Alþýðublaðið - 28.03.1939, Qupperneq 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
RITSTJÓRI: P. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁBGANGim _ÞRIÐJUDAG 28. MARZ 1939 73. TÖLUBLAÐ
Alþýðuflokkurinn hefur nú til
meðferðar svar sitt við mála~
leitun Framsðknarflokksins.
Atkvæðagreiðsla fer fram meðal allra
stjðrnarmeðlima Alþýðusambandslns.
SEINT Á LAUGARDAGSKVÖLD barst Framsóknar- *
flokknum svar Sjálfstæðisflokksins við umleitunum
þeim um þriggja flokka stjórn og ráðstafanir til hjálpar sjáv-
arútveginum, jsem Framsófcnarflokkurinn hefir beitt sér
fyrir að komist á.
Mun svar Sjálfstæðisflokksins hafa verið á þá leið, að
Isann fyrir sitt leyti gæti fallist á myndun slíkrar ríkis-
stjórnar og þær aðgerðir, sem um hefir verið rætt milli
þessara flokka til úrlausnar á málefnum sjávarútvegsins.
Framsóknarflokkurinn sendi í gær Alþýðuflokknum
hréf, þar sem spurst var fyrir um það, hvort Alþýðuflokk-
urinn vildi taka þátt í myndun þriggja flokka stjórnar og
samkomulagi flokkanna um lausn sjávarútvegsmálanna og
öðrum ráðstöfunum, sem nauðsynlegar væru til eflingar og
vemdunar lýðræðisins í landinu, til sameiginlegs undir-
búnings í sambandi við framtíðarákvarðanir um sjálfstæð-
ismál þjóðarinnar og nauðsynlegum ráðstöfunum út á við
og irm á við ef til ófriðar eða annara óvæntra atburða kynni
að draga.
Þingmenn Alþýðuflokksins höfðu málið til meðferðar
rnestan hluta dags í gær og lögðu það fyrir fund í miðstjóm
Alþýðuflokksins, sem haldinn var í gærkveldi. Þar var mál-
ið rætt, en atkvæðgreiðslu um það frestað. Að líkindum
verður látin fram fara atkvæðagreiðsla meðal allra fulltrúa
í stjórn Alþýðusambands íslands, en þeir eru 31 áð tölu,
og eru sumir þeirra búsettir utan Reykjavíkur.
Eigi verður að svo stöddu sagt um hvenær svar Alþýðu-
flokksins við þessum fyrirspurnum Framsóknarflokksins
getur legið fyrir, en talið er líklegt, að það geti ekki dregist
lengi.
Afli er taeldur að glæð~
ast í verstöðvunum.
IVIKUNNI sem leið voru
jafnari gæftir í verstöðv-
um landsins en undanfarnar
víkur. Flestar verstöðvar telja
þó fremur stirðar gæftir. Afli
hefir víðast hvar verið allmis-
jafn og víða tregur, en virðist
þó vera heldur að glæðast.
Loðna er mikið höfð til beitu.
Samkvæmt heimildum Fiski-
félags íslands láta togarar
heldur lítið yfir afla undan-
Birger Rnud og kona
hans kvðddn i gær.
I^EYSILEGUR mannfjöldi
^ kvaddi Birger Ruud og frú
hans er þau lögðu af sta'ð heim-
leiðis með Alexandrínu drottn-
ingu í gærkvöldi. Var þeim i
gær um hádegi haldið samsæti
vom margar ræður fluttar og
þeim hjónum færðar gjafir, en
Birger Ruud þakkaði með snjallri
ræðu. Áður en þau hjónin fóru
héðan gaf Birger Ruud 8 ára
dreng, sem hafði verið áhugasam
ur áhorfandi á skíðamótinu og
heitir Birgir (sonur Erlendar Þor-
steinssonar alþingismanns) svig-
skíði sín. En Birgir litli hafði
takið þátt 1 skíðamóti á Siglu-
Art# og ®ig v»i.
farna viku, en sumir telja þó
veiðihorfur heldur að batna.
tJr einstökum verstöðvum
landsins er þetta helzt:
Sandgerði: Héðan var róið
fjóra daga síðustu viku. Afli
var mjög misjafn eða frá 6 til
25 skip á bát í róðri.
Hellisandur: Héðan gaf tvo
síðustu daga vikunnar og aflað-
ist þá vel á þá báta, sem næga
loðnu höfðu til beitu, en tregt
var á aðra báta.
í gær réru sjö bátar. Mestur
afli báts var 3500 kílógrömm.
Aðrir bátar voru í loðnuleit og
ókomnir að er þetta var símað.
Vestmannaeyjar: Afli var
mjög misjafn síðastliðna viku
og mjög tregur á flesta báta.
Skemdir urðu afarmiklar á net-
um og talsvert tapaðist alger-
lega. Sjötíu og sjö bátar stunda
þorskanetaveiðí þessa vertíð, 3
línu og 8 dragnót. Auk þess
verður eitthvað af trillubátum
þegar fram á kemur. í gær var
eins og undanfarna daga afli
mjög misjafn á þá báta, sem
komnir voru að, er þetta var
símað. Sjóveður var ágætt í
gær og dag. Dettifoss lestaði
síðastliðna viku 80 smálestir
saltfisk og þurfisk og nokkuð
af ísfiski. Lyxa lestaði meðal
m . % 4.
Trésmiðir hefja
YÍBBBStöðVUn í
fyrramálið.
Ef ekki fæst sam-
komulag i kvðld.
Sættfr hafa enn ekkí
tekist þrátt fyrir
tilrannir.
EF ekki næst samkomulag í
kvöld í deilu þeirri, sem
upp er komin milli Trésmiða-
félags Reykjavíkur og Múrara-
meistarafélagsins, hefja tré-
smiðir vinnustöðvun á morgun
gegn Múrarameistarafélaginu.
Sættir' hafa verið reyndar
síðan um fyrri helgi, að tré-
smiðir samþyktu með 318 at-
kvæðum gegn 4 að hefja vinnu-
stöðvun gegn Múrarameistara-
félaginu, en ekki tekist. Verður
síðasta tilraun gerð í dag.
Um þetta mál hefir Alþýðu-
blaðinu borist eftirfarandi
grein, sem því þykir sjálfsagt
að birta:
„Eins og kunnugt er þá stendur
yfir deila milli Múrarameistara
hér i bænum og Trésmiðafélags
Reykjavíkur.
Ég vil taka það fram strax
að ég er því miður ekki nægilega
kunnur málavöxtum, til þess að
geta gert almenningi full ljóst,
hvað hér er á ferðinni. Þó lang-
aði mig til að skýra frá við-
skiftum mínum við þessa menn
i örfáum orðum ef það mætti
verða til þess að fólk gæti lítið
eitt gert sér grein fyrir þvf, sem
hér er að gerast, Ég sem þessar
línur rita ætlaði nýlega að hefja
byggingu á nýju húsi, og ætl-
aði þess vegna að ráða til mín
múrarameistara og trésmíðameist
ara, þetta gekk alt að óskum
hvað þann siðarnefnda snerti, en
þegar átti að ráða múrarameist-
arann við væntanlegt hús þá var
margt, sem kom til athugunar.
Fyrst segir hann mér, að hann
megi alls ekki vinna í tímavinnu
við húsið og sér sé harðbannað
að gera slikt. Þessi greinargerð
kom mér allkynlega fyrir sjónir,
fyrst og fremst vegna þess að
mér var þá kunnugt um, að kaup
gjald múrarameistara er mjög
hátt kr. 2,50 fyrir hverja klukku-
stund, og virðist það vera sæmi-
legt, en mikill vill alt af meira.
Múrarinn kvaðst aðeins mega
Vltina í ákvæðisvinnu. Nokkru sið
ar fór ég að grenslast eftir, hvað
þaö værl, sem hér lægi til grund-
Frb. ó 4. síðu.
Rydz-Smigly, yfirhershöfðingi pólska hersins (til vinstri á myndinni).
Pólverjar búa sig af aleíli
undir að mæta þýzkri árás.
---—«-----
Danzig og ,pólska hliðið4 næsta takmark Hitlers?
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN 1 morgun.
P REGNIR frá Varsjá bera
það með sér, að á Pól-
landi er nú unnið af alefli að
því, að búa landið undir
stríð. enda þótt ekki sé skýrt
frá einstökum ráðstöfunum í
því skyni.
Pólska stjórnin virðist ótt-
ast, að Þýzkaland sé að und-
irbúa innlimun Danzig og
jafnvel „pólska hliðsins“ til
Eystrasalts í gegnum Vest-
ur-Prússland. En svo er að
sjá að hún sé einráðin í því,
að grípa til vopna gegn slíkri
tilraun.
Jafnhliða vígbúnaðinum á
Póllandi fara einnig fram al-
varlegar tilraunir til þess að
sameina alla þjóðina án tillits
tii stjórnmálaflokka, til varnar,
ef á landið yrði ráðist, og er bú-
ist við, að breytingar verði
gerðar á stjórninni í Varsjá í
þeim tilgangi.
Jafnaðarmannaflokkurinn
hefir heitið stjórninni fulltingi
sínu til þess að verja Iýðveldið
og frelsi landsins, og samningar
standa nú einnig yfir milli
stjórnarinnar og bændaflokks-
ins í sama augnamiði, en
bændafiokkurinn gerir það að
skilyrði fyrir samvinnunni, að
foringja hans, Witos, sem árum
saman hefir lifað landflótta í
Pra(g, verði gefnar ujpp allar
sakir og veitt leyfi til þess að
koma heim og taka við forystu
flokksins á ný.
Virðist stjórnin hafa gengið
að þessu skilyrði, því að það
hefir spurst, að Witos hafi þeg-
ar mætt á pólsku ræðismanns-
skrifstofunni í Prag til þess að
undirbúa heimför sína.
Þýzku blöðin hyrjuð að
æsanppsegB PAIverjum.
LONDON í niorgun F.O.
I þýzkri blaðatilkynningu er
kvartaB yfir því, að allmlkiö b*ri
♦ ———
á mótþróa og óvild í garð Þýzka
lands víðs vegar um Pólland,
einkum í Bromberg við suður-
enda pólska hliðsins. Er um kent
félagsskap, sem kallar sig „Vest-
urlandamærafélagið", og er því
haldið fram í tilkynningunni, að
þessi félagsskapur vinni að því
að spilla sambúð Þýzkalands og
Póllands. Segir ennfremur, að
slíkt sé ekkert nýnæmi, en þetta
hafi þó náð hámarki síöastlið-
inn sunnudag, er kröfugöngur
voru farnar með því markmiði
að hvetja menn til að einangra
alla Þjóðverja, sem í Póllandi
búa. Þann dag hafi lögreglan átt.
ifult í fangi með að verja þýzka
menn, og dæmi séu þess, að
þýzkar konur og börn hafi verið
barin á götum uti fyrir það að
mæla móðurmál sitt. Auk þess
hafi verið ráðizt á hús þýzkra
manna.
I Varsjá kannast menn ekki við
neina þá atburði, er réttlæti þessa .
þýzku tilkynningu. Hitt er kunn-
ugt, að pólska „Vesturlandamæra
félagið“ hélt fund á sunnudag-
inn var og samþykti ýmsar álykt-
anir, sem hver pólskur föður-
landsvinur myndi geta skrifað
undir. Voru slíkir fundir haldnir
víða um Pólland núna um helg-
ina, að því er segir í tilkynningu
frá Varsjá.
Pólska stjórnin ákvað í gær-
kvöldi að bjóða út stórt nýtt
innanríkislán, til þess að full
komna flugherinn.
Mngið I Lithauen neitar að
staðfesta samninginn um at
hendingu Memelhéraðsins!
----•----
StJérnSn hefir pegar sagt af sér
♦----—
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í morgun.
EIR óvæntu viðburðir
gerðust í gær í Lithauen,
að þingið neitaði, að stað-
festa samning þann, sem
stjórnin gerði í Berlín á dög-
unum við þýzku stjórnina
um afhendingu Memelhér-
aðsins.
Lithauíska stjórnin hefir
af þessari ástæðu sagt af sér,
og hefir lýðveldisforsetinn
Smetona beðið yfirmann lit-
hauíska hersins að mynda
nýja stjórn.
Ástandið, sem skapast hefir
við þessa viðburði, er talið mjög
aívarlegt. Það er ekki annað
sjáanlegt, en að hrein einræðis-
stjóm sé í uppsiglingu í Lit-
hauen, til þess að afstýra nýj-
um vandræðum út af Memel-
málinu.
Wzhaland braut gamla
Memelsáttmálao.
LONDON í morgun. FÚ.
Mr. Butler, aðstoðarutanrík-
ismálaráðherra Breta, gaf í gær
yfirlýsingu varðandi Memel 1
neðri málstofu þingsins.
Hann sagði, að stjóm Lithaþ-
ens hefði skýrt brezku stjóm-
inni frá því, að Þýzkaland gerði
kröfu til þess, að Memel yrði
af hendi, og hefði brezka
stjórnin látið í ljósið samúð
með lithauísku stjóminni í
Frh. á á. stðu.