Alþýðublaðið - 03.04.1939, Blaðsíða 4
MANUDAGINN 3. APRIL 1939.
HiGAIVILA Blö HH
íslan dskvib myndiu
sem Orlogskapteinn Dam
tók hér í fyrra sumar
verður sýnd tvisvar í
kvöld kl. 7,30 og 9,15.
Aðgöngumiðar (lækkað
verð) seldir frá kl. 4.
Fermingar-
hjdliO
verður að vera gott. Hin
viðurkendu
„ B A U E R “ ■
reiðhjól eru komin.
Léttari, sterkari, öruggari.
5 ára skrifleg ábyrgð fylg-
ir hverju hjóli.
Athugið að gera kaupin í
tíma, því að hirgðir eru
takmarkaðar. *
Laugaveg 8.
lagkvæm
Páskabanp
Bðbnnarvörnr, mibið
úrsal.
Páskaegg
étal stærðir,
lágt verð.
Páskagrænmeti
Hvitkál,
Rauðkál,
Selleri,
Gulrætur,
Rauðrdfur.
Tapast hefir barnaskinnhúfa,
merkt að innan: Didda. Skiiist á
Mánagötu 25. Simi 4364.
i skíðaferðir.
Ljúffenoir réttir
úr manneldisfiskimjölinu.
Fæst í xfz kg. pökkum í öll-
um matvöruverzlunum. —
Heildsölubirgðir hjá
Sími 5472.
Flnttur ú Bæjar-
bílastöðina!
Hér með tilkynnist viðskifta-
vínum mínum, að ég hefi nú
um mánaðamótin flutt frá Litlu-
bílstöðinni á Bæjarbílastöðina.
Hringið I síma 1395!
Fljót og góð afgreiðsla. Bílum
aðeins lofað, ef þeir eru við
hendina.
Reykjavík, 3. april 1939.
Magnús Magnússon.
Tðskuútsala.
Töskur litilshátt
ar gallaðar seld-
ar niðursettu
verði
maroar búifvirði
Bin margeftirspurðu Cig-
arettuveski og hinar vin-
sæiu hattðskjur
komnar aftur
í Hljóðfærahðsið.
Söngflokkur Alþýðuflokksfélags-
ins.
Samæfing í kvöld kl. 8V2 í
póstbúsinu. Mætið öll!
i púskamatinn
Mautakjot,
Hangikjðt,
Dilkakjðt.
Gerið páska-
kaupin tím-
anlega.
1 DA6.
Næturlæknir er í nótt Ölafur
Þ. Þorsteinsson, Mánagötu 4,
sími 2255.
Næturvörður er í Reykjavikur-
apóteki og Iðunni.
ÚTVARPIÐ:
18.15 íslenzkukensla.
18,45 Þýzkukensla.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfréttir.
19.35 Skíðamínútur.
19,50 Fréttir.
20.15 Um daginn og veginn.
20.35 Einsöngur (frú Elísabet
Einarsdóttir).
21,00 Húsmæðratími: Fjárráð
konunnar, II. (frú Aðal-
björg Sigurðardóttir).
21.20 Útvarpshljómsveitin leikur
alþýðulög.
22,00 Fréttaágrip.
Hljómplötur: Létt lög.
22.15 Dagskrárlok.
FRUMVARP TIL LAGA UM
GENGISSKRÁNINGU
Frh. af 1. síðu.
ar, ef þörf gerist. Enn fremur
skal nefndin meta leigu fyrir
ný hús. Nefnd þessi skal þannig
skipuð, að ríkisstjórnin tilnefni
tvo nefndarmenn, en hæstirétt-
ur þann þriðja, og sé hann for.
maður. Kostnaður við nefndina
g eiðist úr ríkissjóði.
Utan Reykjavíkur skulu fast-
eignamatsnefndir gegna þeim
störfum, sem um getur í þessari
grein.
8. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt ef
þurfa þykir, að setja með reglu-
gerðum nánari fyrirmæli um
framkvæmd þeirra mála, er í
lögum þessum getur.
9. gr.
Brot gegn lögum þessum og
reglugerðum, settum sam-
kvæmt þeim, varða sektum alt
að 10 000 kr., og skulu sektir
renna í ríkissjóð. Mál út af
slíkum brotum skulu sæta með-
ferð almennra lögreglmnála.
10 gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Alllöng greinargerð fylgir
frv., og er þar fyrst skýrt
frá rannsóknum þeim, sem milli
þinganefndin í sjávarútvegs-
málum hefir gert og sýnt fram
á hve slæm afkoma útvegsins
hefir orðið á undanförnum ár-
um. Segir þar m. a. að hagur
þeirra 32 togara, sem nefndin
hefir rannsakað, hafi í árslok
átt eignir, er samtals nema 18
millj. króna, en skulda á sama
tíma 17 V2 millj. króna umfram
hlutafé, stofnfé og varasjóði,
sem nema samtals 2.6 millj. kr.
Þá segir enn fremur í greinar-
gerðinni:
í frv. þessu er lagt til, að
breytt verði gengi íslenzku
krónunnar á þann hátt, að til
hagsbóta verði fyrir útflytjend-
ur íslenzkra afurða. Að vísu gat
verið um fleiri leiðir að ræða til
þess að bæta þeirra hag. For-
dæmi eru fyrir því hjá einstöku
öðrum þjóðum, að sú leið hefir
verið farin, að greiða verðupp-
bót úr ríkissjóði á einstakar út-
flutningsvörur. Ef sú aðferð
væri höfð hér, þyrfti að sjálf-
sögðu að afla fjár til þess með
nýjum tollum eða sköttum.
Beinir skattar, að viðbættum
útsvörum til bæjar- og sveitar-
félaga, eru nú orðnir miklum
mun hærri hér á landi en í ná-
lægum löndum. Það er því ekki
miklum vafa undirorpið. að
þess fjármagns, sem þurft hefði
að taka til þess að bæta upp
verð á útflutningsvörum lands-
manna, hefði að jlangmestum
hluta orðið að afla með almenn-
um óbeinum sköttum og tollum
á innfluttum vörum. Niðurstað-
an hefði því orðið mjög svipuð
að því er dýrtíðaraukningu
snertir, hvort sem sú leið var
farin eða verðgildi peninganna
breytt eins og hér er lagt til.
Enda þótt uppbótarleiðin hefði
verið valin, hlaut nauðsynlegur
stuðningur fyrst og fremst að
verða borinn uppi af sömu að-
iljum og gengislækkunin snert-
ir. En meðal annars vegna þess,
að innheimta á nýjum sköttum
og tollum svo milljónum króna
skifti, ásamt úthlutun styrkja
til útflytjenda, hlyti að verða
afarumfangsmikil og erfið í
framkvæmd, hefir sú leið verið
valin, sem farin er í þessu frv.
Breyting á verði íslenzku
krónunnar hefir í för með sér
skerðingu á peningaeign manna
að því er virðist, en þó má
benda á, að peningarnir eru því
aðeins nokkurs virði, að fram-
leiðslustarfsemin stöðvist ekki.
Þeir, sem taka föst laun fyrir
vinnu sína hjá fyrirtækjum rík-
is, bæja, félaga og einstaklinga,
verða einnig fyrir nokkurri
tekjurýrnun við gengisbreyt-
inguna, þar sem gert er ráð fyr-
ir, að laun þeirra verði, með
undantekningum þó fyrir þá
allra lægst launuðu, óbreytt að
krónutali, en vel má þeim
mönnum vera ljóst, að ef fram-
leiðslustarfsemin hrynur í rúst-
ir, verða litlir möguleikar til að
greiða laun fyrir að starfa að
öðrum viðfangsefnum. Ríkið
eða aðrar stofnanir myndu ekki
til lengdar, þegar svo væri
komið, geta int af höndum
launagreiðslur né aðrar útborg-
anir. Verzlun og iðnaður hlyti
að dragast mjög saman, ef út-
flutningsframleiðslan minkar
frá því, sem þegar er orðið, þar
sem um leið hlyti að taka fyrir
innflutning á verzlunarvörum
og hráefnum til iðnaðarins. Hér
ber því alt að sama brunni.
Framleiðslustarfsemin er sá
grundvöllur, sem öll þjóðfélags-
byggingin hvílir á. Ef hún
stöðvast, er vá fyrir dyrum.
Eigi aðeins hjá þeim mönnum,
sem beinlínis hafa unnið að
framleiðslunni, heldur einnig
hjá öllum hinum.
Eins og rakið hefir verið að
nokkru, eru ráðstafanir þær,
sem hér eru gerðar til þreytinga
á verðgildi íslenzku krónunnar,
fyrst og fremst gerðar vegna
framleiðslunnar í landinu, til
þess að auka útflutninginn og
örva atvinnulífið. Þegar velja
átti um leiðir að þessu marki,
kom það að sjálfsögðu til álita,
hvaða leið væri jafnframt lík-
legust til þess að hafa fljótvirk
áhrif til bóta á gjaldeyrisverzl-
unina, sem hefir verið mjög erf-
ið að undanförnu. Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja, að
vegna þeirra erfiðleika, sem
steðjað hafa að þjóðinni um
skeið, hefir eftirspurn eftir er-
lendum gjaldeyri inn mörg und-
anfarin ár verið meiri en hægt
hefir verið að fullnægja, enda
þótt ráðstafanir hafi verið gerð-
ar til að draga úr innflutningi
og auka útflutning. Ef verði er-
lenda gjaldeyrisins hefði ekki
verið haldið föstu að vuidan-
förnu, með einkasölu gjaldeyr-
isins, hefði hann vafalaust ver-
ið stiginn í verði, eða m. ö. o. ís-
lenzka krónan fallin. Allar þjóð
ir reyna að halda peningagildi
sínu sem stöðugustu, annað
hvort með viðskiptahömlum
eða með gengisjöfnunarsjóðum,
þar sem gjaldeyrisverzlunin er
frjáls. Það er alviðurkennt, að
æskilegt sé, að gengissveiflur
séu sem minnstar og sjaldgæf-
astar. En það raskar því ekki,
að þegar til lengdar lætur, er
ákaflega örðugt, og raunar ó-
kleift, að halda við gengisskrán-
ingu, sem er mjög fjarri því
verði, sem gjaldeyririnn yrði
seldur í frjálsum viðskiptum.
Undir þeim kringumstæðum er
afarerfitt að koma í veg fyrir
ólöglega gjaldeyrisverzlun og
fjárflótta.
Þau atriði, sem hér hafa verið
nefnd, og önnur, sem hér eru
eigi rakin, hafa átt mjög veru-
legan þátt í því, að lagt er til,
að einmitt sú leið verði farin
til þess að styðja framleiðslu
landsmanna, að breyta verðgildi
krónunnar. Það má segja með
miklum rétti, að í þessum ráð
stöfunum felist í raun og veru
aðeins viðurkenning á þeirri
staðreynd, að erlendur gjaldeyr-
ir hefir undanfarin ár verið
seldur þeim landsmönnum, sem
hann hafa þurft að nota, all-
verulega undir verði, ef miðað
er við frjálsa sölu.
Enda þótt nauðsynlegt sé að
gera þær ráðstafanir, sem frv.
þetta gerir ráð fyrir, til stuðn-
ings útflutningsframleiðslunni,
á þann háft að breyta verðgildi
íslenzku krónunnar, getur alls
ekki talizt fært að gefa frjálsa
verzlun með gjaldeyri, eins og
sakir standa, og er nauðsynlegt
að koma í veg fyrir frekari
röskun á verðgildi peninganna.
Verður að gera öflugar ráðstaf-
anir til þess að halda þeirri
gengisskráningu til frambúðar,
sem í þessu frumvarpi er lagt til
að verði ákveðin.
í frv. er ákvæði um, að ef
meðaltalsframfærslukostnaður
í Reykjavík hækkar fyrir 1.
júlí 1939 um meira en 5% frá
því, sem er fyrir gildistöku
laganna, þá hækki kaupgjald
verkamanna, sjómanna, svo og
kaup þeirra fastlaunaðra fjöl-
skyldumanna í þjónustu ríkis-
ins, bæjarfélaga, sveitarfélaga
00 einstaklingsfyrirtækja, sem
hafa undir 3600,00 í árstekjur
í Reykjavík og tilsvarandi lægra
annarsstaðar á landinu, um
HÓTEL BORG
Nnnið
danssjníngnna 1 kvðld.
Opiðf kvðld
og næsta
kvðld.
I. O. G. T.
ÍÞAKA. Fundur annað kvöld. Br.
Friðrik Björnsson flytur erindi.
Auglýsið í Alþýðublaðinu!
helming þeirrar hækkunar,
sem orðið hefir á framfærslu-
kostnaðinum, þar til hækkunin
hefir numið'10%, en síðan um
% af því, sem hækkunin kynni
að verða umfram þann hundr-
aðshluta. Þykir sjálfsagt að
mæta eftir því sem fært er,
gengislækkuninni með launa-
uppbótum að því er þessar
stéttir varðar, sem þegar hafa
orðið fyrir töpum vegna mink-
andí atvinnu. Og þó gengis-
lækkuninni verði ekki mætt að
fullu með beinni kauphækkun,
verður að gera ráð fyrir því, að
ráðstafanir þær, sem gerðar eru
með frv. þessu, verði til þess að
tryggja atvinnureksturinn og
auka atvinnuna, þannig, að
heildartekjur verkamaana og
E3Si NÝJA BIÚ m
Ósýnulegu
geislarnir
Dularfull og hrjkalega
spennandi amerísk kvik-
mynd frá Universal Film,
þar sem ýmsir stórfengleg-
ir framtíðardraumar vís-
indanna eru gerðir að
veruleika. Myndin er
„tekniskt“ snilldarverk og
aðalhlutverkið frábærlega
vel leikið af sérkennileg-
asta „karakter“-leikara
nútímans
BORIS KARLOFF.
Aðrir leikarar eru: Bela
Lugasi, Violet Cooper o.fl.
Börn fá ekki aðgang.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
sjómanna verði sízt minni en
verið þefir, miðað við fram
færslukostnað. T. d. má telja
víst, að ef frv. nær fram að
ganga, fari allur togaraflotinn á
síldveiðar á komandi sumri,
sem sennilega hefði annars orð-
ið að liggja í höfn. Hinsvegar
er í frv. gert ráð fyrir, að þessar
stéttir fái eigi á tímabilinu tií
1. apríl 1940 aðra kauphækkun
en þá, sem í frv. segir, um leið
og jafnframt er fyrirbyggt, áð
kauphækkun verði á sama tíma
hjá hinu betur launaða fóiki.
N áttúrulækningaí élagið.
Jónas Kristjánsson læknir flyt-
ur fyrirlestur í Varðarhúsinu kl.
8V* í kvöld.
Móðip min,
ANMA GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist þ. 2. p. m.
Friðbjðrn Aðalsteinsson.
V. K. F. Framsókn
heldur fund þriðjudaginn 4. apríl kl. 8V2 í Alþýðuhusinu
við Hverfisgötu.
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Ingimar Jóhannesson kennari skýrir frá störfum
barnaheimilisíns Vorboðans.
Konur, fjölmennið og mætið stundvíslega.
Stjómin.
SKÍÐAFÉLAG REYKJAVÍKUR.
SkUakviknvid
Birger Ruuds skíðakvikmyndin verður sýnd í kvöld kl. 7
e. h. í Nýja Bíó.
Aðgöngumiðar seldir hjá L. H. Múller í dag.
Verð 1 króna.
Páskaskór
Karlmannaskór frá kr. 17.75.
Barna* og unglingaskór. —
Kaupið páskaskóna fi —
Skóverzlun B. Stefánssonar.
Laugaveg 22 L Sími 3628.