Alþýðublaðið - 01.04.1939, Side 1

Alþýðublaðið - 01.04.1939, Side 1
Athugfð! Það er gamall og græzku- laus siður, að láta fólk hlaupa apríl, en gamanið fer að grána, þegar hlaup- in kosta peninga. Tryggið ykkur meiri kaup en hlaup með því að koma á hinn eldfjöruga danzleik F.U.J. í Iðnó á laugardag. EITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR LAUGARDAGINN 1. apríl 1939. 77. TÖLUBLAÐ. MuniO danzleik F. U. J. i Iðnó á laugardaginn kl. 10 e. h. Aðgðngu- miðar kosta aðeinp kr. 2.50. England og Frakkland iofa Póllandi llðveizln, ef á pað ráðist o Indriði Einars- m látinn. INDRIÐI EINARSSON rit- höfundur lézt í gær að heim. ili sínu hér í bænum, 88 ára að aldri, fæddur 30. apríl 1851. Hann var hagfræðingur og sá fyrsti, sem íslendingar eign- uðust. Indriði Einarsson var af- kastamikill rithöfundur og samdi aðallega leikrit. Kunn- asta leikrit hans er Nýjársnótt- in, sem leikin hefir verið ákaf- lega oft. Hann þýddi einnig mörg af leikritum Shakespea- res. Chamberlain gaf yfirlýsingu um það í enska þinginu i gær. Afstaða Sovét«Rússlands virðlst enn éviss. LONDON í morgun. FÚ. CHAMBERLAIN forsætisráðherra Breta gaf í dag eftir- irfarandi yfirlýsingu í neðri málstofu enska þingsins um ástandið í Evrópu og afstöðu Englands til þess: „Eins og deildinni er kunnugt, stendur brezka stjórnin nú í sambandi við aðrar ríkisstjórnir um þau vandamál, sem nú eru á döfinni. Þessar samningagerðir eru ekki enn fullkomnaðar, en til þess að skýra málin að nokkru, vil ég tilkynna deildinni, að ef til þess skyldi koma* meðan á þessum umleitunum stendur, að sjálfstæði Póllands verði ógnað þannig, að pólska stjórnin neyðist til að snúast til varnar með öllum afla sínum, þá myndi brezka stjórnin telja sér skylt að veita Póllandi þegar í stað alla þá hjálp, sem í hennar valdi stendur að veita. Brezka stjórnin hef- ir sent pólsku stjóminni yfirlýsingu þess efnis. Ég get bætt því við, að franska stjórnin hefir gefið mér umboð til að lýsa yfir því, að afstaða hennar í þessu máli er hin sama og brezku stjórnarinnar.“ Eftir að Chamberlain hafði gef- ið þessa yfirlýsingu, lagði Arthur Greenwood, þingmaður Alþýðu- flokksins, fyrir hann nokkrar spurningar. Hann hóf mál sitt með því að Framsókn t® Sjáifstæðisflokk- orliffl viija ekki fallast á heild- artillðgnr Alpýðufiokksins. U RAMSÓKNARFLOKKURINN og Sjálfstæðisflokkur- inn hafa ekki viljað fallast á heildartillögur Alþýðu- flokksins, sem getið var um í blaðinu í gær. I gær sendi nefnd sú, sem hefir átt viðræður fyrir hönd Alþýðuflokksins við nefndir frá hinum flokkunum, hréf til Framsóknarflokksins um afstöðu Alþýðuflokksins. I þessari nefnd eiga sæti: Stefán Jóh. Stefánsson, Haraldur Guðmundsson, Ingimar Jónsson og Finnur Jónsson. Bréfið var svohljóðandi: ,,Með tilvísun til bréfs yðar, dags. 27. þ. m. skal yður hér með tjáð, að innan stjórnar Alþýðuflokksins hefir ekki fengist meirihluti fyrir því, að flokkurinn taki þátt í mynd- un samsteypustjórnar með Framsóknarflokknum og Sjálf- stæðisflokknum að óbreyttum þeim grundvelli, er um get- ur í bréfum yðar-og Sjálfstæðisflokksins og þeim skilyrð- um, sem um hefir verið rætt af viðtalsnefnd yðar. Telji Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn sig hins vegar geta fallist á frekari bætur vegna gengis- lækkunar, erum vér fúsir til að ræða þau mál við yður.“ Stjórn Alþýðuflokksins hélt fund í gærkveldi, þar sem þessi mál flokkanna voru rædd, og munnlega var skýrt frá svörum hinna flokkanna. Á fundinum var það upplýst, að Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn hefðu neitað að fallast á íillögur Alþýðuflokksins í heild, eins og þær liggja fyrir, um frpkari bætur vegna gengislækkunar, sem settar voru fram af liálfu Alþýðuflokksins, sem skilyrði flokksins fyrir þátttöku hans í myndun samsteypustjórnar. Alþýðublaðinu er ekki kunnugt um, hver nú verður afstaða hinna flokkanna til þessara mála framvegis. segja, að þessi yfirlýsing for- sætisráðherrans kynni að reynast eins þýðingarmikil og yfirlýsing sú, sem gefin hefði verið þar í þingdeildinni af Sir Edward Grey fyrir einum aldarfjórðungi, þ. 4. ágúst 1914. Þá baðst hann svars við þeirri spurningu, hvort líta bæri á þessa yfirlýsingu sem fyrsta skrefið til framkvæmdar stjórnmálastefnu í þá átt að veita árásarríkjunum viðnám, hvort brezka stjórnin hefði nú sannfærzt um nauðsyn þess að fá Sovéí-Rússland til samvinnu við stór og smá ríki um þessi mál og hvort stjórnin teldi það ráð- legt, að koma á fót ráðstefnu þessara rfkja til varnar friðinum, en til andstöðu við ofbeldið. Sovétstjórnln heffr yóð orð, en gefur enga yf- irlýsingn. Chamberlain svaraði, að yfir- lýsing hans hefði aðeins gildi um síundarsakir. Hann sagði, að ut- anríkismálaráðuneytið hefði ídag rætt mjög ítnarlega um þessi mál við rússneska sendiherrann í London, og að hann efaðist ekki um, að rússneska stjórnin hefði fullan skilning á grundvallarsjón- armiðum brezku stjórnarinnar I þessum málum og væri þeim samþykk. Um alþjóðaráðstefnu sagði Chamberlain, að þar kæmi til á- lita, hvað heppilegast væri að gera, ef það reyndist vera heppi- legasta leiðin, að kalla saman slíka ráðstefnu, þá myndi brezka stjórnin ekki hika við þaÖ. Chamberlain var einnig spurður að því, hvort hann vissi nokkuð til þess, að Þýzkaland hefði nálg- ast Pólland til þess að ræða deilumálin Hann svaraði: „Ég hefi að svo stöddu enga vitneskju fengið um slikar tilraunir.“ Chamberlaln með hina heims- frægu regnhlíf sína. Og Litvinov, sá sem þegir. ðll Horðirlind við- urkenna Franco. Tilkynning frá ríkisstjórninn; 31. marz 1939: Að fengnum konungsúrskurði hefir stjórn Francos hershöfð- ingja í Burgos í dag verið til- kynt, að stjórn hans væri af ís- lands hálfu viðurkend sem lög- leg stjórn Spánar. Sams konar tilkynning mun stjórninni í Burgos einnig hafa borist frá stjórnum hinna Norb- prlandaríkjanna samkvæmt áður gerðu samkomulagi þeirra um að ákvörðun um viðurkenningu skyldi tilkynt Francostjórninni samtímis af hálfu allra Norður- landaríkjanna. Harald fiustafsson Harald Gustafsson fyrver- andi forstjóri Sænsk-íslenzka frystihússins, lézt í gær í sjúkrahúsi í Stokkhólmi. Gustafsson lét af störfum hér vegna vanheilsu. Meðan hann dvaldi hér ávann hann sér miklar vinsældir allra, sem honum kyntust. Hið ísl. prentarafélag. Aðalfundur félagsins verður haldinn á morgun í Kaupþings- salnum kl. 2 e. h. Þjóðverjar præta fyrlr all- ar árásarfyrirætlaiir. —----4---- Kalla yfirlýstngn Chamberlains óskiljanlega. LONDON í morgun. FÚ. ¥ TILEFNI af yfirlýsingu * Chamberlains í gær um aðstoð við Pólverja, ef á þá yrði ráðist, hefir hin opinbera þýzka fréttastofa gefið út yfirlýsingu. í yfirlýsingunni. sem gefin var út í gærkveldi, segir, að þessi yfirlýsing Chamberlains sé óskiljanleg með tilliti til þess, að Chamberlain skorti allar upplýsingar er sönnuðu, að fyrir dyrum stæði árás á Pól. land. Yfirlýsing Chamberlains hefði ekkert nýtt inni að halda, segir fréttastofan, að þetta væri ekki annað en ein hlægileg til- raun enn til að vekja óróa. End- urreisnarstarf Þýzkalands í MiS- Evrópu muni ekki verða truflað af slíkum ræðumannayfirlýs- ingum. Hitler mun í dag halda ræðu í Wilhelmshaven, er hleypt verð- ur af stokkunum öðru nýju or- ustuskipi, og er talið, að ræða hans muni að nokkru leyti verða svar við yfirlýsingu Chamberlains. Áherzla er lögð á það í Lon- don, að brezka stjórnin hafi ekki fengiö neinar ákveðnar upplýs- ingar um það, að Þýzkaland und- irbúi skyndilega aðför að Pól- landi, en náin athygli er þó veitt ýmsum augljósum stað- reyndum, svo sem árásum þýzku blaðanna á Pólland. Menn gera f DAG. Næturlæknir er í nótt Krist- ján Grímsson, Hverfisgötu 39, sími 2845. Næturvörður er í Laugavegs og Ingólfs apóteki. ÚTVARPIÐ: ^ 19,50 Fréttir. 20.15 Leikrit: „Lauffall“, eftir Sutton Vane (Indríði Waage, Alda Möller, Brynjólfur Jóhannesson. Gestur Pálsson, Valur Jóhannesson). 21,30 Danslög. Á MORGUN: Næturlæknir er Halidór Stefánsson, Ránargötu 12. sími 2234. Sunnudagslæknir er Gísli Pálsson, Laugavegi 15. sími 2474. ÚTVARPIÐ: 9,45 Morguntónleikar (plöt- ur): a) Fiðlukonsert í a-moll, eftir Bach. b) Píanókonsert nr. 3, eftir Beethoven. 10,40 Veð- urfregnir. 11 Messa í dómkirkj- unni. (Prédikun: Ólafur Ólafs- son kristniboði. Fyrir altari: Séra Friðrik Hallgrímsson.) 12.15 Hádegisútvarp. 15,30 Mið degistónleikar: a) Tríó Tónlist arskólans leikur. b) (16,10) Hljómplötur: Ýms lög. 17,20 Skákfræðsla Skáksambandsins. 17.40 Útvarp til útlanda (24,52 m.). 18,30 Barnatími: Ýmislegt frá Kína (frú Oddný E. Sen og börn hennar). 19,10 Veður- fregnir. 19,20 Hljómplötur: Smálög fyrir celló og fiðlu. 19.40 Auglýsingar. 19,50 Frétt- ir. 20,15 Erindi: Leitin að höf- undi Njálu, III. (Barði Guð- mundsson þjóðskjalavörður), 20.40 Hljómplötur: Haydn-til- brigðin, eftir Brahms. 21,10 Kirk j utónleikar 1 dómkirkj- unni: a) Orgelleikur (Páll Is- ólfsson). b) Útvarpskórinn syngur. 22,30 Dagskrárlok. Sjötiu og fimm ára er í dag María Ámundadóttir, Laugavegi 159 A. Hefir hún ennþá óbilaða sálarkrafta og sjón og gegnir heimilisstörfum enn í dag sem mörg undanfarin ár hjá tengdasyni sýnum,' Pétri Þórðar- syni, og tveim sonum hans. Gamanvísur þær, sem Alfreð Andrésson söng á árshátíð Hestamannafé- lagsins Fákur, verða sungnar að Baldurshaga kl. 3 e. h. á morgun. Revyan Fornar dygðir verður sýnd. á morgun kl. 2 e. h. sér einnig vel Ijóst í London, að helzta einkennið á innlimun Tékkóslóvakíu af hálfu Þýzka- lands var hin mikla skynding, sem höfð var á um innlimunina, og er því alment álitið, að j'fir- lýsing Chamberlains hafi átt að eyða öllum efa, sem fyrir kynni að vera um afstöðu Bretlands, áður en atburðarásin næði sama hraða og fyrir hálfum mánuði. Brezka stjórnin hefir síðustn daga staðið í nánu sambandi vií stjórn Bandaríkjanna, og yfirlýs- ing Chamberlains var tillíym stjórninni í Washington fyrii þingfundinn I gær.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.