Helgarpósturinn - 17.03.1988, Qupperneq 2
Er Bylgjan búin
að vera?
Páll Þorsteinsson útvarpsstjóri
„Við erum búnir að vera í eitt og hálft ár og erum að sjálf-
sögðu komnir til að vera. Það þarf enginn að efast um það."
Það er enginn titringur í ykkur vegna hlustendakönn-
unarinnar?
„Þetta em auðvitað verri niðurstöður en við hefðum vilj-
að sjá, en við gefumst ekkert upp. Við erum svo helvíti
bjartsýn og seig og það þýðir auðvitað ekkert að sitja
heima og lesa. Nú verður kýlt á hlutina, það er sóknarhugur
í okkar fólki."
Hvernig er að taka við stjórastöðunni undir þessum
erfiðu kringumstæðum? Bylgjan hefur ekki komið svona
illa út í skoðanakönnun frá upphafi.
„Að sumu leyti er þetta mjög gott. Þetta gefur mér gott
tækifæri til að byrja með hreint borð. Ég hefði að vísu getað
hugsað mér, í mínum villtustu dagdraumum, þægilegri
fyrsta dag í nýju starfi, en það eru ekkert nema villtir dag-
draumar. Veruleikinn er alltaf annar."
Nýlega gengu fjallháar sögur um sameiningu Bylgj-
unnar og Stjörnunnar, hvað var þar á ferðinni?
„Já, þetta voru skemmtilegustu sögur. Menn hafa verið
að dunda sér við að segja hver öðrum ýmsar útgáfur af
þessari sögu. Ég er búinn heyra þær margar. En þarna var
einungis fólk úti í bæ að leika sér að því að para þessa tvo
feitu gelti saman, án þess að þeir sjálfir vissu af því."
Hvaða „sórverkefni" er Einar Sigurðsson kominn f? Er
hann að telja kindur? Þetta er mjög dularfullt, finnst þér
ekki?
„Jú, þetta erfrekar dularfullt, ég viðurkenni það. Einar er
að kanna ný svið skulum við segja... Ég get ekki sagt þér
meira..."
Líturðu á hlustendakönnunina sem dóm yfir dagskrá
sem stundum hefur verið kölluð síbylja?
„Ef það er síbylja á Bylgjunni, þá er síbylja á Stjörnunni,
rás tvö, þú getur líka heyrt síbylju á rás eitt... Viltu að ég
haldi áfram ... ? Ef fólk vill gefa músíkútvarpi uppnefnið sí-
bylja þá er það gott og vel. Það er svona álíka og að kalla
fólkiðsem vinnur á þessum stöðum „glymskratta" ... sem
mérfinnst reyndar miklu skemmtilegra starfsheiti en „Ijós-
víkingur". „Glymskratti", það er eitthvað „orginalt" við
það."
En hvað gerist með Ljósvakann í þessu Ijósi, stendur
kannski til að sameina stöðvarnar?
„Það er alltof snemmt að dæma Ljósvakann. Hann hefur
aðeins verið starfandi í nokkra mánuði og það eru ekki
nema tveir sólarhringar síðan þessi könnun var birt. Hér er
allt í fullum gangi að spá í stöðuna og það eru allar leiðir
opnar til að snúa vörn í sókn."
Verða einhverjar meiriháttar breytingar á dagskrá
Bylgjunnar á næstunni?
„ Já, það eru breytingar á döfinni. Ég vil h ins vegar ekkert
láta í Ijós. Fólk verður bara að bíða spennt, þetta kemur allt
fram á eff emm 98,9,95,7 og 100,9. Ég ráðlegg öllu forvitnu
fólki að hlusta, hinkra örlítið við og taka síðan vel eftir. Við
eigum fullt af trompum uppi í erminni sem bráðum verður
spilað út."
Hver er uppáhalds „glymskratti" Páls Þorsteinssonar?
„Það er maður í Bretlandi sem ég held mikið upp á. Hann
heitir Simon Bates. Sá maður hefur hljóðfæri af guðsnáð,
hreint ótrúlega rödd. Það er eins og að hlusta á músík að
heyra hann tala. Ég hef óskaplega gaman af röddum og
velti þeim mikið fyrir mér."
Var ekki kampavín á þínum fyrsta útvarpsstjóradegi,
eins og á sama tíma á Stjörnunni?
„Það var kampavín á mínu fyrsta kvöldi skulum við
segja. Við notuðum daginn betur til að vinna. Ég er fullur
bjartsýni og það sama gildir um samstarfsfólk mitt. Það
hefur verið mjög ánægjulegt að taka við stjóminni þegar
ég finn hvað mikill hugur er í fólkinu, hvað það vill leggja
á sig. Nú eru allar leiðir upp á við!"
Páll Þorsteinsson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri Bylgjunnar og
Ljósvakans í stað Einars Sigurðssonar sem settur hefur veriö í
„sérverkefni" á vegum Útvarpsfélagsins. — Páll var áður dag-
skrárstjóri sömu útvarpsstöðva. — Nýlega var birt könnun Félags-
vísindastofnunar á útvarphlustun landsmanna og kemur Bylgjan
þar í fyrsta skipti illa út og nýtur minni h lustunar en aöalkeppinaut-
amir, rás 2 og Stjarnan. Ljósvakinn geldur nánast afhroð. Páll má
því taka á honum stóra sínum.
FYRST OG FREMST
STJÓRNIN — Standandi frá vinstri: Kristmann Magnússon, Ólafur B. Thors, Hörður Sigurgests-
son, Öm Johnson, Þorgeir Baldursson, Magnús Hreggviðsson, Indriði Pálsson, Gísli V. Einarsson, Sverrir
Bemhöft, Júlíus S. ólafsson, Eggert Hauksson, Halldór Jónsson, Þorvaldur Guðmundsson.
Sitjandi frá vinstri: Einar Sveinsson, Kristinn Bjömsson, Ólafur ó. Johnson, Jóhann J. Ólafsson, Sigurður
Helgason, Vilhjálmur Egilsson, Sigvaldi Þorsteinsson.
Aðrir menn úr aðalstjóm eru: Ragnar S. Halldórsson, Ólafur B. ólafsson, Gunnar Ragnars, Jón Hjaltason
og Kristján Jóhannsson.
KARLAVIGIN eru greinilega
ekki öll fallin, þrátt fyrir sigur-
göngu Kuennalistans í skoðana-
könnunum að undanförnu. (Nema
þarna sé skýringin á velgengninni
kannski einmitt lifandi komin!)
Meðfylgjandi mynd af nýkjörinni
stjórn Verzlunarráös íslands, sem
birtist um daginn í viðskiptablaði
Moggans, sýnir t.d. að þar á jafn-
réttið enn langt í land. Ekki ein
einasta kona á sæti í stjórninni.
Gefur þarna að líta tóma karla,
langflesta klædda í hinn klassíska
einkennisbúning; dökk jakkaföt,
hvíta skyrtu og dökkt bindi. Um
helgina birti Mogginn líka auglýs-
ingu frá SUS með myndum af
sextán forystumönnum ungra sjálf-
stæðismanna. Einungis tvær
konur í því liði! Og fyrst á annað
borð er farið út í þessa sálma má
velta því fyrir sér hvers vegna
engin kona á lag í Eurovision-
keppninni á þessum upplýstu
jafnréttistímum.
ÍDANAVELDI er til mikill
bókaklúbbur sem heitir Gyldendal
og í nýlegu fréttabréfi frá
klúbbnum sem HP hefur borist
vekur athygli löng grein eftir þing-
manninn, fyrrverandi ráðherrann
og núverandi varaformann danska
jafnaðarmannaflokksins, Ritt
Bjerregárd. Það eru að sjálfsögðu
ekki tíðindi að greinar birtist í
blöðum og bókum eftir þvíumlíkar
persónur, nema hvað þessi grein
er ítarleg úttekt á nýjustu hljóm-
plötu Bruce Springsteen, sem
heitir Tunnel of Love. Bjerregárd
þessi var áður menningarmálaráð-
herra Dana en sá þáttur þjóðlífsins
fellur eins og kunnugt er undir
menntamálaráðherra hér á Islandi.
Líklegast myndi þó landanum
bregða ef Bókaklúbbur AB birti í
fréttabréfi sínu ítarlega grein eftir
Sverri Hermannsson um nýjustu
plötu Bowies, þó ekki væri nema
grein um textagerð Bubba eða
Megasar...
MÖNNUM er enn í fersku
minni koma vopnaflutninga-
vélarinnar frá Southern Air Trans-
port hingað til lands í janúar en
það flugfélag stendur í nánum
tengslum við CIA. Við rákumst á
auglýsingu frá félaginu í flug-
tímaritinu Flight International á
síðasta hausti þar sem þeir
auglýsa undir kjörorðinu: „Meira
flutningsrými þegar þú þarft á því
að halda." f auglýsingunni kemur
fram að þeir fást til þess að taka
að sér ýmiss konar leiguflug. Það
skyldi þó aldrei vera, að þeir
hefðu fengið flugið fræga, þegar
þeir millilentu í Keflavík, út á
þessa auglýsingu?
MORE CflRGO SPACE
WHENYOUNEEDIT
Remole Ummproved Site Delivetv
24 Hour Availability
Outsi2e Umque Cargo Capabilities
Dnve On Contamenzed or Bulk Loading
SOUTHERHAIR TRAIMSPORT
Miami International Airport
800-327-6456 • 305-871 5171 • Telex 51-8856 • SITA MIAOOSJ
LokSINS, LoKSINS.
NllTÍhFWKlTEKTllR
HELGARPÚSTURINN UMMÆLi VIKUNNAR
Samningana út og suður Trylltra Ijóna temjari treystir kærleiksbandið, farandsáttasemjari í sirkusferð um landið. Niðri „Þjóöin öll og þá sérstaklega landsbyggöarmenn standa nú á tímamótum og Ijóst er að fjöldi þeirra hugsar margt." GUNNAR HILMARSSON, SVEITARSTJÓRI Á RAUFARHÖFN, 1 KJALLARAG REIN f DV 16. MARS.
2 HELGARPÓSTURINN