er búinn að vera 7 ár í Einherjum, sem er fyrst og fremst skáta- félagsskapur, en ekki skíðafélag eins og svo margir halda.“ í dag fer fram keppni í svigi, og eru á keppendaskrá 34, en gera má ráð fyrir að einhverjir heltist úr lestinni áður en til keppni kemur. I allan gærdag voru um 30 verkamenn önnum kafnir við að moka snjó á stökkbrautina, en eftir hádegið fengu þeir dug- legan aðstoðarmann, sem var Birger Ruud. Tók hann sér skóflu í hönd og mokaði og slétti jafnframt því sem hann hafði á hendi verkstjórnina. Til þess að reyna hvort allt væri eins og vera bar, stökk Birger Ruud tvisvar um 40 metra í bæði skiftin, og það verður ó- gleymanleg stund þeim er á horfðu. En á morgun stekkur Ruud, og tekur þá ef til vill einnig heljarstökk af stökkpall- inum. Bar hann við himinn, þegar hann stökk, eins og svif- flugu. Samsæti fyrir Birger Ruud. Skíðafélag Reykjavíkur hef- ir ákveðið að halda hinum heims kunna skíðákappa Birger Ruud og frú hans samsæti á mánu- daginn. Fer það fram að Hótel Borg og verður snæddur há- degisverður kl. 12Vi. Pflrschel afneit- ar sinnm eigin fiokksmðnnnm. ðoggveiti h]á dðnsku oazistDnam eftir yfir- ljsingo Stannings. KHÖFN í gærkveldi. FÚ. NATIONALTIDENDE“ segir frá því í gær, að formaður hins nýja flokks í Danmörku, „National Sam- ling“, en það er Piirschel, fyr verandi þingmaður íhalds- flokksins, hafi lýst yfir því op- inberlega, að flokkurinn muni krefja þann frambjóðanda sinn, sem mestu hneyksli olli á dögunum, skýringar á ummæl- um þeim, sem urðu Stauning tilefni til hinnar harðorðu yfir- lýsingar gegn nazistum, er birt var fyrir skemstu. Hafði frambjóðandinn hvatt menn til þess að kjósa fremur Þjóðverja en Dani. þar sem því yrði komið við á Suður-Jót- landi, og sagt, að hann vildi heldur sjá Danmörku þýzka en undir stjórn rauðliða. Segir Purschel, að þessi orð eigi sér enga stoð í stefnu flokksins, og muni flokkurinn grípa til sinna eigin ráða til að koma í veg fyrir, að slíkar kenningar séu boðaðar í nafni hans. Miaja, forseti varnarráðsins í Madrid (til vinstri) á tali við einn af herforingjum sínum. Ekkert samkomulag enn um að Madrid gefíst npp. -—— » fin samningaumleitanir standa yfir i Bnrgos. LONDON í morgun. FÚ. ?^VÍ var neitað í Burgos í gærkveidi, að sam- komulag hefði orðið um það, að Madrid gæfist upp, en það er opinberlega játað, að flug- vél hafi komið til Burgos með samninganefnd frá varnarráði Madridborgar. Blöðin í Róm höfðu í gær birt þá fregn, að Madrid væri að gefast upp og að her Francos myndi fara inn í borgina í dag. Blað í Bordeaux flutti einnig þessa fregn og lét það fylgja, að fimm fulltrúar frá varnarráði Madridborgar, þar á meðal inn- ánríkismálaráðherra þess, hefðu samið um það við fulltrúa Francos, að Lýðveldis-Spánn gæfi upp vörnina. Þetta blað hélt því fram, að hið eina, sem ekki væri fengið samkomulag um, væri sú krafa lýðveldis- manna, að nokkrir helztu for- ingjar þeirra fengju lleyfi 'til að fara úr landi. Blöð í Lissabon fullyrða, að her Francos fari inn í Madrid nú um helgina. Petain matskálknr kom- inn til Burgos. LONDON í gærkveldi. FÚ. Petain marskálkur, sendi- herra Frakka á Franco-Spáni, lagði í dag fyrir Franco em- bættisskjöl sín með tilheyrandi viðhafnarsiðum. Var honum fylgt frá gistihúsi sínu af hinum ríðandi Máralíf- verði Francos, og stóðu her- mannaraðir meðfram öllum strætum, er hann fór um. Mb. Jðn Þorláksson kom inn í gær að fá vatn og vistir. M. A. kvartettinn syngur í Gamla Bíó kl. 3 á morgun. Er það í síðasta sinn, sem hann syngur að þessu sinni, og er söngskráin breytt. Sviss viðbúið að oiœta árái Sprengjur undir Ollum brúm og veoum inn i landið. OSLO í gærkveldi. FB. P REGNIR frá Sviss herma, að Svisslend- ingar hafi gert mjög víð- iækar varúðarráðstafanir, ef til árásar Þjóðverja á Svissland skyldi koma. Landamæravarðliðið hef- ir verið aukið um helming. Undir allar brýr og vegi, sem liggja inn í landið, hafa verið lagðar sprengj- ur. NRP. f DAS. Næturlæknir er Grimur Magn- ússon, Hringbraut 202, sími 3974. Næturvörður er í Laugavegs* og Ingólfs-apóteki. OTVARPIÐ: 20,15 Gamanvísur og eftirhermur (Bjarni Björnsson leikari). 20,50 Otvarpstríóið leikur. 21,10 Hljóm- plötur: Kórlög. 21,30 Danzlög. 22,00 Fréttaágrip. 24,00 Dagskrár- lok. A MORGUN: Helgidagslæknir er Eyþör Gunnarsson, Laugavegi 98, simi 2111. Næturvörður er í Reykjavíkur- og Iðunnar-apóteki. OTVARPIÐ: 9,45 Morguntónleikar (plötur): a) Kvartett í Es-dúr, eftir Haydn. b) Kvartett i F-dúr, eftir Mozart. c) Tríó, Op. 70, nr, 5, eftir Beet- hoven. 10,40 Veðurfregnir. 11,00 Messa í dómkirkjunni (séra Sig- urjón Árnason). 12,15 Hádegis- útvarp. 15,30 Miðdegistónleikar (plötur); Ýms lög. 17,20 Skák- fræðsla Skáksambandsins. 17,40 Otvarp til útlanda (24,52 m.). 18,30 Barnatími: a) Sögur (Þor- steinn ö. Stephensen); b) Söng- ur (Drengjakór Reykjavikur). 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Hljóm- plötur: Frægir fiðluleikarar. 19,40 Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Erindi: Leitin að höfundi Njálu, II (Barði Guðmundsson þjóð- skjalavörður). 20,40 Tónleikar Tónlistarskólans (dr. Edelstein: celló; dr. Urbantschitsch: pianó). 21,05 Upplestur: Kvæðí (Péll Kolka læknir). Jón Ólafsson, hinn nýi togari Alliance. Hinn nýi togari h.f. Alli- ance leggur af stað til landsins í dag. Hefir skipið verið skýrt „Jón Ólafsson." Er það gott nafn og vonandi happadrjúgt fyrir félagið. Staðastaðaprestakall i Snæfellsnessprófastsdæmi er laust til umsóknar. Djóðverjar minna á ný- lenðakrðfur sinar á ný. ----—4----- Búizt við, að þýzkastjórnin hafi þó hœgt um sig, þar til á afmæli Hitlers, 20. apr. KHÖFN í gærkveldi. FÚ. Fréttastofa reuters í Berlín lætur í ljós, að eftir að Þýzkaland hefir nú lagt undir sig Bæheim og Mahren, tekið sér verndarstöðu yfir Slóvakíu, innlimað Memel og knúið Rúmeníu til afarhag- kvæmra viðskiftasamuinga, megi gera ráð fyrir, að alt verði rólegt af Hitlers hendi þangað til 20. apríl, að hann á 50 ára afmæli. En þessa atburðar er ákveðið að minnast á stórfeng- lega nhátt. Eftir 20. apríl vita menn, að Hitler ráðgerir að taka sér frí og setjast að um stund í Berchtesgaden. Þýzku blöðin eru nú tekin aS ræða nýlendumálið að nýju og segja, að Þýzkaland muni gera kröfur sínar um nýlendur ein- mitt nú, þrátt fyrir andúð þá, er heimurinn sýnir í því máli. Segja blöðin, að Þjóðverjar, sem nú séu orðnir höfuðstór- veldi meginlandsins, eigi rétt til sams konar olnbogarúms í heiminum eins og önnur stór veldi. Þjóðverjar séu að minsta kosti eins duglegir, ötulir og greindir og aðrar þjóðir, og heimurinn megi vita, að Hitler muni halda þann hluta af stefnuskrá sinni, er varðar ný- lendur, eins rækilega og hyrm hafi haldið stefnuskrá þá, er hann birti í „Mein Kampf*.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.